Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.05.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978 17 g stór rætti” Gunnar Þorláksson, Ágúst ísfjörð og Furugeröi 1 er átta hæða hús og er ætlunin að í hluta neöstu hæðarinnar verði aðstaða fyrir félagsstarf íbúanna og gamals fólks í nágrenninu. Þar verður einnig aðstaða fyrir matsölu. Þaö er enn eftir að ganga frá lóð hússins. Ljósm. Mbl. Kr. Ól. úðirnar fyrir aldraða við Furugerði gallinn við þetta er að fara úr Vesturbænum en það er samt kostur að maður getur séð vestur eftir héðan úr húsinu,“ sagði Felix. Er vel að framhald verður á þessum byggingum" „Mér fellur alveg prýðilega við íbúðina og þá alveg sérstaklega hvað héðan er gott útsýni yfir sjóinn enda er ég gamall sjómaður og hef starfað við hann lengst af,“ sagði Guðmundur Guðbjartsson, 68 ára gamall, er við hittum hann þar sem hann var að mæla fyrir gólfteppum á einstaklings- íbúð, er hann hafði nýverið fengið afhenta. „Síðustu árin hef ég búið í leiguhúsnæði niðri á Grettisgötu. Vandræði fólks, sem býr í leiguhús- næði, eru oft á tíðum mikil og þá ekki sízt hjá eldra fólki. Þetta framtak Reykjavíkurborgar er fagnaðarefni og það er vel að búið er að tryggja að framhald verður á þessum byggingum, því ráðgert er að viss hluti af tekjum borgarinnar fari til þessara mála í næstu framtíð, sagði Guðmundur en hann starfar enn hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. „Venjulegar blokkaríbúðir með vissum öryggisútbúnaði" í einni íbúðinni hittum við Ólaf Sigurðsson, arkitekt, og Helga Her- sveinsson, eftirlitsmann, sem voru að yfirfara íbúðirnar fyrir afhendingu. Það eru arkitektarnir Ólafur Sigurðs- son og Guðmundur Kr. Guðmundsson sem hafa teiknað húsið Furugerði 1 og við spurðum Ólaf, hvort húsið væri að einhverju leyti sérstaklega byggt með þarfir gamals fólks fyrir augum? „Þetta eru í raun mjög venjulegar blokkaríbúðir auk þess, sem til staðar er viss öryggisútbúnaður, sem hægt er að grípa til ef með þarf. í húsinu er bjöllukerfi eins og á sjúkrahúsum, þannig að íbúðirnar geta kallað á aðstoð húsvarðar, ef með þarf, en húsvörður munu búa á neðstu hæð- inni. Þá eru svalir fyrir utan alla glugga og má því þrífa alla glugga frá svölum og hægt er að komast út á þær, ef mað þarf. íbúðirnar eru að vísu frekar litlar en baðherbergin eru nokkuð rúmgóð og hverri íbúð fylgir geymsla, sem er í íbúðinni. Þá er í húsinu sameiginlegt þvottahús og gert er ráð fyrir að félagsaðstaða fyrir íbúa og matsala verði tilbúin síðar í sumar,“ sagði Ólafur. upp grásleppuna sína, sagöi Olafur Sig- elgi Hersveinsson, eftirlitsmaður. Guðmundur Guðbjartsson undirritar leigusamning aö íbúð sinni. UNGT FÓLK í FRAMBOÐI „Aðaláhugamál mitt er yinnan,, UNDANFARIN þrjú ár hefur Sturla Böðvarsson gegnt störfum sveitarstjóra Stykk- ishólms. og mun einnig gefa kost á sér næsta kjörtímabil, að beiðni núverandi meiri- hluta sveitarstjórnar. Sturla er kvæntur Hallgerði Gunn- arsdóttur og eiga þau hjónin þrjú börn. „Eg er ánægður með að búa í Stykkishólmi, því að þar er flest af því sem maður gerir kröfur til. Heilbrigðisþjónusta er í góðu lagi og sama má segja um félagsmál. Atvinnu- ástandið er gott og ekki verður vart neins fólksflótta frá Hólminum. Ibúar eru um 1200 og er fólksfjölgunin nokkuð jöfn. Stykkishólmur hefur þá sérstöðu að þaðan eru stund- aðar skelfiskveiðar og er stór hluti atvinnunnar tengdur skelfiskveiðunum. Þá er hér einnig starfandi skipasmíða- stöð og byggingariðnaður er talsverður. Nei, ég er ekki fæddur í Stykkishólmi heldur í Ólafs- vík,“ érvið spyrjum Styrlu hvaðan hann sé ættaður. „Síðan fluttist ég til Reykja- víkur og var þar við nám í nokkur ár. Til Stykkishólms kom ég hins vegar ekki fyrr en 1975. Aðaláhugamál mitt er vinn- an, og reyni ég að sinna starfi mínu eins vel og mér er unnt. Það er alltaf í nógu að snúast og verkefnin eru mismunandi. Mörg vandamálanna snúa að rekstri sveitarfélagsins og fjáröflun. Það vantar alltaf fjármuni, svo nauðsynlegt er að halda vel um taumana, þegar framkvæmdir eru ann- ars vegar. Nú önnur áhugamál eru hestamennska og stangveiði. Eg á þrjá hesta og reyni að komast á bak að minnsta kosti einu sinni í viku, en mér finnst sjálfum ég fara alltof sjaldan í útreiðartúra. Stangveiðina hef ég mest stundað í nágrenni við Stykkishólm og hef ég einnig gaman af henni.“ „Hestamennskan mér í blóð borin,, ■r „Ætli hestamennskan sé mér ekki í blóð borin, því ég hef alla tíð haft ga'man af hestum og skrepp á hak^ eins oft og mögulegt er. Ég hef tamið nokkra hesta fyrir sjálfan mig og tekið þátt í gæðingakeppn- um. Hesturinn minn. Kolskegg- ur, hlaut t.d. 2. verðlaun í gæðingakeppni á hestamóti Faxaborgar fyrir nokkru." Það er Ásbjörn Sigurgeirsson frá Borgarnesi sem hefur orðið, en Ásbjörn er 4. maður á lista Sjálfstæðisflokksins til bæjar- og sveitarstjórnarkosninganna þar í vor. Ásbjörn er fæddur og uppalinn í Borgarnesi, en hann er kvæntur Kristínu Símsen og eiga þau eitt barn. Undanfarin fjögur ár hefur Ásbjörn verið framkvæmda- stjóri Trésmiðju Sigurgeirs Ingimarssonar, en hann hóf þar vinnu fyrir níu árum. „Aðal- verkefni trésmiðjunnar eru hús- byggingar og önnur mann- virkjagerð, og tókum við t.d. að okkur að byggja viðbygginguna við Bændaskólann á Hvanneyri. Þá rekum við einnig verkstæði, en alls erum við með 15 menn í vinnu, þó að auðvitað fjölgi yfir sumarið. Verkefni hafa hingað til verið dreifð um Borgarfjörðinn, en við höfum engin verkefni fengið utan þess svæðis, enda ekkert reynt til að fá þau. Það eru vissir annmark- ar á því að vera að dreifa starfseminni, þegar nóg verk- efni eru í Borgarfirði. Atvinnulífið í Borgarfirði byggist fyrst og fremst á úrvinnslu landbúnaðarafurða og þjónustu við aðliggjandi land- búnaðarhéruð, en einnig er nokkur iðnaður í Borgarnesi. Hér er rekin verksmiðja sem framleiðir einangrunarplast og prjónastofa, og svo er hér veitt nokkur þjónusta ferðamönnum. Vöxtur bæjarins er stöðugur og atvinna hefur verið jöfn síðastliðin ár. Þá er Borgarnes einnig hæfilega langt frá Reykjavík, það er ekki of langt að fara, vanhagi mann um einhvern hlut. Kosningabaráttan hefur verið róleg að undanförnu og hefur hún farið hægt af stað. Ég er þó bjartsýnn á kosningarnar og leyfi mér að vona aðeins það bezta.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.