Morgunblaðið - 01.06.1958, Qupperneq 2
2
MOttfírnvnr 4fíiÐ
Fimmtudagur 29. mai 1958
Uppþotinu lauk jafn-
hljóðlega og það hófst
MEÐAL þeirra erlendu stjórn-
gæzlumanna sem komu hingað
með Meteor á dögunum var Áke
Pontén frá Uppsölum, iandsfo-
geti í Uppsala léni. Tíðindamaður
Mbl. hitti landsfógetann að máli
um borð í Meteor og spurði
frétta af löggæzlumálum Svia.
Var landsfógetinn hinn alúðleg-
asti og leysti greiðlega úr hverri
spurningu.
— Uppsala léni er skipt í át'a
lögsagnarumdæmi, og eru Lípp-
salir eitt þeirra. Hveiju lögsagn.
aiumdæmi er síðan skipt í
smærri umdæmi. I hverju um-
dæmi er sérstakur saksóknari,
sem tekur til meðferðar öll þau
mál, sem koma fyrir í umdæmi
hans. Þetta <efur nokkuð gang
Áke Pontén, landsfógeti
mála, en einmitt um þessar mund
ir situr nífnd á rökstólum sem
vinnur að endurskipulagr.ingu
löggæzlumá'a í Svíþjóð Umdæm
in hafa reynzt of smá og koma
einkum tit greina tvær leiðir th
úrbota. Önr.ur er sú að gera alb,
landið að einu lögsagnarumdæmi
Með því móti væri hægt að taka
hvert mél fyrir þegar í stað án
tillits til þess hvar málsaðilar
væru lögskráðir. Hin leiðin, sem
til greina kemur er sú, að útbúa
stóra vagna svo þeir verði nokk-
urs konar hreyfanlegar lögregiu-
stöðvar. I þessum vögnum væri
allt, sem þyrfti til að útkljá mát,
og þar gæti almenningur fengið
sakir sinar gerðai upp án nckk-
urra vafninga. Hvor þessara
leiða. sem vahn yrði myndi spara
mikinn tíma og mikla fynrhöfn.
Áke Pontén landfógeti er jafn-
framt borgarfógeti í Uppsölum.
Eg spyr hann hvort ekki sé erfitt
að halda uppi lögum og reglu í
þessum fornfræga stúdentabæ
— Það er ekki svo erfiti Stúd-
entarnir halda sínar hátiðir, en
þær ganga fljótt yfir. En ég get
sagt yður skemmtilegar sögur af
einum fyrirrennara minna. Ed
vard Raab, sem var lögregiu-
stjóri í Uppsölum 1879—1900 Um
Slal fötum í
erlendum skipum
UM hvítasunnuna var maður
handtekinn um borð í bandarísku
kaupfari hér í Reykjavíkurhöfn.
Þar hafði hann stotið tösku. —>
Lögreglan flutti manninn heim
til sín. Hann fór þó á kreik aftur
skömmu síðar. Félagi hans slóst
nú í för með honuni. Er skemmst
frá því að segja að þeir tóku sér
bíl og oku í honum framundir
morgun. Þeir fóru aftur um borð
í kaupfarið stálu þar einum föt-
um, þá komust þeir um borð í
brezkt eítirlitsskip, og stálu þar
tveim frökkum. Að lokum hlupu
þeir á brott án þess að greiða
bílstjóranum nokkur hundruð
króna skuld. En þeir höfðu ekki
iengi leikið lausum hala, er þeir
urðu á vegi lögreglumanna. Voru
þeir hanteknir um ki. (j um
morguniun.
hans daga voru stúdentarnir |
meiri ólátabelgir en nú. Þeir sófn
uðust saman á Stóra torginu og
létu ófriðlega. Þegar uppþotið
var í algleymingi gekk lögreg.'u-
stjórinn niður á torgið og las
upp þann kafla laganna, sem
fjallaði um viðurlög við óspikt-
um. Daginn eftir gaf hann svo
skýrslu til fylkisstjórans bess
efnis að uppþotinu hefði lokið
jafn-hljóðlega og það byrjaði. i
Eitt sinn varð eldur laus í Upp-
sölum á dögum Raabs. Er hann
kom á staðinn var lar ekkert
slökkvilið en fjöldi manns haíði
safnast saman til að horfa a
eldmn. Kaab leit á aðstæður, en
nrópaði svo til mannfjóldan*:
„Fænð ykkur svo pið hindrið
ekki eldsvoðann!“
— Raab var einnig fru.mlegur
í skýrsiugerð. Eitt sinn kom hann
til vndirmanns síns með skyrslu
og bað hann skipta henni til helns
inga, en bætti svo við: „En seinni
helmingurinn verður ekki nerna
fjórðungur". Þessi vinnubrögð
Raabs eru nú annars að n.örgu
ieyti til fynrmyndar, sagði larids-
fógetinn að lokum.
Minmngarsjóður
dr. Urbancic
EINS og áður hefur verið getið
um í blöðum hefur Þjóðleikhúss-
kórinn, stofnað minningarsjóð í
þakklætis- og virðingarskyni fyr-
ir ómetanleg störf hins látna
stjórnanda kórsins.
Sjóður þessi er ætlaður til
styrktar lækni til sérnáms í
heila- og taugaskurðlækningum,
en tilfinnanlegur skortur hefur
verið á sérmenntuðum lækni í
þessari grein hér á landi, svo
ekki var unnt að veita dr. Urban-
cic hjálp.
Stjórn sjóðsins hefur nú gefið
út tvenns konar gjafakort:
Minningarkort eins og aðrir
sjóðir hafa, en auk þess gjafa-
kort við hátíðleg tækifæri til
að minnast dr. Urbancic einnig
á gleðistund.
Þessar tvær gerðir af kortum
Minningarsjóðsins eru fáanlegar
hjá Hljóðfærahúsi Reykjavikur
h.f., Bankastræti 7, Bókabúð
ísafoldar, Austurstræti 8
Ennfremur hjá
afgreiðslu blaðsins Dags, Hafn-
arstræti 90, Akureyri og hjá
Bókaverzlun Jónasar Tómasson-
ar, Hafnarstræti 2, ísafirði, sem
taka um leið á móti beinum fram-
lögum til sjóðsins, og er fólk
beðið vinsamlegast að minnast
þeirra.
Sönnmót kirkjukóra
AKUREYRI, 27. maí. — 1 gær
efndi kirkjukórasamband Eyja-
fjarðarprófastsdæmis til söngmóts
í Akureyrarkirkju og hélt tvo
samsöngva. Var þar samankominn
150 manna kór úr sex kirkjukór-
um. Voru þao kirkjukór Ólafs-
fjarðar, kitkjukór Grundar- og
Saurbæjarkirkna, kirkjukór Akur
eyrar, kirkjukór Upsakirkju,
kirkjukór Lögmannshlíðarkirkju
og kirkjukór Siglufjarðar. Hver
kór söng tvö lög, en sameiginlega
sungu kórarnir 8 lög.
Heiðurssöngstjóri á mótinu var
Björgvin Guðmundss., en aðrir
söngstjórar voru Áskell Jónsson,
Gestur Hjörleifss., Guðmundur Jó
hannsson, Jakob Tryggvason, Páll
Erlendsson og Sigriður Schiöth.
Björgvin Guðmundssyni voru
færð blóm, eftir að hann hafði
stjórnað söng lagsins „Sjá í fjar-
sýrti“ eftir sjálfan sig.
Að loknum samsöngnum sátu
kórarnir fjölmennt samkvæmi að
Hótel KEA, og voru þar margar
ræður fluttar, Sambandinu bárust
heillaskeyti m.a. frá Biskupi Is-
lands og söngmálastjóra.
Báðir samsöngvar kóranna voru
vel sóttir og mjög ánægj ulegir.
Þessi mynd er ur kaffihúsinu Mokka, en ýmsir góðir lista-
menn hafa lagt hönd að verki tii að gera það sem vistlegast.
Meðal þeirra eru listmálararnir Benedikt Gunnarsson, Bragi
Ásgeirsson, Jón Bcnediktsson o. fl. Sýningarsalurinn Hverfis-
götu 8—10 ætlar ætíð að hafa myndlistarverk til sýnis og sölu
í Mokka. í vinstra norni myndarinnar er mynd af Guðmundi
Baldvinssyni, forstöðumanni kaffistofunnar.
Hóskólinn rainnist oldarafmælis
Finns Jónssonar próiessors
í DAG, 29. maí er aldar-
afmæli dr. phil. Finns Jóns-
sonar prófessors. Háskóli jslands
mun minnast þessa með athöfn í
hátíðasal háskólans kl. 8,30 e.h.
Athöfnin hefst með því, að Þor-
kell Jóhannesson háskólarektor
flytur ávarpsorð, en síðan mun
Halldór Halldórsson prófessor
Ungur malari
lieldur íjrslu
sýningu sína
KLUKKAN 1 á morgun opnar Val
gerður Árnadóttir Hafstað mál-
verkasýningu í Sýningarsalnum
Hverfisgötu 8—10. Á sýningunni
eru 14 oliumálverk, tvær mosaik-
myndir og nokkrar vatnslita-
myndir (gouache).
Valgerður Árnadóttir Hafstað
er Skagfirðingur að ætt og upp-
runa. Hún stundaði nám við
Handíðaskólann í Reykjavik vet-
urna 1953—55 kenndi Valgerður
haldsnáms haustið 1951 og nam
við Akademie de la Grande
Chaumiere í París tvo vetur. Vet-
urna 1953—55 knndi Valgerður
við barnadeildir Myndlistarskól-
ans, Laugavegi 166, en þrjá síð-
ustu vetur hefur hún dvalizt í
P-arís við myndlistarnám og
einnig lagt stund á mosaik.
Valgerður hélt sýningu í
Galerie la Roue í París í janúar-
mánuði s. 1. ásamt Gerði Helga-
dóttur. Hún sýnir nú í fyrsta
skipti hér, en þetta er jafnframt
hennar fyrsta sjálfstæða sýning.
Sýningin er opin frá kl. 1—7
virka daga, sunnud. 2—7, en
föstudaginn 30. maí er sýningm
opin frá 1—10 e. h.
Hlýnar í veðri
STYKKISHÓLMI, 27. maí. —
Undanfarna daga hefir mjög hlýn
að í veðri við Bíeiðafjörð, og hit-
inn komst upp í 10 stig í dag. Er
strax farið að grænka, og nú bú-
ast menn óðum til að setja niður
í garða og til annarrar vorvinnu.
Sauðburður hefir gengið vel, en
þó er ekki fárið að sleppa fé.
Þegar er farið ai búa bátana á
síldveiðar. — Fréttaritari.
flytja fyrirlestur um ævi Finns
Jónssonar og vísindastörf.
Öllum er heimili ókeypis að-
gangur.
Akureyrarhöfn út-
býr dýpkunarskip
AKUREYRI, 23. maí. — Undan-
farið hefur verið unnið að upp-
mokstri við togarabryggjuna hér
við Oddeyrartanga. Var mótor-
skipið „Dagný“ frá Siglufirði
keypt fyrir 150.000 krónur, en það
er notað við uppmoksturinn. Á
þilfari þess er stór uppmoksturs-
krani, sem er eign hafnarinnar.
Sandurinn er fluttur á bílum inn
á uppfyllinguna við Strandgötu,
en þar verður hann notaður til
að mynda land í gömlu smábáta-
kvínni. Magnús Bjarnason skipa-
eftirlitsmaður hefur haft umsjón
með útbúnaði „Dagnýjar". Verk-
ið hefur gengið vel til þessa, en
það hefur staðið í nokkrar vik-
ur og hafa verið mokaðir upp
um 200 rúmmetrar á dag til jafn-
aðar. Verkið þykir mjög hag-
kvæmt, því fylla þurfti upp við
sjálfa togarabryggjuna innan járn
þilsins og í það þarf mikið efni,
einnig var mjög aðkallandi að
fylla upp gömlu bátakvína.
Mikið verk liggur fyrir „Dag-
nýju“ hér í Akureyrarhöfn við
bryggjurnar á tanganum og eins
við Torfunefsbryggjurnar. Einnig
þarf að dýpka við bátakvína hjá
slippnum. Þá þarf að moka upp
við síldarbryggju Krossanesverk-
smiðjunnar. Borizt hafa beiðnir
frá nokkrum stöðum hér norð-
anlands um leigu á skipinu, en
því verður ekki hægt að sinna í
náinni framtíð. — vig.
□ Stjórn uppreisnarmanna á Sa-
hara hefur lýst því ý-fir, að
uppreisnarmenn mun leggja niður
vopn og hætta andspyrnu gogn
Frökkum, ef de Gaulle taki við
stjórn í Frakklandi.
Reksfrarhalli KRON
tœpl. ein millj. kr.
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis var
haldinn í Tjarnarkaffi í Reykja-
vík sunnudaginn 11. maí 1958.
Fundinn sátu 104 fulltrúar af 140
sem rétt áttu til fundarsetu, fé-
lagsstjórn, framkvæmdastjóri og
endurskoðendur, svo og noakrir
starísmenn félagsins.
Fundarstjórar voru kjörnir
'Steinþór Guðmundsson og Guð-
mundur Illugason, en fundarrit-
arar Þórhallur Pálsson og Gunn-
ar Árnason.
Formaður félagsins, Ragnar Ól-
afsson hæstaréttarlögmaður
flutti skýrslu íélagsstjornar.
Ræddi hann um hvaða ástæður
lægju til hinnar siæmi rekstrar-
afkomu á árinu, og tillögur til
úrbóta. Ennfremur ræddi hann
um húsnæðismál félagsins, og
lagði áherzlu á að hafist yrði
handa um byggingu framtiðar-
húsnæðis á lóð félatsins á horni
Hverfisgötu og Smiðjustigs, var
i því sambandi samþykkt ein-
róma eftirfarandi tillaga, sem bor
in var fram af félagsstjórn:
„Fundurinn telur nauðsyn að
félagið eignist sem allra fyrst
verzluriarhús í miðbænum fy ir
starfsemi sína. Hann felur þvj
stjórninni að heíjast þegar handa
um uiitlirbúning að byggingu
verzlunarhúss á lóð félagsins vtð
Smiðjustig og Hverfisgötu".
Kaupfélagsstjórinn, Kjartan
Sæmundsson, flutti skýrsiu um
rekstur félagsins si. ar og ias
reikninga þeso. Vórusala narn kr.
42.263.284,51 a árinu hafði auk-
izt um 1,78%. Saia matvöruoúða
félagsins hafði aukizt um 10%
en sala í öðrum vöruflokkuin
dregizt saman. Kekstrarhalli varð
rúmar 987 þús. krónur. Þá rakti
kaupfélagsstj óri astæður íyrir
rekstrarhallanum og taidi fyrst
og fremst orsaka hans að leita
i þvi að leyfð álagnmg á ýmsar
vörur var lækkuð í ársbyrjun
1957, en ýmsir kosuiaðariiðir, svo
sem laun, umbúðir o. fl. hækk-
uðu veruiega án þess að tekið
væri tillit til í hinni leyfðu álagn
ingu.
Starfsmenn félagsins voru í árs
lok 102. Útborguð laun a ávinu
námu 4,8 millj. krónum. í lífeyris
sjóði fyrir starfsmenn félagsins,
sem stofnaður var fyrir tvelm
árum, voru röskar 314 þús. krón-
ur um áramót.
Innstæða í innlánsdeild félags-
ins nam 31/12 1957 kr. 3.691.97*4.07
og haiði aukizt um kr. 482 þus.
á árinu.
Miklar umræður urðu á aðal-
fundi um skýrslu formanns og
kaupfélagsstjóra, og ríkti mikill
áhugi og eindrægni meðal iull-
trúa á málefnun. félagsins.
Úr stjórn áttu að ganga:
Ragnar Olafsson, Þorlákur G.
Ottesen og Guðmundui Hjartar-
son en voru allir endurkjörnir.
Réttindi vélstjóra
FRUMVARP það, sem upphaf-
lega var flutt af ICarli Guðjóns-
syni og fjallar um breytingar á
lagaákvæðunum um réttindi vél-
stjóra, hefur verið rætt í efri
deild undanfarna daga.
Sigurður Bjarnason lagði til,
að frumvarpinu yrði vísað til
ríkisstjórnarinnar. Benti hanr. á,
að félög vélstjóra eru mjög mot-
fallin því, að málið fái þa með-
ferð, sem gert er ráð fyrir í frv.,
enda hefur nefnd, sem unnið
hefur að athugun á málinu, ný-
lega skilað áliti. Mun frumvarp
byggt á álitsgerðum hennar geta
orðið tilbúið fyrir haustið. Tillaga
Sigurðar var felld með 9 atkv.
gegn 5.
Hins vegar voru samþykktar
breytingatillögur frá sjávarút-
vegsnefnd deildarinnar, þar sem
nokkuð er komið til móts við
tillögur vélstjórafélaganna. — Á
fundi í gær var frv. afgreitt og
endursent neðri deild.