Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.05.1991, Blaðsíða 13
lyiORfiUNBLAÐip, .UýUGARDAGUR 4. MAÍ ,19,91 Að störfum fyrsta daginn 6. maí 1966. byggingu er enn brýnni í dag. Eins og flestum er kunnugt er Borg- arspítalinn aðal slysa- og bráðam- óttökuspítali landsins og því mjög mikilvægt að öll aðstaða sé þar sem best svo hægt sé að tryggja þeim er þangað þurfa að leita örugga og sem fullkomnustu þjónustu og er óhætt að fullyrða að röntgen- deild Borgarspítalans er þar einn mikilvægur hlekkur. Lokaorð í grein þessari hefur verið reynt að stikla á stóru í starfsemi röntg- endeildar Borgarspítalans og reynt að vekja athygli á því sem betur mætti gera. Röntgendeildin hefur notið þess undanfarinn aldaríjórð- ung að hafa haft í störfum vel menntaða og hæfa starfsmenn og hafa þeir reynt miðað við aðstæður hveiju sinni að veita Reykvíkingum og landsmönnum öllum vandaða og góða þjónustu og er það ósk mín og von að svo megi verða á ókomnum árum og vil ég ljúka þessari grein minni með því að óska okkur öllum til hamingju með þetta 25 ára afmæli röntgendeildar Borgarspítalans. Höfundur eryfirlæknir röntgendeildar Borgarspítalans. Ár Fjöldi % Ár Pjöldi % 1971 29.540 15,7 1981 37.053 3,8 _1972 31.272 5,9 1982 38.836 3,0 1973 31.459 0,6 1983 38.389 -1,2 1974 35.184 11,8 1984 41.931 9,2 1975 35.835 1,9 1985 44.907 7,0 1976 33.355 -7.4 1986 47.675 6,2 1977 31.108 -7,2 1987 49.409 3,6 1978 34.387 10,5 1988 51.806 4,8 1979 34.427 0,1 1989 51.049 -1,5 1980 35.692 3,7 1990 51.781 1,4 Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Stúlkurnar í 6. og 7. bekk Grunnskóla Þórshafnar með kaffisölu. Skólabörn Grunnskólans a Þórshöfn fagna sumri Þórshöfn. SUMARDAGURINN fyrsti hcilsaði á Þórshöfn með siyókomu og lítt sumarlegu yfirbragði. Skólabörnin hér létu það ekki á sig fá enda er þetta þeirra dagur og hefur verið það óslitið frá árinu 1947. Þá standa þau fyrir skemmtun og kaffisölu og þykir öllum hér um slóðir þeirra framtak vera orðið ómissandi hluti af þessum degi. Stúlkumar í 6. og 7. bekk sáu um kaffisölu í skólanum um miðjan daginn og vitanlega áttu þær allan veg og vanda af bakkelsinu með aðstoð Berghildar heimilisfræða- kennara síns. Þar var einnig sett upp handavinnusýning stúlkna og drengja og úrval af teikningum þeirra prýddu veggi skólans. Hafa kaffigestir gaman af að rölta um og skoða afrakstur vetrarins hjá börnunum. Um kvöldið hófst skemmtun í félagsheimilinu og lagði þar hver einasti nemandi skólans eitthvað af mörkum, frá þeim yngsta til elsta. Ýmisiegt er til skemmtunar og allir skemmta sér. Til dæmis mátti sjá ellefu ára gamla Gilitrutt krefja húsfreyju sagna um nafn sitt og sýnishom úr kennslustund hjá eldri bekkjunum. Höfðu allir hið besta gaman af sýningu bamanna og rennur allur ágóðinn af henni og kaffisölunni í ferðasjóð barnanna. Til hans er svo gripið þegar ferðast þ'arf í aðra skóla vegna íþróttakeppni eða fara í skólaferðalög. Endahnútur skemmtunar þess- arar er svo diskótek fram eftir kvöldi og er fögnuður skólabarna alltaf jafn mikill á ári hveiju þegar boð koma frá Pálma skólastjóra um að skóiinn hefjist klukkustund seinna en venjulega morguninn eftir. - L.S. o!3 Þetta er óneitanlega óvenjulegur og nýstárlegur bíll, - APPLAUSE frá Daihatsu. Hann sameinar ótal kosti sem nútíma bíleigandi krefst: Undurgóð fjöðrun ásamt sítengdu aldrifi eða framhjóladrifi valda því að hann liggur einstaklega vel og er því mun öruggari í akstri. Kraftmikil, sparneytin vél, vökvastýri og ótrúlega mikið rými fyrir farþega og farangur gera hann ólýsanlega þægilegan, beinlínis skemmtilegan. En þetta eru bara orð, við getum haldið lengi áfram. Þú verður einfaldlega að prófa, þar liggur sannleikurinn. □AIHATSU APPLAUSE - prófaðu bara! Applause með framhjóladrifi kostar frá kr. 929.000 stgr. á götuna. Applause með sítengdu aldrifi kostar kr. 1.245.000 stgr. á götuna. FAXAFENI8 • SÍMI91 - 68 58 70

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.