Morgunblaðið - 20.06.1971, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.06.1971, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUNl 1971 VIÐ ERUM REYNSLUNNI RÍKARI Sannleikurlnn um tvofalt gler GÆÐIN Gott einangrunargler er sjaldan hægt að þekkja frá lélegu gleri fyrr en löngu eftir að kaupin eru gerð. Vandi neytandans er að vita í hverju áhætta hans er fólgin. Cudogler hf. hefur framleitt tvöfalt einangrunargler í meira en áratug. Á þessum tíma hefur Cudogler staðizt dóm reynslunnar. Cudogler hf. hefur framleitt rúmlega 150.000 fermetra af traustu einangrunar- gleri, enda eru flest stórhýsi á íslandi nú glerjuð með Cudogleri. ÁBYRGÐIN Við ábyrgjumst framleiðsluna. Cudogleri fylgir 10 ára ábyrgð. Líkurnar fyrir því, að kaupandinn þurfi nokkurn tíma að notfæra sér ábyrgð á Cudogleri eru langt innan við einn af þúsundi. Ef svo ólíklega vill til að kaupandi þurfi að Ieita til okkar vegna ábyrgðarskuldbindingar- innar, Ieysum við vanda hans þegar í stað. VERÐIÐ Þér getið vafalaust keypt ódýrara gler - þegar kaupverðið eitt er skoðað. Það er dýrt að byggja, og húsbyggjendur munar um allt. En - ef ódýrari framleiðandinn hættir starfsemi, fellur ábyrgðin sjálfkrafa niður. Hvað verðurþá um kaupandann? Blöðin flytja öðru hverju fréttir af biturri reynslu þess fólks, sem sér litla hagnaðinn verða að stóru tapi. Reynslu og gæði skyldi ávallt meta til fjár, þegar tvöfalt gler er keypt. TRAUSTUR FRAMLEIÐANDI TRYGGIR YÐUR ÓDÝRT GLER OG RAUNVERULEGA ÁBYRGÐ TIL 10 ÁRA CUDO

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.