Morgunblaðið - 09.11.2002, Side 47

Morgunblaðið - 09.11.2002, Side 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 47 HINN 28. október sl. var kveð- inn upp í Héraðsdómi Reykjaness dómur í máli fréttamannsins Magnúsar Hafsteinssonar gegn sjávarútvegsráðherra Árna Mathiesen. Niðurstaða dómsins var m.a. sú að Árni hefði brotið rétt á fréttamanninum með um- mælum, sem talin voru hafa falið í sér ásökun um að myndskeið, sem birtist með frétt um brottkast sjávarafla, hefði verið sviðsett. Aðdróttun ráðherrans um svið- setningu á umræddu brottkasti hefði hann hvorki sannað né rétt- lætt á annan hátt. Eins og lesendum blaðsins er kunnugt hafði Magnús fréttamað- ur farið út á sjó með fiskibáti og haft með sér kvikmyndatöku- mann. Þar tóku þeir kvikmynd af því þegar áhöfn skipsins kastaði hluta af afla bátsins í sjóinn eftir að hann hafði verið innbyrtur. Í málinu liggur fyrir: 1. Fréttamaðurinn fór gagngert í sjóferðina til að taka kvikmynd af þeirri háttsemi áhafnarinnar að kasta fiski í sjóinn. Háttsemi áhafnarinnar brýtur gegn lögum. 2. Skipstjórinn og áhöfnin vissu um tilgang fréttamannsins og heimiluðu honum för með skipinu til að ná honum fram. Þeim var kunnugt um nærveru hans og myndavélarinnar, þegar þeir frömdu lögbrotið. Ásetningur þeirra laut að því að láta taka af sér mynd við iðju sína. Það verður að telja hverjum sem er heimilt að telja myndskeið, sem svona er stofnað til, sviðsett. Þá skiptir engu máli hvort þessi skipstjóri eða áhöfn hans hafi fyrr kastað fiski í sjóinn. Myndskeið úr þessari ferð er jafnsviðsett fyrir það. Til að taka dæmi af hliðstæðu má nefna mann sem ekur yfir gatnamót gegn rauðu ljósi. Náist mynd af honum á myndavél sem hann veit ekki af er ekki unnt að telja myndina sviðsetningu. Ef hann á hinn bóginn veit af frétta- manni með myndatökuvél á gatnamótunum, sem gagngert er kominn til að taka mynd af honum aka gegn rauðu ljósi, og hann fremur afbrotið með ásetningi um að láta þennan mann festa það á filmu, er atvikinu ágætlega lýst með því að segja það sviðsett. Skiptir þá engu máli hvort þessi ökumaður hefur áður ekið yfir gatnamót gegn rauðu ljósi. Í þessu ljósi má því segja um frétt Magnúsar fréttamanns: Víst var hún sviðsett. Jón Steinar Gunnlaugsson Víst var hún sviðsett Höfundur er prófessor við laga- deild Háskólans í Reykjavík. er þekkt fyrir hugsjónir sínar, dugnað og málafylgju í starfi. Hún stendur vörð um velferðarkerfið og er óþreytandi að boða jöfnuð og réttlæti í samfélaginu. Ásta Ragnheiður hefur barist ötullega fyrir framförum og rétt- indum almennings í heilbrigðis- og tryggingamálum og nýtur þar yfirburðaþekkingar sinnar á þeim málaflokkum. Hún hefur barist fyrir fjölmörgum öðrum framfaramálum, t.d. á vettvangi félagsmála, samgöngu- og fjarskiptamála. Ásta Ragnheiður hefur hagsmuni Reykjavíkur í fyrirrúmi og hefur ávallt verið öflugur málsvari höfuðborgarinnar á Alþingi Íslendinga. Nú höfum við tækifæri til að tryggja að Ásta Ragnheiður haldi áfram að standa vörð um velferð, réttindi og hagsmuni almennings. KOSNINGAMIÐSTÖÐ PÓSTHÚSSTRÆTI 13 OPIÐ Í DAG KL.10–22 SÍMI 594 7676 PRÓFKJÖR SAMFYLKINGARINNAR - Í DAG, 9. NÓVEMBER Ástu R. í 3. sætið! Ásta R. Jóhannesdóttir þingmaður Reykvíkinga Fjölmennum í prófkjör Samfylkingarinnar í dag og tryggjum Ástu Ragnheiði 3. sætið – þitt atkvæði getur ráðið úrslitum. Glæsileg leðursófasett 3+1+1 239.000kr. Sevil la 3+2 Dökkbrúnt, ljósbrúnt og svart 189.000kr. Sófasett s e m s a m e i n a f e g u r ð o g þ æ g i n d i Mán.– Fös. 10.00 –18.00 • Laugard. 11.00 –16.00 • Sunnud. 13.00 –16.00 OPIÐ: só fa se tt L e ð u r N O N N I O G M A N N I I Y D D A • N M 0 7 8 5 7 / si a. is t m h u s g o g n . i s Á ÞRIÐJA og fjórða áratug síð- ustu aldar var mikill baráttu- og frelsishugur ríkjandi meðal ís- lensku þjóðarinnar. Fullveldið var í höfn og stofnun lýðveldis var framundan. Íslensk hjörtu slógu í takt og það var ekkert tómahljóð í þeim hjartslætti. Fólkið var reiðubúið til að taka á sig þær byrðar sem þyrfti til að vera frjáls og fullvalda þjóð. Frelsinu mátti ekki glata aftur það var alltof dýr- mætt til þess. Það hafði margra alda áþján ófrelsis kennt íslenskri þjóð. Frelsið á markað Sjálfstæði þjóðarinnar er mesta auðlind hennar. Það er undirstaða þess að hún hafi yfirráðin yfir landi sínu með öllum gögnum og gæðum og yfir landhelginni með tilheyrandi auðlindum. Þetta eig- um við að vita. Þær raddir sem heyrast að full- veldið geti verið falt á markaði fyrir þá sem vel bjóða er því lítt skiljanlegt. Að kanna markaðsvirð- ið svona rétt eins og þeir stóru gera á verðbréfamarkaðnum er jafnfáránlegt. Að fá „nammi“ Samfylkingin nýr flokkur sem virðist enn vera á „nammialdri“ og vill bæta málefnastöðu sína telur „nammi“ frá Brussel góðan kost. Þar leggst lítið fyrir kappann. Sjálfstæðið verði tryggt Það getur engin umræða farið fram um aðild að ESB eða afsal á forræði auðlinda og sjálfstæði ís- lensku þjóðarinnar nema hún sam- þykki fyrst í almennri atkvæða- greiðslu að afsala fullveldi og sjálfstæði í einhverri mynd eða að öllu leyti. Hjartað í Brussel Þótt fólk telji sig heyra fyrir- boða gulls og grænna skóga í slætti Brussel-hjartans leynast þar þau bönd sem undan getur blánað um aldir ef þau verða einu sinni hnýtt. Það hefði aldamótakynslóð- in í upphafi 20. aldar skilið. Íslendingar. Stöndum vörð um frelsi og sjálfstæði þjóðar okkar. Það er og verður okkar fyrsta skylda nú og um alla framtíð. … og Brussel- hjartað slær Eftir Pál V. Daníelsson Höfundur er viðskiptafræðingur. „Stöndum vörð um frelsi og sjálfstæði þjóðar okkar.“ PIPAR OG SALT Klapparstíg 44  Sími 562 3614 GRILLPÖNNUR kr. 2.900 (stærri) kr. 2.300 (minni)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.