Morgunblaðið - 07.09.1958, Page 19
Sunnudagur 7. sept. 1958
MORGVNBLAÐIÐ
Jón Guðmundsson 75 órn
JÓN Guömundsson, gastgjafi að
Valhöll á Þingvöllum er 75 ára
í dag.
Jón er fæddur og uppalinn í
Hörgsholti í Hrunamannahreppi
í Árnessýslu 7. september 1883.
Gerðist hann bóndi árið 1908 á
Heiðabæ í Þingvallasveit. Á þeim
bæ bjó Jón í 12 ár og undi vel
hag sínum. Árið 1917 keypti Jón
gistihúsið Valhöll á Þingvöllum
af Tryggva Gunnarssyni banka-
stjóra og meðeigendum hans.
Eftir að Jón gestgjafi hafði í nokk
ur ár rekið Valhöll þótti honum
hagkvæmara að búa á jörðinni
— Reykjavlkurbréf
Framh. af bls. 11.
láta bugast við þau kjör, eru í
senn gæddir seiglu og dug.
Nú síðustu dagana hefur sjó-
mannastéttin enn orðið íslend-
ingum til sæmdar. Framkoma
varðskipsmanna okkar gegn
hinu brezka ofurvaldi mun ætíð
skráð á glæstustu spjöldum sögu
íslands. Á sama veg og víst er,
að Bretar munu skjótlega vilja
gleyma herhlaupi sínu hingað.
Það er vissulega rétt, sem nú er
hermt eftir Bretum sjálfum, að-
herhlaupið til íslands er flota
þeirra ósamboðið. íslenzku varð-
skipsmennimir hljóta þakkir nú
og síðar, en fyrst og fremst skul-
um við þakka forsjóninni, að
ekki skuli hafa orðið manntjón
af þessu heimskulega herhlaupi.
+ KVIKMYNDIR *
„Á næturveiðum"
AUSTURBÆJ ARB í Ó sýnir nú
þessa amerísku sakamálamynd,
eða öllu heldur glæpamynd, sem
gerð er eftir samnefndri skáld-
sögu Davis Grubbs. Gerist mynd
in í héruðunum meðfram Ohio-
ánni í Bandaríkjunum og er að-
alpersónan geðbilaður glæpamað
ur, Harry Powell að nafni. —
Hann hefur komizt að því að
bankaræningi einn og morðingi
hefur rétt áður en lögreglan tók
hann fastan, fengið börnum sín-
um kornungum í hendur 10 þús-
imd dollara, sem var ránsfeng-
ur hans, og sagt þeim að geyma
féð til seinni tíma og segja eng-
um frá því, en sjálfs hans beið
ekkert nema gálginn. — Harry
Powell leitar nú börnin uppi,
giftist móður þeirra og myrðir
hana síðar, en hyggst nú neyða
börnin til að segja frá hvar pen-
ingarnir séu geymdir. — Hefst
nú hinn óhugnanlegasti þáttur
myndarinnar. Börnunum tekst
að komast undan glæpamannin-
um, en þó skellur þar hurð nærri
hælum. — Þau ná í bát og halda
niður Ohio-fljótið, en alltaf skýt-
ur bófanum upp við og við án
þess þó að honum takist að kló-
festa börnin.
Mynd þessi er afar óhugnan-
leg og reynir mjög á taugar á-
horfandans, enda er hún ágæt-
lega sett á svið af hinum mikil-
hæfa leikara Charles Laughton
og leikurinn er ágætur, einkum
þó leikur Roberts Mitchum's í
hlutverki Powells. — Ego.
Brúsastöðum, sem hann flutti á
árið 1920.
Það er að sjálfsögðu fjöldi
manns, innlendra og erlendra, er
Jón hefir tekið á móti í þessi 40
ár, sem hann hefur haft með
hótelreksturinn að gera á Þing-
völlum, og þar á meðal mörg er-
lend stórmenni. Stórviðburður
eins og Alþingishátíðin 1930 er
sérstaklega minnisstæður Jóni, en
þá hafði hann eins og endranær
marga góða menn við hlið sér til
að framkvæma hið mikla starf
sem af honum var krafizt.
Það hefur að sjálfsögðu oft ver-
ið erfitt að halda í horfinu með
stöðugt nýjum kröfum um bætt-
an aðbúnað í hótelhaldinu þegar
ekki er hægt að hafa opið nema
2 mánuði á árinu, sem eiga að
greiða allan kostnaðinn.
Jón Guðmundsson er mjög þjóð
rækinn maður og Þingvallasveit-
in er honum sérstaklega kær.
Fáir íslendingar hafa verið eins
stórtækir í gjöfum sínum og Jón
Guðmundsson. Á lýðveldishátíð-
inni 1944 ánafnaði Jón skógrækt
ríkisins 300 þús. kr. til skógrækt-
ar og fegrunar þjóðgarðinum á
Þingvöllum, og vinnur Jón stöð-
ugt hvert sumar að skógrækt þar.
Það er margt og margvíslegt,
sem Jón mundi vilja gera ef tími
entist og margar eru þær tillög-
urnar, sem hann mundi óska að
kæmust í framkvæmd eins og t.d.
að fá rafmagn frá Soginu um
sveitina.
í sveit hjá Jóni hafa verið marg
ir unglingar, sem nú eru orðnir
fullorðnir merkis-borarar, og
mörgum er persónulega hlýtt til
Jóns fyrir góðvild hans og hjarta
gæði. Á þessum tímamótum ævi
hans hugsa margir hlýtt til hans
með innilegum óskum um góða
heilsu, svo hann geti áfram starf-
að til hagsbóta þjóðfélaginu.
Vinur.
5TÚLKA
óskast til afgreiðslustarfa í skóverzlun. Umsókn er
tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, ásamt með-
mælum ef til eru, sendist til afgreiðslu blaðsins fyr-
ir 10. þ.m. merkt: Skóverzlun — 7506.
Á sunudaginn hefur Biindrafélagið
Kaffísölu í dag í Breið-
fírðingabúð kl. 3—5
Ágóðlnn rennur í húsbyggingasjóð blindraheimilisins
sem er í smíðum, við Stakkahlíð.
Bæjarbúar! Fjölmennið til kaffidrykkjunnar
og styðjið gott málefni.
BLINDBAFÉLAGIÐ
Ungir menn
sem hafa áhuga fyrir störfum við gatspjaldavélar,
verða ráðnir með framtíðarst£u-f fyrir augum, að
loknum reynslutíma. Upplýsingar gefur skrifstofu-
stjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Tjarnargötu 12.
Skýrsluvélar ríkisins og
Reykjavíkurbæjar.
U nglingsstúlka
óskast til aðstoðar í skrifstofu vorri nú þegar.
Umsækjendur komi til viðtals í skrifstofuna kL
3—5 e.h. n.k. mánudag.
Vesturgötu 10 — Reykjavík
Nýlend uvöruverzlun
til sölu
Til sölu er fremur lítil nýlenduvöruverzlun á góð-
um stað í Reykjavík. Verzlunin hefir starfað lengi
á sama stað, og er í fullum gangi. Hentugt tóekifæri
fyrir mann til að skapa sér og f jölskyldu sinni at-
vinnu.
I Þeir, sem kunna að hafa áhuga á þessu, sendi af-
| greiðslu Mbl. bréf með upplýsingum um nafn, heim-
) ilisfang og símanúmer merkt:
I „Nýlenduvöruverzlun — 7507“.
Innilegt hjartans þakklæti til allra þeirra er glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 80 ára af-
mælinu.
Guð blessi ykkur ölL
Guðrún Sigurðardóttir,
Heggsstöðum.
Hjartans þakklæti til allra er sýndu mér virðingu og
vinsemd á 75 ára afmæli mínu þann 28. ágúst sL
Ástríður Helgadóttir,
V estmannaey jum.
Tvö góð skrifstofuherl»ergi
í miðbænum eru til leigu nú þegar. Tilboð merkt:
„Lág leiga — 7508“ sendist Mbl. fyrir
miðvikudagskvöld.
Stúlkur — atvinna
2 stúlkur vantar í verksmiðjuvinnu. l
1 stúlku í borðstofu. Fæði, húsnæði,
hátt kaup. Upplýsingar í Álafoss,
Þingoltsstræti 2.
Elskulegur eiginmaður minn
ÞORSTEINN JÓNSSON
sjómaður, andaðist að heimili sínu, Skólavörðustíg 24A,
föstudaginn 5. sept.
Þorbjörg Grimsdóttir.
Bálför konu minnár
SVÖVU ÞORSTEINSDÓTTUR
fer fram mánudaginn 8. september kl. 1.30 e.h.
Ársæll Árnason.
ELfSABET BALDVINSDÓTTIB
frá Seyðisfirði, sem lézt 3. þ.m. verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju þriðjud. 9. þ.m. kl. 1,30.
Árni Guðmundsson.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
JÓN INGVAR JÓNSSON
Þverveg 6, er andaðist 25. ágúst, verður jarðsettur frá
Neskirkju þriðjudaginn. 9. sept. kl. 1,30. Athöfninni í
kirkjunni verður útvarpað. Blóm og kranzar afþakkað, en
þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarsjóð lam-
aðra og fatlaðra.
Óli Kr. Jónsson, Þórhallur Jónsson,
Ingibjörg Jónsdóttir, Ingólfur Fr. Hallgrímsson
Helga Jónsdóttir, Egill Fr. Haligrímsson ..
og barnabörn.
Þökkum af alhug öUum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát sonar míns og bróður okkar
SIGUBPÁLS GUÐMUNDSSONAR
Stóra-Saurbæ, Ölfusi. Jafnframt þökkum við öllum, sem
sýndu hinum látna hlýhug og vináttu í hinum langvar-
andi veikindum hans og reyndu á ýmsan hátt að létta
honum þungbærar raunir. Sérstaklega þökkum við hjón-
unum, sem önnuðust hann í Kaupmannahafnarferðinni.
Ennfremur læknum og hjúkrunarliði á Elliheimilinu
Grund.
. Guðsblessun fylgi ykkur öllum.
Jóhanna Sigurjónsdóttir,
Ólafur Guðmundsson, Sigurjón Guðmundsson,
Jón Guðmundsson.
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum nær og fjær
fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður og tengdaföður
KRISTINS ÓSKARS KRISTJÁNSSONAR
sjómanns, Háteigsveg 25. Við viljum sérstaklega þakka
starfsliði sjúkrahúss Hvítabandsins fyrir góða umönnun og
hjálp í veikindum hans.
Eiginkona, synir og tengdadætur.