Morgunblaðið - 06.01.1966, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.01.1966, Blaðsíða 23
í'immtudagur 6. janúar 1966 morgunblaðið 23 Kína mótmælir brottvísura sendiherra síns frá Dahomey Peking, 5. anúar, NTB, AP. K'ÍNA bar í dagr íram harðorð mótmæli við Dahomey fyrir „ein- hliða og ósanngjarna ákvörðun um að slíta stjórnmálasambandi landanna“. í orðsendingu frá kínverska Loon aftur d íslandi Lóan, De Havelandvélin hans Bjorns Pálssonar, fyrrverandi, var aftur komin til íslands í gær. Hún var seld til Kanada, sem kunnugt er en fór héðan til Bretlands, þar sem átti að fara yfir hana. Og nú er hún á leið til tilvonandi heimkynna sinna í Kanada. Undanfarnar vikur hafa verið stöðug óveður á Atlantshafi og Lóunni því ekki gefið til flugs milli landa. Hún flaug til Fær- eyja á mánudag og átti að koma til Reykjavíkur á þriðjudags- kvöld. Þá var aftur komið af- takaveður og lenti flugmaðurinn að lokum á Hornafirði, þar sem hann beið færis í gær, að fljúga til Reykjavíkur. Lýst eftir ökumanni I»AÐ SLYS varð fimmtudag- inn 16. desember s.l. um kl. 12.15 á Vesturgötu á móts við húsið nr. 29, að drengur á sendi- sveinshjóli lenti utan í jeppa- bifreið og féll á götuna. Annað framhjól bílsins mun hafa kom- ið við andlit drengsins, þar sem hann lá á götunni, og við það brotnuðu í honum tvær tennur. Ökumaðurinn tók drenginn upp og ók honum heim til hans, en fór ekki inn með honum og hafði ekki samband við foreldra hans. Nú vill rannsóknarlögreglan vinsamlegast biðja viðkomandi ökumann að hafa samband við hana sem fyrst. Hafnarfjörður sigraði Akranes 1skákkeppni BÆJAKEPPNI í skák milli Hafnarfjarðar og Akraness fór fram 2. janúar s.l. og teflt í Flensborgarskólanum í Hafnar- firði. Keppt var á 10 borðum og hlaut Hafnarfjörður 7 vinninga gegn 3. Á eftir bæjakeppninni fór fram hraðskákskeppni og þar unnu Hafnfirðingar með 5914 vinningi gegn 4014 vinningi hjá Akurnesingum. Missögn leiðrétt SÚ missögn var í frétt blaðs- ins í gær frá Egilsstöðum, að sagt var að Stefán Pétursson frá Bót, nú til heimilis að Birki- hlíð, Egilsstöðum, hafi gefið Eg~ ilsstaðakirkju 50 þúsund krónur. Gefandinn var Stefán Gísla- son, sem einnig er frá Bót og til heimilis að Birkihlíð. Afmæli STEINGRÍMUR Magnússon, fiskimatsmaður, Stangarholti 34, er 75 ára í dag. JÓHANNES Mortensen, rakará meistari, Freyjugötu 24, er átt- ræður í dag. utanríkisráðuneytinu var sagt að Kínastjórn liti mjög alvarlegum augum á málið. Utanríkisráðherra Dahomey, Emile Berlio Zinsou, skýrði frá því á mánudagskvöld að kín- verska sendiherranum hefði verfð vísað úr landi og gert að verða á brott innan þriggja daga. Utanríkisráðherrann bætti því við að stjórn hans hefði enn ekki gert það upp við sig hvort hún skyldi taka upp aftur stjórn- málasamband við kínversku þjóðernissinnastjórnin á For- mósu. Dahomey sleit stjórnmála sambandi vfð Formósu í apríl 1964 og viðkenndi Peking-stjórn- ina í nóvember sama ár. Vin- slitin við Peking urðu svo eftir að herinn tók í sínar hendur öll völd Dahomey í byltingunni sem þar varð í fyrra mánuði undir forystu Christophe Sogloni. Viðræðufundur um kjör verzlun- armanna Viðræðufundur milli samn- inganefndar Verzlunarmannafé- lags Reykjavíkur og viðsemj- enda þess hefst klukkan 10 á1'- degis í dag. Samningar verzlunarmanna runnu út um síðustu áramót og hafa nokkrir viðræðufundir ver- ið milli aðila. — Sexþraut Framhalt af bls. 22 Þreltfþj álf un og tækniæfingar. Þjálfari: Benedikt Jakobsson. Mánudaga og föstudaga kl. 9: Þrefaþjálfun og tækniætfingar fyr- ir stúlkur. Þjálfari Benedikt Jakobsson. Miðvifeudaga kl. 7.45: Sameigin leg þrektþjéi'fun fyrir allar deild- ir féilagsins. Þjélfari: Benedikt Jakobsson. Miðvifeudaga kl. 6.55: Tækni- þjállfun og keppni fyrir 17 ára og eldri. Þjálfarar: Benedikt Jakobs son og Þórarinn Ragnarsson. Laugardaga kl. 4.30: Tæfeniæf- ingar og keppni fyrir 16 ára og yngri. Þjálfarar: Benedikt Jakotos son og Þórarinn Ragnarsson. UtanhúsSþjálfun fyrir hlaupara ifer fram frá íþróttahúsi Háskól- ans daglega frá kl. 6 ti)l 9 í sam- ráði við þjálfarana, en ennfrem- ur lyftingaþjálfun í KR-húsinu. Stjórn Frjálsíþróttadeildar KR — /00 Jbús. Framhald á bls. 22 drætti. Væri vont veður drægi íiljótt úr aðsókn, en kostnaðurinn ar sá saimi og því fljótt að bregða til beggja vona. 1. deild Tekjur 1. deildar urðu um 1.6 millj. kr. Af því komu inn i Rvilk 1.040.170 kr., á Akranesi 151.705 kr., á Akureyri 216.010 kr. og í Keflavík 168.708 kr. Hagnaður að greiddium kostn- aði var skipt milli 1. deildar lið- anna sex og kom 114.552 kr. í hilut hvers. Auk þess fengu liðin greidda ferðastyrki sem samtals jam um 211 þús. kr. Varð hlufur Akureyringa í honum stærstur enda mest um ferðalög hjá þeim. ★ Bikarkeppnin Tekjur af bikarfeeppninni námu 485.875 kr. og varð hagnaður 185 þús. sem feom til skiptanna auk 90 þús. kr. í ferðakostnað. Tefejur 2. deildar voru miklu minnstar og lítið kom til skipt- anna miilli, þátttökuliðanna, en augiljóst að mörg þeirra lögðu í gífurlegan kóstnað til að komast tiil leiikstaða og þjálifunarstanfs. Kosygin forsætisráðherra Sov étríkjanna tekur á móti Lal Bah adur Shastri, forsætisráðherra Indlands á flugvellinum í Tasjkent 3. janúar, þangað komnu m til viðræðna við Ayub Khan forseta Pakistans um deilumá 1 Indiands og Pakistans. Mann f jöldi var á flugvellinum að fagna komu Shastris. Athugasemd frá Sambandi garðyrkjubænda VEGNA greina, sem skólastjóri Garðyrkjuskólans, hr. Unnsteinn Ólafsson, hefur skrifað í dag- blaðið Þjóðviljann, svo og við- tals, er blaðamaður sama blaðs, átti við hann nýverið, þar sem skólastjóri veitist ómaklega að garðyrkjustéttinni og garðyrkju- bændum sérstaklega, vill Sam- band garðyrkjubænda, leyfa sér að mótmæla harðlega slíkum ó- rökstuddum „krifum og ummæl- um, er þar hafa komið fram. Jafnframt verður að furða sig á því, að skólastjóri skuli lýsa því yfir, að hann þekki ekki til starfsemi félagssamtaka garð- yrkjustéttarinnar. Er slíkt næsta ámælisvert af þeim opinberum embættismanni, sem gegnir æðstu stöðu, varðandi menntun garðyrkj ustéttarinnar. Að gefnu tilefni vill stjórn Sambands garðyrkjubænda enn- fremur koma á framfæri óánægju sinni yfir því, að þeirri skóla- nefnd, sem skipuð var við Garð- yrkjuskólann, skuli ekki hafa verið gert fært að starfa allt sl. ár, eins og vonir stóðu til. Treyst- ir stjórn sambandsins því, að á þessu verði nú þegar ráðin bót. Þá vill stjórn Sambands garð- yrkjubænda, lýsa ánægju sinni yfir, að við Garðyrkjuskólann skuli nú þegar hafin bygging nýs skólahúss, en átelur jafnframt, að skipulagsuppdrættir af þeim byggingum, skuli hvorki hafa ver ið opinberlega kynntir garðyrkju bændum, né öðrum þeim aðilum, sem mál þessi varða. Reykjavik, 30. desember 1965. Stjórn Sambands garðyrkjubænda, Arnaldur Þór, form. (sign) Aðalsteinn Símonarson (sign) Ólafur Gunnlaugsson (sign) Þórhallur Steinþórsson (sign) Jón V. Guðmundsson (sign). Dagfari o" Nátt- fari farnir út HÚSAVÍK, 5. janúar. — Síldar- skipin Dagfari og Náttfari, sem hér lágu í heimahöfn yfir hátíð- arnar, hafa nú báðir látið úr höfn. Náttfari fór í gær áleiðis til Molde í Noregi, þar sem hann er byggður. Á nú að lengja skip- ið úm 414 m, og því vérki að vera lokið í fyrri hluta marz. — Dagfari fór í dag til síldveiða á austurmiðum. — FréttaritarL — Adenauer Framhald af hls. 1 á sjö börn, sex þeirra gift og fjölda barnabarna. Fyrir hádegi hélt flokkur Adenauers, kristilegi demókrata- flokkurinn móttöku fyrir for- mann sinn og afhenti þar hinu níræða afmælisbarni 90 flöskur af 90 ára gömlu púrtvíni. Eftir hádegi var Adenauer haldin veizla í þinginu og var þar mætt margt fyrirmanna, með doyen erlendra sendimanna, fulltrúa Páfastóls, í broddi fylkingar. Síðar um daginn var haldinn ríkisráðsfundur í tilefni dagsins og í kvöld er Adenauer búin veizla í höll Liibke forseta og loks var á dagskrá flugeldasýn- ing hermanna um miðnætti hinni öldnu kempu til heiðurs. — Bandar'ikin Framh. af bls. 1. hafa undanfarna daga milli álit- legs herafla Viet Cong og her- manna frá Suður-Kóreu í Phu Yen-héraðinu um 400 km norð- austan Saigon. í þeim viðskipt- um eru sag’ðir fallnir 288 af skæruliðum. — Frægir Framhald af bls. 24 inu 1964 og vann þá m.a. bæði Friðrik Ólafsson og Inga R. Jó- hannsson. Reynt hefur verið að fá banda- rískan stórmeistara á mótið og fyrir milligöngu Upplýsingaþjón- ustu Bandaríkjanna hér stóð til að A. Bisguier kæmi, en í gær- morgun barst skeyti frá honum, þar sem hann skýrði frá því, að kona hans hefði skyndilega veikzt mjög hættulega og því gæti hann ekki komið. Reynt er nú að fá annan í staðinn fyrir milligöngu Upplýsingaþjónust- unnar, en óvíst er hvort það tekst. Þá stóð til að rússneski stór- meistarinn Spasskí keppti á mót- inu, en hann mun ekki geta kom- ið. í Reykjavíkurmótinu taka einnig þátt íslenzki stórmeistar- inn Friðrik Ólafsson, Freysteinn Þorgergsson, sem verður nýkom- inn frá skákmótinu í Hastings, Guðmundur Pálmason, íslands- meistarinn Gúðmundur Sigur- jónsson, Reykjavíkurmeistarinn Björn Þorsteinsson, og landsliðs- mennirnir Jón Kristinsson og Jón Hálfdánarson. Skákstjóri verður Guðmundur Arnlaugsson og mótsstjóri Gunn- ar Kr. Gunnarsson. Iðnaðarhúsnæði ca. 500 ferm. að Ármúla 5 til leigu. Upplýsingar í síma 36-000 eða 33-6-36. Jarðýta til sölu. T.D. 14 A Upplýsingar gefur Þorbergur Jóhannsson, Þórshöfn. Byggingarlöð úr erfðafestu í Garðhúsahverfi í Árbæjarhverfi er til sölu ef samið er strax. — Upplýsingar í síma 35471.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.