Nýtt kirkjublað - 01.01.1906, Blaðsíða 8

Nýtt kirkjublað - 01.01.1906, Blaðsíða 8
4 NÝTT KIRRJUBLAÐ. ára afmæli sitt árið 1760. Á síðari liluta 18. aldar og á fyrra helmingi hinnar nítjándu heyrist talað um tilraunir í þessa átt í ýmsum löndum. Þannig var félag stofnað í Basel 1768 og lifði alllengi, og víðar á meginlandi Evrópu voru um það leyti slík félög stofnuð. A Englandi og í Ameríku átti þetta sér líka stað. Þannig er talað um kristilega hreyfingu meðal ungrá manna í Lundúnum árið 1632 og í Ameríku 1677. Þrætan um ])að hvar hin fyrsta tilraun hafi verið gjörð, verður lík- lega aldrei útkljáð, enda hefir það ekki mikla þýðingu, þvi allar þessar tilraunir og þessar hreifmgar og félagsmyndanir stóðu aðeins stutta stund og geta aðeins álitist eins og fyrirrennarar hinnar eiginlegu ungmenna-félagshreyfingar, sem hér kemur til greina. „Kristilegt félag ungra manna“ (K. F. U. M.) í þeirri mynd, sem vér nú höfum það, er stofnað í Lundúnum 6. júní 1844 af George Williams. ILið nýja við þessa hreyfingu er það að hún er vararileg, að hún er alþjóðleg, og að starfs- mátinn og hugsjónin er ný. Þær tilraunir, sem myndast höfðu áður, stóðu fremur stutta slund og dóu svo út, þær voru bundnar við vissa staði og stóðu í engu innbyrðis sambandi hver við aðra, og starfið var fólgið i því að eldri kirkjunnar menn tóku að sér hina yngri til þess að leiðbeina þeim. K. F. U. M. þar á móti er áframhaldandi félags-starfsemi, þar sem hver tekur við af öðrum, og hún stendur í alþjóðasam- bandi, sem nær yfir allar álfur og flestar þjóðir, og aliar hinar einstöku deildir standa í sambandi við aðalheildina; og enn- fremur er starfsmátinn og hugsjónin ný, þvi hún er þetta: Starfsemi ungra manna fyrir unga menn. Þetta er nýtt og hefir aldrei fyr átt sér slað í kirkjusögunni: Ungir menn af öllum þjóðum skipa sér sem sjálfboðalið þúsundum sam- an um merki Jesú Krists, til þess sjálfir að berjast undir því og safna jafnöldrum sínum saman undir það merki. Stofnandinn George Williams fæddist árið 1821 á bónda- bæ í nánd við bæinn Dulverton á Suður-Englandi. Faðir hans var bóndi, og á heimili sínu varð George fyrir engum verulegunr kristilegum áhrifum. Fjórtán ára að aldri komst hann að verzluu sem búðar- drengur í bænum Bridgevvater. Trúarþrá hans var þá ekki vöknuð. Tveir trúaðif ungir menn, sem voru við þessa verzl-

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.