Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1987, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1987, Blaðsíða 6
Esjan um miðjan september 1987 - táknræn mynd fyrir þá kólnum, sem hefur átt sér stað í septembermánuði og styttir sumarið verulega. A hlýindaskeiðinu 1931-60 var meðalhiti septembermáðaða 8,6 gráður í Reykjavík, en árin 1977-86 var hann kominn niður í 7,0. Engin smáræðis kólnun. SUMRIN KRINGUM 1960 Þegar ég hugsa til bemsku minnar í Reykjavík á árunum næst fyrir 1960, fmnst mér í minningunni að alltaf hafi verið sól og blíða. Og það var! Sumarið 1957 var sólríkara en nokkurt sumar sem síðan hefur komið í borginni og það sjötta sólarmesta frá upphafi mælinga. Sólskinsstundir voru 164 klst. fleiri en þær voru að jafnaði árin 1931—60, 54 klst. fleiri en sumarið 1985 og 39 klst. fleiri en hið goðsagnakennda sumar 1974. En sumarið 1957 var heilli gráðu hlýrra en sumrin 1974 og 1985. Hit- inn í júní var 9,9°, júlí 12,0°, ágúst 11,3°. September var að vísu fremur svalur, 7,1°, og dró meðalhita alls sumarsins niður svo hann varð ekki meiri en vant var tímabilið 1931—60. Ef allt í einu kæmi sumar í þess- um dúr myndi allt af göflunum ganga af góðærisærslum. Næsta sumar, 1958, var þó heilli gráðu hlýrra, en ekki eins sólríkt þó sólarstundir væru 12 fleiri en þær voru að jafnaði 1931—60. En hvað hitann snertir var þetta stórkostlegt sumar. Það var 6. hlýjasta sum- ar sem komið hefur á öldinni og hefur síðan ekki komið jafn hlýtt sumar í Reykjavík. Meðalhitinn í heild var 11,0°. Júní mældist 10,2°, júlí 12,0° og sól skein þá næstum eins mikið og í júlí 1974. Ágúst var hins vegar í hálfgerðu óstuði og var ekki nema 10,2°. En svo kom september. Og sá var nú aldeilis í stuði og vippaði sér léttilega upp í 11,4°. Það er 0,2° hærra en meðal- hitinn í júlí og eftir 1960 hafa tveir mánuðir orðið hlýrri en þetta. En sólin var auðvitað lítið á ferli. Hún er það bara ekki á Suður- landi í septembermánuði af þessari hita- stærð. Það er gjaldið fyrir síðsumars methitann. Ef við fengjum svona september nú og það ofan í jafn ágætt sumar, er ég hræddur um að sjónvarpsfréttamennimir fengju hreinléga hitaslag og myndu spyija: Er Island að breytast í Mæjorka, Páll? En þegar á allt er litið var sumarið 1960 yndislegasta sumarið í þessum hópi. Þá var sannarlega „öndvegistíð" og „blessuð blíða" dag eftir dag og viku eftir viku. Sumarið byrjaði í reynd í maí sem var hlýrri en nokk- ur maí eftir það. Mældist hann 8,7° en það er meðalhiti júnímánaðar síðasta áratuginn. Hitinn fór í 21° þann 14. Júníhitinn var 10,0°. í júlí mældist 12,2° og þarf varla að taka það fram að hann á sér engan jafn- ingja í nokkrum mánuði síðan í Reykjavík. Til að gefa fólki einhveija hugmynd um hvað svona hitatala merkir í daglegu lífí, má benda á það að meðalhiti 20 fyrstu dagana í ágúst síðastliðnum var 11,6° og er það eitthvert allra besta hlýindatímabil, sem gengið hefur yfír borgina í tvo áratugi. í þessum heita júlí 1960 skein sólin 1 klst. skemur en í þeim annaálaða júlí 1974 (en þá var hitinn 11,2°) en 12 klst. lengur en í júlí 1986, sem allir eru vitlausir yfír og er sólríkasti sumarmánuður hér í 13 ár (en hitinn þá var 10,5°). En í ágúst 1960 var hins vegar gjöfulli á sól en nokkur annar ágúst síðan byijað var að mæla í þessari drungalegu borg. Sólin skellihló á himninum í 277 klst. eða 66 klst. lengur en í ágúst 1985 sem þótti nú aldeilis góður, enda var hitinn þá næstum því í meðallagi eða 10,6°. En meðalhitinn í ágúst 1960 var óvart 11,2°. Aldrei hafa júlí og ágúst saman ver- ið jafn sólríkir og árið 1960. Á eftir kom svo hlýr september, 9,1°, og var þá sólskin í tæpu meðallagi. Meðalhiti alls sumarsins var 10,6° og sólskinsstundir voru 747. Hugsið ykkur alla þessa sól og þennan hita! Reynið að upplifa það í huganum! Þessi þijú sumur, 1957, 1958 og 1960, eru öll í gæðaflokki hvað „sól og hita“ varð- ar sem er algerlega óþekktur síðan. Ef við lifðum þau núna hvert á eftir öðru, myndi fólk sennilega halda að heimsendir væri í nánd eða í það minnsta að gróðurhúsaáhrif- in umtöluðu væru heldur betur farin að kynda upp andrúmsloftið. En þessar tölur segja ekki allt þó þær segi samt mikið. Sú lífsreynsla að njóta svona sumra, segir meira en með orðum verður lýst eða með tölum, hve þau eru óendanlega miklu feg- urri og yndislegri en þær sumarómyndir sem nú eru í tísku. Og það er næsta ótrúlegt að Reykvíkingar skuli ekki muna þetta. Ekki bjúa eintómir unglingar í borginni. Ég er ekkí gamall. Samt geymi ég þessi sumur í minningunni eins og dásamiegt ævintýri frá betri og bjartari heimi. Þá var ísland draumaland með sælsumrin löng. Það var á dögum fyrsta þorskastríðsins, þegar Vil- hjálmur þrístökkvari og Friðrik stórmeistari voru upp á sitt besta og vinsælasta ijölmiðla- efnið voru jarðarfarir í beinni útsendingu. SÓLRÍKUSTU SUMRIN Þessi frábæru sumur kringum 1960 eru samt ekki þau blíðustu sem veðurenglamir hafa blessað yfír höfuðborgina síðan þjóðin varð fijáls og fullvalda, en elstu menn sem nú lifa vom við þau tímamót einmitt að komast á fullorðinsár. Og nú skulum við rifja upp með þeim gömlu eitthvað af þess- ari liðnu sumardýrð. Við byijum á sólinni sem mörgum fínnst upphaf og endir á góðu sumri. Hvert er þá sólríkasta sumar sem mælst hefur í Reykjavík? Ekki var það nú alveg í fyrra. Það var árið 1929. Þá var Veðurstofan á Skólavörðustíg 3, uppi á lofti þar sem Mokka er núna. Þetta sumar elskaði blessuð sólin allt og alla í 894 klst. (við munum að meðal- talið 1931—60 er 631 klst.), hvorki meira né minna en 161 klst. lengur en sumarið 1985. Mismunurinn á íjölda sólskinsstunda sumranna 1929 og 1985 jafngildir einum níu skafheiðskírum hásumardögum. Fannst mönnum þó mikil sól 1985. En sumarið bjarta 1929 var ekki tiltakanlega hlýtt. Það mældist 9,7° (meðaltalið 1931—60: 10,0°) og hefur þó ekkert sumar orðið hlýrra í borginni okkar eftir 1971. Næst sólríkasta sumarið var árið 1928. Þá gladdi sólin borgarbúa í 862 klst. Og júní þetta ár var allra mesti sólskinsmánuð- ur sem nokkru sinni hefur mælst. Sólar- stundir voru 338 eða svo sem 11 klst. og korter á dag til jafnaðar. Og þetta var ekki neinn kuldamánuður eins og sólríkustu mánuðimir í nýja stíl. Hitinn var 9,8°. En í júlí og einnig í ágúst var hann 11,6° og í september 9,1°. Hiti alls sumarsins var 10,6°. Þetta sólfagra sumar var því í heild jafn hlýtt og árið 1960. Þriðja mesta sólskinssumarið var svo náttúrlega 1927 þegar drottning himnanna ljómaði í 854 klst. Hitinn í júní var 9,9°, júlí 11,6°, ágúst 11,0° og september 7,6°. Hiti sumarsins var 10,0°. Þama voru þá í röð þijú sólríkustu sumur sem komið hafa frá upphafi mælinga. Og ekkert sumar í Reykjavík í fímmtán ár hefur orðið hlýrra en það kaldasta þessara þriggja sólskins- sumra. Fimmta sólríkasta sumarið lét svo ekki lengi bíða eftir sér. Það kom árið 1931. Sól í 791 klst. Hitinn í júní 9,0°, júlí 11,6°, ágúst 11,9° og september 10,1°. í heild var sumarið 0,1° hlýrra en sumarið góða 1960. Og fara nú ekki okkar stoltustu sumur að verða hálf hallærisleg? Já. Á þessum ámm hefur verið „hlýtt og bjart um bæinn og sólskinið á gangstéttun- um ljómað". Þjóðin var bjartsýn og hélt fagnandi hátíð á Þingvöllum. Snillingar hennar vom ungir og sköpuðu hvert meist- araverkið öðra glæsilegra. Það em sumur eins og hér hefur verið lýst sem verðskulda tignarheitið „einmuna tíð“, „dæmalaus veð- urblíða" og önnur álíka lofsyrði. En þessi miklu sólarsumur em þó ekki hlýjustu sumr- in í Reykjavík. Hlýjustu Sumrin Sumarið 1939 er hlýjasta sumarið síðan mælingar hófust. Og það var jafnframt afar sólríkt, sólin skein í 740 klst. Og í júlí mældist meifi sól en fyrr eða síðar í þeim mánuði, 308 klst., eða hart nær tíu stundir á dag til jafnaðar. Og þá var hitinn ekki síðri. Hann var 13,0°. I júní var hann 10,8°, ágúst 12,1° en þá var reyndar mjög úrkomu- samt og í september var hitinn 11,8°. Það er hlýjasti september sem hér hefur mælst og í nýja stíl hefur enginn mánuður orðið svona hlýr. Meðalhiti alls sumarsins var 12,0°. Hitinn fóryfir 20° í öllum sumarmán- uðum nema júní og hefur síðan aldrei orðið jafn hár í ágúst (21,4°) og september (20,1°). Þess má geta að þetta sumar mældist mesti hiti sem vitað er um með vissu á íslandi. Það var 30,5° á Teigar- homi 22. júní og sama dag mældist 30,2° á Kirkjubæjarklaustri. Og á Hæl í Hreppum var meðalhitinn í júlí 14,3° og er það hæsti mánaðarmeðalhiti sem mælst hefur nokkm sinni á íslandi. Á undan þessu geggjaða sumri fór mjög hlýr maí (8,9°) og á eftir því afar hlýr október (7,2°). Þá hurfu fann- ir úr fjöllum sem ekki höfðu farið í manna minnum. Esjan varð snjólaus í júlí. En nú hefur snjór ekki horfíð úr fjallinu síðan 1969 og mega veðurenglarnir hafa sig alla við að bræða ef þeir ætla að efna gefin lof- orð um að skaflinn í Gunnlaugsskarði eigi að uppgufast. Og um haustið var komið alheimsstríð. Þegar Hitler réðst inn í Rússland í júní 1941 vom Reykvíkingar að lifa þann hlýj- asta júní sem komið hefur í borginni á þessari öld. Meðalhitinn var 11,5°, en í júlí 12,3°, ágúst og september 11,5°. Sumarið allt var því næsthlýjasta sumarið í Reykjavík frá upphafi mælinga. Meðalhitinn 11,7°. En sólin var fremur spör á blíðu sína. Hún skein allt sumarið í 559 klst. En hitinn var svo yfirburðamikill. Á undan og eftir þessu sumri fóm álíka hlýir maí- og októbermán- uðir og 1939. Á þessum tíma var Veðurstof- an í miðbænum. Hún var í húsi Landsímans við Austurvöll og hitamælaskápurinn var uppi á þaki. Árið 1946 flutti Veðurstofan í Sjómannaskólann, en í janúar 1950 var veðurathugunarstöðin flutt á Reykjavíkur- flugvöll. Haustið 1973 fór Veðurstofan svo á Bústaðaveg með allt sitt hafurtask og fær vonandi að vera þar til næstu ísaldar, sem maður gæti helst haldið að væri ekki ýkja langt undan. En hún var vissulega víðs fjarri fyrsta sumarið sem athugað var á flugvellinum árið 1950. Þá var kalda stríðið í algleym- ingi, íslendingar vígðu Þjóðleikhús og Huseby varpaði kúlu lengra en allir aðrir í Evrópu. Þá var meðalhitinn í júlí 12,4° og í ágúst 12,1° og hefur eftir það aldrei orð- ið jafnhár í þeim mánuðum. Júní var hins vegar í svalara lagi og september kaldur svo sumarið í heild varð ekki óvenjulega hlýtt. En júlí og ágúst komast í heiðursflokk. Árið 1953 var Litla flugan hans Sigfúsar að kitla hvert nef á Islandi og friður var saminn í Kóreu. Og þá var síðasta almenni- lega sumarið yfír allt landið, sagði Trausti veðurfræðingur eitt sinn í blaðaviðtali. Og það var afburða gott í Reykjavík. Meðal- hitinn var 10,7°. Frávik hitans var mjög jafnt í öllum mánuðum. Júní mældist 10,2°, júlí 11,9°, ágúst 11,5° og september 9,7°. Sólskin mátti heita í meðallagi í júlí og ágúst, en var annars af skomum skammti og urðu sólskinsstundir alls ekki nema 565. En þetta þætti ótrúlegt sumar á okkar svölu dögum. Og þá höfum við farið hringinn og komum aftur að síðustu alvöm summnum í Reykjavík kringum 1960. Síðan ekkert, ekkert. Hefur Þ jóðin Gleymt FORTÍÐ SlNNI? Þannig er þá hinn miskunnarlausi vem- leiki. Bestu sumur síðustu áratugi standast góðu sumrunum áður fyrr engan snúning. Þau verða blátt áfram bijóstumkennanleg í þeim samanburði. En í versnandi veður- fari er ef til vill ekki sanngjarnt að vonast eftir summm í gamla stfl. En það hlýtur að mega gera þá hógvæm kröfu, að þau sumur sem okkur finnst alveg „frábær“ slagi þó a.m.k. eitthvað upp í miðlungssumrin fyrrum. En því er varla að heilsa eins og ljóst ætti að vera. Og fullyrðingin sem varp- að var fram í upphafi, að ekki hafi komið almennilegt sumar í Reykjavík síðan 1960 er ekki neitt svartagallsraus heldur kuldaleg staðreynd. Því miður. Við fáum ekki lengur sumur eins og 1960, 1958, 1957, 1953, 1941, 1939, 1931, 1929, 1928 og 1927. Við sitjum uppi með sumur eins og 1983, 1982, 1979, 1975, 1972 og 1970, þegar kuldi eða kuldi og rigning saman ætlaði allt lifandi að drepa og svo innan um rétt skítsæmileg sumur. Hvers eigum við að gjalda? Er að furða þó menning og siðferði þjóðarinnar eigi erfitt uppdráttar. Ekkert nema hafsjór af svindli og gjaldþrota gleði- bankar. En það er best að nöldra ekki meira. Mér margfalt vitrari og lærðari menn verða að greina og útskýra hið flókna sam- spil árferðis, menningar og aldarháttar. En það er engu líkara en þjóðin hafi gleymt fortíð sinni. Og kannski hefur hún einmitt gert það. Hvenær sem ekki er vit- laust veður í nokkrar vikur, ijúka menn upp til handa og fóta og tala um „einstaka veð- urblíðu", „dæmalaust góðæri" og þar fram eftir götunum. Menn virðast ekki gera sér ljóst að hér er oft beinlínis um ranga notk- un að ræða. Hástigsgóðærin í veðrinu hafa sannarlega ekki verið að sækja okkur heim síðustu árin. Árferðislýsingar verður að orða af lágmarksnákvæmni svo þær segi eitthvað í raun og vem. Hvaða lýsingarorð ætlar fólk að nota ef kæmi vetur eins og 1929 eða 1964 og sumur eins og 1960 eða 1939? Þá yrði sennilega að grípa til enskrar tungu. En samantakari þessa ágrips er mest undrandi á lítilþægni fólks í góðviðrisefnum. Að það skuli kalla annað eins tíðarfar góð- æri. Ég er það metnaðarfullur fyrir hönd þjóðar vorrar að ég tel að aðeins það besta sé nógu gott í hana. Þjóðin hefur hræðileg- an smekk á veðri. En smekkur hvers manns vitnar um þroska- og menningarstig hans. Smekkmaður á veður lætur ekki bjóða sér ailt þegar blíða er annars vegar. Hann hrap- ar aldrei niður í þá lágkúm að villast á annars flokks veðurblíðu og fyrsta flokks veðurblíðu. Hann vill klassaveður. Hann fúlsar við billegum sumareftirlíkingum, en þreytist aldrei á að lofa og vegsama það sem er eðal og ekta í sumardýrð skapar- ans. Þegar smekkmaður á veður gerir sér veðurblíðu í hugarlund, miðar hann ekki við platsumur eins og 1985 og 1974 heldur úrvalssumur eins og 1960, 1939 og 1929. Og mér finnst að þegar veðurfræðingar skeggræða um tíðina í einhveiju góðviðris-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.