Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 21
lli í gær tæki ekki skeytið til sín og félagið myndi veita starfsfólkinu stuðning, enda væri það innan Dagsbrúnar. Vinnuveitendasamband íslands leit á setuverkfall fólksins í gær sem ólöglegt og að kröfur Dagsbrúnar á hendur Mjólkursamsölunni og sér- kröfur mætti meta til allt að 25% útgjaldaauka. Eins og fram kemur í baksíðufrétt í dag náðist síðan seint í gærkveldi samkomulag milli MS og starfsfólksins. Leystist deilan með einhliða yfirlýsingu forstjórans, Guð- laugs Björgvinssonar, sem féll frá skaðabótakröfu, gegn því að vinna hæfist að nýju í dag og engar tafir yrðu á framleiðslu fyrirtækisins. vinsemd. Sæljónið fylgist með, en hefur þó linum. MorgunblaAiö/ÓI.K.M. kkur upp í boltann og hlýtur sfldarbita að Karl Steinar Albert Kjartan Þorsteinn Sighvatur Ólafur Ragnar Matthías Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokks: Óvissa um fordæmisáhrif saumingsins við Dagsbrún - Heildarkostnaður ríkissjóðs ekki yfir eina milljón króna, sagði Albert Guð- mundsson fjármálaráðherra Óvissa er um keðjuverkandi áhrif þessa samnings vegna starfsmanna utan BSRB og BHM, annarra en Dagsbrúnar- manna, sem hliðstæöar kröfur gera, sem og á útgjöld sveitar- félaga og áhrif á almennan vinnumarkað, sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, efnislega á Alþingi í gær, er samningur Dagsbrúnar og fjármálaráðherra kom til umræðu utan dagskrár. Það vekur hinsvegar athygli að í fjármálaráðherratíö Ragnars Arnalds, þegar Þröstur Ólafs- son var aðstoðarmaöur hans, var einatt staðið gegn þessarri samræmingu, og væntanlega hafa fordæmisáhrif fremur en mannviska ráðið þeirri afstöðu, sagði Þorsteinn ennfremur. KARL STEINAR GUÐNASON (A) gerði samkomulag fjármála- ráðherra og verkamannafélagsins Dagsbrúnar, dagsett 28. febrúar 1984, að umræðuefni í utandag- skrárumræðu í gær. Sagði hann samkomulagið góð tíðindi. Ráð- herra kunni skilin milli misréttis og jafnréttis. Oftlega hafi verið reynt að ná fram samræmingu af þessu tagi, í þágu Dagsbrúnar- manna og fleiri launþega utan BSRB, í fjármálaráðherratíð Ragnars Arnalds á stjórnarárum Alþýðubandalags, en misréttið haldið velli í valdshendi Alþýðu- bandalagsins. Karl Steinar spurði fjármálaráðherra, hvort umrædd- ur samningur næði ekki til allra kjaraþátta, yfirvinnu, persónu- uppbótar (í desember), orlofs, líf- eyrisréttinda og veikinda- og slysaforfalla. Karl Steinar las einnig upp bréf frá Ásmundi Stef- ánssyni, forseta ASÍ, hvar farið er fram á hliðstæða samræmingu fyrir alla launþega ríkisins, utan BHM og BSRB. Hann spurði fjár- málaráðherra hvort eitt myndi ekki yfir alla ganga í þessu efni. ALBERT GUÐMUNDSSON, fjármálaráðherra, sagðist hafa, í krafti þess embættis sem hann gegnir, gert samkomulag við verkamannafélagið Dagsbrún, um að sá hluti Dagsbrúnarmanna, sem vinnur hjá ríkinu, hljóti sam- bærileg kjör og starfsfélagar þeirra í BSRB. Með þessu tel ég ekki að ég hafi blandað mér í samninga á almennum vinnu- markaði. Telji Alþingi að ég hafi brotið af mér með þessu sam- komulagi, verð ég að sjálfsögðu að taka afleiðingum gjörða minna. Ráðherra vitnaði til greinar- gerðar frá launadeild fjármála- ráðuneytis. Þar segir að samræm- ingin hafi nokkur áhrif í 9.—12. launaflokki ASÍ, nokkrir tugir þúsunda fyrir ríkissjóð á ári. Sér- stakri samstarfsnefnd ráðuneytis og Dagsbrúnar hefur verið falið að útfæra samkomulagið og meðan hún hefur ekki lokið störfum er rétt að geyma sér allar fullyrð- ingar um það, hvaða fordæmis- áhrif samkomulagið hefur fyrir aðra aðila vinnumarkaðarins. Verði orðið við öllum kröfum Dagsbrúnar, undantekningar- laust, sem stendur að sjálfsögðu ekki til, þá gæti þessi hugsanlega upphæð orðið um ein milljón króna. Þetta er nú stærðargráðan. Mér er sagt að þetta samkomulag hafi lítil keðjuverkandi áhrif vegna þess að í fáum tilfellum starfi hlið við hlið, í fyllilega sam- bærilegum störfum, ríkisstarfs- maður og verkamaður. Óskir ASÍ um hliðstæða kjara- samræmingu er sjálfsagt að skoða með velvilja. Fólk á að hafa sömu laun fyrir sömu vinnu, hvort sem það er í BSRB eða öðrum stéttar- félögum. RAGNAR ARNALDS (Abl.) sagði yfirlýsingar ráðherra og forystumanna stjórnarflokkanna, út og suður, æði mótsagnakennd- ar. Þannig hafi þessir aðilar lýst því yfir að fjármálaráðherra hafi heldur betur misstigið sig í þessu máli. Þá hafi Morgunblaðið birt leiðara í morgun þar sem vegið sé hart að fjármálaráðherra. í raun þýði þessi leiðari það að ráðherr- ann eigi að segja af sér. Ragnar kvað yfirlýsingu forsætisráðherra í þessu máli hafa vakið undrun sína. Fjármálaráðherra hafi fullt vald til þess gjörnings, sem hann hafi gert. Sérkjarasamningar hafi aldrei verið bornir undir ríkis- stjórnir, né minni háttar samn- ingar, öðru máli gegni hinsvegar um aðalsamning við BSRB. Stefna fjármálaráðherra í þessu máli er alveg laukrétt. KJARTAN JÓHANNSSON (A) sagði gagnstæðar yfirlýsingar ráðherra og forystumanna stjórn- arliðsins vekja spurningar. Þjóð og þing eigi kröfu til þess að vita, hvað framundan sé. Hvað felst í og hvað er að marka þessar yfir- lýsingar? Fjármálaráðherra hót- aði hvað eftir annað afsögn, ef farið yrði út fyrir fjárlagaramma, þ.e. 4% kauphækkun í kjarasamn- ingum. Hvað þýddi sú yfirlýsing? GUÐMUNDUR EINARSSON (BJ) sagði að vanhugsuð nauð- hyggja samflotsins héldi niðri launum í landinu. Auðvitað eigi að greiða sömu laun fyrir sömu störf. Hvað eru forsvarsmenn Reykja- víkur að skipta sér af samningum fjármálaráðherra? Þeir hafa sinn ramma, fjármálaráðherra sinn. Fjármálaráðherra er í fullum rétti í því frumkvæði sem hann hefur tekið. ÞORSTEINN PÁLSSON, for- maður Sjálfstæðisflokksins, minnti á að aðilar vinnumarkaðar, ASÍ og VSÍ, hefðu náð heildar- samningum. Þeir hefðu borið upp erindi um hliðarráðstafanir stjórnvalda, til að rétta hlut hinna verst settu. Stjórnarflokkarnir hafi fallizt á þessi tilmæli, enda ber ríkisstjórn að gæta hagsmuna þessa fólks, við þær aðstæður sem við lifum við í dag. Niðurstaða kjarasamninganna gerði ráð fyrir nokkrum launahækkunum, í áföngum, og að ekki yrði hreyft við öðrum kjaraatriðum. Þessi samningur var gerður í ljósi hinna þröngu efnahagslegu aðstæðna, sem við búum við. Reynt var að halda þann veg á málum að hvorki leiddi til nýrrar verðbólguhol- skeflu né víðtæks atvinnuleysis, vegna veiktrar rekstrarstöðu at- vinnuvega og fyrirtækja. Ég tel, sagði Þorsteinn efnislega, að ekki hafi mátt ganga lengra en gengið var, miðað við markmið verð- bólguhjöðnunar og viðreisnar í þj óðarbúskapnum. Þessir samningar eru nú til um- fjöllunar í verkalýðsfélögum. Flest þeirra samþykkja þá. Ekki öll. Af ýmsum aðilum er unnið markvisst að því, með flokkspóli- tísk markmið í huga, að fella samningana, til að stuðla að upp- lausn í þjóðarbúskapnum, koma ríkisstjórninni frá — og verðbólg- unni á. Fyrsta stéttarfélagið sem felldi samningana var Dagsbrún. Óeðlilegt er, að mínum dómi, að ríkisstjórnin, við þessar aðstæður, gangi til samninga við stéttarfé- lag sem hefur fellt heildarkjara- samningana og samþykki hluta af viðbótarkröfum þess. Það hlýtur að leiða til meiri óvissu um af- greiðslu samninganna og stofna verðbólgumarkmiðum stjórnar- innar í meiri hættu en ella. Auk þess binda þessir samningar ekki frekari samninga við Dagsbrún á nokkurn hátt. óvissa er og um keðjuverkandi áhrif þeirra, ekki aðeins fyrir ríkissjóð, heldur einn- ig sveitarfélögin og hinn almenna vinnumarkað. Þessi samningur er heldur á engan hátt bundin lág- launafólki sérstaklega. Ekki verður komizt hjá að minna á að Ragnar Arnalds, sem fjármálaráðherra, og Þröstur Olafsson, sem aðstoðarmaður fjármálaráðherra, stóðu gegn þessari samræmingu öll valdaár Alþýðubandalagsins, ekki af mannvonsku, heldur vegna víð- tækra keðjuverkandi áhrifa í þjóð- arbúskapnum og á efnahagsleg markmið stjórnvalda. Það er hræsnin einber þegar Ragnar Arnalds kemur hér í ræðustól og talar eins og hann gerði. Það þurfti í raun að koma Ragnari og Þresti út úr fjármálaráðuneytinu til að það gerðist sem nú hefur gerzt. Hér er um alvarlegt mál að ræða, sem verður metið innan okkar flokks og gerð grein fyrir niðurstöðum, þegar þær liggja fyrir. SIGHVATUR BJÖRGVINSSON (A) kvað Þorstein Pálsson hafa talað sem formann VSÍ en ekki formann Sjálfstæðisflokksins. Fjármálaráðherra hafi tvímæla- laust meirihluta fyrir gjörningi sínum í þinginu. Hér sé ekki á ferð stærra dæmi en sem svaraði einni milljón króna. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON (Abl.) kvað Þorstein Pálsson hafa hótað Albert Guðmundssyni rétt- arhaldi innan Sjálfstæðisflokks- ins. Morgunblaðsklíkan hafi einn- ig heimtað það í leiðara, ótvírætt, að fjármálaráðherra færi frá. Hann tók undir staðhæfingu um eina milljón króna sem heildar- kostnað af samningnum. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON, sjáv- arútvegsráðherra (sem jafnframt gegnir embætti forsætisráðherra í fjarveru Steingríms Hermanns- sonar), sagði slíkan samning, sem hér um ræð:r, á valdsviði fjár- málaráðherra. Ef hinsvegar þyrfti fjáraukalög fyrir útgjöldum um- fram fjárlög þurfi þau, eðli máls samkvæmt, að fá umfjöllum í rík- isstjórn og þar af leiðandi í þing- flokkum beggja stjórnarflokk- anna. Hliðarráðstafanir, sem stjórnvöld standi að, samhliða heildarsamningum ASf og VSÍ, hafi þannig verið ákveðnar af stjórninni í heild. MATTHÍAS BJARNASON, heil- brigðisráðherra, sagði sízt sitja á Ólafi Ragnari Grímssyni að tala um réttarhöld. Þegar hann hafi verið þingflokksformaður Alþýðu- bandalags hefði sá einstæði at- burður skeð, að hann hafi sent lögreglu eftir samþingmanni, Guðrúnu Helgadóttur, og krafizt þess að hún yrði færð til þinghúss, til þátttöku í atkvæðagreiðslu. Það sé eina dæmið um lögreglu- afskipti þegar þingstörf einstakra þingmanna ættu í hlut. Raðherran fjallaði síðan um fjárlagaforsendur, m.a. ákvarðan- ir um sparnað í ríkiskerfinu, sem fagráðuneytum væri gert að ná m.a. með 2% samdrætti í launa- kostnaði og 5% samdrætti í öðrum rekstrarkostnaði. Um þetta hafi náðst samstaða milli stjórnar- flokkanna. Ég býst ekki við, sagði Matthías efnislega, að stjórnar- andstaða sýni aðstoð við ná þess- um markmiðum. Það markverðasta í málflutn- ingi stjórnarandstöðu í þessari umræðu taldi Matthías fullyrð- ingu Ólafs Ragnars Grímssonar og Sighvatar Björgvinssonar, þess efnis, að samningurinn, sem hér væri ræddur hefði um eða innan við einnar milljónar heildarút- gjöld fyrir ríkissjóð í för með sér. Með þessari staðhæfingu eru þeir að slá því föstu að sagt verði þvert nei við ASÍ og aðra utan BSRB, sem kunni að fara sömu erinda til fjármálaráðherra og Dagsbrún. KARL STEINAR GUÐNASON (A) átti lokaorð sem upphafsorð umræðunnar. Hann ítrekaði að ASÍ hlyti að fá samskonar leið- réttingar og Dagsbrún, ekki sízt verkakonur í Framsókn og Sókn. Það er óþarfi að gera lítið úr framvindu samninga í kjölfar þessa samnings. Hér er um miklu stærri fjárhæðir að ræða en eina milljón króna. Vonandi fær fjár- málaráðherra frið til að efna gefin fyrirheit sín til allra þeirra mörgu er málið varða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.