Morgunblaðið - 24.02.1939, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þjóðverjar búast við að
Hver verður
páfi?
Pacelli kardínáli er talinn koma
til greina við páfakjörið næstkom-
andi miðvikudag. Pacelli hefir ver-
ið utanríkismálaráðherra Páfarík-
isins og eftir lát Píusar páfa tók
hann við æðstu stjórn ríkisins og
páfahirðarinnar, ]iar til nýr páfi
er kjörinn. Eugenio Pacelli er 63
ára gamall, fæddnr 1876.
fá nýlendur
sínar aftur í ár
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær,
Enskir blaðamenn í Berlín telja að Þjóðverjar ætli
að setja fram nýlendukröfur sínar við
bresku ráðherrana Mr. Oliver Stanley, vei^slunarmála-
ráðherra og Mr. Hudson, þegar þeir koma til Berlín
í næsta mánuði til þess að semja um verslunarmál.
Þeir ætla að rökstyðja kröfur sínar með því að Þjóð-
verjar geti ekki tekið upp almenna sambúð við aðrar
þjóðir í verslunar- og viðskiftamálum, fyr en örugt sje
um að þeir geti fengið öll hráefni sem þeir þarfn-
ast. —
Lausafregnir ganga um það, að áhrifamiklir stór-
iðjurekendur í Þýskalandi, hafi látið svo um mælt, að
Þjóðverjar muni að líkindum fá aftur nýlendur sínar
' ' í
í ar.
BESTA STOÐIN
London í gær. F.Ú..
I ræðu sem Mr. Chamberlain flutti í Blackburn í
gær, mintist hann á viðskiftasamninga þá, sem eru í
undirbúningi milli Bretlands og Þýskalands, og ljet í
Ijós von um, að þeir myndu reynast besta ráðið til
þess að koma á fót vinsemi og samvinnu milli þessara
ríkja, en ekkert myndi verða heiminum til meiri bless-
unar nje friðinum betri styrkur en ef slík vinátta gæti
tekist milli þessara tveggja rífeja.
Mr. Chamberlain komst svo að orði í ræðu sinni
að einkunnarorð Breta væri „Friður bygður á styrk-
leika („Peace through strength“).
Aðvörun Breta til óvina Frakka:
„Staðnæmist! Hætta
framundan!"
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Íræðu sem Halifax Iávarður flutti í efri málstofu
breska þingsins í dag, bar hann það afdrátt-
arlaust til baka að Mr. Chamberlain hafi haft
nokkrar undantekningar í huga er hann lýsti yfir nýlega
stuðningi við Frakka ef á þá yrði ráðist. Hann sagði að
yfirlýsing Mr. Chamberlains hafi verið skýr og afdrátt-,
arlaus.
Halifax lávarður líkti þessari yfirlýsingu við umferða-
merki, sem víða mætti sjá á vegum í Englandi: „Staðnæmist.
Hættulegur vegur framundan“.
Hann sagði, að enginn snefill af ágreiningi væri milli
stjórna Bretlands og Frakklands.
Schuster kardínáli, erkibiskup í
Mílanó, var meðal hínna fyrstu
sem bar á "órna, þegar farið var
að spá, hver verða myndi eft.ir-
maður Píusar XI. Alfred Ilde-
fonse Schuster er 59 ára gamall,
fæddur 1880.
Kosningar í Dan-
mörku 3. aprí!
Khöfn í gær. FÚ.
IDanmörku er nó ráðgert að
kosningar til landsþings og
fólksþings fari fram samtímis 3.
apríl næstkomandi.
Lyra fór í gærkvöldi áleiðis til
Bergen.
í ræðu sinni vjek Halifax lá-
varður að kröfum ítala á hend-
ur Frökkum. Hann sagði að í
fljótu bragði gæti virst eins og
deila ítala og Frakka kæmi
Bretum ekki við. En þegar á alt
væri litið, kæmi í ljós að hún
varðaði þá miklu, fyrst og
fremst vegna þeirrar afstöðu til
Frakka, sem hann hafði lýst fyr
í ræðu sinni, og í öðru lagi
vegna þess að Bretar hefðu
náð góðu samkomulagi við
ítali og væru ekki fúsir til þess
að fórna því aftur.
Hann sagði að ekki gæti
þó komið til mála að Bret-
ar tækju að sjer að miðla
málum milli ítala og
Frakka, m. a. vegna þess að
ítalir hafi ennþá ekki
treyst sjer til þess að segja
hverjar kröfur þeirra
í raun og veru væru á
hendur Frökkum og í öðru
lagi vegna þess, að báðir
aðilar hefðu lýst sig mót-
fallna því, að Bretar
reyndu að miðla málum. Á
meðan svo væri, myndi
breska stjórnin ekkert að-
hafast í þá átt.
FREGN KVEÐIN NIÐUR.
Með þessum ummælum er
skýlaust borin til baka fregn í
ítalska blaðinu Popolo di Roma,
sem var um það, að Perth lá-
varður sendiherra Breta í Róm
hafi í fyrradag farið á fund
Cianos greifa til þesö að leggja
fyrir hann tillögur úm máia-
miðlun í deilu ítala og Frakka.
Föstudagur 24. fefrr, 1939.
'ORMÖSA
:#hainan
OUAM
KtUPP/NERNEi
CfíROL/N£RN£
| Hagsmunastreitan í Austur-Asíu
Japanar taka eyna Hainan. Kortið sýnir, hve nærri Jap-
anar höggva hernaðarlegum hagsmunum Breta, Frakka og
Bandaríkjamanna með töku Hainan. Japanar hafa þegar á
valdi sínu eyna Formosa, Ladroneeyjarnar og Karolinueyjarn-
ar. Frá þessum eyjum er hægt að gera árás á Hong-Kong
(bresk nýlenda), Filipseyjar (bandarískar) og Indo China (sem
er frönsk nýlenda). Á kortinu sjest líka eyjan Guam, se«
Bandaríkjamenn eiga og vilja nú víggirða, þótt Japanar telji
það óvinsamlega ráðstöfun gagnvart sjer.
Azana segir
af sjer innan
Iveggja daga
---- segir „Matin**
Frá frjettaritara vorum á Siglufirði.
Khöfn í gær.
FRANSKA blaðið Matin boðar í dag að Azana
forseti muni segja af sjer innan tveggja daga
til þess að knýja dr. Negrin til þess að semja
frið.
Viðræðurnar milli Berards, erindreka frönsku stjórnarinn-
ar og Jordanas utanríkismálaráðherra Francos hófust í Bur-
gos að nýju í kvöld. Fullyrt er að Berard hafi fengið ótakmark-
að vald til þess að semja við Franco. Er búist við að viðræð-
unum verði lokið á morgun.
„Skotið i okkur
tuodurskeyti:
Sðkkvum",
ueyðarkali
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
kip eitt í Atlantshafi heyrði
í gærkvöldi svohljóðandi
neySarmerki: „Pecc skotiS á
okkur tundurskeyti óþektum
kafbát nálægt Azoreyjum. —
Erum að sökkva“.
Tvö skip gerðu þegar lykkju
á leið sína til að bjarga hinu
nauðstadda skipi, þ.A á m.
breska farþegaskipið Empress
of Australía. Þegar þau komu á
þær slóðir, sem skipið hafði gef-
ið upp, sást ekkert rekald úr
skipi, eða önnur merki þess að
skip hafi farist þar.
Berard er væntanlegur til
Parísar á sunnudag og á mánu-
dag verður ráðuneytisfundur í
París, sem talinn er munu binda
enda á þessa samninga með því
að stjórn Francos verði viður-
kend sem hin löglega stjórn á
Spáni skilyrðislaust. Franco er
sagður ekki gera sjer annað
að góðu.
Um 300 fulltrúadeildarþing-
menn og öldungadeildarþing-
menn í Frakklandi hafa undir-
skrifíið skjal þar sem skorað er
á stjórnina að viðurkenna ekki
Franco án þess að gefa þing-
inu kost á að láta í ljós skoðun
sína áður.
I DAG EÐA Á MORGUN.
„Daily Express“ skýrði frá
því í morgun að samþykt hafi
verið á ráðuneytisfundi í L,ond-
on í gær, að viðurkenna stjórn
Francos skilyrðislaust, annað-
hvort í dag eða á morgun
Skíðanámskeið f. R. Þátttakend-
ur í_ skíðanámskeiði í. 1R., sem
byrjar á mánudaginn, vitji skír-
teina sinna tíl Kaldal á Laugaveg
11 í dag.