Morgunblaðið - 31.05.1994, Page 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BÆJAR- OG SVEITARSTJÓRIMARKOSNINGAR 1994
við fulltrúa sjálfstæðisflokks hefðu
farið af stað á sunnudag til að kanna
grundvöll til meirihlutasamstarfs en
fulltrúar H-listan hefðu ekki haft
samband við aðstandendur S-listans
til að óska eftir slíkum viðræðum.
Samkomulag D-lista og S-lista lá svo
fyrir í gær um myndun meirihluta.
Guðbjörn Arngríms-
son oddviti H-lista
Tiltölu-
lega sáttur
„VIÐ erum tiltölulega sátt við þessi
úrslit. Við höldum nokkurn vegin því
sem við höfðum og höldum okkar
þremur mönnum inni,“ segir Guð-
björn Arngrímsson, efsti maður á
H-lista, vinstri manna og óháðra á
Ólafsfirði.
Guðbjörn sagði að að S-listinn
væri nú í lykilaðstöðu í viðræðum
um myndun nýs meirihluta á Ólafs-
firði. Hann sagðist hafa heyrt í frétt-
um að S-listi og D-listi hefðu byijað
strax á kosninganótt að ræða saman
um samstarfsmöguleika í bæjar-
stjórn en fulltrúar þessara lista hefðu
hins vegar ekkert samband haft við
aðstandendur H-listans. „Við höfum
ekki haft frumkvæði að slíkum við-
ræðum. Við hefðum trúlega farið af
stað en þegar við heyrðum af þessum
viðræðum þá ákváðum við að bíða
og sjá hvað verður úr þessu,“ sagði
Guðbjöm. í
Dalvík
Trausti Þorsteins-
son oddviti D-lista
Mikil von-
brigði
„NIÐURSTAÐAN veldur okkur
miklum vonbrigðum,“ segir Trausti
Þorsteinsson, efsti maður D-listans
á Dalvík en meirihluti Sjálfstæðis-
flokks og jafnaðarmanna féll í kosn-
ingunum á laugardag þegar D-listinn
missti einn bæjarfulltrúa.
„Við gerum okkur ekki grein fyrir
hvaða ástæður eru fyrir J>ví að við
misstum þennan mann. Ég held að
öllum sem þekkja til sveitarstjórnar-
mála sé ljóst að staða mála hefur
verið mjög góð á Dalvík. Það hefur
verið öflugt atvinnulíf hérna þrátt
fyrir samdrátt í kringum okkur og í
fiskvinnslunni. Fjárhagsstaða bæjar-
sjóðs er mjög traust þannig að við
áttum okkur ekki alveg á því hvað
það er sem íbúamir sjá ástæðu til
að gera með öðrum hætti,“ sagði
Trausti.
Hann sagði að þreifíngar væm
þegar byijaðar á milli B-lista og I-
lista um meirihlutasamstarf. „Við
höfum sagt að okkur finnist úrslit
kosninganna gefa það til kynna, að
þessi tvö framboð eigi að hafa fmm-
kvæði í meirihlutamyndun. Okkur er
í raun og vem hafnað og sagt að
draga okkur til hlés,“ sagði Trausti.
Kristján Ólafsson
oddviti B-lista
Unnum
stórsigur
KRISTJÁN Ólafsson, efsti maður á
B-lista framsóknarmanna á Dalvík,
segist vera mjög ánægður með úrslit
kosninganna fyrir B-listann. „Ég tel
að við höfum unnið stórsigur með
því að fá 390 atkvæði og þrjá menn
kjöma,“ segir hann.
„Það sem hefur ráðið úrslitum
fyrir okkur í kosningabaráttunni á
Dalvík var að við vomm með iítinn
áróður. Við vomm málefnaleg í mál-
Jlutn.ingi. _Pg . settum fram __skýra.
stefnuskrá en létum fólk í friði og
höfðum gott og frambærilegt fólk á
listanum," sagði Kristján.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og
jafnaðarmanna féll í bæjarstjórn
Dalvíkur í kosningunum. Kristján
sagði að fulltrúar B-listans hefðu
komið saman strax síðdegis á sunnu-
dag til að ráða ráðum sínum um þær
viðræður sem framundan væm um
myndun meirihluta í bæjarstjóm.
Hann sagðist ekki vilja útiloka neina
samstarfsmöguleika fyrirfram.
„Meirihlutinn féll og það em skilaboð
til sjálfstæðismanna um meirihluta-
samstarf en það er þó ekkert útilok-
að enn sem komið er,“ sagði Kristján.
Akureyri
Sigríður Stefánsdótt-
ir oddviti G-lista
Besta út-
koma frá
upphafi
SIGRÍÐUR Stefánsdóttir, efsti mað-
ur G-listans á Akureyri, segir að
Alþýðubandalagið hafi náð sinni
bestu kosningu í kosningunum á
laugardag frá því að flokkurinn bauð
fyrst fram á Akureyri. „Við emm
mjög ánægð með það, miðað við það
að við höfum verið hér í meirihluta
á mjög erfiðum tímum í atvinnulíf-
inu. Aftur á móti hefðum við viljað
fá aðeins meira þannig að það dygði
okkur til að fá þriðja bæjarfulltrú-
ann,“ sagði hún.
Sigríður sagði að Framsóknar-
flokkurinn nyti þess að hafa verið í
minnihluta í bæjarstjóm Akureyrar
og í stjórnarandstöðu á Alþingi og
það hefði haft einhver áhrif á fylgis-
aukningu hans.
Hún sagði að viðræður um rneiri-
hlutasamstarf væm byijaðar á milli
Framsóknarflokks og Alþýðuflokks.
„Við verðum bara að sjá hvað kemur
út úr því. Við sögðumst ganga
óbundin til kosninga og höfum lýst
því yfir að við værum í sjálfu sér
tilbúin til viðræðna um allt en á
meðan þessar viðræður standa yfir
hreyfum við okkur ekki á meðan,"
sagði Sigríður.
Sigurður J. Sigurðs-
son oddviti D-lista
Erum í
biðstöðu
„VIÐ misstum mann yfir til fram-
sóknar en í kosningabaráttunni
stilltu þeir Jakob Björnssyni upp sem
bæjarstjóraefni. Þar sem fyrrverandi
minnihluti hefur fengið 6 menn sam-
tals, finnst mér ofur eðlilegt að þeirra
fyrstu viðbrögð verði að kanna þann
möguleika að búa til meirihluta með
Jakob Björnsson sem bæjarstjóra,"
segir Sigurður J. Sigurðsson, efsti
maður á D-lista sjálfstæðismanna í
bæjarstjóm Akureyrar.
Sigurður sagði að sjálfstæðismenn
hefðu ekki stöðu til annars en að
bíða og sjá hveiju fram vindi. „Við
erum reiðubúnir til viðræðna við
hvem sem er í sambandi við meiri-
hlutasamstarf en við höfum enga
stöðu til að bjóða," sagði hann.
Um ástæður fylgistaps sem Sjálf-
stæðisflokkurinn varð fyrir sagði
Sigurður að Sjálfstæðisflokkurinn
virtist hafa tapað á landsvísu í kosn-
ingunum. „í öðru lagi held ég að
Akureyringar hafi tekið undir þann
áróður sem beitt var í Reykavík um
breytingar. Svo hefur verið atvinnu-
leysi á svæðinu og verið talað um
að sveitarstjómir geri ekki nægjan-
lega mikið í atvinnumáluin en á
móti kemur að Aþýðubandalagið,
sem var með okkur í meirihlutasam-
starfi, bætir við sig verulegu fyígi.
Ég get því ekki séð að menn séu 5
sjálfu sér mjög ósáttir við störf frá-
farandi meirihluta. Við lentum í
nokkrum hremmingum í tengslum
við prófkjör okkar í vetur og það
_kann_.að _vera_ að_það Jhafí, enn_ haft.
einhver áhrif,“ sagði Sigurður.
Gísli Bragi Hjartar-
son oddviti A-lista
Atvinnu-
w mm
höfðu áhrif
„VIÐ fengum ekki eins mikið fylgi
eins og ég vildi fá, það var þó meira
en skoðanakönnun gaf okkur og
nákvæmlega eins og Akureyringar
vildu hafa okkur,“ segir Gísli Bragi
Hjartarson, efsti maður á A-lista
Alþýðuflokksins í bæjarstjómarkosn-
ingunum á Akureyri.
„Auðvitað spila atvinnumálin hér
inn í alla umræðuna og það virðist
vera að fólk hafi álitið að ástandið
væri sjálfstæðismönnum frekar að
kenna þrátt fyrir að Alþýðubanda-
lagið hafí verið meira með þá mála-
flokka sem snúa að atvinnumálum,"
sagði hann. Gísli sagðist einnig telja
að aðild Sjálfstæðisflokksins að ríkis-
stjóm hefði haft áhrif á að sjálfstæð-
ismenn misstu mann yfír til Fram-
sóknarflokks á Akureyri.
Gísli sagði að þreifingar um mynd-
un nýs meirihluta í bæjarstjóm hefðu
byrjað stráx á sunnudag. „Við erum
í viðræðum við framsókn núna um
hvort við gætum náð saman um
myndun nýs meirihluta. Það er enn
bara á byijunarstjgi," sagði hann.
Gísli sagði að ástæðulaust væri að
hraða viðræðunum en sagði að flokk-
amir myndu skoða þá punkta sem
settir hefðu verið fram í rólegheitum.
„Á þessu augnabliki sé ég ekki ann-
að en hægt væri að ná saman en
það hefur ekki enn á það reynt,“
sagði hann.
Jakob Björnsson,
oddviti B-lista
Stóðumst
inntöku-
prófið
JAKOB Bjömsson, efsti maður á
B-lista og bæjarstjóraefni framsókn-
armanna á Ákureyri, segist þakka
þann sigur sem B-listinn vann í
bæjarstjómarkosningunum að fram-
sóknarmenn hefðu boðið fram sterk-
an framboðslista og verið með mál-
efnalegan og trúverðugan málflutn-
ing í kosningabaráttunni.
„Það hefur tekist að efla áhuga
fólks og það var mjög ánægjulegt
að kosningaþátttakan jókst verulega
miðað við kosningarnar fyrir fjórum
ámm. Þetta var í fyrsta skipti sem
stillt er upp pólitísku bæjarstjóraefni
og það kallar á betri vinnubrögð.
Við stóðumst inntökuprófið þokka-
lega, nú byijar skólinn og síðan verð-
ur útskrift eða brottrekstur eftir fjög-
ur ár,“ sagði Jakob.
Könnunarviðræður hófust strax á
sunnudag á milli framsóknarmanna
og Alþýðuflokksmanna um hugsan-
legt meirihlutasamstarf í bæjarstjóm
Akureyrar. Jakob sagði viðræðumar
konar vel á veg. „Við förum í þessar
viðræður í fullri alvöru og af heilind-
um og það hefur ekkert komið upp
sem bendir til annars en að við náum
saman, en það er enn of snemmt að
gefa endanlega yfirlýsingu um það,“
sagði Jakob.
Neskaupstadur
Guðmundur Bjarna-
son oddviti G-lista
Glæsileg
niðurstaða
„ÞETTA var glæsileg niðurstaða fyr-
ir okkur.“ segir Guðmundur Biarna-
son, bæjarstjóri í Neskaupstað en þar
jók G-listi Alþýðubandalagsins meiri-
hlutafylgi sitt í sveitarstjómarkosn-
ingunum um helgina og bætti við sig
manni, fékk 6 fulltrúa kjöma.
Guðmundur sagði að góð málefna-
leg staða Alþýðubandalagsins hefði
ráðið mestu um fylgisaukningu
flokksins. „Menn meta okkur af verk-
unum og treysta því fólki sem við
bjóðum fram betur en öðrum til að
vinna að hagsmunamálum sveitarfé-
lagsins,“ sagði hann.
Að sögn Guðmundar er G-listinn
í Neskaupstað með hærra atkvæða-
hlutfall en nokkur annar listi fékk í
kaupstöðum í kosningunum á laugar-
dag eða 57,4%.
Á þessu kjörtímabili verða liðin
50 ár frá því að Sósíalistaflokkurinn,
forveri Alþýðubandalagsins vann
meirihluta í Neskaupstað, en það
átti sér fyrst stað árið 1948 og hefur
flokkurinn haldið þessum meirihluta
allar götur síðan. Þetta er í þriðja
sinn á þessu tímabili sem Alþýðu-
bandalagið hefur náð að fá 6 bæjar-
fulltrúa kjörna í Neskaupstað en
áður gerðist það í kosningum árið
1950 og 1974. Að sögn Guðmundar
hefur flokkurinn sennilega aldrei
fengið jafn hátt atkvæðahlutfall og
í kosningunum um helgina.
Vestmannaeyjar
Guðmundur Þ. B.
Ólafsson oddviti
V-lista
Vinsæll
bæjar-
stjóri réð
úrslitum
„ÞVÍ er ekki að neita að við erum
mjög svekkt yfir þessum úrslitum,"
sagði Guðmundur Þ.B. Olafsson,
efsti maður á V-lista, sameiginlegu
framboði Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Framsóknarflokks í
Vestmannaeyjum, sem hlaut 2 bæj-
arfulltrúa af sjö.
„Við vorum að reyna hér nýjar
leiðir og metum það að þetta er það
sem fólkið vill og við því er ekkert
að gera. Þetta búum við við í lýðræð-
isríki, að fólk segir sína skoðun í
kosningum og við verðum bara að
taka því en við héldum að við hefðum
málefni og frambjóðendur sem gæfu
tilefni til annarrar og betri niður-
stöðu fyrir okkur. Þrátt fyrir að það
hafi ekki tekist í þetta sinn var mik-
ill hópur af fólki sem lagði okkur lið
og það stendur kannski upp úr á
svona stundu að þakka því fólki fyr-
ir mjög gott starf.“
Aðspurður af hveiju hann teldi að
málflutningur V-listans hefði ekki
fengið hljómgrunn í bænum sagðist
Guðmundur telja að Sjálfstæðis-
flokknum hefði eina ferðina enn tek-
ist að setja upp sinn málflutning í
kringum eitt atriði. „í þessu tilfelli
var það í kringum Guðjón Hjörleifs-
son, sem hefur náð til fólks sem vin-
sæll bæjarstjóri og mér sýnist að
barátta þeirra með það eitt að leiðar-
ljósi að Guðjón yrði áfram bæjar-
stjóri hafí skilað sér,“ sagði Guð-
mundur Þ.B. Ólafsson, efsti maður
á V-lista i Vestmannaeyjum.
Georg Þ. Kristjáns-
son oddviti H-lista
Sérstakur
sigurfyrir
Guðjón
„ÞETTA er meiriháttar árangur sem
ég þakka góðu starfi góðra sam-
starfsmanna. Þetta hlýtur að vera
hrós fyrir það starf sem ég er búinn
að vera að vinna á undanförnum
árum fyrir bæjarfélagið," sagði Ge-
org Þór Kristjánsson, fyrsti maðuij á
H-listanum í Vestmannaeyjum,
klofningsframboði frá Sjálfstæðis-
flokknum. Georg hlaut kosningu í
bæjarstjóm. Hann sagði að sér þætti
miður að hafa ekki náð að komast
í oddaaðstöðu í bæjarstjóminni eins
og að hafði verið stefnt.
„Ég hlýt að verða einn af minni-
hlutamönnunum og mun starfa eftir
því í þágu bæjarfélagsins og taka á
hveiju máli fyrir sig,“ sagði Georg
aðspurður um hvernig hann hygðist
haga starfi sínu í bæjarstjórn. Hann
kvaðst ekki mundu leita eftir sam-
starfi við meirihluta sjálfstæðis-
manna eða leita inngöngu í Sjálf-
stæðisflokkinn að nýju. „Eg og mitt
fólk munum vinna áfram að því starfí
sem við emm búin að byggja upp.
Sjálfstæðisflokkurinn kemur það
sterkt út úr kosningunum að hann
hlýtur að spjara sig einn. Þetta er
sérstakur persónulegur sigur fyrir
Guðjón Hjörleifsson en ekki sigur
Sjálfstæðisflokksins,“ sagði Georg
og kvaðst telja skýringuna þá að
Guðjón væri prýðismaður sem hefði
gengið vel og væri vel þokkaður, og
hefði haft sterkt batterí á bak við sig.
„Við byijuðum frá grunni og okk-
ar árangur byggist á starfi sem er
búið að standa í 6 vikur. Okkar
árangur hlýtur því að vera stórkost-
legur, sérstaklega ef miðað er við
vinstri flokkana þar sem þrír flokkar
sameinuðust í samstarfí með þijú
batterí á bak við sig en okkar fá-
menni hópur náði þessum glæsilega
árangri," sagði Georg Þór Kristjáns-
son.
Guðjón Hjörleifsson
oddviti D-lista
Vinstri
menn töp-
uðu 11%á
samein-
ingu
„VIÐ höfðum sterka málefnalega
stöðu og höfum rekið markvissa
kosningabaráttu auk þess sem þetta
er sá dómur sem fólk er að leggja
yfir mín störf á kjörtímabilinu. Þau
hafa greinilega verið farsæl og Eyja-
menn treysta mér til að vera áfram
í þessu,“ sagði Guðjón Hjörleifsson,
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sem
var í baráttusæti D-listáns, sem
tryggði áframhaldandi meirihluta
sinn í bæjarstjórninni.
Guðjón sagði, að ef lagt væri sam-
an fylgi D-listans og klofningsfram-
boðs H-listans hefðu sjálfstæðismenn
rúmlega 67% fylgi meðal kjósenda í
Vetmannaeyjum. „Þannig að með
sameiningunni hafa vinstri menn
tapað 11% af sínu fylgi, sem er at-
hyglisverð andstæða við R-listann í
Reykjavík," sagði Guðjón og kvaðst
telja skýringuna á útreið vinstri
flokkanna annars vegar ákveðna
óánægju með hið sameiginlega fram-
boð auk þess sem málefnastaða sjálf-
stæðismanna hefði verið mjög góð.
„Ég tel einnig að kosningabarátta
þeirra hafi ekki verið nógu málefna-
leg. Hún byggðist um of á persónu-
legum árásum og það er ekki sá stíll
sem menn vilja hérna í Eyjum,“ sagði
Guðjón, sem sagðist vilja koma á
framfæri sérstöku þakklæti til allra
þeirra sem hefðu unnið að sigri Sjálf-
stæðisflokksins.
Selfoss
Sigurður Jónsson
oddviti D-lista
Óhress með
tapog
dræma
kjörsókn
„VIÐ erum ekki hress með að hafa
tapað manni en þó heldur óhressari
með það hversu kjörsóknin var dræm