Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ.'LAUGARDAGUR 19. NÖVEMBER 1977 45 VELVAKANDI SVARAR Í SÍMA 10100 KL. 10 — 11 FRÁ MÁNUDEGI 4) Erfitt er að skipta um akrein, vegna þess að reykvískir öku- menn hafa alltof stutt bil milli bifreiða. Ekki þarf annað en líta á hinar tíðu aftanákeyrslur til að sannprófa þetta atriði. Að bera saman akstur í Reykja- vík annars vegar og hins vegar á hraðbrautum Evrópulanda, svo að ekki sé nú talað um Bandaríkin, finnst mér algerlega út í hött, enda sjá víst flestir, sem þar hafa ekið, að skipulag og akstursmáti erlendis er á allt öðru og hærra stigi in við þekkjum hér. Eitt atriði mætti nefna, sem á sinn þátt í að tefja umferð á aðal- brautum borgarinnar og það kannski ekki síður en hinir marg- úthrópuðu „silákeppir" á hrað- akstursakreinunum(l), en það eru bílstjórar, sem koma eftir hliðargötum á miklum hraða og virðast ekki ætla að taka neitt tillit til aðalbrautarmerkja. Þeir snarbremsa svo á seinustu stundu, jafnvel ekki fyrr en þeir eru komnir inn á aðalbrautina að hluta. ökumenn, sem ekki kæra sig um að lenda í árekstri, þó að þeir séu í rétti, eru þá löngu búnir að hægja á sér og hafa þar með sömuleiðis dregið úr hraða bif- reiða fyrir aftan. RB P.S. Það væri fróðlegt að vita, hvort sú fullyrðing Þ.B. i bréfi til Velvakanda 15. þ.m., að konur og gamlir leigubílstjórar (letur- breuting mín) kunni ekki reglur um akreinaakstur, eigi við rök að styðjast. Sömuleiðis, hvort reynsla lögreglu og trygginga- félaga staðfesti þá ályktun Þ.B., að líklega sé „þetta vankunnandi, hægfara fólk" (þ.e.a.s. konur og gamlir leigubílstjórar) mestu slysavaldarnir i umferðinni.“ Þessir hringdu . . . 0 Þakkir til bílstjóra áleið 5 Guðrún Ólafsdóttir: — Ég vil endilega fá að þakka bilstjórunum á leið 5 fyrir sérstaka lipurð er þeir sýna alltaf, ekki sízt okkur, sem eigum spöl- korn að ganga niður aó biðstöð SVR hér fyrir neðan Austurbrún 6. Þeir stöðva jafnvel oft ef ein- hver er á leið að biðstöðinni þó hann sé ekki kominn alla leið, og taka hann uppi og finnst mér þeir eiga þakklæti okkar skilið fyrir þessa miklu lipurð og þjónslund í starfi. % Ekki þeim að kenna Kona í Austurbænum: — Ég tek undir það sem Ás- geir Guðmundsson sagði hér i gær um Þjóðverjana og striðið, Þjóð- verjar eru bezta fólk og það er ekki þvi að kenna hvernig hlut- irnir gengu til i strfðinu, þeim var stjórnað, en það var ekki fólkið sem stjórnaði. Þessir atburðir eru löngu gieymdir og það er alger- lega, ástæðulaust að vera að rifja þá alltaf upp. • Ríkisstyrkt happdrætti? Alda Aðalsteinsdóttir: — Eins og margir vita sjálf- sagt hefur dagblaðið Vísir boðið uppá vinninga að verðmæti um 8 millj. króna i happdrætti eða get- raun, sem blaðið stendur fyrir um SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á opnu skákmóti í London i ár, sem þjóðbankinn í Dubai hélt, kom þessi staða upp í skák þeirra Vogel, Hollandi, og Englendings- ins Nunn, sem hafði svart og átti leik. 17 ... Bxf2 + ! Hvítur gafst upp. Eftir 18. Kxf2 — Rg4 + , 19. Kfl (Eða 19. Kgl — De3+, 20. Khl — Rf2+, 21. Kgl — Rh3++, 22. Khl — Dgl + ! og mátar) De3 er hann óverjandi mát. Sigurvegari á mót- inu var Webb, Englandi. þessar mundir. Er ekki blaðið ríkisstyrkt og er ekki verið að verja ríkisstyrknum á nokkuð annan veg en gert hefur verið ráð fyrir? % Sjúkrabíll drari en leigubíll? Alda hefur orðið áfram: — Eg hef alltaf haldið að aðeins þyrfti að greiða smávægi- legt gjald fyrir sjúkraflutning og nýlega þurfti ég að nota sjúkrabíl á leiðinni frá Garðabæ til Reykja- vikur. Kostaði hann um 2000 krónur, en þegar ég tók leigubíl til baka kostaði það 1700 krónur, tæplega þó. Auðvitað er það mik- ill munur að geta alltaf náð í sjúkrabíla og gott að vita af þess- ari þjónustu sem þeir veita, en er það ekki samt undarlegt að það skuli kosta jafnvel meira en leigu- bill kostar? HÖGNI HREKKVÍSI Tryggur! Búningurinn þinn er bara ónytur! — Sinfóníu- hljómsveitin Framhald af bls. 10 lýði og voru hljómlistarmenn óánægðir með það. Benda.þeir á með réttu, að þetta væri áþekkt því, að láta leikara Þjóð- leikhússins sinna hluta af starfsskyldu sinni við stofnanir eins og Ríkisútvarpið og Sjón- varpið. Farið er með þessari grein frumvarpsins, inná svið kjarasamninga tónlistarmanna. Augljóst er að samvinna hlýtur að vera milli Sinfóníuhljóm- sveitarinnar og Þjóðleikhúss- ins, að þvi er varðar flutning söngleikja danssýninga og að einhverju leyti leikrita. Vand- inn er að finna form samvinnu sem allir aðilar geti sætt sig við og eru ánægðir með. Ég er ekki viss um að sú lausn sem frum- varpið gerir ráð fyrir sé til frambúðar. Þetta eru að mínu mati helstu gallar frumvarpsins. Þó álit ég það að mörgu leyti þarft og gott eins og getið var um í upphafi. En ýmislegt vantar enn, sem hvergi er gert ráð fyrir. Það er ekki nóg að Sinfóníuhljóm- sveitin leiki þá tónlist sem til er, eldri sem yngri. Hún á einn- ig að stuðla að því, að ný tónlist verði til. I frumvarpinu um Þjóðleikhús, sem ég hef oft vitnað til, er sagt, að leikhúsinu sé heimilt, eftir því sem ástæð- ur leyfa, að ráða til starfa leik- ritahöfund eða aðra höfunda til þriggja eða sex mánaða. „Aðrir höfundar" eru væntanlega tón- eða danshöfundar. Hér vantar sambærilega heimild fyrir Sin- fóníuhljómsveitina. Raunar nær þessi heimild Þjóðleikhús- inu til handa allt of skammt. Þar eiga alltaf að vera starfandi einn eða fleiri höfundar. Sama er að segja með Sinfóniuhljóm- sveitina, — hún á alltaf að hafa eitt eða fleiri tónskáld í þjón- ustu sinni sem hefðu þann starfa að semja fyrir hana ný verk. Mætti hugsa sér, að tón- skáld væri ráðið til tveggja ára í senn og síðan eitthvert annað tónskáld. Hér, sem á mörgum öðrum stöðum, hefr gengið nokkuð vel að koma túlkandi listamönnum fyrir i þjóðfélag- inu, skapa þeim starfsskilyrði svo þeir geti unnið að sinni list. Þetta á t.d. við um leikara, tón- listarmenn og dansara. Hins vegar hafa skapandi listamenn, myndlistarmenn, rithöfundar, tónskáld verið eins konar úti- gangshros — of settir á guð og gaddinn. Nú er það ekki síður erfiði að skapa list, eins og flytja lis, og aveg jafn mikil- vægt að list verðitil, eins og aðlist sé flutt. Ekki er ætlun mín að vekja upp gamla drauga, né ala á metingi milli svonefndra skapandi og túlkndi listamanna. Mörkin Kr á milli eru oft fljótandi. Hvar endar sköpun og hvar byrjar túlkun? Báðir aðilar þurfa á hinum að halda. — Staksteinar Framhald af bls. 7 ingalög, sem þeir sjálfir ætla saiinanlega að láta kjósa sig eftSr til þing- setu á nýjan leik. Siíkt er með öllu ótækt. F.vrir þvf skyldu menn sam- einast um að fresta öll- um breytingum á kosn- ingalögunum uni hríð en vanda þeim mun bet- ur til breytinganna þegar meiri tfmi vinnst tii og ráðrúm gefst til samráðs við kjósendur. Og þá er eðlilegt að taka alla endurskoðun stjórnarskrárinnar með f reikninginn. I MlgiliilSiMISlSlSMlrÍ ALLT MEÐ Á næstunni ferma skip vor til íslands sem hér segir: ANTWERPEN: Lagarfoss 2 1. nóv. Fjallfoss 28. nóv. Lagarfoss 5. des Fjallfoss 1 2. des. ROTTERDAM: Ljósafoss 1 9. nóv Lagarfoss 22. nóv. Fjallfoss 29. nóv. Lagarfoss 6. des Fjallfoss 1 3. des FELIXSTOWE: Dettifoss 22. nóv. Mánafoss 29. nóv. Dettifoss 6. des. Mánafoss 1 3. des. HAMBORG: Dettifoss 24. nóv. Mánafoss 1 des. Dettifoss 8. des. Mánafoss 1 5. des. PORTSMOUTH Goðafoss 2 5. nóv. Hofsjökull 7. des. Bakkafoss 7. des. Selfoss 1 4 des. Bakkafoss 28. des. KAUPMANNAHÖFN: Laxfoss 2 2 nóv. Háifoss 29. nóv. Laxfoss 6. des. Háifoss 1 0 des. GAUTABORG: Laxfoss 2 3. nóv. Háifoss 30 nóv Laxfoss 7. des. Háifoss 1 4. des. HELSINGBORG: Tungufoss 28 nóv. Urriðafoss 7. des. MOSS: Urriðafoss 1 9. nóv. Tungufoss 29. nóv. Urriðafoss 8 des. KRISTIANSAND: Urnðafoss 21. nóv Tungufoss 30 nóv Urriðafoss 9. des. STAVANGER: Urriðafoss 22. nóv. Tungufoss 1. des. Urriðafoss 1 0 des. ÞRÁNDHEIM Álafoss 1 9. des GDYNIA/GDANSK: Skógafoss 1 9. nóv. VALKOM: / Múlafoss 22. nóv. írafoss 6. des. VENTSPILS: Múlafoss 23. nóv. WESTON POINT: Kljáfoss 22. nóv. Kljáfoss 6 des Í i i i i p p ilr] ú pj m I I § I I 1 I I I I á i i m I m I pj m 3ta22EE5S;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.