Morgunblaðið - 20.05.1960, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.05.1960, Blaðsíða 24
Jbróttasíðan er á bls. 22. 114. tbl. — Föstudagur 20. maí 1960 Þingfréttir Sjá bls. 8. Efnahagsmálin rœdd í Kópavogi Eindregnum sfubningi lýst v/ð róð- stafanir rikisstjórnarinnar sjálfstæðisfélag Kópavogs hélt í gærkvöldi ágæ.tan fund um efnahags- málin í Félagsheimilinu í Kópavogi. Frummælandi var Ólafur Thors, forsætisráðherra, sem flutti ýtarlega ræðu um hina ýmsii- þætti þeirra mála. Öll skynsemi mælti með Vék hánn í upphafi að þvi, hvemig um- horfs var í efna- Sjálfstæðismenn í Kópavogi eftir fremsta megni stuðla að því, að þær nái tilgangi sínum“. Alyktunin var samiþykkt ein- róma. Að síðustu mælti Ölafur Thors forsætisráðherra nokkur orð. Fundurinn fór í hvívetna hið bezta fram og lauk ekki fyrr en komið var fram undir miðnætti. Nokkrir sjóstangveiðimannanna fyrir utan HB í gærmorgun (Ljósm. S. J.) Þorskurinn lánaður til myndatöku Sjóstangveiðimenn reru frá Eyjum í gœr VESTMANNAEYJUM í gær- kvöldi, frá fréttamanni Mbl. — Það voru broshýrir sjó- sóknarar, sem lögðu að bryggjunni hér í kvöld, enda þótt afli hafi ekki verið slík- ur að magni, að ástæða sé til að vinna í hraðfrystihúsun- um í nótt. Flestir höfðu dreg- ið þetta 20—30 fiska og sum- ir meira. Örfáir voru óánægð- ir með dagsverkið, annað hvort vegna þess að þeir höfðu gleymt að taka sjó- veikipillurnar í morgun eða vegna þess, að „þessi íslands- fiskur er ekki nógu stór fyrir okkur“, eins og Fransmaður- inn, sem braut rúðuna á hótel HB í gærkvöldi, sagði. — „Ég þurfti aldrei að beita ýtrustu kröftum, við sáum engan hval“, sagði hann og hló. — Fimmtíu þátttakendur Dagurinn í dag var reynslu- og undirbúningsdagur fyrir hina al- þjóðlegu sjóstangarveiðikeppni, sem hefst hér í fyrramáiið og stendur í þrjá daga. Þátttakendur eru um 50, Bret- ar, Frakkar, Belgíumenn, Banda- ríkjamenn og íslendingai. Margt heimamanna var saman komið .íið'ir við hafnarbakka um 9 leytið í morgun, þegar bátarn- ir er voru 8, létu úr höfn. Evja- skeggjar kímdu, þeir eru ekki vanir slíkri viðhöfn, þegar þorsk- Bátasmíða• stöð við urinn á í hlut. En keppendumir, sem margir hverjir ei-u komnir langt að, litu hlutina öðrutn áug- um, og það gekk mikið á þegar Fransmennirnir roguðust með fyr irferðarmikinn veiðiútbúnað um borð í bátana. 6—7 menn voru á hverjum báti og reynt að skipta því þannig, að menn af mörgum þjóðernum drægju þorskinn við sama borðstokk. Fréttamaður Mbl. fékk að fljóta með á Sigrúnu VE 50, en þar réðu ríkjum tveir ágætis®’ menn, Oddur Sigurðsson og Einar Jóelsson, sem byrjuðu að hella upp á könnuna strax og komið var út úr haÆarmynninu. Hald- ið var að Suðurey. Veður var gott, en dálítil undiralda, nóg til þess að landkrabbanum frá Mbl. leið ekki alls kostar vel innvortis. Keilur dregnar „Þú hefðir átt að taka pillu", sagði Englendingur og veifaði pilluglasinu, sem er mun mikil- vægara til aflasældar en öngull- inn. Og það sannaðist von bráð- ar, því þessi Englendingur, Mr. Shilling frá London, dró fyrsta Framh. á bls. 23 Borgarstjórinn vígði íslandshúsin í gær HULL, 19. maí (Reuter). — Borg arstjórinn í Reykjavík, Geir Fóstbræður fá frá bærar viðtökur KARLAKÓRINN Fóstbræður söng á útihátíð í Bergen 17. maí og voru áheyrendur 30 þús. í skeyti til Mbl. frá Noregi segir að kórinn hafi vakið geysihrifn- ingu. Einnig hélt kórinn hljómleika fyrir húsfylli í Bergen þann 18. þ. m. við mikinn fögnuð áreyr- enda. Bæjaryfirvöldin sýndu söng bræðrum frábæra gestrisni. Blaðadómar segja kórinn einstæð an, m. a. segir blað í Haugesund að flutningurinn minna á fyrsta flokk kammermusikflutning og hijómsveitarflutning. Kveiktu krakk- Hallgrímsson, opnáði í dag við hátðlega athöfn, 27 hús sem Is- lendingar hafa gefið öldnum sjó mönnum frá Hull og fjölskyldum þeirra. Geir Hallgrímsson sagði í ræðu við þetta tækifæri að í þúsund ár hefðu Hull og Island verið tengd vináttuböndum og að hann vonaði að sú vinátta mætti end- ast um langa framtíð. Borgarstjórinn skýrði síðan frá tilefni gjafarinnar sagði að eftir stríð hefðu íslenzkir togarasjó- menn flutt heim frásagnir af eyði leggingunni í Hull, og það hefði orðið til þess að ákveðið var að aðstoða bæinn og 20 þús. pund verið gefin í því skyni. Peningarnir voru notaðir til að byggja þessi hús. Atbugasemd frá Sölunefnd varnarliðseigna í MORGUNBLAÐINU þann 18. þ. m. birtist grein um sölu á fjar- skiptatækjavarahlutum. Er þar tekið fram að Sölunefnl Varnar- liðseigna, muni hafa boðið vara hluti þessa fyrir kr. 800.00.—. Það sanna er, að varahlutir þessir hafa aldrei verið boðnir fyrir kr. 800.000.—, en hins vegar var öll um rikisstofnunum, sem koma til greina að hefðu not fyrir þessa varahluti, boðið að kaupa það er þeir óskuðu eftir og ennfremur var öðrum aðilum boðið það sama. Að síðustu var Landssíma íslands boðið að kaupa það sem eftir var fyrir kr. 45.000.— og hafnaði Landssmíminn því.'Eftir það var á næstu 2—3 mánuðum selt af þessu fyrir ca. 10—12 þús. kr. og var talið með því, að litlir sölumöguleikar væru eftir. Var þá afgangurinn seldur fyrir kr. 30.000.—. Ársliátíð Sjálf- stæðismaima á Siglufirði SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á Siglu firði halda árshátíð sína n.k. mið vikudagskvöld 25. maí í Sjálfsæð ishúsinu á Siglufirði. Skemmtun- in hefst kl. 9 e. h. Þar verða ávörp, skemmtiatriði og dans. Sjátlfstæðisfólk á Sigufirði er hvatt til þess að mæta. Aftur hefst brúarsmíði á Mýrdalssandi hagslífinu, þeg- ar núverandi ríkisstjórn tók við, og rakti síð- an skref fyrir skref allt það, sem rannsóknir hagfræðinganna leiddu í Ijós. — Sannaði Ólafur Thors með sterk- um rökum, að öll skynsemi hefði mælt með því, að gerðar yrðu þær ráðstafanir, sem ríkisstjóm- in hefði beitt sér fyrir. Á réttri braut Þá ræddi forsætisráðherra við reisnarráðstafanirnar og efni helztu frumvarpa stjórnarinn- ar, sem verið hafa á dagskrá að undanförnu. Vék hann að því búnu að framtíðarhorfunum og sýndi fram á, að ýmis sólar- merki bentu þegar til þess, að efnahagsmálin væru á réttri braut. Ný blómaöld — eða miklar hörmungar Lauk forsætisráðaerra í ræðu sinni miklu lofsorði á dómgreind almennings og taldi öruggt, að ef þjóðin sýndi áfram fullan kila- ing á allri aðstoðunni, þá mundi henni vel farnast cg ný blóma- öld renna upp í landinu. En ef- aðgerðir rikisstjórnarinnar yrðu brotnar niður, væri ástæða til að óttast miklar hörmungar og yrði þá teflt í voða bæði efnahagsiegu og stjórnmálalegu frelsi þjóðar- innar. Tókst Ólfi Thors forsætisráð- herra í furðanlega stuttu máli að bregða upp skýrri mynd af þessu margþætta og flókna efm. — Var ræðu hans mjög vel tekið. Ágætar umræður Þegar forsætisráðherra hafði lokið ræðu sinni tóku til máls þeir Helgi Tryggvason, Axel Jóns son, Sveinn S. Einarsson, Kristinn Wium og fundarstjórinn Gísli Þorkelsson, sem alir fluttu stutt- ar en ágætar ræður og lýstu fylgi við ráðstafanir ríkisstjórnarinn- ar til lausnar efnahagsvandans. Lýst fylgi við viðreisnina 1 fundarlok var síðan samþykkt svohljóðandi ályktun: „Fundur í Sjálfstæðisfélagi Kópavogs haldinn 19. maí 1960 þakkar aðgerðir núverandi stjórn arflokka til varanlegrar lausnar á efnahagsvandamálum þjóðarinn ar og stuðnings hennar við aukið athafnafrelsi einstaklinganna. Sjállfstæðismenn í Kópavogi þakka sérstaklega formanni Sjálf stæðisflokksins, Ólafi Thors, for- ystu hans í þeirri viðreisnarbar- áttu, sem nú stendur yfir. Munu Arnar- voginn NIÐUR við Arnarvoginn í Garðahreppi er í ráði að koma upp slipp og báta- smíðastöð með meiru. Er Sigurður Sveinbjörnsson, forstjóri, að fá þar tveggja hektara land í Lyngholts- landi, niður við sjóinn rétt á móti Vífilstaðaafleggjaran- um, og mun bráðlega ætla t að hefja þar framkvæmdir. { ar í? RANNSÖKN hefur nú farið fram á bruna, sem varð á þriðjudag í geymslubragga í Fossvogi, en get um var að því leitt að kveikt hefði verið í. Líkur benda til að þarna hafi krakkar kveikt í rusli, og eldur- inn síðan læst sig í braggagafl- inn. Er slökkviliðið kom að log- aði í rusli við vesturenda bragg- ans og einnig í gaflinum. Skömrnu áður en kviknaði í bragganum hafði verið kveikt í sinu á Þ'eimur stöðum skammt frá. EFTIR næstu helgi verður byrj- að að brúa Blautuhvísl á Mýr- dalssandi ofar en gert var í fyrra en þá hvarf brúin í sandinn, sem kunnugt er. í vor hefur verið ágætlega fært austur yfir, enda ekki von á vatnavöxtum þarna fyrr en í byrjun júní. Múlakvísl, sem er vestast á söndunum, hefur eitthvað vaxið í hlýindunum undanfarið, en það mun gefa litla vísbendingu um hvort leysingarvatnið ætlar í hana 1 þetta sinn eða flæða yfir sandana. En það var það, sem gerðist í fyrra. Var þá það ráð tekið að veita því í Blautukvísl og brúin sem hvarf byggð yfir hana. Var hún byggð í farvegi sem fylltist af sandi. Er talin miklu minni hætta á, að eins fari um hina nýju brú, sem verður miklu ofar, enda fékkst talsverð reynsla í bar- áttunni við vatnið í fyrra. Hin nýja brú mun eiga að vera um 100 m löng og síðan á að byggja 700—800 m langan varnargarð. Um verKið sjá þeir Valmundur Björnsson, brúar- smiður og Brandur Stefánsson, vegaverkstjóri. Leiðin austur yfir sandinn mun ekki lengjast svo neinu nemi við þetta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.