Morgunblaðið - 15.05.1936, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.05.1936, Blaðsíða 2
2 f MORGUNBLAÐIÐ Föstudaginn 15. maí 1936. * a ðtv«t.: H.Í. Árvakur, Keykjartk Rltatlðrar: Jón Kjartanaaon, Valtýr Stef&naaon. Rltatjórn og afgrelóala: Auaturatreetl *. — Slaai H## Aaclýalnsaatjórl: BJ. Hafber*. Augl?alngaakrtfatofa: Auaturatreetl 17 — Slatl 1700 k iturstr 'tífeir: i.KJat .„^jartanaaon, nr. 1741 Stefánaaon, nr. 4210 rðla. nr. 2045. Hafbers, nr. 1770 kr. 1.00 & m&nutlt Aakrtftkgjald: * lauaaaðltt: 10 aura alntaklS. 20 aura meb LaabÓk. t ----------------- Ríkisstjórnin er í öngum sín- um. Henni skilst að bogi henn- ar er of hátt spentur, og kjark- urinn héfir réýhst minni en sið- leysis, 1 tvo sólarhringa skorti stjórniha þrek til þess að birta hin illræmdu bráðabirgðalög, Og í gær steinþegir Alþýðublað- ið enn um hneykslið. 1 Tíma- dilknum heyrist ekki svo mikið sem jarmur, því luxusflakkar- inn er svefnlaus af ótta, eins og íí þingrofinu forðum. Haraldur Guðmundsson situr hljóður undir rökstuddri og þungri á- deilu, og þorir ekki að freista þess að bera hönd fyrir höfuð sjer. Æðstiprestur ódygðanna, Finnur leikari, er sendur úr bænum,. og fallinn í fjarlægð- inni, en sá eini, sem hlakkar í, er nánasti samverkamaður hans, Fritz Kjartansson. Hann vaggar sjer makindalega í hæg indastólnum, nýr saman lóf- unum, lygpir augunum, og sjer V anda alt sem hann og Finnur nú geta gert. Hann telur milj- ónimar, sem nú eiga að ganga gegnum. greipar þeirra — þess- ara strangheiðarlegu manna — og nýtur saklausrar gleði, góðr- ar samvisku, sem veit að engin króna, enginn eyrir, verður eft- iy milíi lófanna, sem hann er að nudda saman, fremur en í vasa Finns. En utan dyra standa sjó- mennirnir og útvegsmennirnir, sem eiga alla þessa peninga, valda og áhrifalausir og ygla brúnina. Bráðum fara þeir að hvessa röddina, eða ef til vill að kreppa hnefann. 1 það hefir ríkisstjórnina rent grun. Og eitthvað er hún óviss um að brúnin Ijettist, röddin mýkist og hnefinn rjettist, þótt fólkinu sje sýnd ásjóna æðstaprestsins. Þessvegna seilist hún í heim- ildarleysi til Sigurðar konsúls Kristjánssonar og Hafsteins Bergþórssonar útvegsmanns, og biður þá að vernda sig, og frá þeim hefur hún, hundsuð og hryggbrotin, Canossagöngu fyr- ir dyr hvers Sjálfstæðismanns- ins af öðrum, en fær alls staðar söritu sVörin. Með Finni vill enginn vera. Fyrif'stjórnina vill enginn neitt gera. Hún verður að bjarga sjer sjálf. Vilji hún halda dugg- unni á floti, er vænst að kasta Finni fyrir borð, eins og Jónasi fyr og síðar. „SKY YFIR AUSTI7RRÍKI“. Stahremberg varpað fyrir borð. dr. Schussnigg verð- ur einræðisherra. KAUPMANNAHÖFN 1 GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. EILU andfasista og Heimwehrmanna í Aust- urríki Kefir lyktað — í bili — með sigri andfas- ista. Stahremberg fursti og vísikanslari, um langt skeið valdamesti maður í Austurríki, foringi Heim wehrliðsins, hefir orðið að víkja úr austurrísku stjórninni. Schussnigg einræðisherra. Dr. Schussnigg kanslari, verður í raun og veru einræðisherra í stað Stahrembergs. Schussnigg baðst lausnar fyrir alt ráðuneyti sitt í nótt, en var samstundis falið að mynda nýja stjórn. I hinni nýju stjórn var gengið fram hjá Stahremberg. Dr. Schussnigg er sjálfur kanslari, utanríkismálaráðherra og landvarnaráðherra í hinni nýju stjórn, þ. e. einræðisherra. Sigur and-fasista. Samt sem áður er þessi stjórnarbreyting talin fjnrsti sigur andfasista í Austurríki, síðan að einraeðisskipulagi var komið á eftir vinstri-byltinguna í Wien og Linz, vetur- inn 1934. 9 1 hinni nýju stjórn eru nokkrir Heimwehrmenn, en Stahr- emberg er foringi Heimwehrliðsins. Á undan var gengin hörð rimma milli Stahrembergs og dr. Schussniggs. Á knje fyrir Mussolini. Að til úrslita dró nú, veld- ur skeyti, sem Stahremberg sendi Mussolini eftir sigur ítala í Abyssiníu. Skeyti þetta olli mikilli reiði, einkum meðal þeirra ráðherra í ráðuneyti Schussniggs, sem taldir eru fylgja lýðræðis þjóð- skipulagi. Skeytið var á þá leið, að Stahremberg óskaði Musso lini til hamingju með það, „að Italir hefðu sigrað ó- menninguna, og að andi fasismans hefði borið hærra hlut yfir óheiðarleik lýðræðisskipulagsins". Vaxandi sundrung. En fleira bar til þess, að dr. Schussnigg varpaði Stahrem- berg fursta fyrir .borð. Hefir sundrungin milli þess- ara tveggja forvígismanna í Austurríki ekki farið leynt síð- an í apríllok, er Stahremberg hjelt þing með liðsmönnum sín- um í Horn, og hjelt þá ræðu, þar sem hann bauð dr. Schuss- nigg og öllum óvinum sínum og Heimwehrliðsins byrginn. framh. á sjöundu síðu. Hitler er byrjað- ur að viggirða Rfnarsvæðin. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. „Daily Telegraph“ í London skýrir frá því, að Poul Boncour hafi farið á fund Anthony Ed- ens og tilkynt honum að Þjóð- verjar sjeu byrjaðir að víg- girða vesturlandmæri sín við Rín. Steinlímsframleiðsla Þjóð- verja hefir aukist um 80% síð- an í mars, en þá rjeðust Þjóð- verjar með her inn á Rínar- svæðin. Frakkar gera ráð fyrir að Þjóðverjar verði búnir að ljúka við neðanjarðarvíggirðingar sínar við Rín, svipaðar Maginot víggirðingunum frönsku, við Iandamæri Þýskalands, innan eins árs. Maginot víggirðingamar eru öflugustu víggirðingar, sem nokkru sinni hafa verið gerð- ar. En ef til vill munu þýsku víggirðingarnar við Rín taka þeim fram, þegar þær eru full- gerðar. Páll. Einræðisherra I Austurriki. Dr. Schussnigg. Myndin er tekin á flugvellinum í Wien. Kanslarinn er að kanna hið nýja fluglið Austurríkismanna í fyrsta sinn. Hryðjuverk á báða bóga. ÍTALIR: Pólskur læknir, sem starfaði við hjúkrunarsveit í Abyss- iníu, segir frá því, að ítalski herinn hafi tekið sig fastan og beitt sig hræðilegustu pyntingum, og jafnvel hótað sjer lífláti, ef hann skrifaði ekki undir falsaða yfirlýsingu um það, að Italir hefðu ekki gert loftárás á Rauða Kross sjúkrahúsið í Dessie. Læknirinn er nýkominn heim til Póllands, frá Abyssiníu. ABYSSINÍUMENN: Belgískur herforingi, sem nýlega er kominn til Belgíu, eftir að hafa starfað í Ahyssiníu, segir frá því, að Ríts Desta hafi í mikilli veislu síðastliðinn vetur, látið limlesta og síðan hálshöggva, 10 hermenn frá Eritreu. Þá segir belgíski herforinginn frá því, að Desta hafi borgað tíu Thereseu-silfurdali fyrir hvem óvin, sem hon- um var færður og gerður hafi verið ófrjór. 4rabar fá fje frá Mussolini! KAUPMANNAHÖFN I GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐ)SINS. MUSSOLINI stendur að baki óeirðum Araba í Palestínu og Sýrlandi! Frá þessu skýrir Lun- dúnablaðið ,,Star“, og bætir því við, að óeirð- irnar eigi rót sína að rekja til stórveldis- drauma Itala við Mið- jarðarhaf. Álitshnekkir sá, sem Bret- ar hafa beðið vegna ósig- urs Abyssiníumanna — og Þjóðabandalagsins — í Afríku (segir United Press), hefir einnig orðið til þess að sjálfsteeðisbar- átta Araba í Palestínu hefir harðnað. Undirróður stúdenta. ,,Star“ skýrir frá því, að 1- talir vinni að því, með f járfram- lögum til Araba, að stofna til uppreisnar gegn yfirráðum Frakka og Breta í Austurlönd- um. Austurlenskir stúdentar fá ódýrt uppihald við nám í ítal- íu, segir blaðið, en að námi loknu eru þeir sendir til heim- kynna sinna til að reka þar ítalska undirróðursstarfsemi. Páll.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.