Morgunblaðið - 07.12.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DBS. 1968
Svisslendingar hafa lykilaðstöðu
Norðurlöndin veita okkur öflugan stuðning
Erfiðleikar gagnvart Bretum
Um miðjan janúarmánuð hefj-
ast viðræður fslands við Frí-
verzlunarbandalag Evrópu og
þess vegna er ekki úr vegi að
athuga nokkuð hvernig horfur-
nar í þessum væntanlegu samn-
ingaviðræðum eru, hvaða erfið-
leika verður helzt við að glíma
og hvemig líklegast sé, að við-
brögð einstakra aðildarrík ja Frí
verzlunarbandalagsins verði.
Sá hagur, sem ísland getur
haft af þátttöku í Fríverzlunar-
bandalaginu er fyrst og fremst
þríþættur. í fyrsta lagi þurfum
við ekki að greiða tolla af út-
fluttum sjávarafurðum til EFTA-
landanna, ef við gerumst aðilar
að EFTA. Þessir tollar námu á
árinu 1965 um 81 milljón króna,
1966 um 76 milljónum króna og
1'967 46 millj. króna (læikkun
vegna minnkandi útfkltninigs).
í öðru lagi opnast íslenzkum iðn-
aði tækifæri til að hefja útflutn-
ingsframleiðslu fyrir 100 milljón
manna markað í EFTA-löndun-
um og í þriðja lagi er hugsan-
legt, að ísland njóti fyrirgreiðslu
EFTA við uppþyggingu ein-
stakra atvinnuigreina og er
að sjál'fsögðu mikill fengur
að því að njóta ráðlegg-
inga sérfræðinga í einstök-
nm atvinn-ugreinum frá sjö
EFTA-löndum. Almennt má svo
benda á, að aðildarríki Fríverzl-
unarbandalagsins telja sig hafa
haft mikimn hag af þáttitöku í
'samsfiarfinu innan EFTA. Út-
flutningsiðnaður Norðmanna og
Dana og raunar einnig Finna
hefur stóraukizt eftir að sam-
starfið innan EFTA hófst og í
þessu sambandi má geta þess að
útflutningur Finna á húsgögn-
um einum jókst um 81% á sl.
ári. Samstarfið innan EFTA hef-
ur því reynzt hafa þau áhrif að
hvetja til nýrra atvinnugreina
og aukinna viðskipta, sem aftur
leiða smátt og smátt til þess að
lífskjör fólksins batna.
Fyrir okkur íslendinga hefði
aðild að EFTA hins vegar einn-
ig í för með sér ýmis vandamál.
Þau eru fyrst og fremst, að við
verðum óhjákvæmilega að tak-
ast á herðar skuldbindingar um
að fella niður alla verndartolla
á tilteknu tímabili, sem semj-a
yrði sérstaklega um. Þetta hefði
í för með sér verulega breyt-
ingu á tekj-ustofnum ríkis-sj'óðs og
einnig á starfsaðstöðu innlends
iðnaðar. Ljóst er að gera verð-
ur víðtækar ráðstafanir til þess
að búa iðnaðiinn undir þessa
breytingu, en hins vegar er eng-
in ástæða til þess að ætla, að
hún verði honum til annars en
góðs ef rétt er staðið að nauð-
synlegum undirbúningi að breytt
um aðstæðum. Að auki er svo
ákvæði í Stokkhólmssamningn-
um, sem EFTA byggir á, um
gaigntkvæm réttindi ti-1 viss
aitvinnurekstrar í EFTA-lönd-
unum og er það að sjálfsögðu
ákvæði, sem við verðum að
rannsaka igauimgæfiilega, en
reynsla Norðmanna er siú, að sér-
stöik hætta stafi ekíki af þessu
ákvæði.
En víkjum þá að samningsað-
stöðu íslands í Genf, þegar við-
ræður hefjast þar um miðjan
janúar. Með aðildarumsókn okk
ar að EFTA erum við raunveru-
lega að segja við EFTA-löndin:
Við viljum komast inn á ykkar
100 milljón manna markað með
sjávarafurðir okkar tollfrjálsar
og við viljum fá tækifæri til
þess að komast inn á þennan
stóra markað með iðnaðarvörur
okkar, sem við viljum hefja fram
leiðslu á til útflutnings til þess
að skjóta fleiri stoðum undir at-
vinnulíf okkar og efnahagslíf.
í staðinn bjóðum við ykkur að-
gang með ykk-ar vörur á okk-
r
somvyl
MfJUNG
Ný tegund af „PVC“ veggdúk á böð og eldhús, auðveldur
að líma á veggi og halda hreinum. Er 2.5 mm þykkur,
hylur því vel sprungna og hrjúfa veggi, án þess að fyrir
móti á yfirborðinu. Hljóð- og hitaeiningrar, fallegur og
sterkur.
J. Þorláksson & Norðmann hf.
J. Þorláksson
/jín\ & NorÖmann hf.
ENNÞÁ
r
A
GAMLA
VERÐINU,
AÐEINS
KR.
2.925.00
HLJ0DFÆRAHUS REYKJAVIKUR
LAUGAVEGI 96
ar markað, sem telur 200 þúsund
manns. Af þessu má glögglega
sjá, að við erum að fara fram
á töluvert meira en við getum
látið í staðinn. í rauninni má
fullyrða þegar í stað að frá
þröng-u hagsm-una-sjónarmiði
EFTA-landanna skipti það tak-
mörkuðu máli fyrir þau að fá
aðgang að hinum litla markaði
okkar en fyrir a.m.k. einstök að-
ildarríki EFTA getur það skap-
að sérstök og í flestum tilvik-
um staðbundin vandamál að
hleypa okkur inn.
En hér kemur einnig fleira til,
sem okkur er í hag. Við höfum
um langan aldur átt mikil sam-
skipti við flest EFTA-landanna.
Upprunaleg og menningarleg
tengsl okkar við hin Norður-
löndin er óþarft að rekja. Við
höfum um langan aldur átt veru-
leg viðskipti við Breta, við flutt-
um til þeirra matvæli á stríðs-
árunum og islenzkir sjómenn
létu lífið til þess að koma þeim
til Bretlands, þegar nazistar
gerðu sem harðasta hríð að Bret
um. Við höfum átt töluverð við-
skipti við Portúgal og nú nýlega
höfum við tekið upp samstarf
við svissneskt stórfyrirtæki. Öll
þessi atriði hafa sín áhrif. Loks
er enn eitt þýðingarmikið atriði
okkur í hag, sem rétt er að við
gerum okkur grein fyrir. Sum
EFTA-löndin og þá sérstaklega
Bretland, hafa síðan 1961 árang-
urlaust reynt að komast inn í
Efnahagsbandalag Evrópu. Frá
pólitísku sjónarmiði þeirra EFT,-
landa, sem mestan áhuga hafa
á fullri þátttöku í Efnahags-
ÍSLAND
og
EFTA
bandalaginu hefur það verulega
þýðingu að sýna fram á að
EFTA standi opið þeim, sem leita
aðildar að því og þess vegna má
búast við, að þessi lönd vilji
töluvert á sig leggja til þess að
sýna fram á þetta. Einnig er það
Fríverzlunarbandalaginu sem
slíku í hag að geta bent á, að
EFTA hafi slíkt aðdráttarafl að
fleiri ríki óski inngöngu í það.
Ég tel mig geta fullyrt, að þessi
síðastnefndu atriði hafi verið of-
Framhald á bls. 20
Eulltrúar Breta í fastaráði EFTA. Fyrir miðju situr ambassador Breta í
Melville. Til vinstri við hann situr aðalframkvæmdastjóri EFTA, Bretinn
Genf, Sir Eugene
Sir John Goulson.
ÞÉR LÆRIOIMYTT
TUIMGUIHAL
Æ 60 TIIUUIH..I
A ótrúlega skömmum tíma. lærið þér nýtt
tungumál. Heimsirts beztu tungumála-
kennarar leiðbeina yður, á yðar eigin
heimili, hvenær sem þér óskið.
LINGUAPHONE
tungumálanámskeið á hljómplötum:
ENSKA, ÞÝZKA, FRANSKA, SPÁNSKA,
PORTUGALSKA, ÍTALSKA, DANSKA,
SÆNSKA, NORSKA, FINNSKA,
RÚSSNESKA, GRlSKA, JAPANSKA o. fl
HLJÖÐFÆRAHÚSIÐ LAUGAVEGI 96 SÍML13656