Morgunblaðið - 09.11.2002, Side 20

Morgunblaðið - 09.11.2002, Side 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ TÆKJA-Tækni ehf. hefur gert tilboð í 90% af útgefnu hlutafé Vatnsvirkjans ehf. Tilboðið er með fyrirvara um áreiðanleika- könnun og hefur verið sam- þykkt af eigendum Vatnsvirkj- ans. Vatnsvirkinn ehf. var stofn- aður 1954 og starfar á pípu- lagna- og hreinlætistækja- markaði. Tækja-Tækni ehf. var stofnað 1984 og sérhæfir sig í innflutningi á pípulagnavörum, sundlaugum og heitum pottum. Gert er ráð fyrir að nýir eig- endur taki við rekstri Vatns- virkjans 1. desember nk. að lokinni áreiðanleikakönnun og undirritun endanlegs kaup- samnings. Íslandsbanki veitti ráðgjöf við kaupin og annast fjármögn- un. Vatns- virkinn seldur TAP Marels hf. á fyrstu níu mánuðum þessa árs nam um 1,1 milljón evra eft- ir skatta, jafnvirði um 98 milljóna ís- lenskra króna. Á sama tímabili á síð- asta ári var tap félagsins um 330 þúsund evrur, eða um 30 milljónir króna. Hagnaður félagsins á fyrri helmingi ársins 2002 var um 1,3 millj- ónir evra. Tap á þriðja ársfjórðungi var því um 2,4 milljónir evra. Í tilkynningu frá Marel í Kauphöll Íslands í gær segir að þriðji ársfjórð- ungur hafi verið samstæðunni erfið- ur, þar sem framleiðsla liggi að mestu niðri um eins mánaðar skeið vegna sumarfría. Auk þess komi að þessu sinni til kostnaður við flutninga móð- urfélagsins í nýjar höfuðstöðvar í júlí síðastliðnum og nokkur röskun sem af því hlaust á framleiðslu félagsins. Rekstrartekjur Marels fyrstu níu mánuði ársins 2002 voru 75,6 milljónir evra, sem er 15% aukning frá sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur sam- stæðunnar eru um 6% lægri en áætl- anir gerðu ráð fyrir og afkoman á 3ja ársfjórðungi einnig lakari en reiknað var með í áætlunum. Segir í tilkynn- ingu Marels að þetta megi einkum rekja til minni sölu og afhendinga á tímabilinu en reiknað var með. Sú efnahagsniðursveifla sem sé á helstu mörkuðum félagsins í Bandaríkjun- um og Evrópu hafi leitt til þess að ákvörðunum um fjölmargar stórar fjárfestingar í þeim iðgreinum sem Marel sé að þjóna, hafi verið frestað. Fjárfest var fyrir 17,0 milljónir evra á tímabilinu janúar til septem- ber. Þar er um að ræða fjárfestingu í nýbyggingu Marels á Íslandi og kaup á danska fyrirtækinu CP-Food. Á sama tíma 2001 námu fjárfestingar 9,8 milljónum evra. Veltufé frá rekstri var 0,6 milljónir evra en 4,4 milljónir árið áður. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi Í tilkynningunni segir að Marel hafi að undanförnu gripið til aðgerða til að bæta óviðunandi afkomu félags- ins og laga rekstur þess að erfiðu rekstrarumhverfi um þessar mundir. Meðal annars hafi starfsmönnum þegar verið fækkað um 70 í samstæð- unni, eða um 9%, rekstur dótturfyr- irtækja sameinaður, óhagkvæm framleiðsla erlendis flutt til Íslands og áherslum breytt í markaðsstarfi félagsins. Á næstunni muni jákvæð áhrif af flutningum Marels í nýtt hús- næði byrja að skila sér. Marel reiknar með að hagnaður verði á rekstri félagsins á fjórða árs- fjórðungi en tap verði þó á rekstri þess á árinu 2002. Tap Marels tæpar 100 milljónir króna KAUPHÖLL Íslands og Verðbréfaskráning Íslands héldu upp á flutning í nýtt húsnæði á Laugavegi 182 síðastliðinn fimmtudag. Félögin eru fyrstu fyr- irtækin til að flytja í hið nýja hús sem stendur á mótum Laugavegar og Kringlumýrarbrautar í Reykjavík. Morgunblaðið/Sverrir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, og Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka og stjórnarformaður Kauphallarinnar, voru í opnunarhófinu. Kauphöll Íslands í nýju húsnæði HAGNAÐUR Frjálsa fjárfestingar- bankans hf. fyrstu níu mánuði ársins 2002 var 367 milljónir króna. Arð- semi eigin fjár á tímabilinu var 22,4% og kostnaðarhlutfall bankans var 24%. Í fréttatilkynningu frá bankanum segir að ef afkoman sé borin saman við afkomu sama tímabils á árinu 2001 þá sé um að ræða 80 milljóna króna betri afkomu fyrir skatta, en eftir skatta sé afkoman 23 milljónum króna lakari. Hagnaður eftir skatta á þriðja árs- fjórðungi 2002 nam 156 milljónum króna samanborið við 95 milljóna króna hagnað á öðrum ársfjórðungi 2002 og 116 milljóna króna hagnað á fyrsta ársfjórðungi 2002. Eigið fé bankans var 2,6 milljarðar króna í lok tímabilsins. 367 milljóna hagnaður hjá Frjálsa fjár- festingar- bankanum HAGNAÐUR samstæðu Haraldar Böðvarssonar hf. fyrstu níu mánuði ársins var 833 milljónir króna sam- anborið við 275 milljóna króna tap sama tímabil árið 2001. Afkomubati á milli tímabilanna er því 1.108 milljónir króna. Helsta skýring á betri afkomu félagsins er að fjár- munatekjur félagsins nema nú 375 milljónum króna en á sama tímabili í fyrra námu fjármunagjöldin 770 milljónum króna. Vegna styrkingar á gengi íslensku krónunnar á tíma- bilinu var gengishagnaður vegna lána í erlendri mynt 482 milljónir króna. Heildarskuldir samstæðunn- ar hafa minnkað um 803 milljónir króna frá síðustu áramótum. Hagnaður fyrir skatta nam 994 milljónum króna samanborið við 270 milljóna króna tap fyrstu níu mánuðina árið áður. Hagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði (fram- legð eða EBITDA) fyrstu níu mán- uði ársins 2002 nam 1.056 milljón- um króna, sem er 24,5% af tekjum, samanborið við 877 milljónir króna sama tímabil árið áður, sem er 25,4% af tekjum þess tímabils. Veltufé samstæðunnar frá rekstri nam 913 milljónum kr. á tímabilinu. Heildarafli skipa félagsins var tæplega 147 þúsund tonn á tíma- bilinu, þar af um 18 þúsund tonn af bolfiski og 128 þúsund tonn af upp- sjávarfiski. Félagið beitir verðleið- réttingum í uppgjörinu. Ef ekki hefði verið tekið tillit til áhrifa verðlagsbreytinga á tímabilinu hefði hagnaður tímabilsins verið 60,6 milljónum lægri og bókfært eigið fé hefði verið 98,7 milljónum lægra. Haraldur Böðvarsson hf. Gengishagnaður 482 milljónir ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N/ SI A. IS T O Y 19 18 8 1 0/ 20 02 Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S. 570 5300 • www.arctictrucks.is markaður jeppamannsins RX-1 er kominn, ert þú tilbúinn? YAMAHA er komið í Arctic Trucks MEIRA AFL vélin í RX-1 skilar rúmlega 145 hö. Á LAUGARDAG FRÁ 12-16 OG SUNNUDAG FRÁ 13-16 Í ARCTIC TRUCKS KOMDU OG SJÁÐU RX-1 VÉLSLEÐA ÁRSINS 2003

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.