Morgunblaðið - 09.11.2002, Síða 37

Morgunblaðið - 09.11.2002, Síða 37
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 37 ERLA S. Haraldsdóttir er fædd 1967, menntuð í Gautaborg, San Fransisco og Stokkhólmi og hefur verið virk í list sinni í um sex ár. Á þeim tíma hefur hún haldið fimm einkasýningar og þetta er sú sjötta, auk þess að taka þátt í fjölda sam- sýninga, hérlendis og erlendis. Ljós- myndaverk sem hún vann í sam- vinnu við Bo Melin vöktu nokkra athygli hér þegar þau voru sýnd í Galleríi Hlemmi 2001. Erla hefur unnið ágæta möppu sem gefur góða innsýn í verk hennar undanfarin sex ár og þegar hún er skoðuð er ljóst að verk hennar fjalla gjarnan um skynjun og mörk raun- veruleika og ímyndunar. Þannig leika ljósmyndaverk hennar og Bo Melin sér með daglegt umhverfi okkar með því að breyta því á til- tölulega hógværan hátt svo efi vakn- ar hjá áhorfanda um það hvað er raunverulegt og hvað ekki. Svipað hefur Erla gert upp á eigin spýtur í ljósmyndum af íslenskri náttúru þar sem framandlegur fugl flýgur við Skógafoss, geimför takast á loft uppi á öræfum o.fl. Nú er Erla líka á náttúruslóðum í verki sínu Það sem þú í raun sást, en aðalverk sýningarinnar er mynd- bandsverk af öldugangi á Mýrdals- sandi þar sem einnig bregður fyrir stúlku á ferli. Myndbandið er fal- legt, öldugangur er jafnan seiðandi og hraðinn dregur ekki úr þeim áhrifum. Stúlkan sem birtist og hverfur jafnsnöggt bætir annarri vídd við verkið, maður er í raun ekki viss um hvað maður sá og ekki sá. Myndbandinu er varpað á vegg. Þegar ég sá það var það illa sýnilegt vegna sólar, sem truflaði mjög. Án efa er það sterkara á skýjuðum degi. Nú eru svo margir að vinna mynd- bandsverk í dag. Kannski verður það til þess að það er stundum notað án tillits til sérstakra eiginleika þess. Sjónrænir möguleikar miðils- ins fara oft fyrir ofan garð og neðan og myndbönd eru oftar en ekki eins konar hreyfanleg ljósmyndavél, sem hefur fyrst og fremst heimildagildi. Í þessu tilfelli hefði verkið verið mun sterkara með ákveðnari framsetn- ingu. Myndbönd listamanna eins og til dæmis Marijke van Warmerdam sýna til dæmis vel hvers myndband- ið er megnugt á sinn einfaldasta hátt. Mér fannst líka tilvísun til virkjana óþörf í verkinu og þrengja túlkunarmöguleika áhorfanda um of. Erla hefur svo beðið tvo lista- menn um að vinna verk út frá mynd- bandinu, Joshua Trees segir í orðum hvað honum finnst hann sjá út úr kyrrmynd af myndbandinu og Arn- grímur Borgþórsson, ungur graffit- ilistamaður, gerir verk á einn vegg gallerísins, byggt á sömu kyrrmynd. Texti Trees verður til þess að maður veltir fyrir sér hvað það er sem skapar ímynd Íslands út á við – hvort Sykurmolarnir og síðan Björk eigi þar í raun svona stóran hlut að máli en í texta sínum nefnir Trees bæði álfa og vindla sem virkar óneit- anlega klisjukennt, en álfastúlkan Björk söng jú um vindlareykingar í Sykurmolalaginu góða fyrir löngu. Þessi samvinnuhugmynd finnst mér áhugaverðasti hluti sýningar- innar og nokkuð sem er spennandi að vinna með – jafnvel þó að útkom- an sé í þessu tilfelli ekkert sérstak- lega áhugaverð. Sovéski listamaður- inn Ilya Kabakov hefur til dæmis notað þennan möguleika á skemmti- legan hátt með því að innlima við- brögð áhorfenda við verkunum í sýningar sínar, þannig hefur komið vel fram í verkum hans mismunur á viðbrögðum áhorfenda í vestri og austri, auk gráthlægilegra við- bragða almennings við list sem fáir botnuðu í. Samvinna er ofarlega á baugi í dag, bæði listamanna á milli sem og milli listamanna og almenn- ings og það er spennandi að fylgjast með hvernig hún þróast frekar á næstu árum. Þrátt fyrir annmarka framsetn- ingar og þá staðreynd að viðbótin sem vannst með samvinnunni er ekkert sérlega spennandi, búa verk Erlu yfir áhugaverðum þáttum, skil- in milli raunveruleika og ímyndunar eru heillandi og samvinnuhugmynd- in frjó. Og vonandi að sólin haldi sig bak við ský á næstu dögum. Vindlareykjandi álfastúlkur á Hlemmi MYNDLIST Gallerí Hlemmur Til 10. nóv. Sýningin er opin miðvikudaga til sunnudaga frá kl. 14–18. BLÖNDUÐ TÆKNI, ERLA S. HARALDSDÓTTIR Ragna Sigurðardóttir Þetta er Ísland Hún er Íslendingur Hún er álfur Hún er heilbrigð Hún reykir vindla Hún er köld Hún er alein TVÖ námskeið hefjast í Listahá- skóla Íslands í næstu viku. Nám- skeið í leiktúlkun hefst á mánu- dag. Markmiðið er að opna heim sviðs- og leiktúlkunar. Fjallað verður m.a. um það hvernig leik- arar nálgast nýtt hlutverk. Rann- sökuð verða mismunandi göngu- lag og hreyfingar, talsmáti og kækir. Aðaláhersla verður lögð á vinnu með einleik (Mónólóg) að eigin vali eða valinn í samráði við kennarann. Kennari er Þór Tul- inius leikari. Námskeið í hönnunarsögu hefst á fimmtudag. Það er í formi fyr- irlestra og fjallar um íslenska hönnunarsögu 1860–1960. Tíma- bilið hefst með brautryðjenda- starfi Sigurðar Guðmundssonar (1833–1874) og síðan verður þátt- taka Íslendinga í heimssýningum reifuð og lýkur með umfjöllun um hönnunartilraunir sjötta áratug- arins þegar norræn hönnun öðl- aðist alþjóðlega viðurkenningu. Kennari er Arndís S. Árnadótt- ir innanhússhönnuður. Námskeið í LHÍ Önnur eins ánægja á ferðalögum finnst varla og í Thailandsferðum HEIMSKLÚBBSINS. 8. JAN. 2003 UNDRA THAILAND 17 d. 4 n. í Bangkok og 11 n. á Jomtien. 4ra-5* hóteli m. morgunv. 29. JAN. 2003 RÓMUÐ STÓRA THAILANDSFERÐIN Allt landið frá Bangkok, Stóri flotmarkaðurinn, River Kwai, Phitsanuloke, Sukotai, CHIANG MAI - Rós Norðursins, CHIANG RAI og í lokin 6 d. Jomtien PÁLMASTRÖND. Nú geta allir farþegar okkar gist á hinu frábæra RADISSON-BANGKOK. THAILANDSFERÐ ÞEGAR ÞÚ VILT - á eigin vegum. Flug frá kr. 107 þús m. flugvallarsk. Viltu stytta skammdegið? Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564, netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is SJÁ EINNIG http//www. heimsklubbur.is Pantanasími 56 20 400
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.