Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978 31 REYKJAVÍKURLIÐIN Valur og Fram mættust í 1. deild íslandsmóts- ins á Laugardalsvellin- um í gærkvöldi. Venjulega hafa leikir Þessara liða verið mjög jafnir og jafntefli oftast verið uppi á teningnum en í gær brá svo viö að Valsmenn unnu stórsig- ur, 3:0. Þetta var sann- gjarn sigur en kannski í stærra lagi miðað viö marktækifæri. Vals- menn hafa nú tekið forystuna í 1. deild strax í fyrstu umferö og eng- inn vafi leikur á pví aö peir verða enn eitt árið í toppbaráttu í íslandsmótinu. Leikurinn byrjaði mjög rólega. Leikmenn voru lengi að komast á skrið og vart er hægt að tala um marktækifæri í leiknum fyrstu 25 mínúturnar. Oft brá fyrir laglegu spili úti á vellinum, sérstaklega þó • Ilættulegasta tækifæri Fram í leiknum. Kristinn Atlason (liggjandi) hcfur skallað að marki en Sævar Jónsson bjargar mjög vei í horn. Ingi Björn er tilbúinn á linunni eí illa skyldi fara. Valur vann Fram stórt í lokaleik 1. umferðar hjá Valsmönnum en þegar kom að markinu fjöruðu sóknarloturnar út. Á 27. mínútu leiksins kom fyrsta markið. Mistök urðu í vörn Fram þannig að Guðmundur Þorbjörns- son náði knettinum og brunaði að markinu og sá Kristinn Atlason ekki önnur ráð en brjóta á Guðmundi á vítateigslínunni. Atli Eövaldsson tók spyrnuna og hann var ekkert að tvínóna við hlutina heldur afgreiddi knöttinn rakleitt í netið með góðu lágskoti, sem hafnaði alveg úti við stöng. Átti Guðmundur Frammarkvörður ekki minnst^ möguleika á því að ná til knattarins. Framarar höfðu verið daufir í fyrri hálfleiknum en í upphafi seinni hálfleiks var eins og þeir vöknuðu til lífsins og voru þeir mun betri fyrstu 20 mínútur hálfleiksins. Sóttu þeir af krafti og á 64. mínútu munaði ekki nema hársbreidd að Framarar jöfnuðu metin. Kristinn Atlason náði þá að skalla að markinu en hinum bráðefnilega Sævari Jónssyni miðverði tókst að bjarga á síðustu stundu í horn. Eftir hornspyrnuna Valur - Fram 3:0 Textii Sigtryggur Sigtryggsson Myndi Ragnar Axelsson komst Kristinn Atlason í gott færi en skaut naumlega framhjá. En upp úr miðjum hálfleiknum fóru Valsmenn að ná yfirtökunum á ný og réðu þeir lögum og lofum á vellinum það sem eftir var leiksins. Á 26. mínútu seinni hálfleiks fengu þeir aukaspyrnu vinstra megin, sem Hörður Hilmarsson framkvæmdi. Hann sendi knöttinn vel inn í teiginn. Kristinn Atlason hugðist skalla frá en náðði ekki til knattarins og barst hann til Alberts Guðmunds- sonar, sem stóð dauðafrír við stöngina fjær og hann gat ekki annað en skorað. Áfram héldu Valsmenn að sækja á og á markamínútu seinni hálfleiksins, 43. mínútu, sendi Atli Eðvaldsson boltann vel fyrir markið frá hægri og þar var Ingi Björn Albertsson í dauðafæri og skoraði örugglega, sláin inn. Stórsigur Vals var innsiglaður, 3:0. Þrátt fyrir meiðsli tveggja lykilmanna liðsins hafði lið Vals umtalsverða yfirburði í leiknum. Oft á tíðum léku Valsmenn prýði- lega knattspyrnu úti á vellinum og ekki verður annað sagt en þeir hafi notað tækifærin vel. Og vörnin var sterk fyrir með Dýra Guðmunds- son, Sævar Jónsson og Grim Sæmundsen sem sterkustu menn og Sigurður Haraldsson var örugg- ur í markinu. Á miðjunni var Atli Eðvaldsson mjög góður. Framlínu- mennirnir voru hins vegar dauf- asti hluti liðsins. Framarar sýndu það í 20 mínút- ur í seinni hálfleik að þeir geta Framhald á bls. 18 Fara Stefán og Marteinn til Danmerkur eða Svíþjóðar? ÞEIR Stefán Ilalldórsson og Marteinn Geirsson sem leikið hafa að undanförnu með Royal Union í Belgíu, eru nú með lausa samninga við félagið. og eru þeir báðir að leita fyrir sér með samning hjá öðru liði. Stefán Halidórsson sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að ekki hefði gengið vel hjá Union í vetur, agaleysi hefði verið innan liðsins og þjálfarinn var einnig leikmaður og hafði það ýmsa galla í för með sér. — Þá var fjármálum félagsins ekki nægilega vel stjórn- að. — Hugur okkar beggja stefnir á að komast á samning hjá liði í einhverju öðru landi og eru góðar vonir um að það rætist, þau mál skýrast á næstunni. — Ef ekki rætist úr mun ég koma heim um miðjan júní, sagði Stefán að lokum. Ekki vildi Stefán láta uppi hvaða lönd væru um að ræða en Morgunblaðið hefur fregnað eftir öðrum leiðum að Danmörk og Svíþjóð kunni að vera meðal þeirra. . þr Elnkunnagjoltn VALUR — Sigurður Ilaraldsson 3, Vilhjálmur Kjartansson 2, Grímur Sæmundssen 3, Hörður Ililmarsson 2, Dýri Guðmundsson 3, Sævar Jónsson 3, Ingi Björn Albertsson 2, Atli Eðvaldsson 3, Albert Guðmundsson 2, Jón Einarsson 2, Guðmundur Þorbjörns- son 2. Magni Pétursson (v.m.) 1, Guðmundur Kjartansson (v.m.) 1. FRAM — Guðmundur Baldursson 2, Símon Kristjánsson 1, Gústaf Björnsson 3, Gunnar Guðmundsson 3, Kristinn Atlason 2, Sigurbergur Sigsteinsson 2, Rafn Rafnsson 1, Kristinn Jörundsson 2, Pétur Ormslev 3, Ásgeir Elfasson 2, Eggert Steingrímsson 1, Þorvaldur Hreinsson (v.m.) 2, Hreinn Elliðason (v.m.) 1. DÓMARIi Magnús Pétursson 3. Jafntefli Skotlands og Wales SKOTLANO og Wales skildu jöfn 1:1 á Hampden Park í Glasgow í gærkvöldi en leikurinn var liöur I meistarakeppni brezku landsliö- anna. Þetta var annaö jafnteflið hjá Skotum á nokkrum dögum og eru menn farnir aö efast um aö liðið standi sig vel í Heimsmeistara- keppninni i Argentínu. 70 þúsund áhorfendur fylgdust meö leiknum. Skotarnir voru betri í fyrri hálfleik og þeir tóku forystuna á 12. minútu með góöu skallamarki Derek Johnstone eftir undirbúning Archie Gemmill. Undir lokin var dæmd vítaspyrna á Skota en Bryan Flynn skaut framhjá markinu. En skozki bakvöröurinn Donachie kom þeim welsku til hjálpar á lokamínút- unni þegar hann sendi boltann í eigiö mark. „Fer ekki á EM nema ég sé öruggur með 20 metrana" „Þetta hefur verið að smá koma hjá mér og ég kasta núna 17 til 19 mctra á æfingum svona allt eftir því hvernig liggur á mér. Ég hef auðvitað mikinn áhuga á því að verða mcð í Evrópumeistaramótinu í Prag í haust en er ákveðinn í að fara ckki nema ég sé öruggur með að kasta vel yfir 20 metra,“ sagði Hreinn Ilalldórsson Evrópumeistari í kúluvarpi f spjalli við fþrótta- sfðuna í gær. Svo sem menn muna var Hreinn skorinn upp á hné í vetur en meiðsli í hné háðu honum mjög í keppni í fyrra. „Ég er byrjaður að æfa á fullu þetta 4—5 sinnum í viku en ég á langt í land með að ná fyrri styrkleika," sagði Hreinn. „Ég fór að sjálfsögðu úr ailri æfingu og auk þess tapaði ég niður þeirri tækni sem ég hafði náð því tilfinningin fór alveg úr löppinni. Það tekur tíma að ná þessu upp aftur og það er alveg óvíst að ég nái umtalsverðum árangri í sumar þótt ég leggi hart að mér við æfingarnar.“ Hreinn hefur aðeins tekið þátt í einu móti í vor og kastaði hann þá 18,98 metra. Sem fyrr segir hefur Hreinn mikinn hug á því að komast á Evrópumótið, sem haldið verður í Prag um mánaðamótin ágúst—septem- ber. Kvaðst hann búast við því að ná tilskildum lágmörkum en það væri svo annað mál, að hann teldi sig ekkert erindi eiga í keppnina nema hann væri öruggur með að kasta vel yfir 20 metra. „Það kemur ár eftir eftir þetta ár og ég er því inn rólegasti þótt hægt gangi að ná fyrri styrkleika," sagði Hreinn. Hann sagði að lokum að framundan væri vafalaust skemmtilegt sumar í frjálsí- þróttunum. Sér litist sérstak- lega vel á kastgreinarnar og það myndi ekki koma sér á óvart að Óskar Jakobsson yrði maður sumarsins í kastgreinunum. Erlendur Valdimarsson hefði einnig æft vel og kvaðst Hreinn hafa heyrt að hann hefði kastað vel yfir 60 metra á æfingum að undanförnu. -SS. • Þessir kappar verða væntanlega í sviðsljósinu í sumar. kastararnir Erlendur Valdimarsson. öskar Jakobsson og Hreinn Ilalldórsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.