Morgunblaðið - 15.05.1936, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.05.1936, Blaðsíða 7
Föstudaginn 15. maí 1936. 7 MORGbNBLAÐIÐ Gunolaugur Þorsleinsson, hreppstjóri, Kiðabergi. Dáinn 3. maá 1936. Fæddur 15. maí 1851. í dag verður til moldar borinn áð Stóruborg í Grímsnesi einn af mætustu bændum hjer sunnan- lands, Gunnlaugur Þorsteinsson á Kiðabergi, um fjölda ára hrepp- stjóri Grímsnesinga, sýslunefndar- maður o. fl. Hittist svo á, að hann verður jarðsunginn á 85. fæðingar- degi sínum, því hann var fæddur 15. maí 1851. Á 80 ára afmæli Gunnlaugs sál. var hjer í blaðinu ítarlega rakinn íEefiferill hans og nægir að ví»a til þess, sem þar var um hann skráð, bæði um ætt hans og æfistarf. — Eins og hann var af besta bergi brotinn í báðar ættir, eins varð Dagbók. I.O.O.F. 1 = 118515872 = xx. Veðrið í gær: Yfir SV-landi er lægð, sem hreyfist lítið. Onnur stærri lægð er suður í hafi á hreyf- ingu NA- eða N-eftir og mun herða á NA- og A-átt hjer á landi á morgun. Vindur er nú NA á Vest- fjörðum, S-lægur austanlands en breytilegur suðaustanlands. Veður er víðast þurt á V-landi, annars- staðar nokkur rigning. Hiti víðast 6—9 st., mestur 12 st. í Rvík og á Hæli á Hreppum. Veðurútlit í Rvík í dag: NA- kaldi. Dálítil rigning. BÚSTADASKIFTI. Kaupendur Morgunblaðsins sem hafa bústaða- skifti eru beðnir að tilkynna það afgreiðslu blaðsins sem fyrst. Hjónaband á Akureyri. í gær voru gefin saman í hjónaband á Akureyri, ungfrú Gerður Halldórs- dóttir og Haukur P. Ólafsson. Vermaðurinn, sem stal 50 krón- unum af fjelaga sínum bjó á Hótel Skjaldbreið en ekki Heklu, æfistarf hans alt hið merkilegasta. Að vísu hafði hann hin síðari árin eins og misprentaðist í blaðinu í losað sig við alt búskaparamstrið, gærmorgun. og eins af hendi látið öll opinber ■störf í þágu sveitar og sýslufje- lags. Alt að einu mun hans áreið- anlega saknað í hjeraðinu, þar sem hann vann æfistarf sitt með avo mikilli prýði, elskaður og virt- ur af öllum, sem honum kyntust og eitthvað áttu við hann saman að sælda, og hans lengi minst verða þar sem fyrirmyndarmanns innan stjettar sinnar, sem hollráðs sveitarforingja, sem allir báru traust til og aldrei brást trausti annara, og umfram alt sem mann- kostamanns í hverri grein, er gerði hann hugþekkari hverjum þeim, er slíkt kann að meta. Kiðaberg hefir sett ofan við fráfall hins mæta manns, er um sf, langan ald ur gerði þar garðinn frægan, og þyngsti harmur er við fráfall hans kveðinn að eiginkonu hans, frú Soffíu Skúladóttnr, á gullbrúð- kaupsári þeirra (þau giftust 17. júlí 1886), og sonum þeirra, dótt- ur og barnabömum, sem hjer eiga ástríkum eiginmanni, föður og afa á bak að sjá. J. Ferðafjelag íslands fer gönguför á Bláfjöll og Vífilfell, næstkom- andi sunnudag. Ekið í bílum að Kaldárseli, gengið þaðan í BláfjöU og á Vífilfell og svo niður í Jó- sepsdal og niður undir Sandskeið, en þaðan verður ekið heimleiðis. Farmiðar seldir til kl. 7 á laugar- dagskvöld hjá bókaverslun Sigfús- ar Eymundssonar. Sundflokkur K. R. Farið verður að Álafossi á sunnudag, nánari upplýsingar í síma 2130, kl. 7—8 í kvöld. Bálfararfjelagið heldur aðalfund sinn í kvöld kl. 9 síðd. í Kaup- þingssalnum. Þar talar dr. Gunn- laugur Claessen um væntanlega Bálstofu á Sunnuhvolstúni og sýnir uppdrætti af byggingunni. Fjelagsmenn mega taka með sjer gesti, og nýir fjelagar verða inn- ritaðir. Aðgöngumiðar að heiðurssam- sæti því, sem Lydersen skipstjóra verður haldið laugardaginn 16. maí, kl. 7y2 e. h. í Oddfellowhöll- inni, verða afhentir í dag á skrif- stofu Morgunblaðsins. Jón Straumfjörð, sem verið hef- ir dyravörður Pósthússins nú um ITmboð fyrir bðtamótorinn WICHMANN. Jeg undirritaður hefi fengið umboð fyrir bátamótorinn, WICHMANN, er allir kannast við, eftir margra ára reynslu hjer við land. Vjel þessi er eftirsótt vegna eftirfarandi kosta: 1. Búin til úr ágætu efni 2. Gangviss og spameytin. 3. Kraftmesta vjel sem til landsins hefir komið ennþá. 4. Samkeppnisfær í verði. 5. Varahlutir fáanlegir með litlum fyrirvara, gegnum umboðsmenn vjelarinnar á staðnum. Allar upplýsingar, svo sem verð og olíueyðslu? hefi jeg undirritaður. — Vjelastærðin er frá 4—400 hestöfl. Vestmannaeyjum, 13. maí 1936. Virðingarfylst. Gísli Wium. Símar: 46 og 104. 21 árs skeið hefir látið af því starfi og er fluttur þaðan á Ránar- götu 22. Síra Árni Sigurðsson fríkirkju- prestur er fluttur á Hringbraut 214. Sími þar er 4553. Eimskip. Gullfoss er á leið til Vestmannaeyja frá Tjeith. Goða- foss /er í Hamborg. Brúarfoss kom til Leith í gærmorgun, fór þaðan aftur kl. 1 í gær. Dettifoss kom til ísafjarðar í gærkvöldi. Lagarfoss er í Kaupmannahöfn. Selfoss er á leið til Austfjarða frá Vestmanna- eyjum. Gengi „dagskrónunnar“. í grein iná, sem birtist hjer í fyrradag, höfðu slæðst þessar villur: Þegar örlaga- (vantaði: ríkar) ráðstaf- anir; og hjer á landi, í -eðferð í meðferð. Aðrar vHlur eins og: penningar, paj)pís- og útlokað fyrir; ' peningar, pappírspeningar og útilokað, þurfa ekki skýringar við. Jeg nota tækifærið til að þakka blaðinu fyrir birtingu grein arinnár og vona að lesendum þess sje nú ljóst að jeg hefi sannað, að ritdómurinn og ályktanir mínaf voru bygðar á staðreyndum. J. Á. Bústaðaskifti. Menn ættu að at- huga að það er nauðsynlegt að tilkynna Rafmagnsveitunni bú- staðaskifti vegna mælaaflesturs. Tilkynning frá vetrarhjálpinni í Reykjavík. Nú um flutninga- og hreingerningardagana, er fólk beð- ið að muna eftir að Vetrarhjálpin tekur til starfa á næstkomandi vetri, og heitir á alla sem styrkja vilja starf hennar og hafa notuð föt og húsgögn, sem það viU losna við, að tilkynna það í síma 1094. Gjöfum veitt móttaka í Franska spítalanum (uppi) alla þessa viku frá 10—12 f. h. og frá 4—7 e. h. Sími 1094. Reykvíkingar munið eftir fátæklingunum, ef þjer eigið gömul föt og húsgögn, sem þjer föt og muni sem þjer notið ekki sjálfir. Síldarútgerðarmenn halda fund í dag kl. 2 að Hótel Borg útaf gerræði ríkisstjórnarinnar í síldar- útvegsmálunum. Flutningar voru með meira móti hjer í bænum í gær. Frá því eld- snemma í gærmorgun og þar til fram á kvöld mátti sjá vörubíla hlaðna innanstokksmunum aka um göturnar. Veður var hið ákjósan- legasta, glaða sólskin mest allan daginn og kyrt veður. Mislingarnir eru komnir til Húsa víkur. Bárust þeir þangað frá Vestmannaeyjum með mönnum, sem voru þar yfir vertíðina og sem eru nýkomnir heim. Egill. B.v. Otur fór í fyrradag á veið- ar og kom aftur í gærmorgun með 700 körfur af fiski. Fiskurinn var settur í frystihús og nokkuð af honum selt á bæjarmarkaðmn. x Reykjaborg tók í gær fisk þann sem hún hefir veitt í vetur og mun sigla með hann og selja á erlendum markaði. Halldór Stefánsson læknir er fluttur á Skólavörðustíg 12. SpegiUinn kemur út á morgun. Austurríki. FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. í ræðu þessari sagði hann, að HeimwehrliðiS myndi ekki verða leyst upp eða brætí saman við ríkisher- inn „nema að sjer dauS- „_<i um . „Óskin, sem látin hefði verið í ljósi um það, að smátt og smátt yrði horfið aftur að lýð- ræðisskipulagi væri svik við hið unga fascistiska ríki og hólm- skorun, sem hann tæki“. „Vjer getum ekki gengið til neinna samninga við hið spilta lýðræðisskipulag, sem er ekkert annað en undirbúningur undir bolsé- vismann“. „Mörg hundruð Heimwehr- manna er ljetu líf sitt í upp- reisninni 1934, börðust ekki til þess, að aftur yrði snúið „til hins spilta lýðræðisstjórnskipu- lags“. Vilja halda í völdin. Meðal stjórnmálamanna var litið svo á, eftir þessa ræðu Stahrembergs, að Heimwehr- menn myndu berjast til hins ítr- asta til þess að geta áfram farið með forystuna í stjórnmálum austurrísku þjóðarinnar. í ræðu sem dr. Schussnigg helt um líkt leyti mótmælti hann því, að ósamkomulag væri milli hans og Stahrembergs fursta. En hann viðurkendi þó að „ský væru yfir Austurríki". Síðasti fyrirlealur sænska sendikennarans í kvöld. Sænski sendikennarinn, fil. lic. Áke Ohlmarks flytur í kvöld síð- asta fyrirlestur sinn á þessn skóla- ári og jafnframt síðasta fyrirlest- ur sinn á íslandi að þessu sinni. Eftir að sænska stjótfilík t) hafði fengið skýrslu lijeðan.piptstarf dr. Ohlmarks við háskólann í votur, var honum boðið að hafa sendi- kennarastarfið á hendi næsta vet- ur, en vegna aðkallandi starfa við háskólann í Lundi mun-hanii senni lega verða að dválja þar næstu árin. ' Fyrirlestrar dr. Ohlmarks hafa oftast verið mjög vel aóttir, og er þess því að vænta, að þessi síðásti fyrirlestur hans um heiðni á ÍS- landi muni verða fjölsóttur, þó að nú sje komið fram á vor og kvöld- in björt. Dr. Ohlmarks mún í þessu erindi tala um noriæna goða- trú, einkum goðasagnir. Hánn flytur þennan fyrirlestur á í»- lensku, en hingað til hefir hann jafnan flutt fyrirlestra sína ■ á sænsku. Fyrirlesturinn verður i I, kenslustofu háskólans og hefst kl. 8. Chevrolet 7 manna, í góðu standi til sölu. Upplýsingar í síma 4950 eða 4951. Magnús Pjetursson hjeraðslæknir erfluttur af Bárugötn 4 í Tjamar- götu 16. Hjálpræðisherinn. í kvöld kl. 8y2 helgunarsamkoma. Allir velkomnir. Adjntant Molin o. fl. Laukur OÖ Kartöflur. Verslunln Vlslr. Nohkur skrifstofuherbergi einstök eða samliggjandi, eru til leigu nú þegar fi húsi ekkar nr. 5 við Hafnarstræti. Mjólkurfjelag Reykjavíkur. Viðnrkendur prjedikari, T. B.1 __ _ — Barrett frá Osló, heldur kristilegar y 11 H W% fll Z samkomur í K.-R.-húsinu, kl. 8*4, öll næstu kvöld fram að sunnu- degi. Söngur og hljóðfærasláttur. Allir velkomnir! K. F. U. K., Hafnarfirði. Síðasti fundur í kvöld kl. 8,30. Ingvar Árnason talar. Alt kvenfólk vel- komið. Kandís — Flórsykur, Apricots þurk. — Súkkat. Sætar Möndlur. Eggert Knstjánssan S Eo. Semjið við okkur um öll ykkar ferðalög. Áætlunarferðir í sam- bandi við stöð vora, nm landið þvert og endilangt. Bifreiðastöð íslanús Shni 1540 (þrjár línnr). f einkaferðir um bæinn bg # ttm sveitir landsins, höfum við ávalt til taks þægilega vagna fyr- ir sanngjamt verð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.