Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2 MARS 1984 íþróttaskór Sveinbjörg Bjarna- dóttir — Minning Gífurlegt úrval, yfir 40 gerðir. Verð frá kr. 417 — 1.975. Allar stærðir. Visa — Eurocard Póstkröfusími 15599. Boltamaðurinn, Laugavegi 27, sími 15599. T0PP-0FN SIUL HAm HEÍTA H.F. Ofnasmiðjan hefur valið nafn á nýjan og vandaðan ofn, og þakkar þeim fjölmörgu sem sendu inn tillögur í verðlaunasamkeppnina. 1. verðlaun kr. 5000.- TOPP-OFN tillaga frá Áróru Jóhannsdóttur 2. verðlaun kr. 3000 - Spar-ofn tillaga frá Finni R. Stefánssyni TAKIÐ EFTIR! Engin suða að ofan og því minni hætta á tæringu. Ekki hvöss brún ofan á ofninum. Sérstakar hitaþynnur sem eru punktsoðnar mjög þétt á ofnana sjá um að varmagjöf er mjög mikil og ofninn því á hagstæðu verði og ódýr í rekstri. HÁTEIGSVEGI 7-105 REYKJAVIK - S: 21220 Sveinbjörg Bjarnadóttir átti sérstæða ævi, fæddist 18. október 1897 á Stokkseyri, dóttir hjónanna Arnlaugar Sveinsdóttur og Bjarna Jónassonar sjómanns. 21 árs göm- ul giftist hún Elíasi Steinssyni bónda frá Oddhól, 3. nóvember 1918, og tók þá við búi þar en ári síðar keyptu þau Elías Oddhól sem þá hafði verið leigujörð Oddakirkju. Elías var borinn og barnfæddur í Oddhól og hafði átt þar heima alla sína tíð. Það voru glæsileg hjón, ung og hamingju- söm, sem gengu saman til leiks í dagsins önn og ekki leið á löngu þar til fjölgaði í ranni. Laust upp úr 1930 varð amma að ganga undir uppskurð og þá skeði ógæfan, hún lamaðist gjörsamlega, utan það að geta hreyft höfuðið lítillega. Svipt frá börnum og búi til fastrar rúmlegu sem stóð í nær 20 ár. Lengst af þess tíma lá hún í Víði- hlíð við Klepp, en oft minntist hún á lækninn sinn, Grím Magnússon, sem hún kvað hafa ráðið úrslitum um það að kraftaverkið skeði, hún fékk mátt á ný og gat lifað venju- legu lífi, en víst hefur það verið undarlegt ævintýr eftir 20 ára lömun á besta aldri ævinnar. Hví- líkt þrek hefur ekki þurft til þess að komast óskaddaður á sál frá þeim hildarleik? Úr Víðihlíð lá leiðin á Barónsstíg 31 um 1950 og þar átti amma heima alla tíð síðan og aftur varð til heimili Svein- bjargar og Elíasar frá Oddhól. 16. janúar 1957 lést Elías, sérstæður og stórbrotinn persónuleiki sem var öllum eftirminnilegur sem honum kynntust. Börn þeirra sem öll lifa eru Kristín, Steingrímur, Bjarnhéðinn, Arnheiður og Ey- þóra. Elías í Oddhól gekk oft með staf og þegar hann rölti á milli bæja í sinni sveit mátti þekkja hann langt að, því með slíkum tilþrifum sveiflaði hann staf sínum á göng- unni. Bæði voru þau Elías og Sveinbjörg stórpólitísk og blárri en allt sem blátt er í þeim efnum. Ég man hvað mér þótti það und- arlegt þegar ég kom eitt sinn með afa smásnáði inn á Barónsstíg 31. Á gólfinu í forstofunni, sem var sameiginleg fyrir nokkrar íbúðir, lá dagblað og afi hoppaði á blað- inu og stappaði dálitla stund. Svo var það búið. Blaðið var Þjóðvilj- inn. Háöldruð gat amma æst sig ein- hver skelfing yfir pólitíkinni og var þá ekkert að mylja moðið. Stakk það mjög í stúf við annars einstaklega hæverska og vandaða framkomu hennar í hvívetna, en hún gaf ekkert eftir í sannfæringu sinni hvort sem við ættingja eða fjarskylda var að glíma. „Þessir helvítis kommúnistar," sagði hún stundum og það varð svo stórt í munni hennar sem alltaf var vön að sjá það góða í fari náungans. Hannyrðir voru hennar yndi eftir að hún fékk máttinn aftur og margt listaverkið varð til í hönd- um hennar, dúkar og annað fínirí sem eftir er tekið af listunnend- um. Það var alltaf gestkvæmt í litlu kjallaraíbúðinni á Barónsstíg 31, enda var amma einstaklega gest- risin heim að sækja og pjattið og snyrtimennskan slík að ekki var hægt annað en að dást að fasi hennar og fyrirkomulagi öllu hjá henni þótt stundum væri freist- andi að gera góðiátlegt grín að öllu saman. En Sveinbjörg Bjarnadóttir var umfram allt jákvæð og skemmtileg og þess vegna laðaðist fólk að henni. Það var alltaf gott að koma til hennar, en hún átti líka góða að og ég get ekki látið hjá líða að minnast eins manns sem sýndi henni einstakt vinarþel um árabil þegar hún há- öldruð komst ekki til að sinna ýmsum erindum sem hver og einn þarf i daglegu lífi utan heimilis. Vilhjálmur Jóhannesson Freyju- götu 3B var mikil stoð og stytta. Hann kom á hjólinu sínu sjálfur háaldraður, og hjálpaði til við svo margt og margt og ég veit að um tíma hjálpaði hann a.m.k. 7 öldr- uðum konum á þennan hátt, náði í mjólk og mat, fór í tryggingarnar og fleira og fleira, lagfærði það sem fór úrskeiðis og sinnti því hlutverki sem nú þykir sjálfsagt að launa fólki ríkulega af hálfu hins opinbera. Villi á reiðhjólinu snu var frelsandi engill „stelpn- anna sinna" og mikið held ég að hann hafi fengið góðar bænir með sér á vegferð sinni. I 20 ár lömuð í rúmi, en þó alltaf málhress. Síðan komu 30 ár með dagsins önn, gleði og sorgum, unz síðara áfallið kom og í tvö ár, eða þar til lausnin kom, lá amma Minning: Stefanía Guðmunds dóttir - Keflavík Fædd 26. janúar 1900. Dáin 23. febrúar 1984. í dag, 2. marz, kveðjum við hinstu kveðju Stefaníu Guð- mundsdóttur, Aðalgötu 12 í Kefla- vík, er hún verður borin til hinstu hvílu frá Keflavíkurkirkju. Hún lést í sjúkrahúsinu á ísafirði 23. febr. sl. eftir langvarandi veikindi. Stefanía var fædd 26. jan. 1900, í Hábæ í Bæjarskershverfi í Mið- neshreppi. Sá bær er nú kominn i eyði. Foreldrar hennar voru hjón- in Sigurbjörg Torfadóttir og Guð- mundur Þorsteinsson, sem þar bjuggu þá. Bæði voru þau hjónin ættuð af Suðurnesjum. Sigurbjörg var fædd í Kirkjuvogi í Höfnum og Guðmundur var fæddur í Akur- húsum í Garði. Systkini Stefaníu voru þessi: Sólveig Sigríður og Gíslína, þær dóu ungar; Guðný, gift Sveini Jónssyni, bjuggu í Reykjavík; Guðmundína gift Valdimar Einarssyni, bjuggu í Keflavík; Guðrún gift Guðmundi Guðmundssyni á Bala á Miðnesi; Þórarinn, leiksviðssmiður, Reykjavík, kvæntur Fanneyju Guðmundsd.; Sigurður, bifreiða- stjóri í Keflavík, kvæntur Sigrúnu Hannesdóttur; Jón, verzlunarmað- ur, kvæntur Rebekku Friðbjarnar- dóttur, Keflavík. Þessi systkini Stefaníu eru öll látin, nema Guð- rún á Bala og Þórarinn, leiksviðs- smiður í Reykjavík. Snemma varð Stefanía að fara að heiman til þess að vinna fyrir sér. Hún fór fyrst að Hrúðurnesi í Leiru, en um 1917 er hún vistráðin hjá Ingiber Ólafssyni og Marínu, konu hans í Keflavík. Hjá þeim var hún þar til hún giftist Eiriki Jóel Sigurðssyni, en þau gengu í hjónaband 14. sept. 1922. Þau bjuggu fyrst að Aðalgötu 7 í Keflavík, í rishæðinni. Þar fædd- ist fyrsta barn þeirra, Jónína Valdís. Síðar fluttu þau að Hafn- argötu 20 og bjuggu þar í nokkur ár, í rishæð hússins, þar til þau keyptu húsið við Aðalgötu 12, og þar var heimili þeirra síðan. Ei- ríkur var lagtækur vel, sem hann átti kyn til. Hann lagfærði húsið og endurbætti og hélt því vel við meðan hann mátti og hans naut við. En hann lést 10. nóv. 1982. Stefanía var samhent maka sínum að gera litla húsið við Aðalgötu snyrtilegt og aðlaðandi, svo af bar. Alltaf var jafn ánægjulegt að líta inn til gömlu hjónanna, þegar rnaður hafði tóm til. Börn þeirra hjóna, Stefaníu og Eiríks, eru þessi í aldursröð: Jón- ína Valdís, býr í Reykjavík, látinn maki Einar Simonarson, börn þeirra eru 5; Guðrún Magnea þunga legu, einmitt það sem hún hafði alltaf óttast. En nú hefur birt á ný við móð- una miklu, því amma var ætíð sannfærð um það að afi biði þegar þar að kæmi og víst var það til- hlökkun á sinn hátt, því aldrei heyrði ég minnst svo á Elías að amma gæti leynt því hve skotin hún var í honum. Sérstæð kona er gengin, sem með kjarki og ótrúlegri þolinmæði mætti örlögum sínum. Hún auðg- aði líf þeirra sem voru svo lán- samir að eiga samleið með henni, hún setti svip á samtíð sína þótt það færi aldrei hátt. Hún var þeirrar kynslóðar sem skilaði þessu landi fullu af möguleikum í hendur ungs fólks þess tíma. Hún er af tímamótakynslóð í sögu ís- lands sem opnaði dyrnar til sjálf- stæðis þjóðarinnar, kynslóð sem mat reisn og skildi hvað virðing er fyrir lífinu sjálfu. Megi góður Guð fylgja ömmu til þeirrar tilveru þar sem ekkert fær grandað hugsun né heilsu. Árni Johnsen Að kveldi þess 21. febrúar hringdi mamma í mig og flutti mér þá fregn að hún Sveinbjörg amma væri dáin. Var hún mjög þakklát að hafa setið hjá ömmu er yfir lauk, því henni þótti svo vænt um gömlu konuna og heimsótti hana oft á Landakot, þar sem hún hafði legið síðastliðin tvö ár. Ég man nú ekki mikið eftir ömmu í bernsku minni, enda ekki von, því hún lá öll sín bestu ár lömuð á spítala. En hún komst á fætur — þökk sé Grími Magnús- syni lækni og ekki síður óbilandi Bergmann, býr í Bandaríkjunum, látinn maki Gill Del Ecoile, börn þeirra eru 4; Sigurbjörn Reynir, trésmíðameistari, kvæntur Mónu Erlu Símonardóttur, heimili þeirra er að Eyjaholti 11, Garði, þau eiga 5 börn; María Erla, gift Birgi Valdimarssyni, fram- kvæmdastjóra, þau búa á ísafirði og börn þeirra eru 4. Hjá þeim átti Stefanía heimili síðasta árið eftir að maður hennar féll frá. Barna- börn Stefaníu og Eiriks eru 18 og barnabarnabörn 24. Lífsgöngu þessara mætu hjóna er lokið hér á jörðu. Við sem kynntust þeim og nutum starfa þeirra og góðvildar, kveðjum þau með virðingu og þakklæti. Blessuð sé minning þeirra. Ragnar Guðleifsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.