Morgunblaðið - 14.12.1922, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.12.1922, Blaðsíða 1
10. árg., 38. tbl. Fimtudaginn 14. desember 1922. í saf oldarprentsmi ð ja k.f. Tfatmes Jlafsfein. 4. desember I8SI — 13. desember 1922. vinna mikið og bæta úr öllu, sem vanrækt hafði verið. Hann kom þá á símalagningu til landsins og kring um það, og fyrir einbeitni hans og harðfylgi gekk það verk svo fljótt frá hendi, að furðu sætir, er athugaðir eru allir erf- iðleikar, sem í vegi voru. Þetta er stærsta framkvæmdamálið frá þeim árum, en önnur mörg mætti telja, sem smærri eru, en þó eng- an veginn cmerk. •Svo gerði hann sjálfstæðismálið að aðalmáli sínu, er ró náðist ekki eftir þær breytingar, sem fengist höfðu 1904. Hann var leiðtogi þing mannafararinnar til Danmerkur 1906, er Friðrik konungur VIII. bauð Alþingi til heimsóknar, og ár- j ið eftir tók hann með rausn á móti ; konungi og fylgdarliði lians hjer. I Vænti hann mikils árangurs af þeirri viðkynningu, sem þetta skap- aSi, og lagði sig allan fram, er samn ; ingar hófust síðar í Kaupmanna- | höfn um framtíðarafstöðu .Islands | til Danmerkur, að ná sem heppileg- | ustum kostum fyrir Islands hönd. ! Og þó þetta yrði honum þá að falli hjer, er enginn’efi á því aö með : störfum þeim, sem þá voru unnin, jvar grundvöllurinn lagður til þess, | sem síðar hefir gerst, í þeim mál- t um. — I Hannes Hafstein var fæddur for- iingi, og hafði flesta þá kosti til að bera, sem þar eru bestir taldir. 1 Hann var mikill maður að vexti, karlmannlegur og fríður sýnum, | glæsimaöur í framgöngu, skemti- legur í viðkynningu og laSaði menn jmjög að sjer með allri framkomu ! sinni. Starfsmaður var liann mikill, jþegar hann hafði áhugamálum að sinna, og var þá fylginn sjer og áhugamikill. En jafnan vildi hann sýna fullkomið drenglyndi í viður- eign við mótstöðumenn sína. Hannes Hafstein var fæddur 4. desember 1861, sonur Pjeturs Haf- stein amtmanns og Ivristjönu Gunn-, arsdóttur, prests á Ilálsi í Fnjóska- dal, systur Tryggva sál. Gunnars- sonar bankastjóra. Er hún enn á lífi, 86 ára gömul, mjög ern eftir aldri, og hefir lengi verið hjá Hann- Kl. 10 í gærmorgun andaðist Hannes Hafstein á heimili sínu hjer í bænum, og hafði hann, svo sem kunnugt er, svo árum skifti legið rúmfastur og oft sárbjáður. Á lífi hans urðu snögg og mik- ii umskifti. Hann misti konu sína sumarið 1913 og tók' sjer það mjög nærri. Eigi miklu síðar misti hann heilsuna, af slagi, og þótt hann starfaði nokkuð eftir það, var hann aldrei heilbrigður. Brátt fór líka svo, að þessi sjiik- dómur lagði úann í rúmið, og er nú langt síðan að auðsætt þótti, að honum mundi aldrei verða bata auðið, og að dauðinn hlyti að verða eini endirinn á þjáning- um hans. A besta skeiði var hann sviftur bftilsu og kröftum, mitt í starfi og stríði lífsins. Og þar var stórt skarð höggvið. Hann var forvígis- maður íslensku þjóðarinnar, meira metinn en nokkur annar, og var meir og meir að ná almennri til- trú og vinsældum, án tillits til flokkaskiftingar og einstakra deilumála. Það 'hrygði því alla, er hann misti lieilsu og starfs- krafta, allir fundu, að burt var kipt af starfssviðinu mesta óg besta kraftinum. Lengi mun þess verða minst, hvílíkt glæsimenni Hannes Haf- stein var. Þegar á ungum aldri fjeklc hann mikið orð á sig fyrir gáfur, en hugur hans hnje þá allur að listum og bókmentum. Hann var snemma orðinn þjóð- ltunnugt 1 jóðskáld, og alla tíð síðan hafa landar hans haft mikl- ar mætur á kveðskap hans, en karlmenska og heilbrigð lífsgleði er þar meginþátturinn. Um fertugt tekur Hannes Haf- slein að gefa sig við stjórnmálum, og urðu þau eftir það aðalstarf hans. Þar varð hann brátt fremsti maðurinn. Hann var nýkosinn á þing, er Vinstrimenn komu til valda í Danmörku og líkindi gerð- ust til þess, að hin langa stjórn- máladeila, sem íslendingar höfðu átt í við Hægrimannastjórn Dana, yrði útkljáð, eða kæmist að minsta kosti inn á nýjar brautir. Hannes Hafstein var þá valinn af meiri h’uta Alþingis til þess að fara á fund nyju stjornarinnar dönsku og túlka fyrir henni málstað fs- lendinga. Þetta hafði þann árang- ur, að við fengum innlenda stjórn í ársbyrjun 1904, og varð Hannes Hafstein þá fyrsti íslenski ráð- herrann. Stjórnarár Hannesar Hafstein, frá 1904—1909, eru framfaratími. Hann var ótrauður foringi, vildi esi syni sínum. 15. okt. 1889 kvænt- ist H. H. Ragnheiði Thordersen, fósturdóttur Sigurðar lectors Mel- sted, en misti hana, eins og áður segir, sumarið 1913. Af börnum þeirra eru á lífi sjö dætur og einn sonur. Fjórar elstu dæturnar eru giftar: Ástríður Þórarni Kristjans- syni verkfræðingi, porunn Ragnari H. Kvaran presti í Winnipeg, Sig- ríður Geir ThorsteinSon framkv,- stjóra og Soffía Hauk Thors fram- kvæmdarstjóra. Hinar þrjár heita: Ragnheiður, Elín og Kristjana, en sonurinn Sigurður. Eftir að H. H. hafði lokið prófi í lögum, var hann lengi landritari hjá Magnúsi Stephensen landshöfð- ingja, en síðan var hann sýslumað- ur í ísaf jarðarsýslu þangaö til hann varð ráðherra. En eftir að hann ljet af ráðherrastörfum var hann banka- stjóri í Islandsbanka um nokkur ár. n i i i .i FriSarJundurmn í [iausannE. London 22. nóv. Á mánudaginn var komu full- trúar bandamanna og Tyrkja og Grikkja saman í Lausanne til þess að semja um frið milli Grikkja og Tyrkja og milli Tyrkja og bandamanna. Formaður bretsku nefndarinnar er Curzon lávarður, utanríkisráðherra Breta, af Frakka hálfu sækir fundinn Poincaré for- sætisráðherra , fyrir hönd ítala Mussolini forsætis- og utanríkis- ráðherra, fyrir Búlgara Stambou- Imski forsætisráðherra, fyrir Ju- goslava Nintehitch utanríkisráð- hcrra, fyrir Tyrki Ismet Pasja og fyrir Grikki Venizelos. Curzon utanríkisráðherra fór til París fyr'r helgi til þess að ráðg- ast við Poincaré og hjeldu þeir saman til Sviss á laugardaginn cg hittu Mussolini. Var sú fregn látin út ganga, að fult samkomu- lag hefði náðst milli þessara 3 „stórlaxa“ um stefnuna í garð Tyrkja. Fundurinn var settur af forseta Svisslendinga, Maud, og bauð hann fundarmenn velkomna. Á eftir hcnum töluðu Curzon lávarður og 1,-met Pasja. Daginn eftir var fyrsti starfs- fundurinn haldinn og þá skip- aðar nefndir til þess að fjalla um aðalverkefni fundarins. Öll'um gerðum ráðstefnunnar hefir verið haldið leyndum til >essa, og allir eru í óvissu um hvað verða muni. Það þykir víst, að Tyrkir muni verða harðir í kröfum, heimta Þrakíu alla, hlutdeild í yfirráð- cm og eftirliti sundauna, og krefj- ast 200 miljóna sterlingspunda skaðabóta af Grikkjum. í ræðu sinni, sem haldin var á frönsku, sagði Ismet Pasja. að Tyrkir hefðu samið um vopna- hlje eftir ófriðinn mikla á þeim grundvelli, sem Wilson áður hafði skýrt, að þjóðirnar skyldu fá vfðurkendan sjálfsákvörðunarrjett sinn. Tyrkir hefðu verið. sviknir um þetta, og því hefði þeim \erið nauðugur einn kostur, að grípa til vopna og verja sjálf- stæði sitt. Hann lýsti átakanlega kjörum Tyrkja síðastliðin fjögur ár. Allur þorri fólks hefði orðið að búa við hungur og harðrjetti, og enn væru margir Tyrkir í Litlu-Asíu, sem hvergi ættu þak yfir höfuðið. Stjórnin í Angóra hefir nú svift Refet Pasja landsstjóra- völdum í Konstantmopel. Ástæð- an er sögð sú, að hann hafi ekki fylgt fyrirmælum stjórnarinnar. Refet Pasja fór ógætilega að ráði sínu þennan stutta tíma sem hann hafði völdin í Konstantínópel og fyrir óbilgimi han§ og ofsa lá við að til ófriðar mundi draga milli hans og setuliðs bandamanna í borginni. Heitir sá dr. Adnan Bey, sem skipaður hefir verið eftirmaður hans, og var áður for-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.