Alþýðublaðið - 29.01.1950, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 29.01.1950, Blaðsíða 3
Sunnudagur 29. janúar 1950 ALÞÝfíUBLAÐlÐ 3 FRÁMORGNI T!L KVOLDS rrr«*-*f»wr»rr- rtf ■ I DAG er sunnudagurinn 29. janúar. Fæddur Magnús Ketils- son sýslumaður árið 1732. Sólarupprás e rkl. 9.18. Sól- Srlag verður kl. 16.04. Árdegis- háflæður er kl. 1.36. Síðdegis- háflæður er kl. 14.10. Sól er hæst á lofti í Rvík kl. 12.41. Helgidagslæknir: Guðmund- ur Eyjólfsson, Úthlíð 3, sími 80285. Næturvarzla: Reykjavíkur spótek, sími 1760. Næturakstur í nótt og aðra nótt: Litla bílastöðin, sími 1380. Skirsafréttir Laxfoss fer frá Reykjavík kl. 10, frá Borgarnesi kl. 15, frá Akranesi kl. 17. M.s. Katla er á Eyjafirði. M.s. Arnarfell er í Ábo í Finnladni. M.s. Hvassafell er í iÁlborg. Foldin var væntanleg til Grimsby í gærmorgun og átti að fara þaðan síðdegis í gær til Amsterdam. Lingestroom er á leið frá Færeyjum til Amster- idam. Hekla var á Akureyri í gær á vesturleið. Esja er í Reykja- Vík og fer þaðan næstkomandi þriðjudag vestur um land til Akureyrar. Herðubreið Var á Hornafirði í gær á norðurleið. Skjaldbreið er á Húnaflóa á Buðurleið. Þyrill er í Reykja- Vík. Skaftfellingur á að fara frá Vestmannaeyjum á morgun til Reykjavíkur. Brúarfoss fer frá Reykjavík kl. 2000 í kvöld 28.1. til Akur- eyrar. Dettifoss kom til Rotter- öam 27/1. fer þaðan 30.1. til AntWerpen, Hull, Leith og Reykjavíkur. Fjallfoss fer frá Reykjavík 30.1. til Leith, Fredrikstad og Menstad í Nor- egi. Goðafoss kom til Reykja- Víkur 17.1. frá Hull Lagarfoss fer frá Kaupmannahöfn 28 •— 29.1. til Álaborgar og Reykja- yík. Tröllafoss fór frá New lYork 23.1. til Reykjavíkur. Vatnajökull kom til Hamborg- ar 19.1. Fundir Kvenfélag' Hallgrímskirkju heldur fund á morgun, 30. jan- úar kl. 8,30 í Aðalstræti 12. Venjuleg fundarströf, söngur og kvikmynd. Konur taki með sér handavinnu. Söfn og sýningar Safn Einars Jónssonar: Opið kl. 13,30—15,30. Þjóðminjasafnið: Opið kl. 13 >—15. Náttúrugripasafnið; Opið kl. 13.30—15.00. Skemmtanir KVIKMYND AHÚSIN: Austurbæjarbíó (sími 1384): ÚTVARPIÐ 20.20 Samleikur á klarinett og píanó: Sónata eftir Stan- ford (Egill Jónsson og dr. Urbantschitsch). 20.35y Erindi: Steinunn Egils- dóttir húsfreyja á Spóa- stöðum (síra Sigurður Einarsson). 20.05 Tónleikar (plötur). 21.05 Upplestur: „Máttur jarð- ar“, bókarkafli eftir Jón Björnsson (höf. les). 21.30 Tónleikar: „Rósariddar- inn“, svíta eftir Richard Strauss (plötur). 22.05 Danlög (plötur). Úfvarpsskék. 1. borð: Hvítt: Reykjavík, Jón Guðmundsson og Konráð Árna- son. — Svart: Akureyri: Jón Þorsteinsson og Jóhann Snorrason. abcdefgh 33. f2—f4 34. Rf8—g6t 35. Rg6—e5 36. Kglxfl 37. Kfl—f2 38. Dh3—e3 39. De3—e4t He5—el Kh8—h7 Hel x f 1 De8—b5 t Db5—c5t Dc5xa5 „Ofsóttur“ (amerísk). Robert Mitchum, Theresa Wright. Sýnd i kl. 5, 7 og 9.. „Baráttan við ræningjana11 Sýnd kl. 3. Gamla Bíó (sími 1475:) •— „Anna Karenina". — Vivien Leigh. Sýnd kl. 9. ,,í giftingar- þöngum". Sýnd kl. 3, 5, og 7. Hafnarbíó (sími 6444): — „Freyjurnar frá Frúarvengi11 (ensk). Anna Neagle, H ugh Williams. Sýnd kl. 9. „Tvær saman!“ (amerísk). „Gög og Gokke í giftingarhugleiðing- um.“ Sýndar kl. 3, 5 og 7. Nýja Bíó (sími 1544): — „Fornar ástir og nýjar“ (frönsk) Arletty, Mireille Balin. Sýnd kl. 7 og 9. „Gög og Gokke á flótta.“ Sýnd kl. 3 og 5. Stjörnubíó (sími 81936): — „Ungar stúlkur í ævintýraleit. (þýzk) Karin Hardt, Hella Pitt, Paul Hörbiger. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Tjarnarbíó (sími 6485): — „Californía“ (amerísk). Barbara Stanwyck, Ray Milland, Barry Fitzgerald. Sýnd kl. 9. „Og dag- ar koma“ (amerísk). Alan Ladd, Loretta Young. Sýnd kl. 5 og 7. „Reimleikar.“ Nils Poppe. Sýnd kl. 3. Tripolibíó (sími 1182): — „Sally O’Rourke11 (amerísk). — Alan Ladd, Gail Russel. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Bæjarbíó, Hafnarfirði (sími 9184): „Sagan af A1 Jolson. Sýnd kl. 9. „Hann, hún og Ham- let. Litli og stóri. Sýnd kl. 3, 5 og 7. Hafnarfjarðarbíó (sími 9249): „Black Gold“ (amerísk). Ant- Karry Parks, Evelyn Keyes. hony Quinn, Kathrine de Mille, Elyse Knox. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. S AMKOMUHÚS: Ingólfscafé: Eldri dansarnir kl. 9 síðd. Messur í dag Dómkirkjan: Messa kl. 11, síra Jón Auðuns. Messa kl. 5, síra Bjarni Jónsson. Fríkirkjan: Messa kl. 2, síra Sigui'björn Einarsson. Laugarneskirkja: Messa kl. 2 e. h. Barnaguðsþjónusta kl. 10, síra Garðar Svavarsson. Nesprestakall: Messa í kap- elluháskólans kl. 2. Séra Jón Thorarensen. Grindavík: Messað kl. 2 e. h. Sjómannamessa. Sóknarprestur. Tryggvi Ófeigssoo sendir Uranus oé Neotúnus aftur á veiðar! ----------4>--------- TRYGGVI ÓFEIGSSON útgerðarmaður sem hefur látið tvo af glæsilegustu nýsköpunartogurum þjóðarinnar liggja við landfestar undanfarið, heíur nú af einhverjum ástæðum skyndilega ákveðið að senda skipin á veiðar. Er þetta að sjálfsögðu fagnaðarefni fyrir 60 sjómenn, sem búið var að afmunstra, og alla þá, sem vilja sjá fram- leiðslu landsmanna sem mesta. Það vakti mikla athygli, er Bendikt Gröndal skýrði frá því í útvarpsumræðunum, að þessir togara lægju að- gerðarlausir í höfn. En í gær var líf og fjör á Löngulínu. Var búið að munstra á Neptúnus og Úranus á ný og unn- ið af kappi við að búa skipin á veiðar. Samtímis þessum ánægjulegu ráðstöfunum Tryggva flytur Morgunblaðið furðulegar blekkingar um bæjarút- gerð Hafnarfjarðar. Blaðið segir, að á árunum 1941—47 hafi Júpíter h. f. greitt í opinber gjöld kr. 5 988 411, en bæjarútgerðin hafi aðeins greitt kr. 2 101 895 kr. Morgunblaðið gleymir að minnast á það, að auk þessara opinberu gjalda hefur bæjarútgerðin lagt 1 000 000 króna í bátaútgerð Hafnarfjarðar, 1 250 000 til framkvæmdanna í Krísuvík, og í heild hefur bæjarútgerðin lagt 8 000 000 krónur í sameiginlegan sjóð Hafnfirðinga, en það er nú skuldlaus eign útgerðarinnar. Þetta er árangur- inn af tæplega 20 ára bæjarútgerð. Þá fullyrðir Morgunblaðið, að hafnfirzku togararnir Maí og Óli Garða liggi aðgerðalausir. Þetta er ekki rétt. Þessir togarar eru báðir í viðgerð, en þetta eru einu gömlu togararnir, sem starfræktir eru enn þá. Er ólíku saman að jafna, þegar gömlu togurunum er lagt, eða þegar glæsijegustu nýsköpunartogurunum er lagt. Morgunblað- ið ætti ekki að tala um, að aðrir séu „ókunnugir“ þessum málum, þegar blaðið gerir sjálft engan mun á því, þegar gömlu eða nýju togurunum er lagt. Hafnfirðingar byrjuðu bæjarútgerð sína með tvær hendur tómar, en eiga nú átta milljónir skuldlausar. Og þess skal einnig getið, að bæjartogurunum hefur aldrei verið lagt, ekki einu sinni á verstu kreppuárunum. 91384 kjósa í dag 275 bæjar og sveit- arfulltrúa í 47 sveiíarfélögum ---------------». í kjöri eru samtals 1610 rnenn, og þar af eru 354 AlþýÖuflokksmenn. f DAG eiga 61 384 kjósendur að kjósa 275 bæjarfulltrúa og hreppsnefndarmenn í 13 kaupstöðum og 34 kauptúnum eða 47 sveitarfélögum samtals, en 1610 menn eru í kjöri alls; þar af eru 358 Alþýðuflokksmenn, 331 framsóknarmaður, 325 kom- múnistar, 467 sjálfstæðismenn og 129 frambjóðendur á sam- komulagslistum og listum, sem ekki eru taldir til stjórnmála- flokka. í kaupstöðum eru 53 319 alls á kjörskrá, frambjóðendur 850, en kjósa á 117 bæjarfulltrúa. í kauptúnum eru hins vegar 9 065 á kjörskrá, frambjóðend- ur 760 og kjósa á 158 hrepps- nefndarmenn. Leyfi félagsmálaráðuneytis- ins til að fresta kosningu þar til í júnímánuði næst komandi hafa fengið 5 kauptún: Hellissandur, Flatey á Breiðafirði, Þórshöfn, Egilsstaðakauptún og Stöðvarfjörður. Hafnarfjarðarkirkja: Messa kl. 2. Börn, sem eiga að fermast vorið 1950 og 1951 komi til við- tals. Samkoma í KFUM kl. 10 f. h. Síra Garðar Þorsteinsson. í tveim þessara kauptúna, Hellissandi og' Stöðvarfirði, kom enginn listi fram, og var kosn- ingu frestað af þeirri ástæðu. f fjóruni kauptúnum: Patreksfirði, Hofsósi, Hrísey og Djúpavogi, er aðeins einn listi í kjöri, og verða frambjóðendur þar sjálf- kjörnir. Á Patreksfirði bera sjálfstæðismenn einir fram lista, en á hinum stöðunum eru samkomulagslistar. í kaupstöðunum, sem eru 13 að tölu, eru hrein flokksfram- boð af hálfu stjórnmálaflokk- anna fjögurra í: Reykjavík, Akranési, Sauðárkróki, í DAG verður Katrín Thor- oddsen að öllum líkindum kos- in bæjarfulltrúi í Reykjavík, þar eð hún er í öruggu sæti a lista kommúnista. Katrín mun þó ekki hafa í hyggju að ein- beita kröftum sínum í þágu Reykjavíkur næstu mánuðina, því að hún er nú á förum aust- ur til Tékkóslóvakíu, Póllands og Rússlands. Ekki er blaðinu kunnugt um erindi Katrínar austur, né heldur hversu Iengi hún ætlar að dveljast eystra. Siglufirði, Ólafsfirði, Akureyri, Seyðisfirði, Vestmannaeyjum og Keflavík. Þrír framboðslistar: frá Al~ þýðuflokknum, Sósíalista- flokknum og Sjálfstæðisflokkn- um eru á ísafirði og í Hafnar- firði, en á Húsavík, þar sem cinnig eru þrír listar, eru Framsóknar- og Sjálfstæðis- menn saman um einn lista, en Alþýðuflokkur og Sósíalista- flokkur með sinn listann hvor. í Neskaupstað eru tveir listar, og eru þar Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Sjálf- stæðisflokkur saman um 'einn lista, en Sósíalistaflokkur einn sér með lista. Raflagnir Viðgerðir Véla- og raftækjaverzlun Tryggvagötu 23. Sími 91279. Það er afar auðvelt Bara að hringja í 6682 og komið verður samdægurs heim til yðar. Kaupum og seljum allskonar notaða muni. Borgum kontant. — Fornsalan, Goðaborg Freyjugötu 1.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.