Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 248: tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. —•------------------------------------------------------------------------------- „Fyrsti Arabaleiðtoginn sem fer með friði til ísraels” ísraelskir emb- ættismenn fagna egypzkum starfs- bræðrum sínum við komuna til Ben Gurion- flugvallar í gær. Söguleg ferð Sadats hefst í kvöld Kaíro, Jerúsalem og Washington 18. nóvember AP — Reuter. SADAT Egyptalandsforseti, sem síðdegis f dag kemur f fyrstu opinberu heimsókn Arabaleið- toga til tsraels frá þvf 1949, baðst fyrir í mosku í Kafró f gærkvöldi um svipað leyti og um 60 egypzkir embættismenn komu til Jerúsal- em til að undirbúa heimsókn hans. „Salaam aleikum" (friður sé með yður) voru fyrstu orðin, sem fsraelskir embættismenn sögðu við egypzka starfsbræður sína, en þeir stigu út úr einka- þotu egypzku stjórnarinnar á Ben Gurion-flugvelli. Egyptarnir óku í tveimur langferðabifreiðum inn Studnings- menn Indiru fresta adgerdum Nýju-Delhí 18. nóvember Reuter. STUÐNINGSMENN Indiru Gandhis fyrrum forsætisráð- herra Indlands hafa fallið í bili frá ráðagerðum um að gera hana aftur að formanni Kon- gressflokksins, af ótta við að slíkt geti valdið djúpstæðum ágreiningi innan hans. Gandhi var formaður flokksins í 11 ár áður en hún féll I kosningun- um í marz sl. Stuðningsmenn hennar hafa undanfarnar vik- ur haldið uppi harðri baráttu til að koma henni aftur I for- mannssætið og ætluðu I dag að leggja fram fullgilda áskorun til formanns flokksins um að kallað yrði saman aukaþing til að kjósa nýjan formann. Það var Gandhi sjálf, sem tilkynnti stuðningsmönnum sinum, að hún vildi ekki að þetta yrði gert I bráð, með heill flokksins í huga. í borgina og var fagnað af borgur- unum, sem kölluðu „Salaam aleikum.** Utvarpið I Kairó sagði i dag, að Sadat færi til Israels með það I huga að reyna að ná fullkomnu samkomulagi um frið i Miðaustur- löndun. Sagði útvarpið að þetta væri söguleg ferð, þvi að Sadat yrði fyrsti Arabaleiðtoginn, sem færi með friði til Jerúsalem. Sad- at var ákaft fagnað er hann kom frá bænastund sinni og hrópaði fólkið: ,,Við styðjum þig af ein- lægni þvi að friður er höfuðmark- mið ferðar þinnar." Stjórnmálafréttaritarar í Kaíró segja að Sadat hafi sætt gífurleg- um þrýstingi úr öllum áttum til að fá hann til að hætta við förina, en segja að hann hafi þegar hann tók ákvörðunina, gert sér grein fyrir áhættunni og ákveðið að ekkert fengi haggað henni. Kom þetta berlega í Ijós, er Fahmi utanríkis- ráðherra sagði af sér og síðan Muhammed Riad, sem var skipað- ur í hans stað. Tök Sadat afsögn- um beggja samstundis og ræddi þær ekki við þá. Forseti egypzka þingsins hefur kallað leiðtoga þriggja stjórn- málaflokka landsins til fundar í dag, rétt fyrir brottför Sadats, en ieiðtogar frjálslyndra og sósíal- ista hafa lýst stuðningi við ferð- ina en vinstrisinnuðu Framfara- samtökin andstöðu. Tveir fyrr- nefndu flokkarnir senda fulltrúa með Sadat til ísraels. Fahmi fyrrum utanríkisráð- herra Egyptalands sagði í viðtali í dag, að ferð Sadats myndi hafa alvarlegar afleiðingar í Araba- rikjunum og á alþjóðavettvangi. Hann sagðist hafa orðið að segja af sér, því hann gæti ekki stutt svo óskynsamlegar ákvarðanir. Hann hafði verið utanríkisráð- herra I 4 ár og löngum talinn hægri hönd Sadats. Leiðtogar fjöl- margra helztu samtaka í Egypta- landi hafa sent Sadat stuðnings- Framhald á bls. 28. Algert uppnám i Arabaríkiunum Beirút, London og New York. 18. nóvember. Reuter —AP. HIN sögulega ákvörðun Sadats forseta að fara til tsraels í friðar- leit hefur valdið algeru uppnámi í Arabalöndunum. Sprengjur hafa verið sprengdar f ýmsum þeirra, mótmælagöngur farnar og Sadat verið opinberlega gagn- rýndur harðlega. Arabaleiðtogar, sem fyrir viku kölluðu Sadat bróður, kalla hann nú svikara. t Beirút var öflug sprengja sprengd fyrir framan sendiráð Egyptalands og 30 Palestínu- menn réðust inn f sendiráð Egypta f Aþenu, felldu grískan lögreglumann og ollu miklum skemmdum. Ákvörðun Sadats olli Assad Sýrlandsforseta miklum von- brigðum, en hann reyndi að telja Sadat hughvarf á mafgra klukku- stunda fundi í gær. I yfirlýsingu Sýrlandsstjórnar i dag sagði, að ferðin ylli klofningi meðal Araba- ríkjanna. Jamahiriyah, stjórnarflokkur- inn í Líbýu, tilkynnti að hann myndi gangast fyrir algeru við- skiptabanni á Egyptaland og krefjast þess að Egyptar yrðu reknir úr Arababandalaginu. Stjórnarflokkurinn í írak skoraði á alla Arabaleiðtoga að fordæma Sadat og dagblöð i Jórdaníu sögðu að ísraelsmenn einir myndu hagnast á ferð Sadats. Frelsisfylking Palestinuaraba, PLO, fordæmdi ferðina og sagði hana ófyrirgefanleg svik við blóð Framhald á bls. 28. Sadat biðst fyrir ásamt Hosny Mubarahr-varaforseta í gær. Stjórn Soares- ar á bláþræði Lissabon 18. nóv. Rcuter — AP. MARIO Soares forsætis- ráðherra Portúgals sagði í gærkvöldi, að hann færi fram á traustsyfirlýsingu við minnihlutastjórn sína 30. nóvember, ef stjórnar- andstaðan á þingi hefði ekki samþykkt fyrir þann tíma að styðja tillögur jafnaðarmannaflokks- stjórnarinnar í efnahags- málum. Stjórnmálafrétta- ritarar í Portúgal segja, að líf stjórnar Soaresar hangi nú á bláþræði. Mikil spenna ríkir nú i stjórn- málum landsins og óttast menn mjög að til átaka kunni að koma milli hægri- og vinstrimanna í borginni Oporto í n-hluta Portúgals, þar sem kommúnistar ætl- uðu í kvöld að fara í mót- mælagöngu gegn efnahags-. áætlunum stjórnarinnar, en hægrimenn í göngu til að lýsa stuðningi við Pires Vleos, fráfarandi hershöfð- ingja N-Portúgals. Soares hefur aðeins 102 af 263 Framhald á bls. 28. Stöðvum kornsölu ef Shcaran- sky verður ákærður segja tveir öldunga- deildarþingmenn New York 18. nóv. Reuter — aP. BANDARlSKU öldungadéild- arþingmennirnir Jacob Javits og Daniel Patrick Moynihan vöruðu í dag Sovétstjórnina við og sögðu að Bandarikja- menn gætu stöðvað hveitisölu til Sovétríkjanna, ef ráðainenn í Kreml ákærðu sovézka and- ófsmanninn Anatoly Shcahr- ansky fyrir landráð. Þing- mennirnir sögðu þetta á fundi með fréttamönnum í New York í gær, þar sem þeir skýrðu frá stofnun nefndar þar í borg til að berjast fyrir, að Shcharansk.v yrði sleppt. Javits sagði, að handtaka Shcharanskys og aðdróttanir Sovétstjórnafinnar uni að hann hefði verið á laununi hjá bandarísku leyniþjónustunni CIA væru árás á Bandaríkin Siðan sagði hann: ..Þeir geta sjálfir fætt þjóðina næsta vet- Framhald á bls. 28.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.