Morgunblaðið - 29.05.1990, Side 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1990
Hvað segja þau um úrslit kosninganna?
Gunnar I. Birgisson,
oddviti sjálfstæðismanna
í Kópavogi:
Skýr skila-
boð um að
fólk vill ekki
A-flokkana
„í niðurstöðum kosninganna fel-
ast skýr skilaboð Kópavogsbúa
um það að þeir vilji ekki áfram-
haldandi stjórn A-flokkanna,“
sagði Gunnar I. Birgisson efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokksins
í Kópavogi. Sjálfstæðisflokkur-
inn fékk í kosningunum nú 39,6%
og flmm menn kjörna af níu, en
í kosningunum 1986 fékk flokk-
urinn 32% fylgi og fjóra menn
kjörna.
„Okkur líst ágætlega á úrslitin,
enda fela þau í sér mikla fylgis-
aukningu Sjálfstæðisflokksins og
fjölgun fulltrúa hans í bæjarstjórn
um einn. Menn voru reyndar að
gæla við það að fá sex menn kjörna
og meirihluta og vantaði reyndar
ekki mjög mikið upp á eða rúmlega
þijúhundruð atkvæði.
Þreifingar eru þegar hafnar í
Kópavogi um meirihlutamyndun, en
að sögn Gunnars hafa A-flokkarnir
þegar biðlað til fulltrúa Framsókn-
arflokksins. „A-flokkarnir og Fram-
sókn voru saman í meirihluta
1978-86, þar til fulltrúi Framsókn-
arflokksins varð óþarfur eftir kosn-
ingarnar 1986 og honum því hent
út. Það væri því verulega sérkenni-
legt ef hann færi í samstarf með
A-flokkunum,“ sagði Gunnar. Gat
hann þess að sjálfstæðismenn
myndu fljótlega funda með fram-
sóknarmönnum um myndun meiri-
hluta. „Eg skal ekki segja um það
hvernig þetta fer, en það er ljóst
að framsóknarmenn eru í oddaað-
stöðu, þannig að þeir standa mjög
sterkt að vígi. Það er hins vegar
alveg ljóst að það gengur ekki fyr-
ir Kópavog og íbúa hans ef A-flokk-
amir verða áfram við völd. Slíkt
væri hræðilegt."
Sigurgeir Sigurðsson,
oddviti sjálfstæðismanna
á Seltjarnarnesi:
Seltirningar
kunna að
meta störf
okkar
„VIÐ erum mjög ánægðir og
þakklátir íbúum Seltjarnarness
fyrir að kunna að meta störf
okkar í gegnum árin,“ sagði Sig-
urgeir Sigurðsson bæjarstjóri á
Seltjarnarnesi og efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins. D-listi,
listi Sjálfstæðisflokks, hlaut
65,6% greiddra atkvæða og fímm
menn kjörna í bæjarstjórn af sjö.
Flokkurinn hafði áður fjóra
menn og 61,5% fylgi.
Um ástæður sigurs D'-listans,
sagði Sig-urgeir að sjálfstæðismenn
hefðu sýnt vel fram á það hvað
þeir hefðu verið að gera á síðast-
liðnu kjörtímabili; Seltirningar
hefðu greinilega kunnað að meta
það en ekki látið blekkjast af kjána-
legum áróðri andstæðinganna hjá
Nýju afii.
Aðspurður sagði Sigurgeir að
úrslitin hefðu ekki komið sér á
óvart. „Þegar var farið að nálgast
kosningar og umræðan að aukast,
fann maður að sigur Sjálfstæðis-
flokksins lá í ioftinu. Reyndar bjóst
ég ekki við svo stórum sigri sem
raun varð á.“
Sigurgeir kvaðst líta bjartsýnn
til komandi kjörtímabils; áfram yrði
haldið því starfi sem unnið hefði
verið á síðasta kjörtímabili.
„Áhersla verður lögð á þau mál sem
við höfum sett á oddinn í kosninga-
baráttunni; hreinsun strandlengj-
unnar og byggingu og sjóvama-
garða og aukinn kraftur settur í
þá vinnu.“
Benedikt Sveinsson,
oddviti sjálfstæðismanna
í Garðabæ:
Stærsti sigur
okkarf rá
upphafi
„VIÐ erum mjög ánægðir og
stoltir yfir þessari útkomu. Garð-
bæingar völdu áframhaldandi
stjórn okkar og höfnuðu sam-
bræðslu andstæðinga okkar,“
sagði Benedikt Sveinsson, for-
maður bæjarráðs Garðabæjar og
efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Garðabæ. Sjálfstæðis-
flokkurinn hlaut í þessum kosn-
ingum 67,3% greiddra atkvæða
og flmm menn kjörna af sjö, en
í kosningunum 1986 var fylgið
53% og fjórir menn kjörnir. Sigur
Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ
er sá stærsti frá upphafi.
„Lengst af var nú erfitt að átta
sig á því hvernig iaiidið lægi í þess-
um kosningum, en þegar nær dró
var ég farinn að finna mjög góðan
hljómgrunn. Niðurstaðan var hins
vegar í efri mörkum þess sem mað-
ur sá í kortunum," sagði Benedikt.
Um ástæður hins mikla kosn-
ingasigurs sagði Benedikt að hann
stafaði fyrst og fremst af því að
sjálfstæðismenn hefðu staðið sig
vel á kjörtímabilinu. „Það kunnu
Garðbæingar að meta og því féll
neikvæður málflutningur andstæð-
inga okkar í grýttan jarðveg. Fram-
boðslisti okkar var og sterkur og
stefnumálin höfðuðu vel til kjós-
enda.
“Það lá einnig fyrir að Alþýðu-
flokkurinn fengi minna fylgi en
síðast vegna óvinsælda ríkisstjóm-
arinnar. Sambræðsluframboð Al-
þýðubandalags og Framsóknar,
Eining, misheppnaðist gersamlega,
því það er ljóst að margir af þeim
sem áður studdu þessa flokka sneru
sér að Sjálfstæðisflokknum. Það er
í raun skýringin á viðbótarfylgi
flokksins.“
Um komandi kjörtímabil sagði
Benedikt að sjálfstæðismenn
myndu halda áfram þar sem frá var
horfið, við uppbyggingu hins unga
bæjarfélags Garðabæjar.
Magnús Sigsteinsson,
oddviti sjálfstæðismanna
í Mosfellsbæ:
Fundumað
straumarnir
lágu til okkar
„SIGURINN er ákaflega sætur
fyrir okkur sjálfstæðismenn. Við
stóraukum fylgi okkar og höld-
um sama fúlltrúafjölda, þrátt fyr-
ir að fjórir andstöðuflokkar okk-
ar hafi lagst í eina sæng, gagn-
gert til þess að fella okkur. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur verið í
meirihluta í 16 ár þannig að allt
átti að gera til þess að fella okk-
ur,“ sagði Magnús Sigsteinsson,
forseti bæjarsljórnar Mosfells-
bæjar og efsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins. Sjálfstæðisflokk-
urinn hlaut 63,5% fylgi í kosning-
unum og fimm menn kjörna af
sjö; hafði 54% fylgi 1986 og sama
fúlltrúafjölda.
Um ástæður sigursins sagði
Magnús að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði unnið vel á kjörtímabilinu og
tekist hefði í kosningabaráttunni
að koma því vei til skila. „Mosfell-
ingar kunnu vel að meta það sem
við höfum gert og sýna þeir okkur
mjög mikið traust með svo afger-
andi stuðningi," sagði Sigurgeir.
Um gagnrýni andstæðinga Sjálf-
stæðisflokksins um óheiðarlega
kosningabaráttu, sagði Magnús að
hann vísað þeim algerlega á bug.
„Ég skil ekki yfirlýsingar E-listans
um óheiðarleika; er það með öllu
óskiljanlegt að þeir láti slíkt út úr
sér.“ Benti hann á að í ljósi mál-
flutnings E-listans væru úrslit
kosninganna eðlileg.
Magnús kvað úrslitin hafa komið
sér þægilega á óvart. Fyrirfram
hefði verið búist við tvísýnum kosn-
ingum, þar sem aðeins væri um að
ræða tvö framboð. „Við fundum það
hins vegar síðustu dagana fyrir
kosningar að straumarnir lágu til
okkar. Ég hafði gert mér vonir um
að meirihlutinn stæði, en ég hafði
ekki gert ráð fyrir að við héldum
fimm mönnum og fengjum svo af-
gerandi stuðning."
Magnús taldi með hliðsjón af
úrslitunum í Mosfellsbæ og víðar,
að bið yrði á því að vinstriflokkarn-
ir reyndu aftur sambræðsluframboð
rétt fyrir kosningar. „Þeir hljóta
að hafa lært sína lexíu."
Jóhann Bergþórsson,
oddviti sjálfstæðismanna
í Hafnarfirði:
Fólk horfir til
framkvæmd-
anna en ekki
hvernig er
framkvæmt
„VIÐ steíndum að því að ná fimm
mönnum og það vantaði ekki
mikið upp á það. Það voru óneit-
anlega vonbrigði, en í ljósi þess
hve róðurinn var þungur, eru
úrslitin viðunandi," sagði Jóhann
Bergþórsson, oddviti sjálfstæðis-
manna í Ilafnarfirði. D-listi, listi
Sjálfstæðisflokksins, hlaut 35%
atkvæða í kosningunum nú, en
hlaut 32,1% í síðustu bæjarstjórn-
arkosningum.
„Við litum svo á í upphafi kosn-
ingabaráttunnar að róðurinn væri
þungur, þar sem fráfarandi meiri-
hluti hefur verið að klára fram-
kvæmdir og verk sem við vorum
byijaðir á þegar við vorum í meiri-
hluta. Skoðanakannanir bentu
reyndar til þess að Alþýðuflokkur-
inn fengi fylgi á bilinu 50-56%, en
þeir fengu hins vegar einungis
48%,“ sagði Jóhann.
Jóhann kvaðst líta svo á að niður-
staðan endurspeglaði að fólk horfði
frekar til framkvæmdanna en ekki
hvernig væri framkvæmt. „Við trú-
um því hins vegar að á næstu íjór-
um árum átti fólk sig á því hvernig
framkvæmt var og að staða fjár-
málanna birtist í minnkandi fram-
kvæmdum og minni glansmynd.
Jóhann sagði að þrátt fyrir meiri-
hluta Alþýðuflokksins væri tiltölu-
lega lítið sem hefði breyst; Sjálf-
stæðisflokkurinn héldi sömu stöðu
innan bæjarstjómarinnar varðandi
hlutföll í nefndum og ráðum. „Við
munum að sjálfsögðu velta vöngum
yfir þessum úrslitum, en höldum
að öðru leyti okkar striki og von-
umst eftir betra gengi í næstu kosn-
ingum."
Guðmundur Gunnarsson,
oddviti sjálfstæðismanna í
Bessastaðahrepp:
Hið mikla
fylgi kom
mjög á óvart
„VIÐ áttum alls ekki von á svo
miklu fylgi og er í raun erfitt að
greina hver ástæða þessarar
miklu fylgisaukningar er,“ sagði
Guðmundur Gunnarsson, oddviti
lista sjálfstæðismanna í Bessa-
staðahrepp. D-listi, listi sjálf-
stæðismanna fékk 69,6% atkvæða
og flóra menn af fímm í sveitar-
stjórn. I síðustu kosningum var
fylgi Sjálfstæðisflokksins 36,3%,
þannig að flokkurinn hefur tæp-
lega tvöfaldað fylgi sitt.
„Það er erfitt að finna einhverja
eina skýringu á þessum glæsilega
sigri sjálfstæðismanna. Fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins og fulltrúar
klofningsframboðs frá þeim stjórn-
uðu sveitarfélaginu á síðasta
kjörtímabili og sameinuðust síðan
undir merkjum Sjálfstæðisflokks-
ins, og ætli kjósendur hafi ekki vilj-
að hafa áfram sama hóp. Einnig
tel ég það spila inn í að andstæðing-
arnir náðu ekki að stilla saman sína
strengi og spiiuðu sig reyndar mjög
sérkennilega. Við unnum vei á
síðasta kjörtímabili; má þar nefna
loforð um íþróttahús og átak í
gatnagerð sem efnd voru og styrka
fjármálastjórn. Sveitastjórinn hefur
og staðið sig vel, en hann var á lista
flokksins 1986 og mun áfram gegn
starfi sveitarstjóra. Það er því
margt sem spilar inn í,“ sagði Guð-
mundur Gunnarsson, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins í Bessa-
staðahrepp.
Ellert Eiríksson,
oddviti sjálfstæðismanna
í Keflavík:
Úrslitin eru
uppskera
markvissrar
vinnu
SJÁLFSTÆÐISMENN í Keflavík
bættu við sig tveimur bæjarfull-
trúum í bæjarstjórnarkosningun-
um og hafa nú fjóra. Ellert
Eiríksson, efsti maður á D-listan-
um, segir að úrslitin séu upp-
skera markvissrar vinnu. Fram-
boðslistinn hafi verið samhentur
og náð vel til ungra kjósenda.
Listi sjálfstæðismanna í Keflavík
hlaut 36,76% atkvæða og ijóra
bæjarfulltrúa kjörna. Ellert Eiríks-
son, efsti maður listans, segir þessi
úrslit vera uppskeru þess að sam-
hentur hópur frambjóðenda flokks-
ins hafi með markvissri vinnu á-
unnið sér traust kjósenda. Þar hafi
stuðningur ungra kjósenda vegið
þungt, en flokkurinn ætti góðan
hljómgrunn meðal þeirra, sem nú
hefðu gengið að kjörborðinu í fyrsta
sinn.
Ellert segir, að á kjörtímabilinu
muni sjálfstæðismenn leggja mesta
áherslu á atvinnumál í bænum,
umhverfismál og trausta og hag-
sýna íjármálastjórn. Varðandi
meirihlutasamstarf á kjörtímabilinu
segist Ellert gera ráð fyrir að sjálf-
stæðismenn muni leita eftir sam-
starfi við bæjarfulltrúa Framsókn-
arflokksins. Áðalatriðið væri að ná
samstöðu um myndun starfhæfs
meirihluta.
Sturla Böðvarsson,
oddviti sjálfstæðismanna
í Stykkishólmi:
Kjósendur
meta sterka
málefna-
stöðu okkar
STURLA Böðvarsson, bæjar-
stjóri í Stykkishólmi og efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokks-
ins, segir að úrslit bæjarstjórnar-
kosninganna á laugardag gefi til
kynna, að bæjarbúar telji flokk-
inn hafa farið vel með völdin í
bænum og hafi metið sterka
málefnastöðu hans.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft
hreinan meirihluta í Stykkishólmi
síðan 1974. Flokkurinn hlaut
65,44% atkvæða í kosningunum nú
og fékk 5 bæjarfulltrúa af sjö og
bætti þar með við sig einum manni.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri að
sjálfstæðismenn væru afar ánægðir
með þessi úrslit. Ljóst væri að bæj-
arbúar teldu sjálfstæðismenn hafa
farið vel með völd sín og mætu
sterka málefnastöðu þeirra í bæn-
um. Frambjóðendur flokksins hefðu
verið sterkur og samhentur hópur
og kosningabarátta þeirra málefna-
leg.
„Við munum á kjörtímabilinu
leggja mikla áherslu á að styrkja
atvinnulífið í bænum, einkum sjáv-
arútveginn," segir Sturla. „Jafn-
framt munum við beita okkur fyrir
því, að ná fram uppgjöri við ríkið
vegna skulda þess við bæjarsjóð."
Sturla segir að sjálfstæðismenn
muni leggja áherslu á að samstaða
og samstarf innan bæjarstjórnar-
innar verði gott á kjörtfmabilinu.
„Við höfum lagt okkur fram við að
ná breiðri samstöðu um mál innan
bæjarstjórnarinnar. Ef okkur tekst
það nú, eru úrslit kosninganna fyrst
og fremst sigur Stykkishólmsbæj-
ar,“ segir Sturla Böðvarsson.
Framboð Sjálfstæðisflokksins í kaupstöðum 1990
í samanburði við sömu staði 1986
MbUKG
6°/o fylgisaukning
Sjáifstæðisfiokks
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 58.685 atkvæði í kaupstöðunurn 30 í bæjar-
stjórnakosningunum á laugardag, sem er 48,3% af greiddum atkvæð-
um. Árið 1986 fékk flokkurinn 42,4% fylgis í sömu bæjum. Árið 1974
fékk flokkurinn enn meira fylgi. Þá var reiknað saman fylgi hans í
kaupstöðum og fjórum kauptúnum og reyndist það vera 50,5%.