Morgunblaðið - 30.09.1960, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.09.1960, Blaðsíða 12
12 MORGUNBI. AfííÐ rusiuuagur o\f. sept. 15JÖU Utg.: H.f. Arvakur Reykjavlk. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar= Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók.: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 2?,480. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 3.00 eintakið. EFTIRLITSMAÐUR f^INS og frá er skýrt í Morg- " unblaðinu í gær, hefur hinn kommúniski meirihluti miðstjórnar Alþýðusambands Islands ákveðið að setja sér- stakan eftirlitsmann í kosn- ingum í Trésmíðafélagi Reykjavíkur. Hlýtur sú á- kvörðun að vera 'rökstudd með því að hætta sé á, að einhvers konar misferli geti átt sér stað við kosningarnar. Þannig hagar til í Trésmiða félaginu að kommúnistar ráða stjórn þess, en lýðræð- issinnar eru hins vegar í meiri hluta í kjörstjórn. — Skyldi maður því ætla að eftirlit stjórnarinar með störfum kjörstjórnar ætti að vera nægileg trygging fyrir því, að ekki kæmi til neinnar misbeitingar í þessu félagi. Hins vegar er á allra vit- orði, að í þeim félögum, þar sem kommúnistar einir ráða, er nú beitt hvers kyns bola- brögðum, kjörskrárfölsunum og ofsóknum. Væri því fyllsta ástæða til að setja sérstakt eftirlit með kosningum í þeim félögum. Ábending mið- stjórnar ASÍ um þörf eftirlits í Trésmíðafélagi Reykjavíkur er því vísbending um það, að heppilegasta leiðin til að reyna að koma í veg fyrir hin margendurteknu misferli við kosningar í verkalýðsfé- lögunum, sé sú að skipa sér- stakan eftirlitsmann með sér- hverjum kosningum. Að vísu er þess ekki að vænta að pólitískur eftirlits- maður, sem skipaður er af þeim meirihluta, sem hverju sinni er í Alþýðusambandi íslands, sé líklegastur til að gæta hlutleysis og koma í veg fyrir lögbrot. Þvert á móti ætti þar að vera opinber em- bættismaður, sem t. d. heyrði undir borgarfógetann. Morgunblaðið gat þess á miðvikudaginn að svo rammt kvæði orðið að óhæfuverkum kommúnista í verkalýðsfé- lögunum að jafnaðist við verk þeirra glæpaklíka, sem sums staðar erlendis hafa orðið uppvísar að því að halda stór- um verkalýðssamböndum í heljargreip með hvers kyns ofsóknum og kúgunum. Þjóð- viljinn gerir þessa grein Morgunblaðsins að umtals- efni í gær en treystir sér þó ekki til að neita því að að- ferðirnar í Dagsbrún og öðr- um félögum. sem kommún- istar ráða, sé í ætt við gerðir bandaríska glæpamannsins í sambandi flutningaverka- manna, Hoffa og félaga hans, Dave Beck. Vegna hinna endurteknu ofbeldisverka í verkalýðsfé- lögunum, er nú brýn þörf á nýrri vinnulöggjöf, sem tryggi réttindi félagsmanna. Færi þá vel á því að fylgja fordæmi stjórnar A.S.Í. og setja sérstaka eftirlitsmenn með kosningum. FRAMSÓKN UTAN ÚR HEIMI | Boðskapur leiðto^a austurs og vesturs Dwight Eisenhower Nikita Krúsjeff SÍÐAN allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna kom saman í New York í fyrri viku, hafa leiðtogar þjóðanna hver af oðrum flutt heiminum boðskap sinn. Enda þótt sitthvað athyglisvert hafi komið fram í flestum þeim ræðum, sem flutiar hafa verið á þinginu fram til þessa, er með litlum vafa hægt að staðhæfa, að mestur gaumur hafi verið gefinn að máli þeirra Eisenhowers, forseta Bandaríkjanna, og Krúsjeffs, forsætisráðherra Sovétríkjanna. •— Öllum er ljóst, að engir tveir menn eru valdameiri í heiminum í dag en einmitt þessir aðalleiðtogar austurs og vesturs — og getur því oltið meira á afstöðu þeirra til málanna en nokkru öðru, hver þróunin verður í framtíðinni. Með þetta í huga er ekki ófróðlegt að rifja upp nokkur meginatriði í ræðum þeirra á þingi þjóðanna í síðustu viku. Eisenhower sagði: Krúsjeff sagði: Um Afríku: BRÝNUSTU nauðsyn ber til þess, að samtök þjóðanna verndi hin nýju ríki fyrir utanað- komandi áhrifum, sem sjálfstæði þeirra getur stafað hætta af. 1) Öllum aðildarríkjum SÞ ber að virða rétt Afríku-búa til að marka eigin stefnu. 2) SÞ eiga eftir því sem þörf krefur að aðstoða afrísku ríkin við að tryggja öryggi þeirra. 3) Stofnaður verði hjálparsjóður fyrir Kongó með 100 milljónum dala, til þess að greiða úr efnahagsörðugleikum landsins. 4) Tækniaðstoð á vegum SÞ verði aukin. 5) SÞ geri réðstafanjr til að efla menntun afrísks fólks. Um Afríku: SAMEINUÐU þjóðirnar verða að hvetja allar þjóðir og ríkisstjórnir til þess að láta ekki þjáningar nýlenduþjóðanna sem vind um eyru þjóta. SÞ ættu að krefjast: 1) Sjálfstæðis allra nýlendna umsvifalaust. 2) Ekki verði unað „aðgerðum nýlendustefnunnar í formi hernáms og landleigusamninga innan endimarka annarra ríkja.“ 3) Jafnréttis og virðingar fyrir rétti allra þjóða til að ráða sjálfar sér og landi sínu. Um S Þ: 'I/’AKIN hefur verið athygli * á því, að Tíminn hefur ekki fengizt til þess í sumar að ræða um það, hver væri stefna Framsóknarflokksins í efnahagsmálum. Skömmu eft- ir að Eysteinn Jónsson kom heim úr langri utanferð skýrði blaðið þó frá því, hver efnahagsstefna flokksins væri. Af því hefur verið dreg- ha sú ályktun að Eysteinn sjálfur væri höfundur stefn- unnar. Stefna Framsóknarflokks- ins er sú, samkvæmt orðum Tímans, að flokkurinn vilji hækka yfirfærslugjald en af- nema jafnframt uppbótakerf- ið. Hann vilji halda „upp- byggingarstefnunni" áfram af fullum þrótti en draga jafnframt úr íjárfestingu, hann vilji jafna skattana og taka upp meiri óbeina skatta, þ. e. a. s. söluskatta. Þar sem Eysteinn er nú heima og hægt ætti að vera fyrir Tímamenn að ná til hans um skýringar, leyfum við okkur að beina eftirfarandi spurningum til Framsóknar- blaðsins: 1) Hvað á að gera við pen- ingana, .sem fást af hækkuðu yfirfærslugjaldi, ef jafnframt á að afnema uppbótakerfið? 2) Hvernig á að fara að því að halda „uppbyggingar- stefnunni" áfram af fullum þrótti, en draga jafnframt úr f j árf estingunni ? 3) Hvað er átt við með því að jafna eigi skattana? 4) Þegar lýst er stuðningi við eyðsluskatta, er það þá ekki jafnframt yfirlýsing um að rétt hafi verið stefnt af stjórninni, er hún tók upp söluskattinn? Væntanlega vefjast spurn- ingar þessar ekki fyrir hag- spekingum Tímans, þegar þeir hafa beinan aðgang að fjármálamanninum mikla, Eysteini Jónssyni. Um S Þ: Aðildarríki SÞ ættu að hafa til taks liðssveit- ir, sem samtökin gætu gripið til í framtíðinni, ef neyðarástand skapaðist einhvers staðar. Um Hammarskjöld: Bandaríkin veita Dag Hammarskjöld afdrátt- arlaust fúlltingi sitt. Gagnrýni, sem beint er gegn honum, er í rauninni gagnrýni á sam- tökin sjálf. Um afvopnun: Viðræður um afvopnun er unnt og verður að hefja að nýju hið bráðasta. Við erum ætíð reiðubúnir til að taka til íhugunar hverjar skyn- samlegar og framkvæmanlegar tillögur. Við setjum það eina skilyrði, að slík afvopnunar- áætlun leiði ekki til þess að nein ein þjóð öðlist yfirburði á hernaðarsviðinu. Við erum reiðu- búnir til að fallast á alþjóðlegt eftirlit í hvaða mynd sem er. Um geiminn: Það er tillaga mín, að við gerum samkomu- lag um, að engin þjóð geti lagt pláneturnar undir sig. Okkur ber að sameinast um þá stefnu, að fólk í okkar heimi stofni ekki til fjandsamlegra átaka annars staðar í geimnum. í stað framkvæmdastjórastöðunnar ætti að setja á fót framkvæmdanefnd 3ja manna. Aðal- stöðvarnar ætti að flytja frá New York. Um Hammarskjöld: Allsherjarþing SÞ ætti að gefa nýlenduveld- unum og handbendi þeirra áminningu, svo að hann misnoti ekki stöðu sína. Um afvopnun: „Það ætti að kasta öllu í haug á fjórum ár- um.“ 1) Alþjóðlegt eftirlit með eyðileggingu allra vopna. 2) Alþjóðlegt eftirlitslið til að fylgj- ast með eyðileggingu vopna á erlendri grund. 3) Eldflaugastöðvar verði eyðilagðar, nema þar sem um er að ræða flugvelli, sem hægt er að nota £ friðsamlegum tilgangi. 4) Hætt verði framleiðslu kjarnorkuvopna og annarra ger- eyðingarvopna. Um flugnjósnir: U-2 njósnaflugið var aðalástæðan til þess að leiðtogafundurinn í París fór út um þúfur. Það skipti einkum miklu máli, sökum þess að Eisen- hower lýsti yfir því, að þarna væri um að ræða venjulega framkomu Bandarikjanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.