Morgunblaðið - 20.03.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993
B 7
FYRSTA KVENNA-
FORLAGIÐ 20 ÁRA
Bjallan, fyrsta kvennaforlagið hér á landi, á tutt-
ugu ára afmæli á þessu ári, en forlagið var stofn-
að hinn 9. mars árið 1973 af þeim Ragnhildi
Helgadóttur, Herdísi Sveinsdóttur, Guðrúnu
Karlsdóttur, Sigrúnu Klöru Hannesdóttur og Fríðu
Haraldsdóttur. Þær Ragnhildur og Herdís reka
fyrirtækið tvær dag í dag, og eru auk þess í fullu
starfi, Ragnhildur sem bókasafnsvörður og Her-
dís sem kennari. Bjallan hefur einbeitt sér að
útgáfu fræðirita fyrir börn. Áherslan hefur jafnan
verið á þann þátt útgáfustarfseminnar, þótt einn-
ig hafi þar kennt annarra grasa. Blaðamaður
Morgunblaðsins leit við hjá þeim Bjöllustöllum,
Ragnhildi og Herdísi og leit með þeim yfir 20
ára farinn veg.
Bjallan hefur gefið út liðlega
60 bækur frá því útgáfustarf-
semin hófst og þar að auki
ýmsa smábæklinga. Ragnhildur
segir að ástæða þess að konurnar
fímm ákváðu að hefja slíka út-
gáfustarfsemi fyrir 20 árum síðan
hafi verið sú staðreynd að með
tilkomu grunnskólalaganna hafí
þörfin fyrir slíka útgáfustarfsemi
orðið mjög augljós. „Lögin lögðu
mikla áherslu á sjálfstæð vinnu-
brögð nemenda, og forsenda fyrir
slíkum vinnubrögðum var vel búin
skólasöfn. Öllum var ljóst sem
komu að þessum málum, að mjög
lítið var til af aðgengilegu
fræðsluefni fyrir börn og ungl-
inga. Tilgangurinn með stofnun
Bjöllunnar var að gefa út
fræðibækur fyrir börn og ungl-
inga, sem nýttust þeim til sjálf-
stæðra vinnubragða.“
I upphafi voru einvörðungu
gefnar út þýddar fræðibækur, en
árið 1977 réðust þær Bjöllukonur
í útgáfu fyrstu íslensku fræðibók-
arinnar sem var bókin Þorskurinn.
„Okkur fannst það nú kannski
brýnast að börnin fræddust á að-
gengilegan og skemmtilegan hátt
um undirstöðuna."
- Ef þið lítið til baka eruð þið
ánægðar með árangurinn?
Herdís verður fyrir svörum og
segir: „Já, ég held að óhætt sé
að segja það. í upphafí sögðum
við einungis að það væri gaman
að prófa þetta, en við renndum
náttúrlega algjörlega blint í sjóinn
og Vissum ekkert hvemig þetta
ætti eftir að ganga hjá okkur.
Við höfum verið að gefa út
fræðirit fyrir böm og unglinga,
sem við teljum að eigi virkilega
erindi til sem flestra. Nú fyrir jól-
in gáfum við út bókina Blómin
okkar, eftir Stefán Aðalsteinsson.
Þetta er mjög falleg bók og ramm-
íslensk. Auk þess gáfum við út
þýdda bók, sem heitir Græna bók-
in og er um umhverfisvemd.“
Ragnhildur bætir við: „Það hef-
ur náttúrlega mikið breyst frá því
að við byijuðum. Mörg forlög em
farin að gefa út fræðibækur fyrir
börn, þannig að ú'rvalið á þessu
sviði er ekkert sambærilegt við
það sem var fyrir 20 ámm síðan.“
Þær segja að það sé bæði dýrt
og tímafrekt að gefa út bækur
eins og þær era að gefa út. Erfítt
sé að fá fólk til starfa, en það sem
hafí gert gæfumuninn í útgáfu-
starfsemi Bjöllunnar, hafi verið
það lán að fá menn eins og Stefán
Aðalsteinsson og Árna Böðvars-
son til þess að starfa fyrir útgáf-
Morgunblaðið/Sverrir
Hér eru þær Ragnhildur og Herdís hjá þeim bókaflokki sem þær segja vera höfuðstolt Bjöllunnar
en það er íslenski fræðslubókaflokkurinn.
una. „Stefán hann skrifar náttúr-
lega svo fallegt mál og á svo að-
gengilegan máta, að það hefur
reynst ómetanlegt. Við leituðum
einnig mikið til Arna heitins Böð-
varssonar, sem reyndist okkur al-
veg sérstakur. Hann las hveija
einustu bók í handriti og leiðrétti.
Yfírleitt las hann einnig allt í pró-
förk, þannig að útgáfan var í afar
góðum höndum. Við gátum alltaf
verið vissar um gæði þess sem fór
í gegnum hendurnar á Árna,“
segir Herdís.
I máli þeirra Herdísar og Ragn-
hildar kemur fram að í kringum
1980 hafi orðið mikil breyting í
kostnaði af litmyndaprentun, sem
lækkaði til muna. Þá hafí Bjallan
ráðist í miklar útlitsbreytingar í
útgáfustarfseminni og gefið út
mjög vandaðar bækur, á góðum
pappír, með lipra og fallegu máli.
Þær nefna bækur eins og Húsdýr-
in okkar, Fuglarnir okkar, Villtu
spendýrin okkar og nú síðast
Blómin okkar. Þennan fræðslu-
bókaflokk, sem er eftir Stefán
Aðalsteinsson, segja þær vera
höfuðstolt útgáfustarfsemi Bjöll-
unnar.
Þær Herdís og Ragnhildur
segja að Bjallan hafí verið fyrsta
foriagið til þess að gefa út bækur
um böm með sérþarfír og vekja
athygli á þeim. Þær hafí gefíð út
bók sem heitir Dagur, sem fjallar
um einhverfan dreng og aðra um
blinda telpu og þá þriðju sem fjall-
ar um heilaskaddaðan dreng og
enn eina sem fjallar um heyrnar-
lausa konu. Þetta séu bækur sem
eigi fullt erindi til barna og ungl-
inga og geti opnað þeim aukinn
skilning á lífí og vandamálum
þeirra sem standa kannski höllum
fæti í lífsbaráttunni vegna sér-
þarfa og fötlunar.
- Hvernig hefur ykkur gengið
að koma á samstarfí við grann-
skóla, og skólabókasöfn, þannig
að bækurnar sem þið hafí gefið
út væru til sem ítarefni í sem flest-
um skólum?
„Við sendum öllum skólum
lista, svona tvisvar til þrisvar á
ári, til þess að greina frá því helsta
í starfseminni og minna á okkur.
Við eigum marga mjög góða við-
skiptavini, meðal grannskólanna.
En það er með það eins og annað,
það er misjafnt eftir skólum, enda
veit maður að það er misjafnt starf
sem fer fram í grannskólum lands-
ins,“ segir Ragnhildur.
- Hvemig sjáið þið starfsemi
Bjöllunnar fyrir ykkur næstu 20
árin?
Herdís og Ragnhildur hlæja
báðar, líta hver á aðra og svo
segir Herdís: „Við hugsum nú
ekki svo langt fram í tímann. Við
hugsum bara eitt ár í einu. Við
eram mjög varkárar, eram reynd-
ar enn ekki búnar að ákveða neina
útgáfu í haust. Heldur ætlum við
að sjá hvemig þessu reiðir af.
Staðreyndin er sú, að það má
bara engu muna í þessari útgáfu-
starfsemi - alls engu.“
Texti: Agnes Bragadóttir
BARNALEIKHUS
ÆVINTÝRIGEIRA
ÚLFUR! ÚLFUR! Geiri lygari er hugmyndaríkur
strákur sem býr til sögur frekar en aö játa að
hann kunni ekki að skýra eitthvað og platar frek-
ar en að viðurkenna mistök. Hann er sendill í
Verslun Sigvalda og skrökvar því að lögreglu-
manni að gömul kona hafi stolið úr búðinni. En
Geiri kemst í klípu þegar raunverulegur þjófur
sýnir sig hjá Sigvalda. Þetta og ýmislegt annað
gerist í barnaleikriti sem Möguleikhúsið er að
hefja sýningar á. Fjórmenningarnir í þessu leik-
húsi ætla að fara með Geira lygara á leikskóla
og sýna ævintýri hans í Gerðubergi.
Möguleikhúsið hefur starfað
í þijú ár og er skipað at-
vinnuleikurum sem setja
upp sýningar á frumsömdu efni
fyrir börn. Geiri lygari er fjórða
leiksýning þess en líklega tíunda
verkefnið ef sjónvarpsvinna og leik-
þættir á 17. júní er talin með. Nú
leika þau Alda Arnardóttir, Bjarni
Ingvarsson, Pétur Eggerz og Stefán
Sturla Siguijónsson í Möguleikhús-
inu. Hópurinn útbjó leikmyndina í
sameiningu og Bjarni leikstýrði en
Pétur samdi handrit og söngtexta.
Lögin í sýningunni eru eftir Ingva
Þór Kormáksson.
“Við viljum fyrst og fremst setja
upp skemmtilegar leiksýningar,"
segir Pétur Eggerz. “Gjarna dæmi-
sögur eins og þessa hér um Geira.
Hann lærir að það borgar sig aldr-
ei að segja ósatt. Við viljum segja
eitthvað með sýningu, hún á að
hafa áhrif á áhorfandann og þegar
hann'er bam er öragglega betra
að þau séu góð en vond. En það er
af og frá að að við setjum upp leik-
rit með uppeldisáhrif efst í huga.“
Möguleikhúsliðið hittist og tínir
til hugmyndir sem Pétur notar síðan
í handrit. “Þetta eru gömul við-
fangsefni, hvort sem það er meðvit-
að hjá okkur eða ekki,“ segir hann.
“Börn eru ákaflega kröfuharðir
áhorfendur, það má aldrei vera
dauður punktur, leikarinn verður
Möguleikhúsið sýnir börnum Geira lygara Morgunblaðið/Emilía
að einbeita sér allan tímann og það
verður að vera fullt að gerast.
Við reynum að segja ævintýri.
Þau setja ekki bönd á ímyndunarafl-
ið og börn trúa öllu meðan það
gerist á sviðinu af því þau eru enn
nógu einlæg til þess. Samt verður
eitthvað að vera í leikritinu sem þau
kannast við. Geiri, til dæmis, er
galgopstráklingur sem börn botna
alveg í og búðina úti á horni þekkja
margir krakkar.
Annars hafa fóstrurnar skemmt
sér ekki síður en krakkarnir á þeim
sýningum sem við höfum ferðast
með hingað til. Ævintýri eru auðvit-
að ekkert síður fyrir fullorðna tn
börn. Við sem eram að leika finnum
sennilega frekar mun á kynslóðum
og aldri en áhorfendur; þau litlu
vara við hættu á sviðinu og leið-
beina okkur hástöfum. Fullorðnir
leikhúsgestir sitja þegjandi og fylgj-
ast með. Böm eru afskaplega
þakklátir áhorfendur."
Þ.Þ ^