Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1997, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1997, Síða 15
sínu. Hann settist aftur niður og fór að hugsa. Hann var bæði undrandi og skelfd- ur. Skömmu síðar heyrðist hvell hringing. „Dorina, frúin!“ hrópaði þjónninn um leið og hann flýtti sér að bregða sér í jakkann. Hann þaut til að opna dyrnar, en þegar hann sá að Micuccio ætlaði að koma á eftir honum þá snarstansaði hann og sagði við hann: „Vertu hérna kyrr. Ég skal láta hana vita að þú sért hérna.“ „Æ, æ,æ ... “ stundi syfjuleg rödd hand- an við tjaldið og rétt á eftir birtist stór og mikil kona, digur að sama skapi og sóðaleg til fara. Hún dró á eftir sér annan fótinn og gat með herkjum opnað augun. Hún var með ullarsjal upp fyrir nef og gullitað hár. Micuccio leit á hana forviða. Hún var ekki minna undrandi og glennti upp skjánar framan í þennan ókunnuga mann. „Frúin,“ endurtók Micuccio, þá rankaði Dorina skyndilega við sér. „Ég er að koma, ég er að koma,“ sagði Dorina og reif af sér ullar- sjalið og fleygði því bak við tjaldið og hent- ist síðan áfram með öllum líkamsþunga sín- um í átt til dyranna. Sjón þessarar nomar með litaða hárið og skipunarorð þjónsins voru fyrir Micuccio mikill óheillaboði, sem hann mátti síst við núna eins aumur og hann var fyrir. Hann heyrði skræka rödd Mörtu frænku „þarna inn í borðstofuna, inn í borðstofuna." Og þjónninn og Dorina gengu á undan þeim með stórkostlegar blómakörfur. Micuccio rak út höfuðið til að sjá fagurlega uppljómuðu borðstofuna í hinum endanum og hann sá íjöldann allan af prúðbúnum mönnum og heyrði kliðinn af tali þeirra. Honum sortnaði fyrir augum. Hann var svo sleginn, svo hrærður að hann tók ekki eftir því sjálfur að augu hans voru orðin full af tárum. Hann lokaði þeim og þarna í myrkr- inu hnipraði hann sig saman eins og hann væri að reyna að bægja frá sér þeim sárs- auka sem hlátrasköllin ollu honum. Þau komu frá Teresinu. Ó, guð minn góður, hvers vegna hló hún svona? Niðurbælt óp fékk hann til að opna aug- un aftur, hann sá Mörtu frænku standandi fyrir framan sig en átti erfitt með að bera kennsl á hana. Hún var með hatt á höfðinu og virtist alveg vera að sligast undir þykkri og fínni flauelskápu. „Ha, þú héma, Micuccio? „Marta frænka ... “ hrópaði Micuccio hálf óttasleginn. Hann stóð þarna og hélt áfram að horfa á hana. „Hvernig stendur á þessu? An þess að láta nokkurn vita? Hvað gerðist? Hvenær komstu? Endilega í kvöld - ó, drottinn minn dýri!“ „Ég kom hingað ... “ stamaði Micuccio og vissi ekki hvernig hann ætti að halda áfram. „Bíddu!“ greip Marta frænka fram í fyrir honum. „Hvað er hægt að gera? Hvað er hægt að gera? Sérðu ekki allt þetta fólk, væni minn? Þetta er gestaboð, sem Teresína er að halda í kvöld ... Bíddu, bíddu hérna smástund . .. “ „Ef þú ... “ reyndi Micuccio að segja, þótt hann mætti varla mæla af geðshrær- ingu „ef þú heldur að ég ætti að fara ... “ „Nei, bíddu bara smástund," flýtti gamla, góða konan sér að svara honum, vandræða- leg á svip. „En ég . .. “ hélt Micuccio áfram „veit ekki hvert ég ætti að fara í þessari borg og á þessari stundu ... “ Marta frænka fór frá honum og gaf hon- um bendingu um að bíða með hanska- klæddri hendinni og fór inn í borðstofuna, sem opnaðist eins og hyldýpi. Það hafði skyndilega slegið þögn á allan hópinn. Svo heyrði hann Teresínu segja hátt og snjallt: „Afsakið mig eitt augnablik, herrar mínir.“ Og honum sortnaði aftur fyrir augum þar sem hann beið þess að hún birtist. En Teres- ína lét ekki sjá sig og menn tóku aftur tal saman í borðstofunni. Nokkrum mínútum síðar, sem honum virtust vera heil eilífð, kom Marta frænka hins vegar aftur hatt- laus, kápulaus, hanskalaus og ekki eins vandræðaleg á svipinn á og áður. „Við skul- um bíða hérna svolítið, ha?“ sagði hún við hann. „Ég verð hérna hjá þér ... Núna eru þau að borða kvöldmatinn. Við verðum hér. Dorina leggur hér á borðið fyrir okkur og við borðum saman. Við tölum saman um gamla daga, ha? Ég get varla trúað því að ég sé hér ein með þér, væni... þarna inni er heill hópur af fyrirmönnum. Hún, vesal- ingurinn, fær engu að ráða um það.. . Starfið situr auðvitað fyrir öllu, er það ekki? Og hvað skal gera? Þú hefur séð dagblöðin! Stórglæsilegur listasigur, vinurinn minn! En fyrir mér er þetta eins og að ganga á vatni. Ég get varla trúað því að ég sé hérna með þér í kvöld . . . “ Og góða, gamla konan, sem hafði látið dæluna ganga svona af eðlisávísun og til þess að Micuccio fengi engan tíma til að hugsa, brosti að lokum og neri saman hönd- unum um leið og hún leit á hann, angurvær á svip. Dorina flýtti sér að leggja á borðið fyrir þau vegna þess að gestimir voru þegar bytjaðir að borða í borðstofunni í hinum endanum. „Kemur hún?“ Spurði Micuccio, dapur í bragði og með grátstaf í röddinni. „Bara til þess að ég geti séð hana.“ „Auðvitað kemur hún,“ flýtti gamla kon- an sér til að svara um leið og hún leitaðist við að leyna þeirri klípu, sem hún var í. ,tJafnskjótt og henni gefst tækifæri til þess. Ég er þegar búinn að segja þér það.“ Þau horfðu hvort á annað og brostu eins og þau könnuðust nú fyrst hvort við annað. í uppnámi sínu og kreppu höfðu sálir þeirra ratað á leið til að ná saman þessu brósi. „Þú ert Marta frænka,“ sögðu augu Micucci- os, „og þú ert Micuccio, alltaf sami góði drengurinn," sögðu augu Mörtu frænku. En allt í einu leit gamla konan niður fyrir sig, svo að Micuccio gæti ekki lesið meira úr augum hennar. Hún neri aftur saman höndunum og sagði: „Við skulum borða.“ „Ég er reglulega svangur," hrópaði hann rólegur og glaður í skapi. „Fyrst borðbænina, ég get farið með hana héma fyrir framan þig,“ bætti gamla konan við kankvís á svip. Hún deplaði augunum og signdi sig. Þjónninn kom inn með fyrsta réttinn. Micuccio fylgdist vei með því hvernig Marta bar sig að þegar hún fékk sér af fatinu. En þegar svo röðin kom að honum og hann rétti upp hendurnar, áttaði hann sig á því að þær vora óhreinar eftir þetta langa ferða- lag. Hann roðnaði, fór hjá sér og leit á þjón- inn, sem var nú hinn viðmótsþýðasti, kink- aði til hans kolli og brosti eins og hann væri að hvetja hann til dáða. Til allrar ham- ingju kom Marta frænka honum til hjálpar. „Svona, svona, Micuccio, ég skal skammta þér.“ Hann var henni svo þakklátur fyrir þetta að hann hefði getað kysst hana. Eftir að hann var búinn að fá á diskinn sinn flýtti hann sér að signa sig jafnskjótt og þjónninn var farinn. „Gott hjá þér, væni minn!“ sagði Marta frænka við hann. Og hann var al- sæll og allt var nú í stakasta lagi og hann fór að borða eins og hann hefði aldrei bragð- að mat fyrr á ævinni og án þess að muna eftir höndunum né þjóninum. í hvert skipti sem þjónninn fór inn í borð- stofuna eða úr henni gegnum vænghurðina barst samt sem áður kliður af ógreinilegu tali eða þá hlátrasköll. Micuccio sneri sér við kvíðafullur á svip og horfði svo í augu gömlu konunnar, en þau voru í senn dapur- leg og hlýleg. Það var engu líkara en hann væri að leita þar skýringa, en hann gat ekki lesið annað úr þeim en bón um að spyrja einskis meir í bili og geyma allar frekari skýringar til betri tíma. Og þau brostu bæði hvort til annars og fóra aftur að borða og tala um fjarlæga þorpið sitt, um vini og kunningja, sem Marta frænka var áfjáð í að fá fréttir af. „Viltu ekkert að drekka?" Micuccio rétti fram höndina eftir flösk- unni, en í sömu andrá opnaðist vængjahurð- in inn í borðstofuna. Þar var skijáf í silki, ys og þys og það var eins og herbergið yrði á augabragði baðað í svo sterkum ljósbjarma að Micuccio var nærri blindaður. „Teres- ína,“ og röddin brast, svo agndofa var hann. „Ó, hvílík gyðja!“ Kafijóður í framan, með uppglennt augun og gapandi munn hélt hann áfram að horfa á hana, alveg þrumu lostinn. En hvemig í ósköpunum stóð á því að hún leit svona út? Með beran barm, berar axlir, bera hand- leggi, öll skrýdd skínandi gulli og fegursta skrúða... Hann sá hana ekki lengur frammi fyrir sér sem lifandi veru. Hvað var hún að segja við hann. Þetta var ekki rödd hennar, augu hennar né hlátur. Hann kann- aðist ekki við hana lengur. Hún átti ekkert sameiginlegt með þessari draumsýn hans. „Hvernig hefurðu það? Þér líður betur núna, Micuccio? Það er gott að heyra .. . þú varst veikur, ef mér skjátlast ekki... Við sjáumst bráðum aftur... þú ert hérna í góðum höndum hjá mömmu. Er það ekki fínt?“ Og það skijáfaði í silkikjólnum hennar um leið og hún forðaði sér inn í borðstofuna. „Viltu ekki borða meir?“ spurði Marta frænka svolítið kvíðafull á svip. Hún var að reyna að lina áfallið, sem Micuccio hafði orðið fyrir. Hann leit naumast á hana. „Borðaðu,“ sagði gamla konan með áherslu um leið og hún benti honum á diskinn. Micuccio smeygði tveimur fíngrum niður um skítugan og krumpaðan kragann og dró hann niður til að ná betur andanum. „Viltu ekki borða eitthvað?" Hann renndi fingranum upp og niður eftir hökunni eins og hann væri að heilsa einhveijum, en með því vildi hann segja: „Mig langar ekkert í meira. Ég get það ekki.“ Hann þagði lengi, alveg bugaður og niðursokkinn í draumsýn sína, sem var nú nýhorfín og muldraði síðan í barm sér: „En hvað hún hefur breyst.“ Og hann sá að Marta frænka hristi höfuð- ið bitur á svip. Hún hafði líka hætt að borða eins og hún væri að bíða eftir einhveiju. „Það er alveg óhugsandi," bætti hann við svona eins og við sjálfan sig um leið og hann lagði augun aftur. Hann sá nú í myrkrinu sem umvafði hann þá hyldjúpu gjá sem hafði myndast á milli þeirra. Þetta var ekki lengur hún, þessi kona þama, ekki Teresína hans. Þessu var öllu lokið fyrir löngu, fyrir langa löngu og hann, þetta fífl, þessi heimskingi var núna fyrst að átta sig á þessu. Þeir vora löngu búnir að segja honum það þarna heima í þorpinu og hann hafði þijóskast við að trúa þeim. Og að hvers konar fífli gerði hann sig núna í þessu húsi? Ef allir þessir fyrir- menn, ef jafnvel þessi þjónn hefði bara vitað að hann, Micuccio Bonavino, hefði lagt á sig allt þetta erfiði og komið alla þessa löngu leið, þijátíu og sex tíma í lest, trúandi því í alvöra að hann væri ennþá trúlofaður þess- ari gyðju, en hvað þau hefðu hlegið, þessir herramenn og þessi þjónn og kokkurinn og hjálparkokkurinn og Dorina! En hvað þau hefðu öll hlegið ef Teresína hefði leitt hann fram fyrir þau þarna í borðstofunni og sagt: „Sjáið, þessi vesalings maður, þessi flautu- spilari, segist vilja vera maðurinn minn.“ Hún var heitbundin honum, það er satt. En hvernig gat hún vitað að hún yrði það sem hún er nú orðin? Og það var líka satt að hann hafði greitt götu hennar og stutt við bakið á henni fýrsta spölinn. En meðan hún hafði náð svona langt, svona ótrúlega langt hafði hann staðið í stað og haldið áfram að leika á flautu á sunnudögum á þorpstorg- inu. Hvemig gæti hann nokkum tíma náð henni eða komist til jafns við hana? Það væri algjörlega óhugsandi. Og hvað voru þessir smáaurar sem hann hafði eytt í hana eftir að hún var orðin fín dama? Hann blygð- aðist sín aðeins við tilhugsunina um að ein- hver kynni að grana hann um að vilja gera kröfu til þessara smáaura með því að koma hingað. Óg hann minntist þess nú að hann var með í vasanum peningana sem Teresína hafði sent honum meðan hann var veikur. Hann roðnaði. Hann skammaðist sín og stakk hendinni í jakkavasann, þar sem pen- ingaveskið var. „Ein af ástæðunum að ég kom hingað, Marta frænka,“ flýtti hann sér að segja „var sú að ég vildi skila ykkur aftur pening- unum, sem þið senduð mér. Hvað átti þetta að heita, greiðsla, endurgreiðsla? Ég sé ekki betur en Teresína sé orðin stórstjarna! Ég sé - ekkert. .. það er alveg óhugsandi! En þessa peninga, ég átti alls ekki skilið að fá þá frá henni. Þetta er allt búið. Tölum ekki meira um það. En varðandi peningana, þá er þetta því miður ekki öll upphæðin ... “ „Hvað ertu að segja, elsku drengurinn minn?“ greip Marta frænka fram í fyrir honum, niðurbrotin og með tárin í augunum. Micuccio gaf henni merki um að þegja. „Ég eyddi þeim ekki. Ættingjar mínir eyddu þeim á meðan ég var veikur án þess að ég hefði hugmynd um það! En þetta era pening- arnir að frádregnu því smáræði sem ég eyddi. . . manstu ekki? Hugsum ekki meira um það. Hér er afgangurinn. Og nú er ég farinn.“ „Ha? Ætlarðu að ijúka svona burt?“ hróp- aði Marta frænka og reyndi að halda í hann. Bíddu að minnsta kosti þangað til að ég er búin að segja Teresínu það. Heyrðirðu ekki að hana langaði til að sjá þig aftur? Ég ætla að fara að segja henni að .. . “ „Það er ekki til neins,“ svaraði Micuccio henni ákveðið. „Láttu hana vera hjá þessum fínu herrum. Þar líður henni vel, þar er hennar rétti staður. Ég, vesalingurinn, er búinn að sjá hana og það nægir mér... Farðu líka, farðu líka til þeirra ... Heýrirðu ekki hvernig þau hlæja? Ég vil ekki að það sé hlegið að mér. Ég er að fara... “ Marta frænka lagði þessa óvæntu ákvörð- un Micuccios út á versta veg, sem reiði- eða afbrýðisemiskast. Vesalings gömlu konunni fannst núna að allir sem sæju dóttir hennar hlytu að grana hið versta. Hún sjálf var óhuggandi og grét tímunum saman út af þessum ljóta grun. Hún var endalaust hijáð af innibyrgðum harmi, þar sem hún hrærð- ist þarna nauðug, viljug, í þessu taumlausa andstyggilega óhófi, sem engri almennilegri manneskju var í rauninni bjóðandi upp á og síst af öllu þreyttri og gamalli konu. „En ég,“ missti hún út úr sér „get ekki lengur litið eftir henni, væni minn.“ r „Hvers vegna?“ spurði Micuccio þá og þegar hann horfði í augu hennar skaut skyndilega upp í huga hans óvæntum gran og svipur hans myrkvaðist. Gamla konan örvinglaðist. Hún grúfði sig niður og skalf, en hún gat ekki með nokkru móti stöðvað táraflóðið, sem rann úr augun- um. „Já, já, farðu bara, væni minn, farðu,“ sagði hún með grátekka. Það er rétt hjá þér, hún er ekki lengur fyrir þig.“ „Svo þannig er það þá,“ hreytti Micuccio út úr sér um leið og hann beygði sig yfir hana og tók aðra höndina á henni með valdi frá andlitinu. En hún var svo mæðuleg og' aumkunarverð á svipinn þegar hún baðst miskunnar, með fíngur á vör, að hann sá sig um hönd og bætti við blíðri röddu um leið og hann reyndi að tala í hálfum hljóðum. „Nú já, svo hún er ekki samboðin mér. Nú er nóg komið, nú er nóg komið, ég fer samt sem áður... eða réttara sagt miklu fremur... Hvílíkur heimskingi get ég ver- ið, Marta frænka! Ég hafði ekkert skilið! Gráttu ekki... Hveiju skiptir það annars? Það era örlögin - eins og sagt er - það era örlögin." Hann tók litlu ferðatöskuna sína og pokaskjattann undan borðinu og hann var á leiðinni út, þegar hann mundi eftir því að þarna í pokanum voru fallegu súraldin- in, sem hann ætlaði að færa Teresínu að ^ heiman. „Sjáðu, Marta frænka,“ sagði hann. Hann leysti frá pokanum og hélt með ann- arri hendinni við opið á meðan hann lagði ferska ilmandi ávextina á borðið. „Ef ég léti öll þessi súraldin fjúka í haus- inn á þessum fínu herrum?“ bætti hann við. „í guðanna bænum,“ stundi gamla konan með tárin í augunum um leið og hún gaf honum bendingu um að hafa ekki hátt. „Nei, auðvitað ekki,“ hélt Micuccio áfram, rak upp stórkostlegan hlátur og stakk pokanum í vasann. „Ég hafði ætlað- mér að færa henni þau, en nú gef ég þér þau, Marta frænka og engri annarri.“ Hann tók eitt þeirra og bar það að vitum Mörtu frænku. „Finndu, Marta frænka, finndu bara ilminn heiman frá okkur - og að hugsa sér að maður varð að borga toll af þessu. Og ekki meira um það. Þau eru aðeins handa þér og engum öðrum, þú manst það. Og segðu henni frá mér að vonandi gangi henni allt í haginn ... “ Hann tók aftur upp litlu ferðatöskuna og fór. En þarna í stiganum fannst honum eins og hann væri alveg að tapa áttum. Hann var þarna einn og yfirgefinn að næt- urlagi í ókunnugri stórborg fjarri heima- högunum. Hann var vonsvikinn, bugaður og niðurlægður. Hann kom að útidyrunum og sá að það var hellirigning úti. Hann^ hafði ekki kjark í sér til að leggja út á þessi óþekktu stræti í þessum rigningark- alsa. Hann gekk aftur inn hljóðum skref- um, fór upp á neðsta stigapallinn og sett- ist síðan í neðsta þrepið og studdi olnbogun- um á hnén og með höfuðið á milli hand- anna fór hann að gráta í hálfum hljóðum. Þegar kvöldverðinum var um það bil að ljúka, birtist Sína Marius aftur í herberg- inu. Hún kom þar að móður sinni sem var þar ein og grét líka á meðan fínu herrarn- ir skeggræddu og hlógu. „Er hann farinn?“ spurði hún forviða. Marta frænka kinkaði kolli án þess að horfa á hana. Sína starði út í loftið annars hugar og svo stundi hún: „Vesalings maðurinn." En fyrr en varði var hún aftur farin að, brosa. „Sjáðu,“ sagði móðir hennar við hana án þess að geta stöðvað táraflóðið með servíettunni. „Hann færði þér súraldin." „En dásamlegt," hrópaði Sína og tókst öll á loft. Hún lagði annan handlegginn á mittið og með hinni hendinni tók hún eins mörg og hún gat mögulega borið. „Nei, ekki þangað inn, nei!“ mótmælti móðir hennar kröftuglega. En Sína yppti öxlum og hljóp hrópandi inn í borðstofuna: „Súraldin frá Sikiley, súraldin frá Sikiley.“ íslenskað hefur Halldór Þorsteinsson. Pirandello, 1867-1936, var ítalskur rithöfundur, þekktastur fyrir leikrit sín. Hann hlaut bók- menntaverðlaun Nóbels 1934. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 20. SEPTEMBER 1997 1 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.