Morgunblaðið - 31.05.1994, Page 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
stefna haldi áfram í bænum eins og
hefur verið rekin hér síðustu fjögui'
ár. Fólk er greinilega ánægt með það
sem meirihlutinn hefur gert.“
Fyrir kosningar lýsti Gunnar því
yfir að hann væri bæjarstjóraefni
Sjálfstæðisflokksins ætti flokkurinn
kost á embættinu eftir kosningar.
Gunnar sagði í gær að embætti bæj-
arstjóra sé eitt af því sem menn
muni ræða í meirihlutaviðræðum.
„Það er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn
mun láta málefnin ráða en ekki
mennina," sagði Gunnar.
Gunnar sagðist telja að skýring á
því að Sjálfstæðisflokkurinn tapar
víða í stærri sveitarfélögum á höf-
uðborgarsvæðinu sé að kjósendur
láti erfiðleika í efnahags- og atvinnu-
lífi bitna á flokknum. Það sé svo sem
ekki nýtt að stjórnmálaflokkar sem
farí með stjórn landsins á erfiðum
tímum tapi í kosningum.
Guðmundur Odds-
son oddviti A-lista
Fylgið yf ir
til Kvenna-
lista
„VIÐ misstum einn mann og ég hef
ekki neina skýringu á því,“ sagði
Guðmundur Oddsson efsti maður á
lista Alþýðuflokksins í Kópavogi.
„Það virðist sem þetta fari beint strik
yfir á Kvennalistann."
„Það má segja að þarna hafi verið
skipt um Helgur og ég veit ekki
hver skýringin er,“ sagðí hann. „Ég
fann ekki þennan straum og finnst
hálf broslegt þegar talað er um að
þær hafi náð eitthvað saman. Þetta
er hópur sem hittist skömmu fyrir
kosningar, en hefur ekki starfað þess
á milli. Eg er auðvitað óánægður
með þessa niðurstöðu, en menn verða
að vera menn til að taka því ef þeir
tapa.“
Sigurður Geirdal
oddviti B-lista
Nokkuð
góð niður-
staða
„NIÐURSTAÐAN er nokkuð góð hjá
okkur,“ sagði Sigurður Geirdal, bæj-
arstjóri og efsti maður á lista Fram-
sóknarflokksins í Kópavogi. „Við
unnum á en ekki alveg nóg, þar sem
við vorum hársbreidd frá því að koma
öðrum manni inn.“
„Ég hefði viljað fá aðeins meira
fylgi eða 87 atkvæðum meira,“ sagði
hann. Sigurður sagði að meirihiuti
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks stæði og ekkert væri því til
fyrirstöðu að hann starfaði áfram.
„Það er ekki séð annað en að þessi
meirihluti standi," sagði hann. „Við
aukum við okkur fylgi þegar G-listi
stendur í stað, A-listi stórtapar og
D-listi dalar aðeins þannig að við
erum þakklátir fyrir undirtektir."
Helga Sigurjónsdótt-
ir oddviti V-lista
Erum af-
skaplega
ánægðar
„VIÐ erum afskaplega ánægðar,"
sagði Helga Siguijónsdóttir, sem
skipar fyrsta sæti á lista Kvennalist-
ans. „Okkur tókst ekki nógu vel upp
fyrir fjórum árum en nú gerðum við
aðra tilraun og byggðum á fenginni
reynslu."
Helga sagðist telja að Kvennalist-
ánúm háfi tekist áð skerpa línurnár
BÆJAR- OG SVEITARSTJÓRIMARKOSNINGAR 1994
og að vel hafi tekist að koma sjónar-
miðum listans á framfæri við bæj-
arbúa. „Bæjarbúar vilja fulltrúa
Kvennalistans í bæjarstjórn," sagði
hún. Meðal þeirra málaflokka sem
áhersla var lögð á voru fjölskyldu-
mál, skólamál með áherslu á að ekki
væri sama hvernig staðið væri að
heilsdagsskólanum, málefni aldr-
aðra, skipulags- og umhverfismál.
Byggðin hafi verið skipulögð of þétt
og var Kvennalistinn eini flokkurinn
sem tók upp byggingu menningarm-
iðstöðar rétt við nýja listasafnið.
„Við teljum það allt of þröngt og að
enn og aftur sé verið að troða stóru
húsi niður á of lítið svæði,“ sagði
hún. „Þetta veit ég að féll í góðan
jarðveg.“
Seltjarnarnes
Siv Friðleifsdóttir
oddviti N-lista
Aukum
fylgiðum
tæp 33%
BÆJARMÁLAFÉLAG Seltjarnar-
ness bætti við sig einum fulltrúa og
er nú með þijá fulltrúa í bæjarstjórn
Seltjamarness. „Þetta er stór sigur
þar sem við aukum fylgið um tæp
33%,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, sem
skipar fyrsta sæti listans.
„Þetta er árangur markvissrar
vinnu sem við unnum á síðasta kjör-
tímabili," sagði hún. „Við höfum
veitt meirihlutanum sterkt aðhald
hér á Seltjarnarnesi og komið mörg-
um góðum málum áleiðis." Sagði hún
að góður andi hafi ríkt í kosningabar-
áttunni og að mikil vinna væri að
baki. Á listanum væri einvala lið og
stefnan skýr, sem mikill hluti Seltirn-
inga hafi kunnað að meta. Sagði hún
þetta sögulegan sigur að því leyti að
í þau 32 ár sem listakosningar hafa
farið fram á nesinu hafi Sjálfstæðis-
flokkurinn ekkj tapað jafn miklu og
nú.
Sigurgeir Sigurðs-
son oddviti D-lista
Gætum
verið
hressari
„VIÐ gætum verið hressari," sagði
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri á
Seltjarnarnesi og efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins.
„Við segjum að þetta hafi eftir
atvikum gengið vel hjá okkur,“ sagði
hann. „Við lentum í þessari bylgju
sem reið yfir höfuðborgarsvæðið
hveiju sem það er að þakka eða
kenna.“ Sigurgeir benti á að tap
Sjálfstæðisflokksins á höfuðborgar-
svæðinu væri einna minnst á Sel-
tjarnarnesi. „Við vorum búin að
ganga frá heimamálum okkar en
skipulagsmálin gætu hafa spilað eitt-
hvað inn í,“ sagði hann. „Við þökkum
að sjálfsögðu þeim Seltirningum sem
studdu okkur áfram og erum með
eindregin skilaboð til þeirra um, að
við erum ekki farnir frá þeim. Við
ætlum að koma aftur með fullum
þunga.“
Mosfellsbær
Þröstur Karlsson,
oddviti B-lista
Ótrúlegur
sigur
„ÞETTA er auðvitað ótrúlegur sigur
hjá okkur framsóknarmönnum, því
við förurh f raun úr því að hafa éng-
.an fulltrúa í að fá tvo,“ sagði Þröst-
ur Karlsson, éfsti maður á lista
Framsóknaiflokksins í Mosfellsbæ.
Þröstur sagði að niðurstaðan hefði
orðið með þessum hætti þar sem
flokkurinn hefði verið með góðan
lista og rekið kosningabaráttuna
málefnalega. „Það er ljóst að kjós-
endur höfnuðu algjörlega meirihíuta
sjálfstæðismanna, en fylgisaukning
Framsóknarflokks og Alþýðubanda-
lags bendir til að þeir vilji að þessir
flokkar skoði möguleika á sam-
starfi.“
Þröstur sagði að hann teldi lands-
málapólitíkina ekki hafa haft mikil
áhrif í Mosfellsbæ. „Bæjarbúum lík-
uðu einfaldlega ekki vinnubrögð
meirihlutans og hann leið fyrir það,“
sagði Þröstur Karlsson.
Róbert B. Agnars-
son oddviti D-lista
Úrslitin
mikil von-
brigði
„ÞAÐ ER óhætt að segja að þessi
úrslit eru mér mikil vonbrigði. Fylgi-
stap okkar var umtalsvert og við
misstum meirihlutann, þótt það stæði
að vísu tæpt,“ sagði Róbert B. Agn-
arsson, bæjarstjóri og oddviti sjálf-
stæðismanna í Mosfellsbæ.
Róbert sagði að sjálfsagt væru
margar skýringar á fylgistapinu.
„Við þurfum að fara í naflaskoðun
og kanna hvað fór úrskeiðis í kosn-
ingabaráttunni. Við vorum með góða
málefnastöðu og unnum vel í bæjar-
stjórninni, en það virðist ekki hafa
skilað sér til kjósenda."
Róbert sagði að þó flokkurinn
hefði misst um 20% fylgi nú, væri
raunhæfara að miða úrslitin við fylg-
ið árið 1986 og því nær að tala um
10% fylgistap. „í kosningunum 1990
buðu hinir flokkarnir fram saman
og flokksmenn þeirra flykktust til
Sjálfstæðisflokksins, til að sýna
óánægju sína. Fylgi Sjálfstæð-
isflokksins þá gaf því ekki rétta
mynd af raunverulegu fylgi hér í
bænum, sem er mun nær því sem
úrslit sýndu 1986.“
Róbert sagði að hann teldi eðlilegt
að Framsóknarflokkurinn, sigurveg-
ari kosninganna í Mosfellsbæ, hefði
frumkvæði að því að kanna mögu-
leika á meirihlutamyndun. -„Það eru
ýmsir möguleikar, Framsóknarflokk-
ur gæti myndað meirihluta með Al-
þýðubandalagi eða Sjálfstæðisflokki
og tveir siðastnefndu flokkarnir
gætu einnig myndað meirihluta. Við
sjálfstæðismenn munum hins vegar
ekki hafa frumkvæði í þessu.“
Jónas Sigurðsson
oddviti G-lista
Samstarf
við fram-
sókn kannað
„VIÐ erum mjög ánægð með úrslitin
og þökkum þau því góða fólki sem
starfaði fyrir okkur og góðri stefnu
okkar,“-sagði Jónas Sigurðsson, efsti
maður á lista Alþýðubandalagsins í
Mosfellsbæ.
Jónas sagði að helstu baráttumái
Alþýðubandalagsins hefðu hlotið
góðan hljómgrunn meðal bæjarbúa,
en flokkurinn lagði aðallega áherslu
á úrbætur í skólamálum, auk þess
sem Jónas sagði að hugmyndir um
bætta þjónustu við aldraða hefðu
aflað flokknum fylgi.
Hvað myndun meirihluta í bæjar-
stjórn varðar sagði Jónas að niður-
staða kosninganna væri skilaboð um
að bæjarbúar viiji breytingu. „Þeir
vilja áherslubreytingar í stjórn bæj-
arins og þar fara mörg af stefnumál-
um Framsóknarflokks og Alþýðu-
bandalags saman,“ sagði hann. „Ég
býst því við að hugsanleg samvinna
þessara flokka verði fyrsti kostur
sem kannaður verður.“
Akranes
Gunnar Sigurðsson
oddviti D-lista
Samstarf
við G-lista
kannað
„ÉG ER mjög stoltur af að Sjálfstæð-
isflokkurinn skuli nú vera orðinn
stærsti flokkurinn á Akranesi þegar
á brattann hefur verið að sækja og
það er trú mín að sterkur listi okkar
hafi haft mest að segja,“ sagði Gunn-
ar Sigurðsson, oddviti D-listans á
Akranesi.
Gunnar sagði að úrslit kosning-
anna hefðu verið einhver þau hag-
stæðustu fyrir flokkinn á Akranesi
sem sögur færu af. „Nú teldi ég
eðlilegast að sjálfstæðismenn og Al-
þýðubandalagsmenn settust niður og
könnuðu hvort þeir næðu saman um
meirihlutamyndun," sagði hann. „Ef
Alþýðubandalagsmenn eru trúir sinni
samvisku þá hljóta þeir að fara að
vilja fólksins, sem hefur veitt okkur
og þeim svo gott brautargengi. Nú
er ekkert að gera nema bretta upp
ermamar og fara að vinna. Það
stendur ekki á sjálfstæðismönnum
að gera það, enda bíða mörg verk-
efni, sem brýnt er að leysa úr.“
Guðbjartur Hannes-
son oddviti G-lista
Nær tvö-
falt fylgi
„VIÐ höfum nánast tvöfaldað fylgi
okkar, sem má rekja til þess að á
listanum er samheldinn hópur og
kosningabarátta okkar var heiðar-
ieg,“ sagði Guðbjartur Hannesson,
oddviti G-listans á Akranesi.
Guðbjartur sagði að landsmálin
hefðu ef til vill haft einhver áhrif á
úrslit kosninganna, en Alþýðubanda-
lagið sækti fylgi sitt nú langt út fyr-
ir það sem áður hefði gerst. „Verk
okkar hafa talað og við nutum þess
einnig að á hinum listunum var
margt nýtt fólk, svo okkar fulltrúar
voru betur kynntir."
Guðbjartur sagði að nú væru full-
trúar allra flokka að þreifa fyrir sér
um meirihlutamyndun og hann teldi
að niðurstöður myndu liggja fyrir
fljótlega. „Ég skil þessi úrslit sem
kröfu kjósenda um að Alþýðubanda-
lagið taki þátt í meirihlutasamstarfi.“
Ingvar Ingvarsson
oddviti A-lista
Líðum fyrir
atvinnu-
ástandið
„ÞAÐ er sjálfsagt hægt að leita ótal
skýringa á þessari útkomu okkar,
en ég held að margir samverkandi
þættir hafi orðið til þess að svona
fór,“ sagði Ingvar Ingvarsson, efsti
maður á lista Alþýðuflokksins á
Akranesi.
Ingvar sagði að fylgistapið mætti
að hluta rekja til þess að reynt hefði
verið að draga landsmálapólitíkina
inn í kosningabaráttuna á Ákranesi.
„Við höfum setið hér við stjómvölinn
og erum því gerðir ábyrgir fýrir
ástandinu. Við líðum að sjálfsögðu
fyrir það að átvinnuástandið er mjög
slæmt hér.“
Ingvar sagði að hann reiknaði
ekki með að Alþýðuflokkurinn yrði
inni í. myndinni við myndun nýs
meirihluta á Akranesi. „Við munum
ekki eiga frumkvæði að slíku, en ég
geri alveg eins ráð fyrir að Fram-
sóknarflokkur og Alþýðubandalag
taki upp samstarf,“ sagði Ingvar
Ingvarssön.
Stykkishólmur
Ellert Kristinsson
oddviti D-lista
Úrslitin þýða
óbreytta
stefnu
„Ég ER ekki sáttur við úrslitin. Ég
hefði haldið að málefnastaða okkar
væri sterkari og að við ættum að
geta haldið fimm mönnum,“ sagði
Ellert Kristinsson, efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins og óháðra í
Stykkishólmi.
Sjálfstæðisflokkurinn vann mjög
góðan sigur í Stykkishólmi í kosning-
unum 1990, fékk nærri því 70% fylgi.
Ellert sagði að það hefði tæplega
verið við því að búast að flokkurinn
næði jafngóðri kosningu nú. Hann
sagðist eigi að síður hafa talið að
fimm menn væru raunhæft markmið.
Ellert sagði að menn yrðu að hafa
í huga að nokkuð margir skiluðu
auðu í kosningunum 1990 og þessir
kjósendur hefðu greinilega kosið and-
stæðinga Sjálfstæðisflokksins núna.
Atkvæðum greiddum Sjálfstæðis-
flokknum hefði því ekki fækkað eins
mikið og prósentutölurnar gæfu til
kynna.
Ellert segir að Sjálfstæðisflokk-
urinn í Stykkishólmi muni ekki breyta
um stefnu þó að úrslitin séu þeim
ekki eins hagstæð og í kosningunum
fyrir fjómm árum. „Við munum ekki
víkja af braut uppbyggingar og öflug-
rar félagslegrar þjónustu."
Snæfellsbær
Atli Alexandersson
oddviti B-lista
Vonaðist
eftir þrem-
ur mönnum
„ÉG ER ekki sáttur við þessa niður-
stöðu. Ég vonaðist ákveðið eftir því
að Framsóknarflokkurinn fengi þijá
menn kjörna,“ sagði Atli Alexanders-
son, efsti maður á lista Framsóknar-
flokks í Snæfellsbæ, en flokkurinn
missti fylgi og fékk tvo menn kjöma.
Atli sagðist eiga erfitt með að skýra
•þessi úrslit. Hann sagði, að að vísú
hefðu menn ekki vitað mikið um stöð-
una fyrir kosningar. Aðstæður væra
allt aðrar nú en í síðustu kosningum
þar sem íj'ögur sveitarfélög væru að
sameinast í eitt.
Atli sagði að margir möguleikar
væru á myndun meirihluta í sveitar-
félaginu. Menn væru aðeins farnir
að ræða saman, en algerlega óvíst
væri hvað myndi gerast.
Framsóknarflokkurinn var stærst-
ur flokka í síðustu bæjarstjóm Ólafs-
víkur og ef litið er lengra aftur í tim-
ann hefur flokkurinn oft náð betri
kosningu á þessu svæði.
Sveinn Þór Elínbergs-
son oddviti A-lista
Nádum
markmið-
inu og
gott betur
„ÉG ER ánægður með niðurstöðuna.
Þetta eru þau úrslit sem við vorum
að vonast eftir. Við ætluðum okkar
að ná tveimur mönnum og við náðum
því inarkmiði og gott betur,“ sagði
Sveinn Þór Elínbergsson, efsti maður
á lista Alþýðuflokksins í Snæfellsbæ.
Sveinn sagðist þakka þennan
árangur vel mönnuðum framboðs-
lista, öflugum málflutningi og ítar-
legri málefnastefnuskrá. Hann sagð-
ist telja að það hafi skipt máli að
flokkurinn bauð fram reynda sveitar-