Morgunblaðið - 29.05.1990, Blaðsíða 1
BÆJAR- OG SVEITARSTJÓRIMA-
KOSNINGAR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS ÞRIÐJUDAGUR
REYKJAVÍK
Listi Atkvæði % Kj. fulltr. 1986 1982
B — Framsóknarflokkur 4635 8,3 1(1) 7,0 9,5
D — Sjálfstæðisflokkur 33913 60,4 10(9) 52,7 52,5
G — Alþýðubandalag 4739 8,4 1(3) 20,3 19,0
H — Nýr vettvangur 8282 14,8 2 (—) — —
M — Flokkur mannsins 594 1,1 0(0) 2,0 —
V — Kvennalistinn 3384 6,0 1(1) 8,1 10,9
Z — Grænt iramboð 565 1,0 O(-) — —
Á kjörskrá 71.359. 57.146 greiddu atkvæði og var kjörsókn 80,1%. Auðir og ógildir
BLAÐ
c
voru 1.034.
Eftirtaldir voru kjörnir borgarfulltrúar í Reykjavík: Af B-lista: Sigrún Magnúsdóttir.
Af D-lista: Davíð Oddsson, Magnús L. Sveinsson, Katrín Fjeldsted, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, Anna K. Jónsdóttir, Árni Sigfússon, Júlíus Hafstein, Páll Gíslason, Guðrún Zoega,
Sveinn Andri Sveinsson. Af G-lista: Siguijón Pétursson. Áf H-lista: Ólína Þoi-varðardótt-
ir, Kristín Á. Ólafsdóttir. Af V-lista: Elín G. Ólafsdóttir.
SELTJARNARNES
1986
61,6
1982
64,4
Listi Atkvæði % Kj. fúlltr.
D — Sjálfstæðisflokkur 1559 65,6 5(4)
N — Bæjarmálafélagið 819 34,4 2 (—) — —
Á'kjörskrá voru 2894. 2461 greiddi atkvæði og kjörsókn var 85,0%. Auðir og ógildir
voru 83. ,
Kosningu hlutu: Af D-lista: Sigurgeir Sigurðsson, Erna Nielsen, Ásgeir S. Ásgeirsson,
Petrea I. Jónsdóttir, Björg Sigurðardóttir. Af N-lista: Siv Friðleifsdóttir, Guðrún K. Þor-
bergsdóttir.
KÓPAVOGUR
Listi Atkvæði % Kj. fúlltr. 1986 1982
A - Alþýðuflokkur 1901 21,8 3(3) 24,5 16,5
B — Framsóknarflokkur 1140 13,1 KD 13,6 18,1
D — Sjálfstæðisflokkur 3452 39,6 5(4) 32,1 42,1
G — Alþýðubandalag 1740 20,0 2(3) 27,9 23,3
V — Kvennalisti 480 5,5 0 — —
Á kjörskrá voru 11.190. 8974 greiddu atkvæði og kjörsókn var 80,2%. Auðir og ógild-
ir voru 261.
Kosningu hlutu: Af A-lista: Guðmundur Oddsson, Sigríður Einarsdóttir, Helga E. Jóns-
dóttir. Af B-lista: Sigurður Geirdal. Af D-lista: Gunnar Birgisson, Guðni Stefánsson, Birna
G. Friðriksdóttir, Arnór L. Pálsson, Bragi Michaelsson. Af G-lista: Valþór Hlöðversson,
Elsa S. Þorkeisdóttir.-
GARÐABÆR
Listi Atkvæði % Kj. fulltr. 1986 1982
A — AlþýðuflokRur 466 12,4 1(1) 17,3 11,4
D — Sjálfstæðisflokkur 2532 67,3 5(4) 52,9 60,5
E — G, B, V og aðrir 765 20,3 K-) ■ — —
Á kjörskrá voru 4800. 3871 greiddi atkvæði og kjörsókn var 80,6%. Auðir og ógildir
voru 108.
Kosningu hlutu: Af A-lista: Helga Kristín Möller. Af D-lista: Benedikt Sveinsson, Lauf-
ey Jóhannsdóttir, Erling Ásgeirsson, Sigrún Gísladóttir, Andrés B. Sigurðsson. Af E-lista:
Valgerður Jónsdóttir.
Borgarstjórahjónunum, Davíð Oddssyni og Ástríði Thorarensen, var fagnað þeg-
ar þau komu á kosningahátíð sjálfstæðismanna í Reykjavík eftir að úrslit voru
farin að skýrast aðfaranótt sunnudags.
Davíð Oddsson borgarsljóri:
Reykvíkingar sýna
Sjálfstædisflokknum
traust og trúnað
„ÞETTA eru auðvitað mjög góð úrslit
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reylqavík,“
sagði Davíð Oddsson borgarstjóri í sam-
tali við Morgunblaðið að loknum kosn-
ingunum. „Við hljótum að mega túlka
þau svo, að Reykvíkingar sýni Sjálfstæð-
isflokknum í Reykjavík mikið traust og
trúnað og meti þau verk sem flokkurinn
hefur unnið að á undanförnum árum í
þágu Reykvíkinga og það sem hann vill
af mörkum leggja á næstu fjórum árum.“
„Þetta er mesti sigur sem hér
hefur unnist," sagði Davíð.
„Reyndar telja margir að það sé
kraftaverki líkast að einn flokkur
skuli halda meirihluta í jafn stór-
um stað og Reykjavík er, jafn
lengi og jafn afdráttarlaust. Þá
skilja menn ef til vill mikilvægi
þessara úrslita núna, þegar flokk-
urinn fær yfir 60% atkvæða í
höfuðborginni.
Ég tel jafnframt að andstöðu-
flokkarnir í þessum kosningum
hafí í rauninni verið óvenjulega
óásjálegur kostur, sundraðri en
nokkru sinni fyrr eftir langar og
miklar sameiningartilraunir og
nýtt afl, sem svo var kynnt, hafði
sáralítið nýtt fram að færa og
gerðist sekt um ómerkileg upp-
hlaup og lágkúruleg tilþrif í kosn-
ingabaráttunni.
Ég vil nota þetta tækifæri til
að færa borgarbúum þakkir fyrir
það mikla traust sem þeir hafa
sýnt okkur og um ieið þakka þeim
sjálfstæðismönnum sem unnu vel
fyrir okkur,“ sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri.