Morgunblaðið - 25.02.1990, Síða 24

Morgunblaðið - 25.02.1990, Síða 24
24 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1990 LEIKLIST /Hvemig verbur leikmynd til? Leikmyndagerð er myndlist ÞÓRUNN SIGRÍÐUR Þorgrímsdóttir hefur starfað sem leikmyndahönn- uður sl. 12 ár og gerði nú siðast leikmynd fyrir Þjóðleikhúsið fyrir leikritið „Heimili Vernhörðu Alba“. Ahuginn á leikmyndagerð byrjaði i myndlistarnámi hennar hér heima, áður en hún ákvað að leggja stund á leikmyndagerð sérstaklega. Hún gerði sína fyrstu „alvöru“ leikmynd fyrir Stundarfrið 1979 og síðar m.a. fyrir Sölku Völku og Dag vonar. Hvernig byijar vinna hennar að uppsetningu? Ef samvinnan tekst illa — þá getur verið lífshættulegt að vinna í leikhúsi. Þegar fólk vinnur hvert á móti öðru getur vinnan auðveld- lega snúist upp í martröð og stund- um þarf ekki nema einn til. Eg verð að hafa áhuga á verkinu, vilja vinna með viðkomandi lista- mönnum, leikstjóra og leikurum að því að skapa sameiginlegt listaverk. Hugmyndavinnan með leikstjóranum er afar mikilvæg fyrir mig, það sem við viljum segja með verkinu. Áður en ég kem með nokkrar skissur eða teikningar verð ég að taka afstöðu eftir Hlín til verksins og túlk- Agnarsdóttur unar þess, en auð- vitað fæðast fyrstu hugmyndirnar að útfærslu samhliða lestri og túlk- un. Þetta er stöðug víxlverkun á milli orðs og myndar, endalausir -fundir og umræður. Enginn getur komið til mín og pantað blátt her- bergi með þremur gluggum." Hvernig þróast vinna þín við leik- myndina svo? „Við upphaf æfingatímabils eru stærstu línur kannski ákveðnar, en mér finnst samt að ferlið eigi að geta breyst fram á síðustu stundu, þótt það gangi engan veginn saman við tímaáætlanir leikhúsanna. Lang- flestar af mínum leikmyndum hafa þróast og breyst með tilkomu leikar- anna á sviði. Mér finnst mikilvægt að sjá leikarana hreyfa sig á sviðinu áður en ég ákveð nákvæmlega allt og finnst gott að geta breytt smá- hlutunum fram á síðustu stundu. Þess vegna sit ég líka eins mikið á æfingum og ég get. Leikhúsin vilja að vísu að allt sé tilbúið helst áður en æfingar byija, en þá er ég að tala um leikhús sem bákn. Það er listrænn dauðadómur að ákveða allt fyrirfram." Hvernig lítur þú á samstarf þitt við aðra í leikhúsinu? „Leikhús er staður þar sem marg- ar listgreinar mætast og allar eru þær jafnréttháar, þótt áherslur séu mismunandi. Það er flókið samspil margra aðila og samvinna þeirra er meginforsendan, jafnvel þótt leik- stjórinn sé yfir allri vinnunni, sam- ræmingaraðili. Það er reyndar mikil- vægt að hver og einn sem tekur þátt í leiksýningu vilji vera hluti af sam- vinnunni frá upphafi til enda. Þess vegna verða að vera sameiginleg markmið með uppsetningunni. Ef samvinnan tekst illa, þá getur verið lífshættulegt að vinna í leik- húsi. Þegar fólk vinnur hvert á móti öðru getur vinnan auðveldlega snúist upp í martröð og stundum þarf ekki nema einn til.“ Hvernig er staða íslenskrar leik- myndagerðar? „Það er mikill skortur á leik- myndahönnuðum. Mér finnst að leik- húsin ættu að fastráða myndlistar- menn, sem hafa áhuga á leikmynda- gerð á sama hátt og leikstjóra. Fyrir mér er leikmyndagerð ekkert annað en myndlist. Við þurfum að gera meira af því að ala upp myndlistar- menn sem hafa áhuga á leikmynda- gerð. Það ætti að koma á samvinnu milli myndlistar- og leiklistarnéma, því við komumst aidrei hjá því að leikhúsið er mynd. Allt er mynd, jafn- vel leikarinn sjálfur er mynd, hvort sem hann er í sérstökum búningi eða nakinn." Hvernig líturðu á leikhúsið í dag? „Mér finnst leikhús á íslandi lítið spennandi. Það er hrætt, leikararnir og starfsfólkið er hrætt. Þáð er lítil eða engin áhætta tekin. Það er eins og skorti starfsgleði, vinnan er ekki nógu mikið ævintýri. En ég hef enga uppskrift að því hvernig það ætti að vera, ekkert frekar en aðrir.“ Jon Faddis- kvartettinn í Óperunni 'OIRSS/Eignast Islendingar einhvem tíma djasstrompetleikara aó nýju? TROMPETGEGGJUN TROMPETINN OG saxafónninn hafa löngum verið tákn jassins. Höfuðstílskapendur hans blésu í þessi hljóðfæri: Louis Armstrong og Charlie Parker. Við íslendingar höfiim átt marga góða saxafón- leikara en færra hefur verið um trompetleikara: Hér á árum áður var Jón Sigurðsson nalhlrægastur og blés í hljómsveit Björns R. Einarssonar. Nú blæs hann I Sinfóníunni. Viðar Alfreðsson er trú- lega helsti djasstrompetleikari er við höfum átt á íslandi, en tromp- etinn er ekki adalhljóðfæri hans — það er valdhornið. Hér er að vísu gott mannval í trompetsveit Sinfóníunnar, en það þarf annað til að vera djassblásari en Sinfóníublásari. Frændur okkar á Norðurlöndum hafa átt tvo heimsþekkta djasstrompetleikara. Þann sænska Rolf Ericson sem leikið hefur með mörgum helstu djasssveitum heims: Duke Ell- ington, Charles Mingus, Woody Herman, Gerry Mulligan svo fá- einar séu nefnd- ar, og Palle Mikk- elborg, sem ekki er síður þekktur fyrir tónsmíðar sínar. Daninn Allan Botschinsky er vel þekktur í Evrópu og svo eru í það minnsta þijú norræn trompet- stirni á framabraut: Markku Jo- hansson frá Finnlandi, Nils Petter Molvær frá Noregi og Jens Winth- er frá Danmörku. Allir hafa þessir kappar blásið á íslandi nema Markku Johanson, en hann kemur hingað í maí og þeytir trompetinn á Norrænu útvarpsdögunum í Reykjavík. Ymsir heimsþekktir trompetleik- arar hafa haldið tónleika í Reykjavík: Nefna má Louis Arm- strong, Chet Baker, Dizzy Gill- espie, Clark Terry, Lester Bowie, Donald Byrd, Aii Farmer og nú síðast Jon Faddis. Hann lék með kvartetti sínum í Óperunni í júní sl. Faddis er einn kröftugasti trompetþeytari sem blæs djass og lærði flest sitt af Dizzy Gillespie. Á síðari árum hefur hann verið að reyna að þurrka Dizzy-áhrifin úr tónlist sinni og í Óperunni mátti vel merkja að honum hefur tekist að skapa sér persónulegan stíi, þó Dizzy sé guðfaðirinn. Það eru fáir trompetleikarar í djassi sem bera ekki merki Louis, Dizzys eða Miles Davis. Jon blés ýmis klassísk djassverk í Óperunni og best þeirra fannst mér West End Blues. Þar leitaði hann aftur til Armstrongs án þess að um stælingu væri að ræða. Hann lék líka eigin tónsmíðar og þijár þeirra má finna á nýjasta geisladiski hans: Into the Fadd- isphere. Það ágæta verk hóf hann að blása í Óperunni en hætti illu heilli eftir fáeina takta og lét hryn- sveitina lulla í stundarfjórðung meðan hann dró hið mætasta fólk uppá sviðið til að stíga dans. Jon var þreyttur eftir langa Evrópuför er hann kom hingað og teygði tímann stundum um of með mis- góðum kynningum. En hann blés líka vel — bæði Sambahia og Many Paths to the Top of the Mountain, sem eru á nýja diskinum. Ekki spilltu meðleikarar hans í Óperunni fyrir: Renee Rosnes, hins norskætt- aða á píanó, Phil Bowle á bassa og Lewis Nash á trommur. Þau tvö fyrstnefndu eru á þessum diski en í stað Nash er Ralph Peterson jr. á trommur. Hann er frábær tromm- ari þó hann slái ekki kraftaverka- manninum Nash við. Faddis er ekki bara í háasés- blæstri á þessum diski. Hann blæs ballöðu sína At long last yndislega svo og gamla trompetglansnúmerið Ciribiren, sem allir hafa blásið frá Harry James til Geirharðs Valtýs- sonar. Þar er enginn belgingur né hamagangur á ferðinni eins og margur gæti búist við. Skemmtilegur diskur góðs lista- manns. SÍGILD TÓNLISTÆzw tónleikar betur sóttir á Islandi? BÁSÚNULEIKUR SIGURÐUR ÞORBERGSSON básúnuleikari hélt nýlega tónleika í Purcell Room í Lundúnaborg. Tónleikar þessir voru skipulagðir af Park Lane Group en sá hópur skipuleggur tónleikaraðir fyrir unga og efnilega tónlistarmenn og ennfremur leggur hún höfuðáherslu á að þeir flytji 20. aldar tónlist. Og það er skemmst frá því að segja að Sigurður fékk afbragðsdóma í Times og Independent, svo það má með sanni segja að tónleikarnir hafi gengið vel. Sigurður lauk prófi við Guildhall skólann í Lundúnum í sumar og starfar nú hér í Sinfóníuhljómsveitinni auk þess sem hann kennir við Tónskóla Sigur- sveins. Sigurður var að vonum hress og léttur í skapi er ég hitti hann að máli og ég spurði hvernig honum liði eftir tónleikana. „Jú, þakka þér fyrir, mér líður ágætlega, annars er ég bara að æfa á fullu. Eftir tón- leika hefur maður oft löngun til að æfa upp nýja efn- isskrá. Eg er eftir Jóhönnu Þór- svona að spá í ein- hallsdóttur letksprogramm. Eg hefðt t.d. gam- an af að fara út á land og þá væri gott að eiga eitthvert aðgengiiegt prógramm, í bestu merkingu þess orðs, ekki of létt þó. Það er svona ýmislegt sem ég hef verið að skoða, t.d. er músík-leikhús- stykki eftir David Sawer eitt eftir Stockhausen, besta tónlistin fyrir básúnu er samin á þessari öld. En það tekur alltaf tímann sinn að æfa upp ný verk.“ - Hvað kemur þér mest á óvart hér á íslandi? „Ég er eiginlega ennþá undrandi á því hversu vel tónleikar eru sóttir og fólk er duglegt að sækja hvað sem er. í London er húsfyllir þegar Lundúnasinfónían spilar í Festival Hall, en hálftómt þegar t.d. ný tón- list er spiluð. Það er kannski þess vegna sem mér finnst ólánlegt að ekki skuli vera veitt meiri athygli og peningum í tónlistarhús. Háskólabíó er alls ekki nógu stórt hús fyrir Sinfóníuhljómsveitina og af þeim sökum getur hún ekki flutt nein stærri verk. Strengjasveitin er allt of lítil, við spilum jú Mahler en það er margt sem er óflutt af Sin- fóníunni af þessum sökurn." En nú er mál að linni enda nýbakaður faðir og stússar í bleiuskiptum milli skalanna. Bið að heilsa. Bless. Sigurður Þorbergsson blæs í básúnuna sína.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.