Morgunblaðið - 30.09.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.09.1960, Blaðsíða 2
4 MORCVNBL4Ð1Ð Föstuöagur 30. sept. 1960 Krúsjeff ókyrr undir rœðu Macmillans New York, 29. sept. (NTB-Reuter) HAROLD Macmillan, for- sætisráðherra Breta, hélt ræðu í Allsherjarþingi SÞ í dag. Var honum ákaft fagnað er hann sté í ræðustólinn og meðan hann talaði. En Krús- jeff forsætisráðherra tók eng- an þátt í fagnaðarlátunum, heldur greip hvað eftir annað fram í fyrir MacmiIIan, og lambdi báðum höndum í borð ið. — Segir brezka útvarpið að framkoma Krúsjeffs hafi vak ið mikla furðu meðal fulltrúa á AHsherjarþinginu. Macmillan ræddi aðallega af- yopnunarmálin, en tók einnig Upp hanzkann fyrir Hammar- skjöld og vítti árásir Krúsjeffs — Varðarfundur Framh af bls 1 að Rússar hafi með þessu fórnað neinu af réttindum sínum. Ræðu sinni lauk dómsmála- ráðherra með því að lýsa yfir að stjórnin hlyti að gera það í mál- inu, sem bezt samrýmdist ís- lenzkum hagsmunum, hvað sem liði árásum óábyrgra æsinga- manna. Svikabrigzlin byrjuðu 1952 Er dómsmálaráðherra hafði lokið máli sínu var orðið gefið frjálst og tók fyrst til máls Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri. Þakk- aði hann frummælanda frábæra ræðu og rakti síðan gang land- helgismálsins frá fyrstu tíð. — Benti ræðumaður á að áhugi kommúnista hefði ekki vaknað á málinu fyrr en 1952 er Bretar settu löndunarbannið. Máttu kommúnistar ekki heyra nefnt að tilraunir væru gerðar til að fá löndunarbanninu aflétt. Er Is- lendingar leituðu ásjár Efnahags samvinnustofnunar Evrópu og málið kom fyrir Evrópuráðið, ærðust kommúnistar og töluðu um svik, undanhald, leynisamn- inga, afsal landsréttinda o. s. frv. En það var kaldhæðni ör- laganna, að málið skyldi siðan leyst í tíð vinstri stjórnarinnar á þann hátt, sem íslendingar höfðu unnið að. Fiskimálastjóri lauk máli sínu með þessum orðum: „Allir, sem líta á málin með hagsmuni íslands eins í huga, hljóta að vona og biðja, að ríkis- stjórninni takist að leysa málið á þann hátt, sem okkur væri bæði hagur og sómi að“. Þá kvaddir sér hljóðs Ottar Möller skrifstofustjóri. Ræddi hann einnig um óheilindi komm- únista í landhelgismálinu, en þá kvað hann reyna að nota málið til að koma okkur úr Atlantshafs bandalaginu. Taldi hann einsýnt að við yrðum að reyna að leysa landhelgismálið með samkomu- lagi við Breta, enda verðum við að krefjast af sjálfum okkur þess sama og við krefjumst af öðr- um. Formaður sleit síðan fundi með nokkrum hvatningarorðum. Benti hann á að hinar einstæðu undirtektir fundarmanna bæru þess ljóst vitni, að Sjálfstæðis- menn væru staðráðnir í að standa fast að baki forystumannanna í tilraunum þeirra til að leysa mál ið á þann hátt, sem rakið hefði verið á fundinum. Tóku fundar- menn undir orð hans með dynj- andi lófataki og lauk þar .ieð þessum merka fundi. á „nýlendustefnu“ Vesturveld- anna. Forsætisráðherrann lýsti því yfir að Krúsjeff ætti sök á því að „toppfundurinn“ í París fór út um þúfur. Hann sagði að ágrein- ingur ríkti í heiminum og væri nauðsynlegt að vinna að því að draga úr honum. Lagði Macmillan til að komið yrði á fót nefnd sérfræðinga á sviði vísinda, hernaðar og stjórn- mála og henni falið að undirbúa tillögur um afvopnun, sem lagð- ar verði fram innan ákveðins tíma. Lofar Hammarskjöld Varðandi ásakanir Krúsjeffs á Hammarskjöld, kvaðst Macmill- an vilja ganga í lið með þeim mörgu er hefðu lýst yfir trausti sínu til hans og lofuðu dugnað, ráðsnilld og heiðarleika Hamm- arskjölds. Kvaðst Macmillan vera eindregið á móti tillögu Krúsjeffs um breytingu á fram- kvæmdastjóm SÞ. Þegar hér var komið, stökk Krúsjeff hrópandi upp úr sæti sínu, veifaði hand- leggjum og barði í borðið. Full- trúarnir litu undrandi á hann, en Macmillan hélt áfram eins og ekkert hefði í skorizt. Gromyko tekur undir Benti hann á að Bretar hafi á undanförnum árum veitt 510 milljónum manna sjálfstæði og kvað árásir Krúsjeff á „nýlendu- stefnuna“ vera út í bláinn. Hins- vegar hefðu 2,5 milljónir manna flúið Austur-Þýzkaland til að setjast að í Vestur-Þýzkalandi á síðustu 12 árum. I þetta sinn tók Gromyko und- ir með Krúsjeff, og börðu þeir nú báðir í borð sín. Eitt sinn þegar Krúsjeff stökk á fætur í miðri ræðu Macmillans og hrópaði eitthvað á rússnesku, sagði hann: „Mér þætti vænt um að fá þetta þýtt, ef unnt er“, og vakti það mikinn fögnuð í fundarsaln- um. — Prófastar settir BISKUPINN hefur nýlega sett séra Trausta Pétursson á Djúpa- vogi, prófast í S-Múlaprófasts- dæmi. Þá hefur séra Þórarinn Þór á Reykhólum verið settur til að gegna prófastsembætti í Barðastrandarprófastsdæmi, í for föllum séra Jóns ísfelds á Bíldu- dal. — Macmillan í Keflavík sl. sunnudag Búast við erfiðleikum London, 29. sept. (NTB-Reuter) BREZKA utanríkisráðuneyt- ið skýrði frá því í dag að við- ræðunefnd færi til íslands á föstudag til að ræða um fisk- veiðilögsöguna. Væri það von nefndarmanna að málamiðl- unarsamkomulag næðist og með því bundinn endir á tveggja ára deilu þjóðanna. Vonast eftir undanþágum En talið er að erfiðara reynist að ná samkomulagi við íslend- inga en Norðmenn, sem nýlega hafa samið við Breta um heimild til að stunda veiðar allt að 6 mílum frá Noregsströnd næstu tíu árin. Hótunarherferð komm- únista i A.5.B. KOMMÚNISTASTJÓRNIN í ASB, félagi afgreiðslustúlkna í brauð- og mjólkurbúðum er nú aivarlega farin að óttast um völd sín. Fyrir nokkru var skýrt frá því hér í blað- inu, að félagsstjórnin ákvað að hundsa löglega kröfu 18 félagskvenna af liðlega 200, um að allsherjaratkvæða- greiðsla færi fram í félaginu um kjör fulltrúa á alþýðusam bandsþing. Lét stjórnin kjósa fulltrúana á fámennum fundi, en heyktist síðar meir á of- beldi sínu, ógilti fyrri kosn- ingu og ákvað að láta undan kröfunni um aUsherjarat- kvæðagreiðslu. Fer kosningin fram nú um helgina. Hinsvegar hefur kommún- Korl ísfeld bloðamaður og skold lótinn BLAÐAMENN mega nú sjá á bak ágætum félaga, Karli ísfeld, blaðamanni og skáldi. Hann lézt í fyrrakvöld í Landakotsspítalan- um, en þangað var hann fluttur fyrir nokkrum dögum. Karl var fæddur á Sandi í Að- aldal, en móðir hans, Áslaug, er systir Guðmundar skálds á Sandi. Faðir Karls var Niels Lilliendahl kaupmaður á Akur- eyri. Karl brautskráðist stúdent MJÖG hefur dregið úr suð- Veðurspáin kl 10 í gær- austanáttinni og í gær voru kvöldi: ekki nema 4—5 vindstig í SV-land og SV-mið: Austan Eyjum, en hægviðri eða gola gola eða kaldi, úrkomulítið. annars staðar á landinu. Við Faxafiói til Vestfjarða og ; suður og vesturströndina var bæði miðin: Sunnan gola eða ■ skýjað, en bjart norðan lands kaldi, dálítil rigning með köfl- og austan. Hæðin fyrir aust- um. an land er enn nokkuð stöð- Norðurland til Austfjarða og ug, og er því varla að vænta bæði miðin: Sunnan gola, létt áttarbreytingai eins og er. skýjað með köfium. SA-land og SA-mið: Austan gola, skýjað. istastjórnin tekið upp sömu aðferð og kommúnistar í Dags brún og haft í hóOunum við þær stúlkur, sem undirrituðu kröfuna um allsherjarat- kvæðagreiðslu. Hefur formað ur félagsins hringt í fjölmarg ar stúlkur og lesið yfir þeim hinar ofboðslegustu skammir fyrir að bera fram jafn sjálf- sagða ósk. Hefur formaður- inn jafnvel haft í hótunum við stúlkurnar og borið þeim á brýn að hafa falsað nöfn á á skorendal is tana! Ennfremur hefur formaður- inn og meðframbjóðandi hans sent út dreifibréf undirritað af þeim sjálfum, þar sem er persónulegt skítkast í mót- frambjóðendurna, en hinsveg- Karl Isfeld frá MA 1932, settist í norrænu- deild háskólans og nam þair í 3 ár. Þá gerðist hann blaðamaður við Alþýðuiblaðið, en síðar varð hann ritstjóri „Vinnunnar" blaðs Alþýðusambands íslands. Þá var Bretar vonast þó til að unnt verði að ná samkomulagi um ein hverjar undanþágur til veiða inn an 12 mílnanna. Er talið að brezka nefndin geri sér helzt von ir um að semja um heimild fyrir brezka togara til tímabundinna veiða á ákveðnum svæðum inn- an 12 mílnanna. Tíu dagar Vonir standa til að unnt verði að ljúka viðræðum á tíu dögum og á það bent að brezkir togara- eigendur hafi bannað skipstjór- um sínum að fara inn fyrir 12 mílna mörkin við ísland. En það bann renni út hinn 12. okt. n.k. Norska fréttastofan NTB segir að formaður brezku nefndarinn- ar verði Patrick Reilly, deildar- stjóri í brezka utanríkisráðuneyt inu. ar hrósa þær sjálfum sér á hvert reipi fyrir reynslu og þekkingu í félagsmálum auk þess sem þær segjast „fyrr og síðar hafa unnið að hagsmuna málum félagskvenna“ Allt er plagg þetta hið broslegasta og vel til þess fallið að rýra fylgi félagsstjórnarinnar enn meir en orðið er. í gærkvöldi var svo hald- inn fundur í félaginu og var hann fjölsóttur. Varð stjórn- in þar fyrir harkalegri gagn- rýni fyrir hin ofsafengnu við- brögð sín við kröfunni um allshcrjaratkvæðagreiðslu. — Átti formaður að vonum erf- itt með að afsaka hótunarher- ferð sína, sem rædd var sér- staklega. Málsvarar lýðræðis- sinna voru i miklum meiri- hluta á fundinum enda óttast félagsstjórnin nú mjög um völd sín, en þau hafa komm- únistar haft frá því félagið var stofnað. hann um skeið blaðamaður viö VLsi. Karl hlaut fyrstur íslenzkra blaðamanna verðlaun úr Móður. málssjóði Björns Jónssonar ráð- herra. Var það á 100 ára afmæli Björns í október 1946. Karl ,sem gaf sig að ijóðagerð, gaf út ljóðabókina „Svartar morgunfrúr“. Hann þýddi fjölda bóka, t.d. „Ævintýri góða dátans Svæks“, „Og sólin rennur upp“, eftir Hemmingway, „Ævisögu“, eftir Steinbeck og ljóðaflokkinn Kalevala. Var Karl sæmdur finnsku heiðursmerki, er Finn- landsíorseti var hér á ferð fyrir nokkrum árum. Mikinn fjölda smásagna þýddi Karl einnig svo og leikrit. Undanfarin ár hafði Karl ver- ið heilsutæpur og varð hann öðru hvoru að leggjast 1 sjúkrahús. Sem fyrr segir veifctist Karl snögglega fyrir nokkrum dögum og var fluttur í Landakot, en það an átti hann eigi afturkvæmt. Friðrik og Ingi efstir fyrir síðustu umferð BIÐSKÁK Friðriks Ólafssonar og Svein Johannessen var tefld áfram í gærkvöldi, og lauk með jafntefli eftir 59 leiki alls. Bauð Johannessen þá jafntefli, sem Friðrik þáði. Ólafur gaf biðskák sína úr 9. umferð án þess að tefla hana frekar og í 10. umferð vann Arinbjörn Kára. Þá er staðan þannig: 1.—2. Friðrik Ólafsson og Ingi R. Jóhannsson 8!4 vinning. 3. Arinbjörn Guðmundsson 8 vinninga. 4.—5. Ingvar Ásmundsson og Svein Johannessen 614 v. 6. Guðmundur Ágústsson 5!4 vinning. 7. Gunnar Gunnarsson 4 v. 8. Ólafur Magpússon 3!é v. 9. Benóný Benediktsson 3 v. 10. Kárj Sólmundarson 2!4 v. 11. Guðmundur Lárusson 2 v 12. Jónas Þorvaldsson 1% v. Ellefta og síðasta umferð verð- ur tefld í kvöld í Sjómannaskól- anum og hefst kl. 7,30 e.h. Þá tefla saman Gunnar og Friðrik, Kári og Ingi R., Johannessen og Arinbjöm, Guðm. Ágústsson og Benóný, Guðm. Lárusson og Ingvar og Jónas og Ólafur,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.