Morgunblaðið - 06.04.1973, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.04.1973, Blaðsíða 17
MQRGUN’BLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1973 17 Minnisvarðar hrakfaranna Eftir C. L. Sulzberger DENPASER, Indónesíu. — Sú stefna sem Rússar hafa fylgt, að reyna að kaupa sér drottnunaraðstöðu í hern- aðarlegum mikilvægum löndum, hef- ur verið þeim dýrkeypt, og hún hef- ur mistekizt jafnherfilega hér í Indó- nesíu, fimmta fjölmennasta landi heimsins, og hún virðist hafa gert í Egyptalandi, þar sem hergögn hafa ekki nægt til þess að kaupa varan- leg pólitísk áhrif. Hér á þessuim víðfeðma eyjaklasa 125 milijóna manna, þar sem eftirlit er hægt að hafa með slglingarleiðum frá Japan í austri til Indlandshafs í vestri og frá Asíu í norðri til Ástra- líu í suðri, verður ekki þverfótað fyrir brotnum og ryðguðum minnis- merkjum gífurlega kostnaðarsamrar og algerlega misheppnaðrar tilraun- ar Rússa í þessa átt. Afleiðingin hefur orðið sú, að áhrif Rússa hafa stórlega dvínað hér i Indónesíu, sem hefur orðið sífellt vinveittari og háðari Bandarikjunum. Kommúnistaflokkurinn er í molum og stuðningsmenn Rússa i röðum hans hafa neyðzt til þess að hafa eins hægt um sig og stuðnmgsmenn Kínverja. Og miklu máli skiptir í ljósi al- þjóðamála, að þótt það sé yfirlýst stefna Indónesíu að gæta hlutleysis og berjast gegn valdablokkum, er eina meiriháttar skuldbinding lands- ins í utanríkismálum aðild þess að ASEAN (Samtökum Suðaustur-Asíu- þjóða) því öll önnur aðildarríki þess bandalags hafa gert áþreifanlega her mállasamninga við vestræn ríki. Stöan veldi Sukarnos, fyrsta lands- föðurins, hnignaði og hrundi og valda ránstilraun kommúnista var brotin á bak aftur, hefur herinn verið við stjórnvölinn. Helztu yfirmenn hans eru útskrifaðir frá bandarískum her- skólum og margir menntamenn, sem þeir hafa sér til ráðuneytis við lausn tæknilegra mála, voru menntaðir í Bandarikjunum. Afleiðingin hefur orðið sú, að aft- ur hefur verið horfið til hugmynda markaðshagfræðinnar og stefnu sem samrýmist ekki vitund fyrri vonum Moskvuvaldhafanna. Þótt mennirnir í Kreml fylgi ekki eins glæfralegri stefnu erlendis og Krúsjeff á sínum tíma, er þeim I nöp við ASEAN, og þeir hafa stundum gagnrýnt stjórn- ina hér á þeirri forsendu að hún lúti forystu „afturhaldsafla sem stefni staðfastlega að því að endur- vekja gömlu samskiptin við ríki heimsvaldasinna." En jafnvel varfærnislegar tilraun- ir til þess að kanna áhuga Indónesa á Brezhnevkenningunni, sem miðar að þvi að umkringja Kína með þátt- töku þjóða I Suður- og Suðaustur- Asiu, hafa verið kveðnar í kútinn. Suharto forseti sagði við mig: „Við erum sjálfkrafa andvígir hugmynd- um eins og BreZhnevkenningunni." Aðrir embættismenn stjórnarinnar kvarta undan því, að Rússar „skilji ekki hugsunargang Asíumanna". Þetta á áreiðanlega ekki við um þá ágætlega hæfu stjórnarerindreka, sem Rússar hafa hér i Indónesíu, en breytingar á stefnu Sovétstjórnarinn- ar hafa verið klaufalegar skýrðar. I árslok 1966, þegar Rússar hættu aðstoðinni við Indónesíu eftir stór- Suharto. felld fjöldamorð á kommúnistum, námu fjárfestingar Sovétrikjanna og- tryggra fylgiríkja þeirra rúmlega einum og hálfum milljarð dollara. Þegar aðrir erlendir lánadrottnar féllust á að veita Indónesíu greiðslu- frest, neitaði stjórnin í Moskvu að taka þátt í þvi. Seinna náðist sam- komulag um frest á vaxtagreiðslum, en viðskipti landanna hafa dregizt saman. Gremju vakti, að skilmálarn- ir, sem Rússar buðu, báru vott um heldur litið veglyndi og að þeirvoru tregir til að útvega varahluti í vopn. Samkvæmt upphaflegri áætlun Krúsjeffs um aðstoðina við Indónesíu var reist pólsk flugvélaverksmiðja í Bandung, sem hætti starfsemi sinni þegar sex flugvélar höfðu veriðfram leiddar; pólsk sykurhreinsunarstöð í Atjeh á Súmatra, sem bilaði tveim- ur dögum eftir að hún tók til starfa; sovézk stálverksmiðja I Tjiligon á Jövu, sem hóf aldrei framleiðslu, en er nú aftur að taka til starfa til bráðabirgða með vestrænni fjárhags- aðstoð; sovézk hafrannsóknarstöð í Ambon, sem hætti starfsemi þegar hluti hennar hafði verið reistur; sov- ézkur kjarnakljúfur var settur sam- an í Bandung en aldrei knúinn; sov- ézkur þjóðvegur var lagður yfir Kal- imantan en þurrkaðist út. Eina stóra mannvirkið, sem er nothæft, er risa- stór íþróttaleikvangur i Jakarta. Aðstoð Rússa var að langmestu leyti i vopnum. Rússar sendu Suk- arnó gifurlegt samansafn, þar á með- al 47 herskip, rúmlega 100 flugvélar, að minnsta kosti þrjá eldflaugaskot- palla, þyrlur, skriðdreka, stórskota- vopn og skotfæiri. Þetta glæsilega vopnasafn er nú að mestu ryðgað og ónýtt vegna skorts á varahlutum. Meðal meiriháttar herskipa, sem voru send, voru 10 kafbátar, fjögur beitiskip, sjö fylgdarskip, 14 varð- skip og 12 Kowar eldflaugabátar. Inn an við helmingur þeirra er nú not- hæfur og varla það. Allir kafbátarnir og öli beitiiskipin eru horfin. Satnn- ingur hefur verið gerður við fyrir- tæki í Taiwan, sem getur tekið að sér 12 skip á ári, og nú er verið að draga skipin til Hong Kong þar sem þau verða seld í brotajárn. 1 mesta liaigi 20 rússneskar fiug- vélar eru ennþá í notkun, og þar af engin sprengjuflugvél og engin MIG- 21. Fjárfestingar Rússa í hermálum Indónesiu eru í rústum. Þetta er kannski ekki sambærilegt við áfall- ið í Egyptalandi, sem lauk þannig að sovézk hergögn höfnuðu sem brotajárn i stórum haugum á Sinai- eyðimörkinni eða voru endursend í stórum stíl til Sovétrikjanna í fyrra. En saant sem áður, þar sem þetfta má telja stórfellda fjárfestingu i heims- veldisstefnu i nýrri og marxistískri mynd, eru þessir minnisvarðar hrak- faranna áhrifaríkir. f þátttakandi í samvinnufélagi eða leggja fé i hlutafélag? Það fer ekkert á milli mála, að sá sem leggur fé i hlutafélagið freistar þess að ávaxta sparifé sitt á hagkvæman hátt. Gróða- vonin er ótvírætt leiðarljós. En hvað er sá, sem gengur í sam- vinnufélag með i huga? Hann finnur sér beinan eða óbeinan hag af því. Annaðhvort með því að fá af- slátt, stuðla að lækkuðu vöru- verði, bættri þjónustu með auk- inni samkeppni o.s.frv. Hann hef ur fyrr eða síðar fjárhagslegan ávinning af þátttökunni. Og hver er þá grundvallarmunurinn, þegar á allt ei litið? Er það ekki gróðasjónarmiðið, sem ræður — nefnt misjöfnum nöfnum? Arð- ur af hlutabréfum, afsláttur, lækkað vöruverð eða beinn hag- ur af viðskiptum. Stefnir þetta ekki allt að því að bæta fjárhag þess, sem í hlut á? Hver er þá munurinn, mætti spyrja. Einhver kynni að svara: „Hugsjón ræður hjá samvinnumanninum." Að hverju stefnir sú hugsjón nú á tímum? Samvinnuhreyfingin á Islandi upphófst sem ómenguð bændahugsjón til þess að létta ánauð og verzlunareinokun af bændum landsins, sem þá báru atvinnuvegi landsmanna uppi. En árið 1973, þegar Islending- ar búa við ströng verðlagsákvæði og Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis hefur innan sinna vé- banda langflesta félagsmenn allra samvinnufélaga landsins, þá er varla rökrétt að nefna hreyfinguna „bændahugsjón". Eða hverjir eru rétthæstir I hreyfingunni, framleiðendurnir, neytendurnir eða starfsmenn fé- laganna? Hljóta ekki að stang- ast þarna á ólíkir hagsmunir? Því ekki að viðurkenna stað- reyndirnar og láta samvinnuhug sjónina þróast í framtíðinni með því fjármagni, sem samvinnu- menn eru reiðubúnir að leggja fram í von um arð? HUGARFARSBREYTING Á ráðstefnu Stjórnunarfélags Islands, sem haldin var síðastlið ið haust voru umræðuhópar m. a. beðnir að svara spurningunni: Hvaða aðferðir eru vænlegastar til aukningar eigin fjármagns fyrirtækja? Einn hópurinn komst að þeirri niðurstöðu, að þessari spurningu þýddi ekkert að svara, því hér væri komið að „tabú- inu“ í íslenzku þjóðfélagi. Á meðan gróðinn væri litinn horn auga og talinn voðalegur, væri tilgangslaust að ræða í alvöru um eiginfjáruppbyggingu fyrir- tækja. Hér þyrfti að verða hug- arfarsbreyting með íslenzku þjóð inni, ef atvinnufyrirtækin ættu að eiga nokkurn möguleika á að byggja sig upp og ná að gegna hlutverki sinu. Við þessi orð þarf engu að bæta; þau segja allt, sem segja þarf. FÖRNIR Ef nú samvinnumenn opna fé- lögin fyrir fjárframlögum fólks- ins i von um ríflegan arð, viður- kenna gróðavonina sem nauð- synlegan hvata og álíta hana samrýmast , hagsmunum fólks- ins“ svo lengi, sem ekki væri um að ræða stórgróða og brask — hverju mundu þeir þá fórna? Það að menn nytu arðs af við- skiptum sínum mætti vernda að einhverju leyti með afslætti (eins og þegar er gert) og ætla má, að með einhverjum hætti mætti tryggja, að fjármagnið héldist áfram á félagssvæðunum, svo dæmi séu riefnd um tækni- leg vandamái, sem hlytu að rísa við umrædda breytingu og hlytu jafnframt að verða leyst. Hins vegár er viðbúið, að örðugra reynist að sefa þá samvinnu- menn, sem engu vilja aðlagast og trúa blint á sömu hugsjón- ina og uppi var í góðu gildi um síðustu aldamót. Þeim finnst ef- laust, að með slikum breyting- um væri verið að traðka á lífs- viðhorfi þeirra. En tíminn mun væntanlega vinna með hinum nýju viðhorfum. En þá er að nefna a.m.k. eina fjárhagslega fórn, sem færa þyrfti. Með þvi að nálgast hluta- félagsformið hlytu samvinnufé- lögin líka að nálgast skattlagn- ingu hlutafélaganna. Skattaíviln unum og forréttindum hlyti að létta við þessar breytingar og er þarna vissulega um mikil- vægt atriði að ræða. Eru sam- vinnufélögin tilbúin að fórna þessum forréttindum og greiða meira til hinna sameiginlegu þarfa? Ekki væri sanngjarnt að þetta nýja réttarform ætti að greiða sama og hlutafélög í skatta. Þær hugmyndlr hafa ver ið uppi, að almenningshlutafélög eða svokölluð opin féiög ættu að greiða minna en lokuð félög, því að það er „fólkið", sem á almenningshlutafélögin, en það er einmitt sú röksemd, sem skatt fríðindi samvinnufélaga eru byggð á. Samvinnuhreyfingin á Islandi er fjöldahreyfing á okkar mæli- kvarða með 33 þúsund félags- mönnum — því skal hún njóta skattaívilnana. En hvað þá um opin hlutafélcg eins og Eimskipa félag Islands h.f.? Það er líka fjöldafélag með 11 þúsund hlut- höfum, en nýtur engra ívilnana. Þarna er um misræmi að ræða, sem mundi leiðréttast með þess- ari tvenns konar skiptingu fé- laga til skattlagningar — í opin og lokuð félög. Samvinnufélögin ættu að vera stolt af því að greiða meira í hinar sameiginlegu þarfir fólks- ins og ættu ekki að láta missi skattaforréttinda hindra sig í að opna félögin fyrir nútímanum og viðurkenna staðreyndirnar. Með því tryggðu þau framtíð sína á heilbrigðum grundvelli og mundu eftir sem áður halda áfram. að gegna lykilhlutverki í isienzku atvinnulífi. LANDNÝTINGAR- RÁÐSTEFNA DAGANA 6. og 7. apríl n.k. verð- ur haldin ráðstefna um skipulag landnýtingar á íslandi. Hefst ráðstefnan kl. 09 í Kristalsal Loftleiðahótelrins. Landvemd, — landgræðslu- og náttúruvemdar- samtök íslands hafa boðið til ráðstefnunniar í samstarfi vlð: Búnaðarfélag íslands, Náttúra- vemdarráð, Samband ísl. sveitar- félaga, Skipulagsstjóm rikisins og Landnýtingar- og land- græðslunefnd. Ráðstefnuna mamu sækja um 130 fulltrúar stofnana og félaga úr öllum landshlutuim. Sam- kvæmt dagskrá ráðstefnunnar er ráðgert að flutt verði 25 fram- söguerindi er á einn eða annan hátt snerta nýtingu lands og skipulag landnýtingar. Tilgangur þessarar ráðstefnu er, að leiða saman fulltrúa frá sem flestum aðilum, sem á ein- hvern hátt gera tilkall til liands- ins og gæða þess, og mteð starf- semi sinni hafa áhrif á eðli landsins og framtíðarviðgang. Reynt verðu.r að flá yfirlit um hin ýmisu sjónarmíð varðandi nýtingu lands, og ræða mögu- ieika á samraemingu þeirra. Þá verður einnig rætt um nauðsyn skipulagstegra og félagslegra að- gerða til að: 1) tryggja skymsamlega nýtingu landsins, 2) fyrirbyggja spjöfl á landi vegna mannlegrar starfsemi, 3) bæta þau sár er hlotizt hafa af völdum óbiíðrar náttúru, eða vegna búsetu í landinu. Teknir verða til umræðu flest- ir þeir þættir er snerta sam- skipti þjóðarinnar og landsins, bæði hinir hefðbundnu, svo sem landbúnaður, svo og þeir þættir nútíma þjóðféiags, sem fyrirsjá- anlega þurfa á auknu landrými að halda í framtíðinni. Má þar til nefna aukna byggð á þétt- býlissvæðum og mannvirkj agerð utan þéttbýlis, svo sem byggingu vega, hafna, orkuvera, svo og einmig vaxandi þörf á landi til útilífs, íþrótta, ferðalaga ferða- mannaþjónustu o. fl. Þá verður reynt að gera sér grein fyrir á hvem hátt .skynsamieg landnýt- ing og náttúruvernd geta bezt farið saman. I árslok 1971 skipaði landbún- aðarráðherra sjö manna nefnd till að vinna að gerð heiidaráætl- unar um landgræðslu og gróður- vernd, sivo og alhliöa skipulagn- iingu ú notkun landgæða. Með skipun þessarar nefndar var af hálifu ríkisvaldsins tekin ákvörð- un um að minnast 11 hundruð ára byggðar í landinu með stór átaki á þessu sviði. Það verikefni sem hér um ræð- ir er mjög viðamikið og mun margbrotnara og vandasamara en flestir gerðu sér grein fyrir. Landvernd og þeir aðilar sem að þessari ráðstefnu standa vilja leggja sltt af mörkum til þess að þetta starf verði sem árang- ursríkast. Telja þessir aðilar að ráðstefna sem fjallar um skipu- lag landnýtingar á breiðum grundvelli geti orðið gagnleg til að samræma aðgerðir allra þeirra sem að þessum málum vinna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.