Morgunblaðið - 06.04.1973, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.04.1973, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 81. tbY 60. árg. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1973 Prentsmiaja Morgunblaðsins. Fyrir skönimu komst upp uin mikið vopnasmygi til Irska lýðveldishersins (IRA), er vest- ur-þýzka skipið „Claudia" var tekið úti fyrir íriandsströndum með mikið magn af vopnum um borð. Hér sést Giinter I.einháuser, maðurinn, sem skipulagði vopnasmyglið, niður við höfn í Hamborg, þar sem Claudia liggur bundin við bryggju. Kambódía: Bólusótt í Bretlandi Þrír hafa veikzt - Umfangsmiklar varúðarráðstafanir byrjaðar London, 5. april NTB. BREZKA heilbrigðismálaráðu- neytið staðfestl í dag, að þrjú bólusóttartilfelli hefðu komið upp í London. Hóf ráðuneytið þegar ýmsar ráðstafanir í því skyni að koma í veg fyrir far- aldur. í tilkynningu frá ráðuneyt inu var hins vegar sagt, að eng- in ástæða væri til ótta vegna þessara tilfella. Unnt ætti að vera að koma í veg fyrir meiri háttar faraldur. Bólusóttin nú á rót sína að rekja til 23 ára gamallar konu, sem sennilega komst í snertingu við bólusóttarbakteríur á rann- sóknastofu, þar sem hún starf- aði. Síðar voru ung hjón lögð inn á sjúkrahús með bólusótt. Það er vitað, að þau höfðu kom- ið á læknastofur þær, þar sem konan starfaði. Tilkynning brezka heilbrigðis- málaráðuneytisins nú kann að valda því, að önnur lönd í Evr- ópu og víðar kunni að krefjast bólusetningar á því fólki, sem fer til Bretlands eða kemur það- an. Mörg flugfélög hafa þegar mælt með þvi við farþega sína, að þeir láti bólusetja sig. Bólusótt hefur ekki komið upp í Bretíandi að neinu marki frá árinu 1962, en þá létust 26 manns í London og svæðinu umhverfis úr bólusótt. Leitinni að Anitu hætt Ákaft barizt á veg- um við Phnom Penh Kommúnistar herða umsátrið — Skipalest á leiðinni með vopn og vistir til stjórnarhersins Phnom Penh og Saliigon, 5. apri'l. — NTB-AP • MIKIL skipalest var í kvöld á siglingu norður Mekong- fljótið í því skyni að reyna að rjúfa umsátur það, sem her- sveitir kommúnista hafa byrjað um Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu. I skipalestinni eru 12 skip, bæði vöruflutningaskip og oliuskip og eiga þau að sjá stjórnarhernum í Phnom Penh fyrir eldsneyti, matvadum og hergögnum. 9 Stjórnarherinn í Kambódiu átti í dag í höggi við herlið komm únista á öllum þeim vegum, sem liggja inn í höfuðborgina. Stjórn arhernum hafði orðið mest ágengt meðfram Mekongfljót- inu, en það hefur verið lokað skipiim síðustu 9 daga. Þrátt fyrir það að stjórnarhernnm hafði tekizt að ná aftur á sitt vald sex km löngu svæði með- fram fljótinu, er mikili meiri hluti Mekongfljótsins enn á valdi kommúnista. Bandarísk stjórnvöld skýrðu svo frá í dag, að þau væru reiðu búin til þess að koma upp um- fangsmikilli loftbrú til Phnom Penh í því skyni að flytja þang- að birgðir hvers kyns nauðsynja, ef kommúnistum tækist að loka öllum aðflutningsleiðum til borg- arinnar. Eldsneytisbirgðir og aðr ar nauðsynjar hafa gengið mjög til þurrðar síðustu daga í höfuð borginni. Stjórn landsins hefur lýst yfir neyðarástandi. Skipalestin, sem greint var frá að framan, var í kvöld enn á þeim hluta Mekongfljóts- ins, sem tilheyrir Víetnam og kemur væntanlega ekki inn á þann hluta, sem tilheyrir Kam- Framh. á bls. 31 Stavanger, 5. apríl NTB. ALLRI virkri leit að skipinn „Anitn“ er nú hætt, en skip og flugvélar í nálægð við það svæðl, þar sem skipið hefði átt að vera, hafa samt verið beðin um að svipast um eftir skipinu. Leitin að Anitu hefur staðið yfir frá 22. marz sl. Skipið var með 32 manns um borð og hefur ekkert til þeirra heyrzt eða spurzt frá þeim tima. Systur- skip Anitu, „Norse Variant" fórst i síðasta mánuði á svipuð- um slóðum og síðast spurðist til Anitu. Á Norse Variant komst aðeins einn maður af, en yfir 30 manns voru á skipinu. Sigldu burt af slysstað Frönskum togara sökkt af sovézku flutningaskipi Ný aðferð við gláku: Laser-geislum beitt i stað uppskurðar Washingtoni, 5. april AP. FIMM mínútna meðferð með Laser-geislum í stað áhættu- sams uppskurðar má beita með árangri gegn gláku, sem er algengnst orsök blindu í heiminum nú. Skýrði dr. Mic- hal Krasnov, prófesisor við augnlækningadeild læknahá- skólans í Moskvu frá þessu á heilbrigðisráðstefnu í Was- hington í dag. Aðferð hans byggist á keðjugeislun og eru í hverju geislaskoti nokkur milljón vött. Þessi geislaskot gera örsmáar holur án þess að orsaka bruna undir augn- himnunni og losa þannig þrýsting frá vökvnm innan atigans, sem em helzta orsök glákunnar. Krasnov slkýrði svo frá, að svo virtiist, sem tekizt hefði að halda sjúkdómnum í skefjum, þar sem sjúkling- arnir hefðu elia staðið firammd fyrir „síðasta tækifæri" sínu. Þá sagði hanm ennfremur, að þessari aðferð mætti beita, án þess að .sjú'kliingarnir yrðu lagðir á sjúkrahús, því að hún tæki eMtí nema fitmm mínút- ur í hvert sinn. Dr. Carl Kupfer, fram- kvæmdastjóri augnlækninga- deiidar bandariska heilbrigð- isráðuneytisiris sagði, er hon- um vatr skýrt frá skýrslu Krasnovs, að hún væri mjög attiyglisverð, en að enn yrði að líta á hana sem á tilrauna- stiigi. Kvaðst hann myndu fara til Moðkvu siíðar á þessu ári í þvi slkyni að kynnast að- ferð Krasnovs af eigin raun. Um 750.000 manns þjást af glálku á ýmsmm stigum í Bandaríkjunum. Frumotr- sakir sjúkdómsins eru enn ókunnar, en hann lýsitr sér á þann veg, að þrýstingurmn á auigasteininium vex vegna sí- vaxandi vökva, sem að öllu sköpuðu leika um imnri hluta augans. Brest, 5. apríl. AP. FRANSKUR tundurspillir stöðv- aði í dag sovézkt flutningaskip á Atlantshafi og sendi menn um borð, seni skipurtu áhöfninni að snúa skipinu við og sigla lil franskrar hafnar. Ástæðan var rökstuddur grunur um, að sov- ézka skipið hefði siglt á fransk- an togara og sökkt honum. Með togaranum, sem bar nafnið „Dany Gerard“, fórust sex manns. Frönsk flotayfirvöld skýrðu svo frá, að sovézka skipið hefði verið stöðvað, eftir að þyrla frá franska flughernum hefði tekið ljósmyndir af því, þar sem skýrt komu fram merki á skips- skrokkmum um árekstur. Þetta sk'p, „Juzenny Burg“, hafði til- kynmt gegnum útvarp, að togar- inn hefði sokkið, án þess að gefa nokkrar frekari upplýsing- ar. Sovézka skipið var um kyrrt á áreksturssvæðinu fram til kl. 9 í morgun, en hélt þá áfram för sinni í norðvesturátt. Þegar hér var komið, ákváðu frömsk flotayfirvöld að grípa til sinna ráða og stöðva sovézka sk'pið. TundurspUlirinn „Le Corse“ og varðskipið „Le Cantho" voru send í veg fyrir Juzenny Burg og er þau náðu sovézka skipinu, semdu þau menn um borð i það. Síðan var sovézka skipinu snúið við og því s:glt áleiðis til Brest. Björgunarskip fundu síðan brak og ýmsa hluti úr franska togaranum en engan úr áhöfm- inni, sem var sex manns sam- kvæmt framamisogð'u. *••• Fréttir 1, 2, 3, 5, 10, 11, 31 32 Mismunun í skatta- málum 1617 N.Y.T : Minnisvarðar hrakfaranna 17 íþróttir 30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.