Morgunblaðið - 24.02.1939, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 24. febr. 1939.
Happdrætti Háskóla íslands.
Fyrir rúmlega 4 aura á dag
getið þjer skapað yður möguleika til þess að vinna
46.250.00 krónur
Verð: ^ hlutur 6,00
t|2 — 3.00
|4 — 1.50
á mánuði.
Flýtið yður til næsta umboðsmanns.
Ekki er nú hiindraðið í haettunni.
Umboðsmenn í Reykjavík:
Frú Anna Ásmundsdóttir & frú Guðrún Björns-
dóttir, Túngötu 6, sími 4380.
Dagbjartur Sigurðsson, kaupm., Vesturgötu 45, sími
2814.
Einar Eyjólfsson, kaupm., Týsgötu 1, sími 3586.
Elís Jónsson, kaupm., Reykjavíkurveg 5, sími 4970.
Helgi Sivertsen, Austurstræti 12, sími 3582.
Jörgen Hansen, Laufásvegi 61, sími 3584.
Frú Maren Pjetursdóttir, Laugaveg 66, sími 4010.
Pjetur Halldórsson, Alþýðuhúsinu.
Stefán A. Pálsson & Ármann, Varðarhúsinu, sími
3244.
Umboðsmenn í Hafnarfirði:
Valdimar Long, kaupm., sími 9288.
Verslun Þorvalds Bjarnasonar, sími 9310.
BEST AÐ AUGLÝSA I MORGUNBLAÐINU.
Til leigu,
í Norðurmýri 14. maí, ein hæð í nýtísku húsi, 3 stofur,
eldhús og bað. Sjer miðstöð og rafmagnseldavjel. Leiga
140 kr. á mánuði. Einnig kjallari, stofa, svefnherbergi og
eldhús, með sjer miðstöð og rafmagnseldavjel. Leiga kr.
80.00 á mánuði. Aðeins þrifið og reglusamt fólk kemur til
greina. Lysthafendur leggi nöfn sín og heimilisföng, með
upplýsingum um, hve margt er í heimili, inn á afgr. blaðs-
ins fyrir febrúarlok, merkt „Sólríkt“.
íþróttir eftir Vivax:
Þjóðverjar stóðu sig best
á heimsmeistarakepninni
í Zakopane —
Morgunbiaöið meðmorgunkaífinu
Heimsmeistarakepni skíða-
íþróttarinnar fór að þessu
sinni fram í pólska smábænum
Zakopane í Karpatafjöllunum, í
ca. 1200 metra hæð yfir sjávar-
flöt. Kepnin var ýmsum erfiðleik-
um bundin, en þó var snjóleysið
alvarlegast. Skömmu áður en
heimsmeistarakepnin átti að hefj-
ast var ekki hægt að sjá annað
en að aflýsa yrði kepninni vegna
snjóleysis, en á síðustu stundu
byrjaði að snjóa, svo fært þótti
að láta kepnina fara fram.
Allir erfiðleikar voru þó ekki
yfirunnir vegna þess, hve tíðar-
far var slæmt, og daginn sem
svigkepnin fór fram, var t. d. svo
mikil hríð, að aflýsa varð kven-
kepninni í svigi þann dag, en
kepni karlmanna fór fram í afar
slæmum veðurskilyrðum.
Heimsmeistarakepnin hófst
laugardaginn 11. febrúar og lauk
sunnudaginn 19. febrúar. Pyrsta
daginn fór engin kepni fram,
heldur fóru fram hátíðahöld í
sambandi við opnun heimsmeist-
arakepninnar. Þátttakendur voru
þarna frá öllum þjóðum í Bv-
rópu, sem skíðaíþróttina stunda,
en engir þátttakendur mættu ut-
an Evrópu.
Á heimsmeistarakepninni stóðu
Þjóðverjar sig langbest og urðu
nr. 1 í flestum greinum, svo sem
utforrenn, svigi og skíðastöklii.
Finnar stóðu sig best í göngu,
nema 50 km. göngu, þar urðu
Norðmenn nr. 1.
★
Pyrsta íþróttagreinin, sem kept
var í, var utforrenn bæði fyrir
konur og karla. Pór ;sú kepni
fram sunnudaginn 12. febrúar.
Þjóðverjar sigruðu glæsilega
bæði í kvenna- og karlakepninni.
Þeir áttu fyrsta mann í karla-
kepni og þrjár fyrstu í kvenkepn-
inni.
Brautin var 3.o km. fyrir karla
og 3.2 fyrir kvenfólk. Fallið var
800 og 700 metrar. Pæri var ekki
vel gott. Efst á brautinni var
skari eða næstum svell á köflum
Heill hópur manna var settur í
það rjett áður en kepnin hófst, að
brjóta upp skarann, en árangur-
inn af því varð sá, að brautin
varð lausir ísmolar, sem ennþá
verra var að fóta síg á en sjálfu
svellinu. Margir blaðamenn, sem
þarna voru, halda því fram, að
brautin hafi blátt áfram verið
hættuleg lífi þátttakenda. Þó
urðu engin teljandi slys.
Úrslit í utforrennkepni urðu
þessi (fyrstu 3 menn) :
Karlar: 1. Helmuth Lantschner
(Þýskaland) á 3 mín. 26.88. 2.
Josef Jennewein (Þýskal.) 3.28.03
og 3. Karl Molitor (Sviss) 3.29.77.
Pjórði var Þjóðverji, fimti Prakki,
sjötti ítali, sjöundi Prakki og
áttundi Norðmaður. Þátttakend-
ur voru alls 35.
Konur: 1. Crisl Cranz (Þýskal.)
3.25.24. 2. Lise Rescli (Þýslcal.)
3:39.15 og 3. Helen Gödl (Þýska-
land) 3:40.71. Þátttakendur voru
21. Þetta er í fjórða skifti sem
Crisl Cranz vinnur heimsmeist-
arakepni kvenna í utforrenn.
Hún vann gullpeninginn á Olym-
píuleikjunum í Garmisch 1936.
★
Mánudaginn 13. febrúar var
kept í boðhlaupi á skíðum4xl0
km. 10 þjóðir tóku þátt í boð-
hlaupinu og vann Finnland á 2
klst. 08.35. Svíþjóð varð önnur
á 2 :09.43 og Ítalía nr. 3 á 2:13.38.
Næst kom Noregur, þá Sviss og
Þýskaland, Frakkland, Pólland,
Jugoslavia og Ungverjaland.
★
Svigkepni (slalom) karla og
kvenna átti að fara fram 14. febr.,
en vegna óhagstæðs veðurs varð
að fresta kepni kvenna. Þegar
kepnin hófst skall á hríð og var
svo svart á köflum, að ómögulegt
var að fylgjast með keppendum
í brekkunni. Þó stytti upp á milli
og höfðu því ekki allir keppend-
ur jafn góð (slæm!) veðurskil-
yrði.
Pyrstur í svigi (báðum ferðum
samanlagt) varð Svisslendingur-
inn Rudolf Rominger, fyrv. heims
meistari á 2 mín. 01.6 sek. En 2.,
3., 4. og 5. maður voru Þjóðverj-
ar. Besti Norðmaðurinn Kristofer
Berg varð nr. 6. Annar maður í
svigi var Josef Jennewein á 2:05.2
og þriðji Willy Walch á 2:08.8.
Reiknað eftir þjóðum varð Þýska-
iand nr. 1 með 6.23.1. Þá Sviss
með 7.26.9 og þriðja besta þjóðin
í svigi Norðmenn með 7.33.6.
I samanlögðu ntforrenn og svigi
sigruðu Þjóðverjar glæsilega. Áttu
1., 2., 4. og 5. mann.
Fyrstur í samanlögðu svigi var
Jennewein með 345.8 stig. Annar
Willy Walch með 352 stig og
þriðji Rudolf Rominger með
353.6 stig.
Reiknað eftir þjóðum var
Þýskaland fremst í samanlögðu
með 1008.3 stig. Sviss nr. 2 ineð
1010.4 og Noregur með 1129.2.
★
18 kílómetra gangan fór fram
á miðvikudag og urðu Piunar
þar sigurvegarar. Pinnarnir áttu
1., 2., 4., 6., 8, 9., 11., 17. og 18.
mann og hafa nú enn einu sinni
sýnt, að þeir eru besta gönguþjóð
á skíðum í heimi. Sigurvegarinn
heitir Kurikkala. Hann er 27 ára
gamall. Hann hafði æft sig lang-
mest og hann hefir í hyggju að
taka þátt í Maraþonhlaupinu á
Oiympíuleikjunum í Helsingfors
næsta ár. Ekki er látið mikið af
göngustíl hans, en dugnaðuriun og
úthaldið er þess meira.
Juho Kurikkala gekk 18 km. á
1 klst. 05.30 sek. Annar varð
Klaes Karpinen á 1:06.0ö og
þriðji Svíinn Carl Pahlin á
1:06.35.
★
Svigkepni kvenna, sem fórst
fyrir þann 14., var kept daginn
eftir. Þá fóru leikar svo, að Cristl
Cranz varð sigurvegari í svigi og
í samanlögðu svigi og utforrenn.
Úrslit í svigi urðu þessi: 1.
Oristl Cranz (Þýskal.) á 2:26.2.
Önnur Schaad (Sviss) á 2:46.5
og 3. Maj Nilsson (Svíþjóð) á
2:55.3. Laila Schou Nilsen, sem
er best norskra kvcnna í svigi,
varð sjöunda.
I samanlögðu svigi og utforr-
enn urðu þessi úrslit:
1. Cristl Cranz 330.2 stig. 2.
Schaad (Sviss) 359.5. 3. Lisa
Resch (Þýskal.) 362.3.
★
Prá 50 km. gönguuui hefir áð-
ur verið sagt hjer í tlaðinu, en
þar varð Norðmaðurinn Lars
feergendahl fyrstur, Pinninn Karp
inen annar og þriðji Oscar Gjös-
lien (Norðm.).
I skíðastökki sigraði Þjóðverj-
inn Bradl, en Birger Ruud varð
að láta sjer nægja önnur verðl.
Þriðji varð Arnholdt Kongsgárd
(Norðmaður). Norðmenn voru svo
óhepnir, að einn besti stökkmað-
ur þeirra, Reidar Andersen, gat
ekki tekið þátt í heimsmeistara-
kepninni í Zakopane, en hann er
af mörgum álitinn besti skíða-
stökksmaður Norðmanna.
Því miður hefir ekki enn borist
hingað frjettir af tíma keppenda
í 50 km. göngunni, nje heldur ná-
kvæm úrslit í skíðastökkinu, nema
að Bradl stökk 80 metra í lengra
stökkinu. Vivax.
Frá Englandi komu í gær tog-
ararnir Egill Skallagrímsson og
Gyllir.
M.S. Dronning
Alexandrine
fer mánuclaginn 27. li. m. kl.
6 síðd. til Kaupmannahafn-
ar (um Vestmannaeyjar og
Thorshavn).
Farþegar sæki farseðla
fyrir kl. 3 á morgun.
Tilkynningar um vörur
komi sem fyrst.
Skipaafgr. Jes Zimsen
Tryggvagötu. — Sími 3025.
EF LOFTUR GETUR ÞAP
EKKI-----ÞÁ HVER?