Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1968 |p|||||i|p; | ■ ;f;í |||: mörk í tveim leikjum 1. deildar í gær Akureyri vann ÍBV 3:0 og tók forustu í deildinni ÞAÐ voru skoruð 9 mörk í tveimur 1. deildar leikjum í gær. Þetta er mesti markadagur mótsins, því í 9 leikjum fram að deginum í gær höfðu ver;ð skoruð 29 mörk samtals. Það einkennilega var að aðeins tvö !ið skoruðu öll þessi mörk. KR skoraði 6 gegn 0 á móti Keilavík cg á Alrureyri tóku heimamenn á móti gestunum sunn- an frá grasj grónum Vestmannaeyjum í kulda og norðangolu, og hejm urðu Eyjamenn að halda með þrjú fengin mörk — án þess að þeim tækist að skora nokkuð á móti. Að þessum leikium loknum hefur Akureyri tekið forystuna og KR loksins að koma sér almennilega á blað, þó enn sé allangt í loppinn. KR malaði sundurlaust Keflavíkurliðið 6:0 ÞAÐ liðu ekki margar mínútur af leik KR og Keflavíkur þar til i ljós kom að þar væri upphafinn leikur kattarins að músinni. Keflavíkurliðið var sundarlaust og fálmandi jafnt í sókn sem í vörn, en KR liðið sýndi sama baráttuviljann og fyrr, auk þess sem að heildarsvipur leiks liðs- ins hefur tekið stórstígum fram- förum. Að vísu verður ekki séð með vissu, hvað af yfirburðunum hjá KR-ingum er hægt að skrifa á jákvæðar framfarir í leik liðs- ins, og hvað tilheyrir einungis afskaplega — og alveg óvenju- lega — slakri frammistöðu Keflvíkinga, samfara heppni KR inga, einkum í skorum marka. Þáttur Þórólfs En það er staðreynd sem ljós- lega kom fram, að Þórólfur varð KR-liðinu ólýsanleg hjálparhella. Það var ekki nóg með að hann ætti sjálfur ágæta leikkafla og gæfi slíkar sendingar, að á stund um þurftu samherjar hans ekki annað en hlaupa á knöttinn til að Keflavíkurvörnin væri sigruð og mark skorað — eða sú hætta sköpuð sem leiddi til hinna verstu atvika við Keflavíkur- markið. Á þann hátt bæði lék Þórólfur liðsmenn sína upp og varð þeim slík hvatning að þeir tóku að leika miklu betur en þeir hafa áður gert í vor. Enda má nú segja, að í herbúðum KR gat vart nokkur breyting á orðið — nema til batnaðar. Coca Cola keppnin hofin hja G.R. í GÆR hófst hjá Golfklúbbi Reykjavíkur hin árlega Coca- Cola keppni. Þetta er eitt af stór- mótum sumarsins og leiknar 72 holur á 4 dögum, þ.e.a.s. 25., 26., 27. og 29. júní. Keppnin hefst kl. 5.30 þrjá fyrstu dagana. Útimótið í handbolta ÚTIMÓTINU í handknattleik verður fram haldið við Mela- skólann í kvöld. Tveir leikir verða þá í meistaraflokki karla. Fram og Víkingur keppa í öðrum riðlinum en Ármann og Þróttur í hinum riðlinum. FH og Haukar hafa nú tekið forystu í rðilunum en FH þegar tapað stigi. En keppni er svo skammt komið enn, að óvarlegt er að spá um úrslitin. En þó mörkin hafi orðið 6 gegn 0, skal efað, að KR hafi enn eign azt eitthvert „super-lið“ sem eigi vísa sigurgöngu til mótsloka. Til þess var mótstaðan sem við var að etja svo lítil. Mikil uppskera fékkst oft fyrir lítið erfiði og aðeins sjálfsögð tilþrif. Mörkin Á 11. mín kom fyrsta markið. Framh. á bls. 5 McWhinnly á Nesvelli ÞAÐ gerðist svipuð saga á Ak- ureyri og í Reykjavík. Heimalið- ið náði fljótt algerum yfirburð- um. Nyrðra héldust þeir ekki mema fyrri hálfleikinn. Þá stóð 3:0 á báðum stöðum. Lengra kom ust Akureyringar ekki með Vest- mannaeyinga — en það er sam- merkt fyrir komumenn nyrðra og syðra að þeir áttu vart gott marktækifæri allan leikinn. En Vestmannaeyingar munu hafa barizt af meira harðfylgi nyrðra en Keflvíkingar gerðu hér. Glæsilegt mark. Fyrstu mínútur lei'ksins voru iþóf’kenndar. Akureyringar kom- ust ekki í gang strax. En smám saman náðu þeir tökunum og höfðu yfirburði allan fyrri hálf- leik. Þeir áttu miklu fleiri tæki- færi én þeir fengu notað, m. a. Atvinnugolfkennari kominn Golfklúbbs NESS a vegum Kennir allan daginn og allir geta notið kennslu hans GOLFKLÚBBUR Ness hefur nú fengið hingað enska atvinnugolf kennara, sem mun starfa hjá klúbbnum næsta mánuðinn. Fyr- ir valinu varð nú Robert Mc- Whinnley. Er hann þriðji at- viimugolfkennarinn, sem hingað kemur á vegum Goifklúbbs Ness, en allir eru þeir fyrsta flokks kennarar með full kennslu réttindi frá enska sambandinu. McWhinnly kemur frá Royal Berkshire golfklúbbnum og gaf klúbburinn honum mánaðarfarar leyfi til íslands. íþróttafréttamenn hittu Mc Whinnly í gær, en þá hafði hann hafið kennslu, þó enm sé ekki Drengjameist- aramótið 28. og 29. júní DRENGJAMEISTARAMÓT • ís- lands fer fram föstudaginn 28. og laugardaginn 29. júní. Fyrri dagurinn fer fram á Melavellinum og hefst kl. 8 e.h. Keppt verður í þessum greinum: 100 m., 200 m., og 800 metra hlaupum, 4x100 m. hlaupi, kúlu varpi, sleggjukasti, langstökki, hástökki, auk þess fer fram stangarstökkskeppni sveina. Seinni dagurinn hefst á Laug- ardalsvelli kl. 2 e.h. og verður keppt í þessum greinum: 110 m grindahlaupi, 200 m grindahlaupi, 400 m og 1500 m hlaupi, kringlukasti, spjótkasti, stangarstökki og þrístökki. ÞátttökutilkynningaT berizt í pósthólf 1029 fyrir 27. þ.m. fullskipað hjá honum, enda er hann reiðubúinn að vera á golf- vellinum frá morgni til kvölds og næstum á þeim tíma er óskað er eftir. McWhinnly kvað sér vel lítast á aðstæður hjá Nesklúbbnum, og hugði gott til verunnar hér. — Hann óttast ekki kuldann, en sagði að hér yrði að leika með nokkuð öðrum hætti en ytra tíðk aðist vegna hinnar vindasömu veðráttu. McWhinnly er aðeins 22 ára. Hann hóf atvinnumannaferil 19 ára gamall, en keppni hóf hann í golfi 12 ára gamall. McWhinnley lék tvo hringi á Nesvellinum daginn sem hann kom og fór á 37 höggum og 35, en par er 35. Átti hann þó í erf- iðleikum með höggin á „holu- teignum“, því þeir teigar eru ólíkir hér og í Englandi. Hann ræddi um golfiðkun í Englandi og Skotlandi og kvað hana stöðugt vinsælli. Þar iðk- ar fólk golf fyrir „hringgjöld" allt frá Ti shilling, en í hinum betri klúbbum eru ársgjöld um 50 sterlingspund að meðaltali. Forráðamenn Nessklúbbsins vildu koma eftirfarandi á fram- færi: Við viljum beina þeim tilmælum til þeirra sem vilja njóta kennslu McWhinnly að tilkynna það sem fyrst, þar sem hann mun eiungis vera hér einn mánuð. — Kennslubók liggur frammi í golf klúbbnum, þar sem menn geta ritað sig inn í kennslutíma, á þeim tímum sem lausir eru. — Menn geta einnig tilkynnt í síma golfklúbbsins 17930. Golfklúbbur Ness vill einnig leyfa utanfélagsmönnum að njóta kennslunnar eftir því sem pláss og tími leyfir, og eru þeir beðnir um að hafa samband við klúbbinn. Robert Mc-Whinnly mun vera til taks allan daginn. Þeir klúbb- ar sem hefðu hug á að njóta kennslu hans, eins og í fyrra, eru beðnir um að hafa samband við Golfklúbb Ness hið allra fyrsta. Robert McWhinnly er mjög góð- ur golfleikari, og heilum „klassa“ fyrir ofan þann golfleik sem við íslendingar þekkjum. Væntum við að sem flestir noti tækifærið meðan hann er hér og fá fyrsta flokks golfkennslu. stangarskot Skúla Ágústssonar. Eftir rúml. stundarfjórð- unggsleik lék Guðni framvörð ur út í hom hægra megin og gaf siðan vel fyrir mark Eyja- manna. Þar tók Kári knött- inn á brjóstið, en skoraði síð- an ævintýralega fallegt mark undir þverslá og beitti við það tilburðum sem ekki eru á færi nema þrælæfðra fim- leikamanna. Um þetta leyti og næsta stund- arfjórðunginn var sóknarlota Ak ureyringa mjög þung, þó upp- skeran yrði ekki meiri. Á 23. mín. óð Kári svo einn síns liðs gegnum alla vörn Eyja- manna og skoraði án þess að Páll markvörður verði *um mistök sak aður. 5 mín. fyrir leikhlé náði svo Magnús Jónatansson einu af þess um skotum af löngu færi sem hann er frægur fyrir og þar með var markasögu leiksins lokið. f hálfleik komst mark Akur- eyringa sjaldan í hættu, en Sam- úel varð það sem að marki bar af öryggi og á'kveðni. í síðari hálfleik fóru Akureyringar sér hægar en Eyjamenn færðust í aukana. Fyrri hluti síðari hálf- leiks var bezti leifckafli Eyja- manna, en er lengra leið náðu Akureyringar aftur frumkvæð- inu. Raunar komst mark Akureyr- ar aldrei í yfirvofandi hættu, Framh. á bls. 5 STAÐAIM: Akureyri Fram KR Valur Vestm.eyjar Keflavík 4 4 4 4 3 3 8:1 9:5 10:7 6:7 5:8 0:10 Frjálsíþróttanámskeið KR FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD KR hefur gengizt fyrir frjálsíþrótta- námskeiði fyrir yngri kynslóðina síðustu vikur, og er nú komið að lokum þess, því að námskeiðs- mótið hefst næstkomandi mánu- dag, 1. júlí. Námskeiðið hefur einkum ver- ið ætlað stúlkum og piltum fæddum 1954 og 1953, og verður nú á námskeiðsmótinu keppt um fjóra verðlaunabikara, sem Sam- vihnutryggingar hafa gefið, einn bikar í hverjum flokki. Námskeiðið hefur verið fjöl- sótt, einkum af yngri aldurs- flokknum, og margur skemmti- legur efniviður í góðan frjáls- íþróttamann eða konu komið þarna fram í sviðsljósið. Síðustu æfingamar verða í kvöld og tvö næstu kvöld klukk- an 5—6,30, en síðan hefst mótið á mánudaginn á sama tíma. — Keppt verður í fimm greinum, einni á dag út næstu viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.