Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 15. JANUAR 1978 + Eiginmaður minn og faðir, BJARNIFORBERG fyrrum bæjarsimstjóri, lézt 1 3 janúar. Ásta Forberg og börn. t Eiginmaður minn. HALLDÓR JÓNSSON, Nóatúni 26, sem lést 9 janúar á Borgarspítalanum, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 17 janúar. kl 1 3 30 Guðlin Jónsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts. ÖNNU GUNNLAUGSDÓTTUR. Eskihlið A. GeirG. Gunnlaugsson og fjólskylda t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall eiginmanns míns og föður okkar. JÓNS ÞÓRS ÞÓRHALLSSONAR, Giljaseli 7 Guð blessi ykkur öll. Sigurlaug Ólöf Guðmundsdóttir, Guðmundur Þór Jónsson, Ingvar Páll Jónsson. t Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför- systur okkar, ÁGÚSTU JÓNSDÓTTUR. Grettisgótu 83 Magnúsina Jónsdóttir Jón Jónsson. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður minnar, ömmu. langömmu og systur, AUÐBJARGAR GISSURARDÓTTUR. frá Gljúfurholti Maria Esther Þórðardóttir. Guðbjórg Gissurardóttir, Guðrún Ágústa Arnardóttir, Ingibjórg Ágústa Gissurardóttir. Þórhildur Maria Jónsdóttir. Sigrún Gissurardóttir, Þórdis Gissurardóttir. t Innilega þökkum við öllum, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður okkar. HALLDÓRU KRISTÍNAR HELGADÓTTUR Fyrir hönd vandamanna, Gisli Hafliðason Kristinn Hafliðason. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmii og langömmu, GYÐU KRISTJÁNSDÓTTUR, 7 frá Súðavik Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á deild A-4 Borgarspitalanum og Hafnarbúðum Kristrún Magnúsdóttir, Páll Jónasson. Sólveig Magnúsdóttir, Vilhjálmur Alfreðsson, barnabórn og barnabarnabörn. t Emlægar þakkir fyrir samúð og vináttu við andlát og útför, JÓNS HALLS KARLSSONAR. Ólöf Stefánsdóttir. Karl Ómar Jónsson. Stefán Karlsson, Sigurborg Ragnarsdóttir. Kristin Karlsdóttir. Guðmundur Sverrisson Björn Karlsson, Kristin M. Karlsdóttir. Elsa Kristjánsdóttir, stefán Guðnason. Sveinberg Jóns- son — Minning Fæddur 6. júlí 1910 Dáinn 19. nóv. 1977. Síðst hefði okkur dottið i hug, er við kvöddum vin okkar, Svein- berg, í byrjun október, að það yrði síðasta kveðjan okkar. Þegar við fengum þá frétt, að hann hefði kvatt þennan heim svo skyndi- lega, sem raun bar vitni, urðum við bæði hissa og hrygg að missa svo góðan vin. Okkur kemur helst i hug það, sem Jónas Haligrímsson orti, er hann missti vin sinn Bjarna Thorarensen: Skjótt hefur sól brugðið sumri, þvi séð hef ég fljúga fannhvfta svaninn úr sveitum til sóllanda fegri. Sofinn er nú söngurinn Ijúfi f svölum fjaliadölum grátþögull harmafugl hnfpir á húsgafli hverjum. Það hefur eflaust mörgum kom- ið harmur i hug og fallið tár af harmi, þegar lát Sveinbergs frétt- ist. Það er um það bil áratugur síðan við kynntumst þeim hjónum náið, er þau fiuttust frá Blönduósi til Reykjavikur. Eftir því sem kynningin jókst, fundum við betur og betur, hversu mikl- um mannkostum Sveinberg var búinn; ég held, að hann hafi ekki getað neitað neinum um hjálp, hafi hann átt möguleika á að veita hana. Hann var mjög eftirsóttur starfsmaður af þeim, sem þekktu starfsgleði hans og samviskusemi, enda mun vandfyllt það skarð. Þótt vinir hans nær og fjær kveðji hann með söknuði, þá er auðvitað sárasti söknuðurinn hjá Láru, eiginkonu hans, og hjá börnum þeirra, en fögur endurminning þerrar best sorgartár. Sveinberg var fæddur i Reykja- vík en ólst upp í Stóradal i Aust- ur-Húnavatnssýslu frá 9 ára aldri eftir að hann missti móður sína. Síðar fór hann að vinna hjá Kaup- félaginu á Blönduósi, bæði sem bifreiðarstjóri og sem afgreiðslu- maður. Eftir komuna til Reykja- víkur vann hann fyrst við pípu- lagnir, en síðast sem vaktmaður hjá Olíuverslun íslands. Einnig stundaði hann kennslu i bifreiða- akstri enda fór þar saman bæði kunnátta og lipurð. Var þá ekki verið að telja hverja mínútu, þótt færi fram yfir venjulegan kennslutima. Mitt i önn dagsins og meðal fjöldans felst oft mannsperlur, sem maður uppgötvar jafnvel ekki fyrr en þær erú horfnar sjón- um okkar. En minningin lifir og meitlast inn í hugann og varðveit- ist sem fagur gimsteinn úr hinu jarðneska lífi. Montemar í desember 1977, Guðjón Bjarnason Hulda Long. Sigurður Kolbeinsson stýrimaður - Minning Hinn 8. þ.m. lést i Reykjavík Sigurður Kolbeinsson stýrimaður, rúmlega fimmtugur að aldri. Sig- urður var fæddur í Reykjavík 6. júni 1927, sonur hjónanna Ingi- leifar Gísladóttur úr Reykjavik og Kolbeins Sigurðssonar skipstjóra frá Eyrarbakka af Bergsætt, en Kolbeinn sem er látinn fyrir fjór- um árum var um árabil einn af fremstu togaraskipstjórum þessa lands og mikill öðlingsmaður. Þau hjónin eignuðust fjögur börn og eru nú tvö eftir á lifi, en Gísli sonur þeirra, tvíburabróðir Sigurðar, sem einnig var stýri- maður og listrænn á margan hátt, lést nokkrum mánuðum á undan föður sinum og hefur því á skömmum tíma verið höggvið stórt skarð í þessa fjölskyldu. Sigurður Kolbeinsson byrjaði ungur sjómennsku með föður sin- um á togara og eftir gagnfræða- nám og tilskilda sjómennsku fór hann í Stýrimannaskólann og út- skrifaðist þaðan árið 1950. Réðst hann síðan fljótlega sem stýri- maður á togara og stundaði að mestu sjómennsku upp frá því. Um nokkurra ára skeið var Sig- urður í farmennsku á norskum skipum og sigldi um flest heims- ins höf og settist að um tíma i Ástralíu, en undi þar ekki og sneri heim til íslands, þar sem hann kaus að halda áfram sjó- mennsku með hetjum hafsins. Sigurður var glæsilegur maður á yngri árum og góðum gáfum gæddur, en kvæntist aldrei og var barnlaus. Hann var talinn harð- duglegur sjómaður og komst oft í hann krappann í fangbrögðum við Ægi, enda kom hann ósjaldan skaddaður af hafi. En það var oft annar konungur sem tók við er að landi var komið og lék hann grátt, því að í þeim átökum hlaut hann slæmar byltur, þó að jafnan stæði hann upp úr þeim aftur. Sigurð Kolbeinsson mág minn kveð ég svo að leiðarlokum, þegar hann hefur lokið siglingu sinni um lífsins ólgusjó og er nú kom- inn í friðarhöfn. Jóhannes Markússon. — Úr fórum Stefáns Framhald af bls. 25. að neita að tilhenigingin hefur jafnan gengið í þá áttina að hvít- þvo skáldið, og þá á kostnað sveit- unga þess sem hafa borið grómið eftir viðskipti sin við það. Stefán segir aó á dögum Hjálm- ars hafi verið um áttatíu ábú- endur í Akrahreppi. Þar af hafi tiu til tólf átt »nógar birgðir handa sér og sínu heimilisfólki, hvernig sem allt veltist með ár- Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast í sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera I sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili. ferði,« þrjátíu bændur hafi haft sæmilega fyrir sig en helmingur íbúanna »voru allt fátæklingar, sem ekkert mátti út af bera, að ekki syltu þeir heilu hungri.« Þegar harðnaði í ári lifðu þessir fátæklingar á gjöfum hinna. Hvernig sem þáttur þessi er metinn sem sagnfræði er svo mik- ið vist að hann er vel og skil- merkilega stílaður eins og annað lausamálsefni bókarinnar. Hannes Pétursson upplýsir í eftir- málanum að hann hafi verið sam- inn að tilmælum Finns Sigmunds- sonar og sendur »honum sem eins konar bréf, þegar hann vann að ævisögu Hjálmars, þeirri sem út kom 1960« og hafi Finnur sums staðar stuðst við hann. 1 kveðskap sinum kynnir Stefán sig sem glaðværan skagfirðing sem unir sér við góðar veigar og Ifflegt samneyti við aðra, og hér- aði sínu ann hann fölskvalaust sem títt var um marga góða menn af kynslóð hans. Utgáfan er vönduð, bæói að ytri og innri gerð og til þess fallin að halda minning Stefáns verðug- lega i heiðri. Erlendur Jónsson. — „og stjórnin bað herlið. . . Framhald af bls. 15 farið hafa til Rúmeníu í boði opinberra aðila þar. Meðal þeirra er bókarhöfundur sjálfur. Þegar á allt er lítið má ef til vill hrósa Þórunni Magnúsdótt- ur fyrir allan þann fróðleik sem hún kemur fyrir um Ungverja- land og Rúmeníu í ekki stærri bók. En það sem bókina skortir er fyrst og fremst sjálfstæó skoðun á löndum og þjóðum. Það er of sjaldan sem hún lýsir þvi sem hún hefur sjálf séð og lifað. ______ - Austan um haf Framhald af bls. 19 sem Inge Knutsson segir um Thor Vilhjálmsson — að Knutsson hafi oft heyrt manninn nefndan en ekki farið grannt ofan í bækur hans. Að öðru leyti er ritgerðin sem fyrr segir greinagóð svo langt sem hún nær og — svo eitthvað sé nefnt af bjartara taginu, finnst mér Knutsson gera Guðbergi Bergssyni prýðisgóð skil. Einnig Þorgeiri Þorgeirssyni. Eftir að ritgerð Knutsson slepp- ir sveigir Gardar í lærðari átt með langri ritgerð eftir Peter Spring- borg um uppskriftir íslenskra handrita á sautjándu öld. I stuttri kynningu segir að Springborg sé lektor við Árna Magnússonar stofnunina í Kaupmannahöfn og þarf þá ekki vitnanna við: hann mun vita hvað hann er að segja, maðurinn sá. Að lokum eru svo umsagnir um bækur þar sem meðal annarra getur að líta nafn Arturs Lund- kvists — hann skrifar um Fljótt fljótt sagði fuglinn Thors Vil- hjálmssonar í sænskri þýðingu Peters Hallbergs. Erlendur Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.