Morgunblaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAf 106«. Myndin er tekin skömmu áður en einn hópur Tenglanna lagði sér Háteigssókn. Tenglar heimsóttu um 2 þús. aldraða í gær UM 200 ungmenni heimsóttu í gær aldrað fólk víðs vegar um borgina til að kynna umferðar- breytinguna og leiðbeina því hvernig ber að haga sér í hægri umferð. Það er félagsskapurinn Tenglar, sem hafa forgöngu um þessa umferðarfræðslu aldraðra og hafa fengið til liðs við sig sjálfboðaliða úr æðri skólum. Morgunblaðið ræddi í gær lítil- lega við Helga Kristbjörnsson, sem hefur með höndum fram- kvæmd umferðarfræðslunnar. — Við áætlum að heimsækja 1800-1900 manns — allt fólk, sem er yfir 75 ára að aldri. Upphaf- lega gerðum við ráð fyrir að heimsækja um 2 þúsund aldraða, en við sendum því bréf á undan okkur, og gerðum fyrirspurn hvort komu okkar væri æskt. Báðum við þá, er ekki kærðu sig um komu okkar, að hafa samband við okkur, og hafa því nokkrir skorizt úr leik. Fólkinu, sem við heimsækjum afhendum við bækling, semUm- ferðarnefnd og lögreglan gefur út, þar sem greint er frá því hvernig öldruðu fólki beri að haga sér í umferðinni. Við gerð- um ráð fyrir að geta heimsótt alla í dag á tímabilinu frá kl. 1.30 til 5. Hver Tengill tekur að sér um 10 manns, og staldrar við á heimili hvers einstaklings í u.þ.b. tíu mínútur. Miðstöðvar okkar eru í húsi Æskulýðsráðs við Fríkirkjuveg, í Vogaskóla og í Réttarholtsskóla. Formaður Tengla er Sveinn Hauksson, en hann stundar nám í háskólanum. Hann tjáir okkur að sjálfboðaliðarnir séu ein- göngu ungt fólk — flestir séu úr háskólanum en ennfremur úr Menntaskólanum í Reykjavík og úr Kennaraskólanum, enda þótt Tenglar bindi sig ekki við neina skóla. Tenglar hafa starfað að mann- úðarmálum í Reykjavík í undan farin tvö til þrjú ár. „Þetta er baráttuhreyfing ungs fólks í þjóðfélagsmálum", segir Sveinn, „og við höfum fram að þessu einkum unnið að geðverndar- málum. Er markmið okkar að rjúfa þá félagslegu einangrun sem geðsjúklingar hafa búið við um langan aldur, og tengja þá daglegu lífi“. Hin mikla þátttaka unga fólks ins í þeirri sjálfboðaliðsvinnu, sem getið er um hér á undan, er óneitanlega lofsverð — ekki hvað sízt fyrir þá sök að hún Nauðungaruppböð Eftir kröfu Fiskveiðasjóðs fslands verður v.S". Far- sæll SK-3 (áður Kristján Hálfdáns ÍS-3) þinglesin eign Fiskiðju Sauðárkróks, selt á nauðungarupp- boði, sem háð verður við skipið í Skipasmíðastöð Njarðvíkur, þriðjudaginn 28. maí 1968, kl. 3.15 e.h. Uppboð þetta var auglýst í 13., 15. og 17. tölu- blaði Lögbirtingablaðsins 1968. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. íbúðir til sölu Eins og tveggja herbergja íbúðir i steinhúsi neðar- lega við Vesturgötu. Einnig skrifstofu- eða iðnaðar- pláss á II. hæð við sömu götu, 95 ferm. að stærð. Nánari upplýsingar gefur: Málflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, og Guðmundar Péturssonar, Aðalstræti 6. Símar: 12002, 13202, 13602. af stað, en hann átti að taka að gerist á sama tíma og fréttir berast af stöðugum óeirðum stúdenta í fjölmörgum löndum Evrópu. Ætla að taka myndir af flaki Andrea Doria New York, 25. maí — AP: FRÁ ÞVÍ hefur verið skýrt í New York, að ítalskur kvikmynda framleiðandi og kunnur neðan- sjávarljósmyndari, Bruno Vail- ati að nafni, sé að undirbúa leið angur, sem fara eigi í júlí nk. í því skyni að taka myndir af far- þegaskijnnu Andrea Doria, þar sem það liggur á hafsbotni. Fara leiðangursmenn, sem verða fimm auk Vailatis, með togara að staðn um þar sem skipið liggur og er áætlað, að leiðangurinn taki að minnsta kosti hálfan mánuð. Andrea Doria sökk í Atlants- hafið í júlí 1956 eftir árekstur við sænska farþegaskipið Stokkhólm. Með Andrea Doria fórust 51 mað ur. Ætlunin er, að myndir Vailatis og féHaga hans verði liður í klukkustundar sjónvarpsdagsskrá sem á að heita „Höfin sjö“. Donskir lögreglumenn yfirheyrn londn sinn hér TVEER danskir rannsóknarlög- reglumenm komu hingað til lands 3 af bílum Landleiða, tilbúnir fyrir H-umferð. (Ljósm. Kr. Ben.) á fimmtudag til að yfirheyra landa sinn, sem nú starfar Ihér. Maður þessi starfaði áður hjá dönsku fyTirtæki, sem rak mötu- neyti í bandarísku herstöðinni 1 Thule á Grænlandi, en það fyrirtæki mun hafa falsað mat- arkvittianir til að auka sjóði sína. Dönsku rannsóknarlöigreglu- mennirnir fara utan á mánudag. Undirbúnlngur Landleiða undir hægri umferð hefur gengiö vel í FRÉTTATILKYNNINGU, sem Mbl. hefur borizt frá Landleiðum hf. vegna umferðabreytingarinn- ar, segir m. a. að áherzla sé lögð á að raska sem minnstu á leið- inni Reykjavík — Hafnarfjörður. I flestum tilfellum verður breyt- ingin í því einu fólgin, að bið- stöðvar flytjast yfir götuna. Auka vagnar verða í umferð til að halda réttum broottfarartímum meðan umferðin er að ná jafn- vægi. Landleiðir hf. hafa fengið þrjá nýja fólksflutningavagna, sem teknir verða í notkun í dag. Eru þetta 50 sæta vagnar af Scania- Vabisgerð, tveir yfirbyggðir í Svíþjóð, en einn í Noregi. Auk þess eiga Landleiðir von á fjórða vagninum eftir u.þ.b. mánuð. Er sérstaklega til þessara vagna vandað og lögð áherzla á að byggja þá með sem flestum sæt- um, þar sem um þetta langa lefð er að ræða. Einnig er hitakerfi fullkomið og til nýjungar má telja, að allir þessir vagnar hafa tvöfalt rúðugler. Gerir þetta það að verkum, að aldrei myndast hrím eða bleyta á rúðunum. Að sjálfsögðu verða svo í notk un þeir af eldri vögnum Land- leiða, sem þegar hefur verið breytt til hægri umfer'ðar, en sex af tíu vögnum hefur þegar verið fullbreytt og sá sjöundi verður tilbúinn eftir nokkra daga. Að því er forstjóri Landleiða Ágúst Hafberg tjáði Mbl. í gær, hefur undirbúningur Landleiða undir hægri umferð gengið mjög vel. í fréttatilkynningu Landleiða segir á þessa leið: Sama leið er ekin og áður, með þeim einu undantekningum, að einstefnuakstur á Strandgötu breytist. Vagnamir aka því norð ur Strandgötu og súður Fjarðar- götu. Allir viðkomustaðir verða ó- breyttir, að öðru leyti en því að stöðvað er á gagnstæðum vegar- kanti. Þó skal bent á að nú færist viðkomustaður við Norðurbraut í Hafnarfirði vi'ð biðskýli norðan við Frost hf. Sömuleiðis getur orðið erfitt að stöðva vagna á sama stað og áður við Engidal. I Reykjavík flyzt endastöð þvert yfir Lækjargötu að Búnað- arfélagshúsinu. Sérstök ástæða er til að benda fólki á áð biðskýli á sumum stærstu viðkomustöðum eru nú öfugt staðsett við aðalumferðar- þunga t.d. á Miklatorgi í Reykja vík, við Álfafell í Hafnarfirði og víðar. Er fólk því góðfúslega beú ið að ætla sér nægan tima til að komast yfir götuna á rétt stæðL Megin breyting sem snýr a@ far- þegum er sú, að utan endastöðva fer fólk yfirleitt í vagnana þar sem það áður fór úr þeim og öfugi Brottfarartímar eru áætlaðir sömu og áður.. Þó er gert ráð fyrir að vagnarnir verði lerAur á leiðinni, en til að það valdi sem minnstum óþægindum verða aukavagnar, þannig að réttir brottfarartímar haldist frá Reykjavík. Ef brottfarartímar raskast á öðrum stifðum á leið- inni, er fólk beðið velvirðingar á því. Þórölfur og Ellert með er KR mætir Middelsex Wand- eres í Laugardal i kvöld I KVÖLD kl. 8,30 hefst fyrsti leikurinn í heimsókn Middelsex Wanderers til KR. Og það verða KR-ingar, sem mæta þeim í þe KR-ingar, sem mæta þeim í þess um fyrsta leik. Þetta enska lið er ekki félags- lið heldur úrvalslið áhugamanna og má í rauninni skoða það lið er Middlesex Wanderers tefla fram hverju sinni sem áhuga- mannalið Bretlandseyja — úrval áhugamanna í fjórum löndum. Slík lið keppa ekki heima fyrir en úrvalslið MW hafa keppt í öllum löndum heims og heimsæk ir fsland nú í 3.sinn. KR-ingar hafa skipað lið sitt og verður það þannig skipað: Guðmundur Pétursson, markv. varnarmenn verða Ársæll Kjart- ansson, Jón Ólason, Þórður Jóns son og Ellert Schram. Tengiliðir verða Halldór Björnsson og Þór ólfur Beck og framherjar þeir Theodór Guðmundsson, Eyleifur Hafsteinsson, Ólafur Lárusson og Gunnar Felixson. • Það verða án efa margir sem vilja sjá Þórólf Beck aftur með sínu gamla liði og eflaust mun það einnig gleðja marga að Ell ert Schram skuli einnig vera með. Þetta er fyrsti „stórleikur** sumarsins og vonandi verður verður hann það einnig í raun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.