Morgunblaðið - 19.08.1921, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
Uil lEÍgu nú þegar
2 saltkjallarar.
Q, Sohnson s Kaaber
riEstlÉs sæt mjólh
t dósum
R Eild sölubirg ðir fyrirlig gj andi.
13. Sohnson & Kaaber.
Jóni Olafssyni heíir verið falið að
athnga málið og tala við leyfisbeið-
'endur.
Gasvcrðið. Gasnefnd hefm nýlepa
farið yfir áætlun um tekjur og ejöld
Gasstöðvarinnar með kolum þeim,
sem húa notir nú. Legeur húa til
eftir þá athugun, að verðið á gasi
verði framvegis: suðugas 70 au. ten-
ingsm., sjálfsalagas 75 au. teningsm.,
til gangvéla 70 au. og til ljósa 1 kr.
teningsm.
‘Baðhúsið í Barnaskólanuni. Skóla-
nefnd hefir ljgt til að bæjarstjórn
tæki tilboði þeirra Ólafs Jónssonar
og Kotnelíusar Sigmundssonar um
byggiogu baðhúss í kjallara Barna-
skólans, og jafnframt að Krabbe
verkfræðingi verði falið að semja við
þá til fu’laustu um verkið.
SJcólahjúkrunarkona. Skólanefnd
hefir ennfrerour samþykt að hjúkr-
unarkona sé ráðin við Bainaskólann
er helgi honum alt starf sitt, og á
að launa henni eins og föstum
kennurum skólans.
Atvinnubaturnar. Nefnd sú er
kosin var nýiega innan bæjarstjórn-
ar til þess að koma með tiliögur
um varnir gegn atvinnuleysinu, hafði
látið verkfræðing mæla hve mikið
svæði mundi hentugast til stjtkk-
stæðisgerðar fyrir snnnan og vestan
vatnsgeymirinn í Rauðarárholti, og
gera kostnaðaráætlun um það. Hef-
ir bæjarverkfræðingurinn nú lagt
fram áætlun sína og eru aðalliðirnir
þessir: Til vegagerðar 24000 kr„
til stakkstæðisgerðar 96,500 kr., til
sporbrauta og vagna 32,000 kr.,
vatnsleiðsla 3,000 kr., írárensli 12,
000 kr. og óviss gjöld 2500 kr.,
samtals 160,000 kr. En sé vatni
-dælt neðan úr sjó kostar það 3000
kr. aukreitis. Nefndin leggur til að
reynt verði að fá 120,000 kr. lán
til þess að gera fiskreitina og veg-
inn.
Smáslld aflaðist töluverð i lagnet
hér á höfninni í gær. Hefir litið
orðið vart við hana undan farið.
En hún er auðsjáanlega að aukast.
Minnisbók banda með almanaki
fyrir 1922 heitir kver sem Einar
'Gunnarsson hefir gefið út og i eru
ýmsar upplýsingar um búskap og
og búhagi, útdrættir úr lögum o. fl.
Bókin um vtqinn eftir kínverska
fornspekinginn Lao-Tse er nýkomin
út hjá G. Gamalielssyni i ísl. þýð-
ingu eftir mag. Jakob Jóh. Smára
og Inga Jóhannesson, bróður hans
og hefir sá síðaii einnig ritað eftir
mála til skýringar.
7vcir stúdentar danskir sem stunda
landfræðis- og jarðfræðisnám í Khöfn
eru hér á ferð um þessar mundir,
á vegum stúdeníaráðsins, og fóru i
morguíi með Skildi og ætla að ferð-
ast um Borgarfjarðar- og Snæfells-
sýsiu og siðan um Noiðurland. Að
minsta kosti tveir þýskir stúdentar
koma hingað í haust til vetrardval-
ar og tveir til þrir íslenskir stúdent-
ar ætla einnig að stunda nám í
Þyskalandi næsta vetur. Af nýjum
stúdentum munu um 3 ætla að
stunda verkfræðinám í Khöfn, en
flestir hinna sem áfram halda, lesa
hér, flestir lögfræði eða læknisfræði.
Olajur Islcijssvn laknir að Þjórs-
ártúni varð fyrir þvi slysi um fyrri
helgi, að hann datt af hesti og
öieiddist svo í höfði að hann var
finttur heim rænulaus. Hefir hann
Jegið siðan, en er nú á góðum bata-
vegi og talið að hann mimi ná sér
til fullnustu mjög bráðlega. Þetta
var á ferð upp i Hreppa Og var
Eiríkur Briem prófessor í förir.ni, á
leið 1 pp ?ð Stóra-Núpi. ÓLfur reið
ólmum hesti, sem vatt sér snögg-
lega til hliðar frá einhverju sem á
veginum varð, en var á hraðri ferð.
Brúin á Jökulsá á Sólheimasandi
er nú nær fullgerð, og á að vígja
hana snemma i næsti mánuði. Geir
Zoega landsverkfræðingur er nýkom-
inn að austan, ásarot frú sinni, og
var hann að líta eftir verkinn og
loksfrágangi á þvf.
Haustmótið. Auk þeirra iþrótta-
greina, sem áður hefir verið auglýst
hér 1 blaðinu, að keppa ætti um á
íþróctamótinu 27. og 28. þ. m. verð-
ur einnig kept i fimtarþrautinni
grisicu, fáist næg þáttaka. — Þetta
eru íþróttamenn beðnir að athuga.
Ungmcnnaskólinn að Núpi i Dýra-
firði hefir sent út skýrslu sina *yr-
ir árið 1920—21, eftir skólastjórann
séra Sigtrygg Guðlaugsson. Nem-
endur voru alls 31 á aldtinum
16—21 árs og bjuggn allir nemend-
urnir og kennarar í skólanum. Dag-
fæði pilta kostaði 2 kr. 53 au., en
stúlkna 1 kr. og 90 au. Kenslugjald
20 kr. Skölinn er styrktur úr sýslu-
sjóði og landssjóði og hefir auk
þess fengið ýmsar gjafir, þ. á. m.
1 þús. kr. frá forstöðumanni sjálfum.
Kirkjusögu Islands á dönsku eftir
biskupinn dr. Jón Helgason er nú
um það bil verið að byrja að prenta
í Kaupmannaböfn fyrir dansk-islenska
félagið með nokkrum styrk frá Dan-
merkurdeild sáttmílasjóðsins.
Skrá um handritasafn Landsbóka-
safnsins annað hefti fyrsta bindis, er
nýkomið út, eftir prófessor,, dr. Pál
Eggert Ólason. Það er vönduð bók
og mjög nzuðsynleg öllum þeim,
sem við islensk fræði fást og nota
þurfa Landsbókasafnið.
Botnia fór frá Færeyjum i fyrri-
nótt kl. 5.
Dönsk blöð hafa undanfarið flutt
mikið af myndum og greinum héð-
an í sambandi við konungskomuna
og yfirleitt látið vel af. Hefir kon-
ungskoman sjálfsagt orðið til þess að
vekja athygli á íslandi annarstaðar á
Norðurlöndum, einkum meðal Dana.
Margt af þvi sem skrifað hefir verið
um ísland í því sambandi er hlý-
legt og rétt frá sagt. Ýmsar mis-
sagnir hafa þó auðvitað slæðst inn
í. T. d. birtir III. Familiel Journal
mýnd sem á að vera af danska
sendiherranum hér og frú hans —
en er af Jóni Hermannssyni lög-
reglustjóra og hans frú.
K*------O- -I »1 ■>-
bögjafnaöarnefndin.
Khöfn, 17. ágúst.
Lögjafnaðarnefndin, sem hefir það
aðalverkefni að samræma dönsk og
íslensk lög, kom saman mánudaginn
15. þ. m. Frá Dana hálfu i nefnd-
inni voru lögð fram ákvæði um
heimsendingu sjómanna og styrk
til fátækra, og sömuleiðis var stung-
ið upp á umræðum um endanlegar
ákvarðanir um strandvarnirnar. Frá
íslendinga hálfu var rætt um skýr-
ingu á 7. grein sambandslaganna.
Næsti nefndarfundur verður haldinn
mánudaginn 22. þ. m.
smiinoar I DmiPly n alulnnideiisHi.
Khöfa, 17. ágist.
Síðustu dagana hefir verið haid-
inn í Khöfn fundur t:I þess að læða
um bætur á hinu mikla atvinnu-
leysi sjómanna. Möguleikar fyrir
lauhalækkun hafa komið tii máls, en
samningum um það atriði hefir ver-
ið frestað, svo fulltrúar hinna ýmsu
félaga geti yfirvegað málið ásamt
fleiru er þaina kemur til greina.
-------0-------
lHisiMa (DðniPiu.
Khöfn, 17. ágúst.
Nefnd ein sem danska iíkið skip-
aði 1917 til þess að athuga og koma
fram með tillögur um hvort rétt
mundi að lögleiða einkaleyfi á tó-
bakssölu þar i landi, hefir nú kom-
ið fram með tillögur sínar, og læt-
ur nefndin eindregið þá skoðun i
ljós, án tillits til skoðnnar hinna
ýmsu meðlima nefndarinnar á einka-
sölu, að á þessum tímum muni ekki
veia hyggilegt, að lögleiða tóbaks-
einkasölu i Danmörku. Nefndin
bendir einkum á það, að rikið, svo
fran arlega, sem það tæki nú í sin-
ar hendur tóbaksframleiðsluna, þá
mundi það verða að borga fyrir
verksmiðjuurvörubirgðiro.fl., eftir nú-
verandi verðiagi, en mikil hætta væri
á, að það mundi lækka, og þvi væri
það of djarft teflt. Ennfcemur lætur
nefndin það i ljós, að mjög mikl-
um erfiðleikum verði bundið að fá
þær 150 miljónir, sem þurfi til þess
að ríkið taki að sér einkasöluna.
Að minsta kosti fengist það fé ekki
nema með þeim afarkostum, að von-
in um gróða af fyrirtækinu væri
sáralitil. Tveir jafnaðarmenn, sem
voru meðlimir nefndarinnar, og sem
eru i raun og veru með rikiseinka-
sölu, álita, að besta tækifærið fyrir
rikið til þess að taka að sér tóbaks-
einkasöluna, sé um garð gengið.
Þeir leggja þvi til, að stjórnin og
rikisþingið taki málið upp að nýju
til umræðu og framkvæmda, þegar
betri timar koma. Ennfremur leggja
þessir tveir meðlimir nefndarinnar
til að tóbakstollunum sé breytt á
næsta rikisþingi til bóla fjrir neyt-
endur og til hjálpar fátækum verka-
mönnum, sem vinna við tóbaks-
iðnað.
Nýlega var getið hér í blaðinu
hinnar miklu hreyfingar, sem mynd-
ast hefir meðal Svertingja viðsvegar
um heim, i þá átt að sameina kyn-
stofn sinn og stofna allsherjar Svert-
ingjariki. Gera þeir tilkall til Afriku
og vilja ná þar fullum réttindum og
slíta algerlega af sér ok hvítra manna.
í nýkomnum skeytum segir, að þeir
sén nú sestir á rökstóla i New York
til þess að ræða mál sin og leggja
ráðin á, og að þeir hafi i hótnnum.
Svertingjar eru voldugur kynstofn
að tölunni til, alls um 400 miljón-
ir manna. Frumheimkynni þei*ra er
Afríka eða miðbik hennar alt milli
Indlandshafs og Atlanzhafs, frá suð-
urmörkum eyðimerkurinnar Sahara
og suður fyrir miðjarðarbaug að
heimkynnum Hottentotta og Búsk-
manna. Þessi landsvæði byggja þeir
enn að mestu leyti, en sá hluti
þeirra sem þar býr er á mjög lígu
menningarstigi og þessum »heima-
öldu« svertingjum mundi ekki til
hugar koma að hefja sjálfstæðisbar-
áttu. Hreifingin kemur úr anaari átt:
frá Svertingjum þeim, sem flnttir
voru vestnr til Ameriku í þrældóm
og eru nú fjölmennir orðnir í þeirri
álfu. Hafa þeir mannast vel á sið-
ustu áratugnm og lært siði og ósiði
menningarþjóðanna.
Sjálfstæðishreifing Svertingjanna í
Ameríku er ekki ný. í allmör^ ár
hefir verið unnið kappsamlega að
þvi, að vekja þá til meðvitundar um<
mannréttindi þeirra og þjóðarrétt-
indi, og nú er hreifingin orðin al-
menn i Norður-Ameriku. Foringi
þessarar hreifingar nú heitir Marcus
Garvey og er fæddur á Jamaica.
Hann er aðeins þrítugur að aldri,
vel mentaður maður i listum og
vísindum, hefir farið víða um lönd
og mörgu kynst; hann er rithöf-
undur og ræðuskörungur og gagn-
kunnugur sögu kynbálks sins. Hug-
sjón hans er sú, að stofna riki allra
Svertingja i Mið-Afriku — Ethiopiu —
sem standi fyllilega jafnfætis stór-
veldunum og safna þangað Svert-
ingjum öllum víðsvegar úr heimi,
meðal annars þeim, sem stolið var
til Ameriku.
í orði kveðnu hafa Svertinjgar
þegar stofnað þetta ríki sitt, bráða-
birgðalýðveldi, líkt og lýðveldi Sinn-
Feina i írlandi, og er Marcus Garv-
ey forseti þess. Hann er ennfrem-
ur forseti »Hins almenna framfara-
félags Svertingja* og »Heimsbanda-
lags Alfríkuþjóðarinnarc, forstjóri
eimskipafélagsins »Svarta stjarnanc
og »Verslunarfélags Svertingja*, rit-
stjóri og útgefandi blaðsins »Negro
Worldc sem er áhrifamesta Svert-
ingjablaðið í heimi, og miljónir
svartra manna tigna hann sem end-
urlausnara sinn. Framfarafélag Svert-
ingja telur nú 4 miljón félagsmenn
og á fundi sem haldinn var i félag-
inu siðastliðið sumar var samþykt
yfirlýsing um réttindi Svertingja og
grundvallarskjal um frelsi þeirra. Var
skjal þetta i 66 liðum og lýst þar
yfir fullu jafnrétti Svertingja við
aðrar þjóðir og tilkall gert til hölds-
réttar þeirra í Afriku, »ættaróðali
allra Svertingja. Evrópa fyrir Ev-
rópumenn, Asía fyrir Asíumenn og
Afrika fyrir Afríkumenn bæði þá sem
heima eru og fjarstaddir*. Þar er
ennfremur krafist, að Svertingjar fái
rétt til að hafa atkvæðisbæra full-
trúa á öllum alþjóðaráðstefnum og
því lýst yfir, að Svertingjar virði
alþjóðasambandið að vettugi svo
framarlega sem það reyni til að
halda fyrir þeim skýlausum rétti
þeirra.
Eimskipafélagið »Svarta stjarnanc
á að hafa 21/* miljón sterlingspunda
höfuðstól og er hver hlutur 24
shillings, og mega eigi aðrir en
Svertingjar vera hluthafar.
Þá hafa Svertingjar kosið sér
»hæstráðandac og verða allir að
hlýða boði hans og banni. Heitir
sá Gabriel Johnson er hlotið hefir
þetta veglega embætti, en varamað-
ur hans heitir Marke. Má sjá á
þessu, að Svertingjar hafa miklar
ráðagerðir frammi og eru stórhuga.
En hætta stafar engin af þessu í
bráð. Til þess er hinn mentaði
hluti þeirra of fámennur ennþá. En
þeir koma áreiðanlega síðar.
—....0——
isMorfiip (DaniPl.
Skýrsla sú um uppskeruhorfurnar,
sem Hagstofan danska sendi út 15.
júli, sýndi Iægú tölur en þær
sem voru i skýrslnnnm *i. júli,
en í nýjustu skýrslu, dags, 1.
ágúst eru tölurnar aftur hærri. Ný-
lega hefir komið regn og hefir það
bætandi áhrif á uppskeruhorfurnar á
Jótlandi, en þar hefir tíðin verið
slæm. Hvað vorsæðið snertir hefir
regnið haft þau áhrif, að kornið
hefir þroskast eðlilega en rigningin
hefir engin áhrif haft á vetrarsæðið
því uppskeran var alstaðar byrjuð og
rúgurinn víða kominn i hús, þegar
rigningin byrjaði, en samt er þetta
kom talið gott. A eyjunum virðist
uppskeran meiri en búist var við,
Rótarávöxtum og grasi fer vel fram
siðan fór að rigna,
— • 0
Hitt og þetta-
Hadjetiaché geðweikup.
Hinn alræmdi rússneski glæpa-
maður, sem dæmdur var í Sviþjóð
í hittifyrra fyrir morð og fleiri
glæpi og var æðsti maður í rúss-
nesku glæpamannafélagi, hefir setið
i fangelsi í Sviþjóð siðan, Siðustu
fregnir segja, að hann sé orðinn
geðveikur og hafi verið fluttur á
hæli fyrir brjálaða menn.
0—1 x .-.-i