Morgunblaðið - 31.05.1994, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994 B 7
BÆJAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 1994
12,0»/
193°
93* 1938
1942 19A6
Borgarstjórnarkosningar
í Reykjavík, 1930- 1994
Hlutfallslegt fylgi helstu framboða
53,2%
Si4lÞt®ai,
sf|okkuf
60,4»,
Al|lýöu«okkur
■ •arn:
sóknarfi
3A5%
50
47.0%
40
oalistj
Ur mannsi
ms
v®ttvan
S-'istinn
stjórnarmenn sem kjósendur treysti
greinilega.
Sveinn sagði að sigur Sjálfstæð-
isflokksins væri glæsilegur og boltinn
hljóti að vera hjá þeim varðandi mynd-
un nýs meirihluta.
Páll Ingólfsson
oddviti D-lista
Meiri sigur
en við bjugg-
umst við
„ÞETTA er miklu betri niðurstaða en
við áttum von á. Við erum mjög
ánægðir með þetta og ekki síður það
að Sjálfstæðisflokkurinn kemur að
minu viti best út í Vesturlandskjör-
dæmi í samanburði við önnur kjör-
dæmi,“ sagði Páll Ingólfsson, efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokksins i
Snæfellsbæ. Sjálfstæðisflokkurinn
vann mikinn sigur í bænum, fékk um
35% fylgi og 4 menn kjöma.
Páll sagði að þessi úrslit þýði að
Sjálfstæðisflokkurinn muni vænt-
anlega fá það hlutverk að hafa for-
ystu um mótun nýja sveitarfélagsins.
Hann sagðist leggja mikla áherslu á
að sameiningin gerist í sem bestu
samstarfi við alla.
Páll sagðist þakka þennan sigur
öflugu starfi stuðningsmanna listans
í kosningabaráttunni, sérstaklega á
síðustu dögum baráttunnar. Hann
sagðist einnig líta á þennan sigur sem
stuðning við störf meirihlutans í Ól-
afsvík og á Hellissandi, en sjálfstæðis-
menn sátu í meirihluta í báðum bæjar-
félögunum á síðasta kjörtímabili.
Páll sagði ekkert afráðið um mynd-
un meirihluta í Snæfellsbæ, en úrslit
kosninganna hljóti að þýða að sjálf-
stæðismenn hafi forystu um myndun
nýs meirihluta.
Drífa Skúladóttir
oddviti G-lista
Er sátt við
okkar hlut
„ÉG ER ágætlega sátt við okkar hlut,
sagði Drífa Skúladóttir, efsti maður
á lista Alþýðubandalagsins í Snæ-
fellsbæ, en flokkurinn fékk einn mann
kjörinn. Drífa sagðist hins vegar vera
nokkuð undrandi yfír úrslitunum. Hún
sagðist hafa reiknað með að fram-
sóknarmenn kæmu mun sterkari út
úr kosningunum.
„Ég held að það hafi enginn búist
við fjórum mönnum hjá Sjálfstæðis-
flokknum, ekki einu sinni þeir sjálf-
ir,“ sagði Drífa. Hún sagðist telja
skýringuna á þessu vera þá að kosn-
ingavél Sjálfstæðisflokksins hafi farið
af stað með miklum látum nokkrum
dögum fyrir kosningar. Barátta þeirra
hafi verið mjög markviss og hitt í
mark hjá þeim sem voru óákveðnir.
Isafjörður
Þorsteinn Jóhannes-
son oddviti D-lista
Tími upp-
lausnarer
nú liðinn
„Ég Á von á því að með þessum úr-
slitum _sé tími upplausnar í bæjar-
stjórn ísafjarðar liðinn," sagði Þor-
steinn Jóhannesson, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins á Isafirði,
en flokkurinn vann góðan sigur í
kosningunum, vantaði raunar aðeins
fáein atkvæði upp á að ná meirihluta.
Mikil óeining var í bæjarstjórn ísa-
fjarðar allt síðasta kjörtímabil og
raunar,voru átök einnig á kjörtímabil-
inu þar á undan. Ástæðan fyrir þessu
var ekki síst kiofningur innan Sjálf-
stæðisflokksins. Flokkurinn gekk
sameinaður til kosninga í vor.
„Mér hefði ekki þótt verra þó að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði fengið 34
atkvæði í viðbót til að ná hreinum
meirihluta. Þetta er hins vegar góður
sigur. Við bætum þarna við okkur
11% atkvæða og vinnum rnann,"
sagði Þorsteinn. Hann sagðist þakka
þennan sigur öflugri baráttu fram-
bjóðenda á listanum og sjálfstæðis-
manna í bænum.
Sjálfstæðismenn eru þegar komnir
af stað í formlegar viðræður við fram-
sóknarmenn um myndun nýs meiri-
hluta. Þorsteinn sagði rökrétt að sjálf-
stæðismenn ræði fyrst við Framsókn-
arflokkinn. Flokkarnir hefðu starfað
vel saman á síðasta kjörtímabili og
hefðu alla möguleika ’til að gera það
einnig á þessu kjörtímabili.
Bolungarvík
Ólafur Kristjánsson
oddviti D-lista
Yfirlýsing
Kristins
styrkti
okkur
„VIÐ ERUM mjög ánægðir, við þær
ei'fiðu aðstæður sem hér hafa verið
á síðustu tveimur til þremur árum,
að fá stuðning við þær aðgerðir sem
við urðum að grípa til,“ sagði Ólafur
Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungar-
vík og leiðtogi sjálfstæðismanna, en
Sjálfstæðisflokkurinn vann hreinan
meirihluta í bænum í fyrsta skipti í
16 ár.
Ólafur sagði að sjálfstæðismenn í
bæjarstjórn hefðu lagt áherslu á að
fulltrúar allra flokka ynnu náið saman
að þvi að leysa þau erfiðu verkefni
sem við er að stríða í Bolungarvík.
Þetta hefðu menn gert og Bolvíkingat'
hefðu greinilega metið þetta við flokk-
inn. Ólafur sagðist leggja áherslu á
að flokkarnir starfi áfram vel saman
þrátt fyrir að sjálfstæðismenn séu nú
komnir í meirihluta.
Það vakti athygli í kosningabarátt-
unni í Bolungarvík að Kristinn H.
Gunnarsson, alþingismaður og leið-
togi Alþýðubandanalagsins í bænum,
lýsti því að hann væri bæjarstjóraefni
flokksins og að hann myndi segja af
sér þingmennsku fengi Álþýðubanda-
lagið umboð til að stjóma í Bolungar-
vík. Ólafur Kristjánsson sagði að þessi
yfirlýsing Kristins hefði leitt til þess
að kosningarnar fóru að hluta til að
snúast um hvort hann eða Kristinn
yrði bæjarstjóri næstu fjögur ár. Ólaf-
ur sagðist telja að yfiríýsing Kristinn
hefði styrkt sig.
Olafsfjörður
Þorsteinn Ásgeirs-
son oddviti D-lista
Úrslitin
komu ekki
áóvart
„VIÐ vonuðum að okkur tækist a,ð
halda meirihlutanum en það gekk
ekki eftir. Nýja framboðið er sigur-
vegari kosninganna hér. Það hafa
kennski verið einhverjar óánægju-
raddir á báðum listum og svo hafa
menn viljað kjósa eitthvað nýtt. Það
mátti búast við þessari niðurstöðu,“
segir Þorsteinn Ásgeirsson, efsti
maður á D-lista sjálfstæðismanna á
Ólafsfirði.
D-listinn missti meirihlutann í
bæjarstjórn Ólafsfjarðar og fékk þrjá
menn kjörna en hafði áður fjóra.
Þorsteinn sagði að strax á sunnudag
hefðu hafist viðræður á milli fram-
boða um meirihlutasamstarf á milli
D-lista og S-lista, Samtaka um betri
bæ, sem var nýtt framboð sem fékk
einn bæjarfulltrúa kjörinn. í gær
náðist svo samkomulag milli listanna
um myndun meirihluta í bæjarstjórn
Ólafsfjarðar.
Jónína Óskarsdótt-
ir oddviti S-lista
Ég er
komin í
óskastöðu
„ÉG LÍT á þessa niðurstöðu sem al-
geran sigur fyrir mig,“ segir Jónína
Oskarsdóttir, efsti maður á S-lista,
Samtaka um betri bæ en hún náði
kjöri til bæjarstjórnar Ólafsfjarðar í
kosningunum á laugardag. S-listinn
fékk einn mann kjörinn en D-listinn
og H-listinn fengu þrjá menn hvor
listi og komst S-listinn því í oddaað-
stöðu um myndun meirihluta í bæjar-
stjórn.
„Ég er komin í óskastöðu um
myndun næsta meirihluta," sagði
Jónína. Hún sagði að málefnin réðu
ferðinni í viðræðum um myndun nýs
meirihluta í bæjarstjórn. Viðræður