Morgunblaðið - 07.09.1958, Qupperneq 10
10
U O RGV /V BL AÐÍÐ
Sunnudagur 7. sept. 1958
Otg.: H.f. Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastióri: Sigfús Jónsson.
Aðairitstjórar: .Valtýr Steíansson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arní Öla, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480
Askriftargjald kr 35.00 á mánuði innanlands.
1 lausasðlu kr. 2.00 eintakið.
VINSTRI STJÓRNIN ER STÖÐUGT
AÐ FELLA GENGI KRÓNUNNAR
ALLT frá því, að vinstri
stjórnin tók við völdum
hefur dýrtíðin og verð-
bólgan haldið áfram að magnast
í landinu. Stjórnin gerði að vísu
tilraun til þess á fyrstu dögum
valda sinna að stöðva kapphlaup-
ið milli kaupgjalds og verðlags
Hún framkvæmdi kaupskerð-
ingu, sem bæði' kommúnistar og
Alþýðuflokksmenn höfðu að
vísu talið til glæpa meðan þeir
voru í stjórnarandstöðu. En í árs-
• lok 1956 lagði stjórnin á nýja
skatta og tolla, sem höfðu í för
með sér nýjar verðhækkanir á
margs konar nauðsynjum. A
árinu 1957 urðu svo miklar kaup-
hækkanir. Fjöldi verkalýðsfé-
laga sagði upp samningum og
fékk kauphækkanir, sum aðeins
um fáa hundraðshluta en önn-
ur upp í 40%. Þar með var
kapphlaupið milli kaupgjalds og
verðiags í fullum gangi. Verð-
bólguskrúfan hélt áfram að snú-
ast og gengi íslenzkrar krónu
hélt áfram að lækka hröðum
skrefum..
Sjálfsblekking
Hermanns
Hermann Jónasson hafði talið
sjálfum sér trú um það, að ef
hann tæki kommúnista með sér
í ríkisstjórn þá hefði hann þar
með tryggt sér hjálp verkalýðs-
samtakanna til þess að stöðva
kapphlaupið milli kaupgjalds og
verðlags. Því næst taldi hann
Alþýðuflokknum trú um þetta
sama. Það væri ekki hægt að
stjórna íslandi án kommúnista.
Yfirgnæfandi meirihluti Alþýðu-
flokksmanna var á móti stjórnar-
samvinnu við kommúnista. Har-
aldur Guðmundsson hafði lýst
því yfir fyrir kosningarnar að
samvinna við þá kæmi aldrei til
greina. Einangrun kommúnista
var talin eitt aðalmarKtnið
Hræðslubandalagsins.
Engu að síður knúði Hermann
Jónasson Alþýðuflokksmenn til
samvinnu við kommúnista í rík-
isstjórn. Haraldur Guðmundsson,
eini leiðtogi ATþýðuflokksins á
þingi, sem átti rætur í verka-
lýðshreyfingunni, flúði úr landt
og tók við virðulegu embætti í
útlöndum. Hann sá fram á ó-
gæfu flokks síns í stjórnarsam-
vinnu við kommúnista.
Grunur hins gamla Al-
þýðuflokksleiðtoga rættíst
Bæjarstjórnarkosningarnar ol.
vetur sýndu, að stór hluti Al-
þýðuflokksins var svo von-
svikinn á flokki sínum að
hann yfirgaf hann og kaus
Sjálfstæðismenn, sem juku
fylgi sitt stórlega hvarvetna
um landið.
En jafnhliða hafði það sanr.-
azt á fyrsta ári vinstri stjórnar-
innar að tengsl hennar við
verkalýðshreyfinguna voru mjog
ótraust. Mikill fjöldi verkalýðs-
félaga sagði upp samniogum og
krafðist kauphækkana og fékk
þær. Voru það ekki síður félög
sem kommúnistar og Alþýðu-
flokksmenn stjórnuðu en önnur
verkalýðsfélög, sem þá stefnu
tóku.
Mótsagnir Framsóknar
Síðan það varð ijóst, að verka-
lýðshreyfingin var, þrátt fyrir
samninga Hermanns. og komn,-
únista, í mjög lausum tengslam
við ríkisstjórnina, hafa Fram-
sóknarmenn haldið því blákait
fram, að allar samningsuppsagn-
ir og_ kauphækkunarkröfur verka
lýðsfélaga væru verk Sjálfstæð-
ismanna. Málin horfa þá þannig'
við, að Hermann ginnir flokks-
menn sína og Alþýðuflokkinn
til þess að taka kommúnista í
ríkisstjórn vegna þess að þeir
ráði einir verkalýðshreyfing-
unni. Það sé ekki hægt að stjórna
landinu með Sjálfstæðismönn-
um vegna þess að þeir séu gei -
samlega áhrifalausir í launþega-
samtökunum.
En þegar vinstri stjórnin er
sezt á laggirnar og kapphlaupið
milli kaupgjalds og verðlags
heldur áfram snýr Hermann við
blaðinu: Sjálfstæðismenn ráða
\ erkalýðshreyfingunni og þess
vegna eru allar samningsupp-
sagnir og kauphækkanir þeim
að kenna. Svo kemur Eysteinn
skattránsstjóri og lýsir því yfir
austur á „hólmanum þar sem
Gunnar sneri aftur“, að „nýrra
ráðstafana sé þörf í efnahags-
málunum" á komandi vetri
vegna þess að Sjálfstæðismeim
hafi eyðilagt hin bráðsnjöllu
,,bjargráð“ vinstri stjórnarinnar
á sl. vori!
Svikamyllan afhjúpuð
Allur almenningur í landinu
hefur nú tækifæri til þess að
sjá svikamyllu vinstri stjórnar-
innar afhjúpaða. Hún lofaði að
stöðva dýrtíð og verðbólgu með
„varanlegum" úrræðum, sem
fyrst og fremst bitnuðu á ,,hin-
um ríku“. Þau skyldu alls ekki
koma hart niður á „almúganum'1.
Efndirnar á þessu fyrirheiti eru
þær, að vinstri stjórnin hefuc
lagt á annað þúsund milljónir
árlegra nýrra tolla og skatta á
almenning. Framfærsluvísitalan
hefur hækkað um 10 stig síðan
í vor og er nú komin upp í 202
stig. En kaupgreiðsluvísitalan er
samkvæmt ákvæðum „bjargráð
anna“ ennþá 183 stig.
Verðlag á algengustu nauð-
synjum hefur á síðustu mánuð-
um hækkað um allt að 42% og
dýrtíðin heggur vikulega stó:-
kostleg skörð í tekjur hvers ein-
asta heimilis í landinu.
Vinstri stjórnin stendur nú
uppi úrræðalausari en nokkru
sinni fyrr í efnahagsmálunum.
Hún hefur svikið öli sín dig
uryrði og loforð um „varan-
leg“ úrræði og „nýjar leiðir* .
Ilún hefur hellt flóðbylgju
dýrtíðar og verðbólgu yf:r
þjóðina og er stöðugt að fella
gengi íslenzkrar krónu. Þessi
uggvænlega staðreynd blasir
nú við öllu hugsandi fólki á .
lslandL
ÚR HEÍMI
y
Síamsfvíburarnir frœgu fœddust í Kíno
í MAÍMÁNUÐI sl. fæddust í
sjúkrahúsi í Lundúnum Síams-
tvíburar, sem eru samfastir á
hvirflinum. Þetta eru tveir
drengir, og ásamt þeim fæddist
þriðji drengurinn, sem á a'ian
hátt var eðlilegt barn. Ætlunin
mun vera að gera aðgerð á Sí-
amstvíburunum til að skiija þá í
sundur, en ennþá er óákveðið,
hvenær sú aðgerð verður fram-
kvæmd.
Læknar telja, að líkurnar til
þess, að Síamstvíburarnir Tímó-
teus og Jeremías lifi báðir að-
gerðina af, séu í hæsta lagi 50
á móti 100. Faðir þeirra, Reginald
Thackeray, sem er 39 ára að aldri,
segir vongóður: Heilabú drengj-
anna eru alveg aðskilin, og okk-
ur hefur verið sagt, að mikil
líkindi séu til, að þeir geti vaxið
upp sem algjörlega eðlileg börn.
★ ★
Þessir nýju Síamstvíburar rifja
það upp fyrir mönnum, er síð-
ast var mikið rætt um möguleik-
ana á að skilja Síamstvíbura að
með aðgerð, svo að vel tækist til.
Það var í desember árið 1953, að
yfirskurðlæknirinn á Hammer-
smithsjúkrahúsinu í Lundúnum,
próf. Ian Aird, gerði slíka aðgerð
á nokkurra mán. gömlum stúlku
börnum frá Kano í Nígeríu. í
hálfan mánuð voru þau rannsök-
uð nákvæmlega, t. d. var ge;sla-
virkum efnum sprautað inn í blóð
ið, til þess að hægt væri að rann-
saka nákvæmlega blóðrásina.
Litlu stúlikurnar voru samfastar
á brjóstinu og maganum og höfðu
m. a. sameiginlegt bringubein,
en það, sem skurðlæknunum þótti
énn ískyggilegra, var, að þær
höfðu sameiginlegt lifrar- og
gallvegakerfi. Þetta dró úr lík-
unum á því, að þær myndu lifa
af aðgerðina.
Hins vegar var talið, að þær
myndu vara geta lifað iengi sam
fastar, og því var aðgerðin Lam
kvæmd. Önnur telpan lifði af og
þremur vikum eftir aðgrðina var
hún flutt flugleiðis heim til Ní-
geríu. Hin telpan dó skömmu eft-
ir uppskurðinn. Þó að aðgerðin
heppnaðist ekki fyllilega, var hér
um að ræða mjög merkan áfanga,
af því að aldrei áður höfðu tví-
burar, sem samvaxnir voru á jafn
flókinn hátt, verið skildir að með
þeim árangri, að annar lifði að-
gerðina af.
¥ ¥
Menn munu spyrja, hversu al-
gengt það sé, að Síamstviburar
fæðist. Og svarið er, að það sé
mjög óalgengt. Banarískir vís-
indamenn hafa gert skýrslur um
tvíburafæðingar í heiminum og
komizt af þeirri niðurstöðu, að
meðaltalið sé: einir tviburar við
73. hverju fæðingu, en af hverj-
um 50 þúsund tvíburum, sem
fæðast, eru einir Síamstvíburar.
í sögu nútímalæknavísinda er
„SKÝRSLUR Atvinnutækja-
nefndar um atvinnuástand og að-
stöðu til atvinnurekstrar í bæj-
um og þorpum á Norður- Austur-
og Vesturlandi‘‘ nefnist rit, sem
forsætisráðuneytið hefur sent
Morgunblaðinu
Rit þetta er 84 bls. auk kápu,
stórt í broti. í því eru 10 heild-
arskýrslur um það efni, sem fram
kemur í titli þess. Auk þess eru
í því 53 skýrslur um einstaka bæi
og þorp ásamt athugasemdum. í
bókarlok eru ýmsar almennar at-
hugasemdir.
í ritinu segir, að atvinnutækja-
nefnd hafi skv. fundarsamþykkt
15. sept. 1956 og í samræmi við
skipunarbréf sitt frá 5. sept. 1956
Þetta er ein af fáum teikning-
um, sem til eru af Síams-tvíbur-
unum Chang og Eng frá Kína. —
Hringleikahússtjórinn Barnum
kynnti þá í Bandaríkjunum sem
„samvöxnu börnin frá Siam“, og
þannig varð tii orðið Siamství-
burar.
vitað um um það bil 20 Síams-
tvíbura, sem. læknar hafa fjallað
um. Oftast hefur verið um að
ræða samvöxt á hryggnum eða
mjöðmunum, en á undanförnum
árum hafa læknar bæði í Bret-
landi og Bandaríkjunum fengið
í hendur Síamstvíbura, sem sam-
vaxnir eru á höfðinu — og er
það talið hvað hættulegast, þar
sem gera verður aðgerðina í eða
við svo viðkvæmt líffæri sern
heilann. Þó hafa slíkar aðgerðir
tekizt vel. í Fíladelfíu tókst
bandarískum læknum að skilja
FÖSTUDAGINN 29. f. m. var
stofnað í Reykjavík Samband ís-
lenzkra námsmanna í Þýzkalandi
(Isl'andisches Studentenverein
Deutschiand). Stofnfund sátu
fuiltrúar námsmanna frá Islend-
ingafélögunum í Múnchen, Stutt-
gart, Karlsruhe, Göttingen og
Kiel, auk fulltrúa námsmanna í
Aachen, Erlangen, Heidelberg,
Braunschweig, Darmstadt og
Hamborg. Námsmenn í Hannov-
er höfðu einnig tilkynnt þátt-
töku. Að stofnun sambandsins
munu standa hátt á annað
hundrað námsmanna. Kosin var
stjórn fyrir sambandið og sam-
þykkt að fyrsta starfsárið skuli
aðsetur hennar vera í Munchen.
Stjórn skipa: Jóhannes Briem,
verkfræðinemi, formaður, Óttar
Halldórsson, verkfræðinemi, rit-
ari og Helgi Jónsson, verkfræði-
nemi, gjaldkeri, allir frá Múnch-
tekið sér fyrir endur að kanna
þau efni, er skýrslurnar fjalla
um. Hafi hún safnað upplýsing-
um frá ýmsum aðilum og farið
um landið. í ritinu segir, að til-
svarandi athugun í bæjum og
þorpum á Suðurlandi standi yfir.
Þá segir, að tillögur frá nefnd-
inni hafi verið og verði sendar
ríkisstjórninni, en séu ekki prent
aðar í riti þessu. Sumar hafi ver-
ið framkvæmdar, aðrar séu í at-
hugun. Af tillögum nefndarinnar,
sem kunnar eru, lætur hún að-
eins getið tillagnanna um smíði
á tólf 150—250 rúml. fiskiskip-
um. Eru þau nú í smíðum í Aust-
ur-Þýzkalandi.
slíka Síamstvíbura að, cg fyrir
nokkrum árum gerði prófessor
Peter Röttgen frá Bonn vel heppn
aða aðgerð á stúlkubörnurn frá
Niederrhein, sem þannig voru
samvaxnir. Þessar litlu telpur
eru nú að komast á skólaaldur,
og eftir því, sem næst hefur ver-
ið komizt, hafa þær tekið eðli-
legum þroska.
★ ★
Síamstvíburar hefur smám
saman orðið það hugtak, sem al-
mennt er notað um samvaxin
börn. Nafnið var fyrst notað um
samvöxnu tvíburana Chang og
Eng, sem reyndar fæddust í Kína.
Þeir felðuðust um með banda-
ríska Barnumshringleikahúsinu,
sem „Síamstvíburarnir“. Bæði tví
burunum og hringleikastjórar.um
græddist mikið fé, og að lokum
settust tvíburarnir að í Norður-
Karólína í Bandaríkjunum,
kvæntust og 'eignuðust erfingja.
Þeir voru samvaxnir á bringu-
beininu. Er þeir höfðu náð all-
háum aldri, veiktist annar af
lungnabólgu og lézt. Þar með
voru einnig örlög hins ráðin, og
hann dó nokkrum klukkustund-
um eftir lát bróður síns. Heim-
ildum ber ekki saman um, hvor
hafi látizt á undan, og hversu
gamlir þeir hafi orðið. Samkvæmt
sumum heimildum náðu þeir
fimmtugsaldri, en samkvæmt öðr
um urðu þeir rúmlega sjötugir.
Ef þeir hefðu verið uppi nú á
tímum heföi það sennilega heppn-
azt vel að skilja þá í sundur
með skurðaðgerð.
en. Meðstjórnendur eru Ormar
Guðmundsson, arkitektnemi,
Stuttgart og Úlfur Sigurmunds-
son hagfræðinemi, Kiel.
Tilgangur sambandsins er að
gæta hagsmuna íslendinga í
Þýzkalandi, að stuðla að aukinni
og bættri samvinnu innbyrðis og
við aðra aðila heima á íslandi
og annars staðar. Þráfaldlega
hefur komið í ijós nauðsyn þess,
að námsmenn í Þýzkalandi hefðu
sameiginlega stjórn til þess að
koma opinberlega fram fyrir sína
hönd, sérstaklega þar sem tala
þeirra er leggja stund á tækni-
nám erlendis hefur aukizt stór-
lega hin síðari ár. Munu nú ekki
í nokkru öðru landi utan Islands
Vera jafnmargir íslendingar við
tækninám.
Þegar nú allar líkur benda til
þess, að Ísland verði í framtíð-
inni að byggja afkomu sína á
tækni og iðnaði til þess að geta
talizt til sjálfstæðra þjóða, hef-
ur hagur þeirra er stunda nám
erlendis farið stöðugt versnandi.
Eru flestir þeirra fjárlitlir menn
og verða að meira eða minna
leyti að kosta nám sitt sjálfir.
Hafa því aukin dýrtíð bæði hér
og erlendis, álögur á námsgjald-
eyri og stórleg fargjaldahækkun
komið sér mjög illa, jafnframt
því sem styrkir hafa ekkert
hækkað undanfarin ár. Sérstak-
lega hefur fargjaldahækkunin
komið illa niður á. þeim, er
stunda nám í Þýzkalandi, vegna
þeirrar sérstöðu þeirra að þurfa
að koma heim tvisvar á ári, þar
sem námstími þar er tvískiptur.
Ríkti einhugur á fundinum um
að brýna nauðsyn bæri til að
gerðar yrðu hið fyrsta ráðstaf-
anir til að bæta hag íslenzkra
námsmanna erlendis.
Skýrslur frá Atvinnu-
tœkjanefnd
Samband íslenzkra náms
manna í Þýzkalandi
stofnað