Morgunblaðið - 15.05.1936, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.05.1936, Blaðsíða 6
6 á MORGUNBLAÐIÐ Föstudaginn 15. maí 1936. • Mótmælin gegn þingræðisbroti ríkisstj órn arinnar. a traaaq Grein ólafs Thors FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. Nf bók: Innijurtir eftir Óskar B. Vilhjálmsson, garðyrkjufræðing. Þetta er bókin, sem íslenskar húsmæður hefir lengi vantað; leiðbeiningar um hirðingu og meðferð gluggablóma og innijurta. í bókinni eru 80 fallegar myndir, eftir ljósmyndum frá konunglega Landbún- aðarháskólanum í Kaupmannahöfn. Fæst í öllum bókaverslunum. í fjarveru minnl gegnir hr. læknir Jón Nikulásson læknisstörfum mínum. Óskar Þérðarson, læknir. Skrifstofur Brunabótafjel. íslands eru flutfar I Alþýðuhúsið. í. s. I. S. R. R. Sundmeistaramótið 1936 verður haidið að Álafossi dagana 28. júní, 2. og 5. júlí. Kcppt vecður í þessum sundum 4x50 m. boðsund, karlar. 100 — frjáls aðferð — króna útgjöM árlega, sem og hitt, að stjórn S. 1. F. nýtur trausts, en það gerir Fiskimála- nefndin ekki. Þes»i krafa var á Alþingi rökstudd með fundar- samþykt, þar sem mættir voru umboðsmenn 4/5 hluta alls fisk magns í landinu, og hafði hún á þessum fundi verið samþykt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, eða um 83%. En á Alþingi var henni vísað á bug með kaldri fyrirlitningu alls stjómarliðsins, undantekningar- laust. Þessi fáu dæmi sýna þann anda, sem ríkir á Alþingi, og er það að vonum að stjórnar- andstæðingarnir oft og einatt hafi á tilfinningunni að hjer ríki fremur einræði en þing- Bíéði. Það verður samt sem áður að viðurkenna, að þetta atferli brýtur ekki í bága við beinan bó^cstaf laganna, og þessvegna hafa' stjórnarandstæðingar sætt sig við sitt hlutskifti og tekið fullafl þátt í meðferð mála í nef«duna» &em og umræðum í þingsölunum, en ekki hafa þess- ir nýju starfshættir aukið virð- inguna fyrir þángræðinu. Alt öðru máli er svo að gegna ilín síðustu og verstu hneyksli, sem ríkisstjórnin hefir orðið ber að, fyrst símanjósn- irnar, og nú stjórnarskrár og þingræðisbrotið. Er hið fyrra svo þrautrætt, að engu þarf við að bæta, en úm hið síðara vil jeg*áégja þetta: Það hefir upplýst, að ríkis- stjórnin Eeíir^á miðju Alþingi tekið þá ákvörðun að víkja þingkjörnum fulltrúum frá starfi, með bráðabirgðalögum, sem út skyldu gefin strax að af- loknu þingi. Jeg hefi leyft mjer að halda fram, að eigi þetta ekki að skoðást sem einræðis- yfirlýsing ríkisstjórnarinnar, verður ekki komið auga á nein, sennileg rök íyrir slíkri lítils- virðingu á þingræðinu, önnur en þau, að við konnun þingliðs síns hafi stjórnin fengið vitn- eskju um, að þingviljinn væri andvígur slíkri Iagasetningu, en af því leiðir að stjórnin hefir valið bráðabirgðaleiðina, bein- línis af þeim ástæðum að henni var kunnugt um að þingið var andvígt málinu. Þessi staðhæf- ing mín styðst ennfremur við þá óvjefengjanlegu stað- reynd, að á haustþinginu 1934 var feld sú tilhögun á stjóminni, sem nú er lögfest með bráðabirgðalögunum, en í stað hennar sett sú skipun stjómarinnar, sem nú er úr gildi feld með bráðabirgðalög- unum, eða m. ö. o. að Alþingi, eins og það nú er skipað, er þegar húið að tjá sig andvígt ákvæðum bráðabirgðalaganna. Jeg stend því fast á því, er jeg áður.h^fi sagt, og staðhæfi óhikað að, að svo miklu leyti sem ríkisstjórninni er ljóst hvað hún aðhefstrboðar setning þess- ara bráðabirgðalaga afnám þingræðis og hreinræktað ein- ræði, og endurtek jeg hjermeð áskorun mína til Haraldg Guð- mundssonar ráðherra, að hann færi fram varnir í málinu, ef hann treystist til. Sjálfstæðisflokkurinn neitar allri meðábyrgð þessa gerræðis, jafn óbeinni sem beinni. Sem lýðræðisflokki er honum ein- göngu ein leið opin, sú, að berj- ast gegn þingræðisbrotinu með öllum löglegum vopnum, og það mun flokkurinn gera. Þess- vegna hefir miðstjóm flokks- ins, með ofangreindri tilkynn- ingu, mótmælt gerræðinu, og skorað á alla flokksmenn að neita þátttöku í þeirri stjórn síldarbræðslanna, sem stofnsett er með stjórnarskrár og þing- ræðisbroti, og því er í raun og sannleika ólögleg. ólafur Thors. Vestm annaeying ar mótmæla. FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. Síldarútgerðarmenn og sjómenn í Vestmannaeyjum heldu fjöl- mennan fund í fyrrakvöld. Fundurinn samþykti einróma á- lyktun, sem mótmæltí harðtega gerræði ríkisstjómarinnar. f ályktnninni segir m. a.: „Vjer undirritaðir útgerðarmenn og sjómenn í Vestm apn aey j um, sem ætlnm oss að reka síldveiðar eða hafa af þeim atvinnu á kom- andi síldarvertíð, mótmælum harð- lega þeirri ráðstöfun ríkisstjómar- innar, er hún með bráðabirgðalög- um setur stjórn síldarverksmiðj- anna frá og skipar aðra menn í þeirra stað, sem aldrei bafa komið nálægt slíkum verksmiðjurekstri. — Álítum vjer, að fyrirtækinn sje bráður háski búinn í höndum þeirra manna, sem nn bafa verið skipaðir í stjóm þess. —- Það er eindregin krafa vor, að Jón Þórðarson, Siglufirði, og Sveinn Benediktsson, Reykjavík, sem nm langan tíma hafa átt sæti í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins og getið sjer þar góðan orðstír, sjeu þar áfram, enda er það ang- ljóst, hve skaðlegt það getnr orð- ið ríkisverksmiðjunum og þeim, er selja þeim síld, að láta menn í stjórn verksmiðjanna, er alls enga þekkingu hafa á þeim málum“. Ennfremur mótmælti fundurinn því, ef farið yrði að greiða hluta af áætlunarverði út á síldina og krafðist þess, með tilliti til hinnar mikln verðhækkunar á verksmiðju afurðnm, að útborgunarverð sjld- arinnar verði kr. 6.50—7.00 fyrir málið. Loks samþykti fundurinn að kjósa þriggja mannæ nefnd til þess að vinna að því í samvinnu við aðra sjómenn og útgerðax- menn, að hrinda gerræði ríkis- stjórnarinnar. Síldarútvegsmenn úr Reykjavík, Hafnarfirði, snnnan með sjó og af Akranesi, halda mótmælafund hjer í bænum í dag. V arðarf undurinn. FRAMH. AF ÞRUÐJU SÍÐU. útgáfu bráðabirgðalaga nm stjóm Síldarverksmiðju ríkisins, svo að segja x þinglok, skorar fund- urinn á Miðstjóm Sjálfstæðis- flokksins að gera nú þegar kröfn nm það að þing verði tafarlanst kvatt saanan til þess að taka á- kvörðun nm málshöfðun fyrir landsdqmi gegn þeim ráðherra, sem þetta embættisbrot hefir framið". Ank þess voru þessar tillögur bomar fram á fundinnm: „Fundurinn telnr að ríkisstjórn- in hafi brotið þingræðið og sjálfa stjórnarskrána með setningu bráða- birgðalaganna um Síldarverksmiðj ur ríkisins, og lýsir fnndurinn megnrí andstygð sinni á þessn ger- ræði ríkisstjórnarinnar“. „Fundurinn þakkar Miðstjóm Sjálfstæðisflokksins fyrir þá af- stciðu, sem bún hefir tekið til bráða birgðalaganna um stjórn síldar- verksmiðja ríkisins. Skorar fundurinn á Miðstjóm- ina að halda fast á máli þessn og láta hvergi undan síga“. Allar voru tillögnr þessar sam- þyktar í einu hljóði. V erslunarskólinn. t ------ ■ ... FRAJffiH. AF FJÓRÐU SÍÐU. ast á, að gámlir nem. heimsæki skólann við skólauppsögn, er þeir komá saman til þess að minnast námsáranna eftir 15, 20 eða 25 ár. Heimsókn gamallra nemenda. Svo var einnig nn á dögunum, að fríður hópur 15 ára nemenda var við skólauppsögn og færði skólanum stórt og fagurt málverk Og höfðu þeir Kristján Guðmunds- son og Sveinn Valfells orð fyrir flokknum með vinsamlegum ræð- um, en skólastjóri þakkaði þeim, og nein. fögnnðu þeim méð Versl- nnarskólahúrra. Þá má geta þess, að kanpsýslumaður eian hjer í bænúm gaf skólanum 3000 kr. í peníngúm og þakkaði skólastjóri einnig þá gjöf. Fjelagslíf. Loks er að geta þess, að þrátt fyrir allerfitt og tímafrekt nám, sém auðvitað á að ganga fyrir öðru, hefir í Verslumirskólanuo verið gott og fjörugt fjelagslíf, farnar margar göngnferðir, skíða- og skautaferðir, stundaður söngur og leikfimi nokkuð, haldið nem- endamót og loks annaðist skólinn eina kvöldvökn í ntvarpinu og varð hún vinsæl. — 85 nem. hafa gengið undir inntöknpróf skólans síðustu daga. Hár. t Hefi altaf fyrirliggjandi hár við íslenskan búning. Verð við allra hæfi. Versl. Goðafosa. Laugaveg 5. Sími 3436. 200 — bringusund — 100 —- frjáls aðferð konur. 400 — frjáls aðferð karlar. Blóm & Hafnarstræti 5. ódýr blóm seld í 100 m. baksund karlar. 200 — bringusund konnr. 1500 — frjáls aðferð karlar. 400 — bringusund —■ 50 — frjáls aðferð konur. Avextir Sími 2717. dag og á morgun. Skriflegar umsóknir um þátttöku sjeu komnar í pósthólf nr. 546 Reykjavík, merktar: „S. R. R.“, fyrir 21. júní. Sundráð Reykjavftkm*. Til leigu. Til leigu nú þegar, húsnæði það á Laugaveg 49 sem Hraðpressa Austurbæjar hafði áður. 5ig. Þ. 5kjalöberg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.