Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1997, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1997, Blaðsíða 13
BÖRN Jóns Guðmundssonar og Hólmfríðar Þorvaldsdóttur á efri árum. Frá vinstri: Þorvaldur læknir á ísafirði, Kristín Krabbe, Sigurður fangavörður í Reykjavík. Kristín Jónsdóttir hefurgetab fagnaó þvíy að þessum tveimur sonum hennary Jóni og Thor- valdy skuli hafa runnió hlóóió til skyldunnar. Þeirguldu œttlandi móóur sinnar torfalöginy svo aó þar varó ekki heturgert. A morgni nýrrar aldar lögóu þeirframy hvor meó sínum hcettiy stóran skerf til framfarasóknar íslenxku þjóóar- innar\ verða vill. Þó man ég, að Jón Krabbe minnt- ist æskuheimilisins og foreldra sinna, þar sem móðirin talaði við hann íslenzku og faðir- inn dönsku, og af máli hans mátti glöggt skynja, hversu hinn íslenzki uppruni hafði skapað virðingu fyrir hinu fjarlæga ættlandi móðurinnar. Ennfremur talaði hann um ferð- ir sínar til íslands, sem verið höfðu fjölmarg- ar allt frá stúdentsárunum fyrir aldamótin og gert höfðu hann hugfanginn af hrifningu af náttúrufegurð landsins. Ekki óraði mig þá fyrir því, að hann ætti enn eftir að líta Island augum, en það varð þó raunin 1962, árið eftir að ég heimsótti hann. Veitingar höfðu verið fram bornar, kaffi, kökur og sherryglas. Þetta hafði verið nota- leg stund og minnistæð, að sitja með dóttur- syni Jóns ritstjóra og geta þannig tengt sam- an ár og aldir í huganum. Mér fannst ég fá staðfestingu á því, að allt það, sem ég hafði um manninn heyrt, væri ekki ofsögum sagt. Honum kippti sannarlega í kyn foreldra sinna, Kristínar og Haralds Krabbe, og að hinn góði arfur frá Hólmfríði Þorvaldsdóttur og Jóni Guðmundssyni, hefði skilað sér til Jóns Krabbe. Það var liðið á dag og tími til kominn að kveðja húsráðanda og þakka fyrir sig. Hann stóð á fætur, kvaddi mig með þéttu hand- taki og hlýlegum svip. Eg gekk frá stofu þessa gróna og háborgaralega heimilis, út úr hinu virðulega húsi, sem hafði fremur svip 19. aldar en þeirrar, sep þá var liðlega hálfnuð, en nú er senn öll. Ég hafði skynjað andblæ hins liðna leika um mig, en nú gekk ég út á vit nútímans og hins danska vors. Enn lifði Jón Krabbe talsvert á fjórða ár eftir fund okkar, lézt í Kaupmannahöfn 20. október 1964, á 91. aldursári. Frú Margr- ethe, kona hans, lifði hann í 6 ár, lézt 26. nóvember 1970, 94 ára. 13. Hinn þriðji í bræðraröðinni af sonum Kristínar Jónsdóttur og Haralds Krabbe var Thorvald Haraldsen Krabbe, sem fæddur var í Kaupmannahöfn 21. júní 1876. Fyrir hon- um átti að liggja að tengjast sögu íslands, eins og Jóni, bróður hans, þótt með ólíkum hætti væri. Hann lauk háskólaprófi í bygg- ingaverkfræði aldamótaárið, en var síðan um hríð starfandi verkfræðingur í Höfn. Thorvald kvæntist árið 1902 frænku sinni, Sigríði, dóttur Þorvalds læknis á ísafirði, og áttu þau saman dótturina Helgu (f. 1904), títtnefnda á þessum blöðum, sem er nýlátin. Thorvald og Sigríður eignuðust aðra dóttur, 24. desember 1905, og lézt móðirin unga sama dag, en barnið vorið eftir. A árinu 1907 kvæntist Thorvald danskri konu Marg- arethe Krabbe (1871-1953), en þau voru barnlaus. Árið 1906 urðu þau umskipti á högum Thorvalds Krabbe - sem áreiðanlega hafa glatt Kristínu, móður hans - að hann var kvaddur til starfa á íslandi af ráðherra hinn- ar ungu heimastjórnar, Hannesi Hafstein. Fluttist hann til Reykjavíkur um vorið, byggði fljótlega sitt eigið hús við Tjörnina og hóf störfín heima hjá sér, „fullur af löng- un eftir að fá að vinna fyrir land móður minnar“, eins og hann komst síðar að orði. Var starf hans í upphafi skilgreint sem „verkfræðingur til aðstoðar fyrir landsstjórn og héraðsstjórn". Hann varð annar tveggja landsverkfræðinga, sem þá störfuðu á vegum landsstjórnarinnar, en hinn var Jón Þorláks- son, síðar ráðherra. Thorvald Krabbe komst svo að orði löngu síðar í „Tímariti Verkfræð- ingafélags íslands": „Þá er eg kom hingað, var ísland frá tekn- ísku sjónarmiði sama sem óskrifað blað. Fáir voru íslenzku verkfræðingarnir, lítið hafði verið unnið annað en byrjun á vega- og brúakerfi landsins. Símakerfið var í undirbúningi, en þar með var allt talið. Rafmagn var sem nær óþekkt, hafn- argerðir engar, enda þótt hreyfing væri komin á undirbúning Reykjavíkurhafnar. Vatnsveitur og fráræsla á skolpi var mjög óvíða, húsagerð mjög stutt komin. En á mörgum sviðum var áhuginn að vakna.“ Hér voru ærin verkefni framundan fyrir hina nýju heimastjórn og verkfræðing henn- ar, enda var tekið til höndunum. Fyrstu verk Thorvalds Krabbe voru tengd bryggju- og hafnargerð víða um land, Akureyri, Blöndu- ósi, Húsavík, Hafnarfirði og víðar, síðan fljót- lega framkvæmdir og ráðgjöf á vegum bæj- arstjórnar í Reykjavík við stærsta mannvirki í undirbúningi, hafnargerðina í bænum, sem hófst svo árið 1913. Þó má segja, að vitamálastjómin hafi verið höfuðverkefni Thorvalds Krabbe, fyrst vita- byggingar í náinni samvinnu við Dani, en síðan alfarið frá 1909 undir stjórn hans, nefndur vita- og hafnarmálastjóri frá 1918. Voru hér í upphafí ferils hans taldir 8 vitar, en alls reistír 62 í viðbót á tímabilinu, og voru það gríðarlegar framfarir fyrir alla þá, sem stunduðu siglingar við strendur landsins. Þótti Thorvald Krabbe rækja þetta brautryðj- endastarf í uppbyggingu vitakerfisins af mikl- um áhuga og dugnaði. Hann hafði náið sam- starf við alla vitaverði landsins, sem luku lofsorði á samvinnuna við hann, þegar hann kvaddi embættið. Og út á land þurfti hann oft að ferðast til að fylgjast með framkvæmd- um. Hafa þær ferðir, ýmist á hestbaki, eða á skipum með ströndum fram, gert verkfræð- ingnum ljósara en ella hvers Island þurfti við, ætti það að hafa einhverja möguleika á að verða jafnað saman við nærliggjandi lönd. Um ferðimar sagði hann, að þær hefðu gefið honum „einstakt tækifæri til að kynnast landi og lýð, skilja eðli landsins og þjóðarinnar." Thorvald Krabbe var ráðunautur bæjar- stjórnar Reykjavíkur um byggingu gasstöðv- ar árið 1909, og hófst lýsing með gasljósum í bænum árið eftir. Hann var athafnasamur þátttakandi í þróun iðnaðar, sér í lagi járn- og skipasmíða, m.a. stóð hann að stofnun Slippfélagsins, Vélsmiðjunnar Hamars o.fl. og gegndi þar stjórnarstörfum. Hann lét einnig til sín taka í félagsmálum, m.a. oft formaður Verkfræðingafélags íslands, var í stjórn Dansk-íslenzka félagsins o.fl. Thorvald Krabbe þótti ötull og samvizku- samur, „ embættismaður út í fingurgóma. [... ] Strangheiðarlegur í peningamálum að því er ég best veit, en smásmugulegur nokkuð,“ segir Sigurður Thoroddsen, verk- fræðingur, í minningum sínum „Eins og gengur“. Hann lagði dijúgan skerf til verk- legra framfara á Islandi á því tímabili, þeg- ar þjóðin var að rísa úr öskustó hins liðna og hefja göngu sína inn í nýja tækniöld. Sjálfur hefur Thorvald Krabbe sagt svo frá, þegar hann lét af störfum eftir þriggja ára- tuga embættisstörf á íslandi, að á sínu verk- sviði hafi verið um að ræða þróun „frá lítilli stöðu, er ég rækti einsamall heiman frá skrifborði mínu, þangað til ég nú sleppi stjórn á þýðingarmiklu og marg- brotnu embætti, með marga starfsmenn, verkfræðinga, skrifstofufólk, vitaverði o.fl.“ Thorvald Krabbe var velmetinn borgari og setti svip sinn á bæjarbraginn í Reykja- vík á fyrsta þriðjungi aldarinnar. Hann var dökkur yfirlitum, með vel snyrt alskegg, al- vörugefinn á svip, og tekið var eftir honum á gönguferðum, eða þegar hann tók hjólhest sinn og fór í hjólreiðaferðir um bæinn og nágrenni hans. Móðurmálið frá bernsku- heimilinu í Kaupmannahöfn hefur hann rifj- að upp og varð þar sæmilega fær, en dansk- an var honum þó ávallt tamari á tungu. Greinilega má marka ræktarsemi hans við upprunann á því, að árið 1913 gaf hann út rit um ætt sína, „Niðjatal Þorvalds Böðvars- sonar prests á Holti undir Eyjafjöllum og Björns Jónssonar prests í Bólstaðarhlíð“. Helga Krabbe, einkadóttir Thorvalds, ólst upp við Tjarnargötuna, gekk í Landakots- skólann, hélt síðan áfram menntabrautina og hóf nám haustið 1918 í lærða skólanum gamla við Lækjargötu. Hann hét þá form- lega Hinn almenni menntaskóli í Reykjavík, og var í litlum mæli farinn að veita stúlkum skólavist. Þegar Helga varð stúdent vorið 1924, voru sjö stúlkur, sem útskrifuðust, en 34 piltar, og höfðu þá ekki áður jafnmargar stúlkur lokið stúdentsprófi í einu. Þegar' faðir Helgu Krabbe fór um landið í embættiserindum, tók hann oft konu sína og dóttur með sér í þau ferðalög. Árið 1936 fór hann um Skaftafellssýslur, og voru þær þá báðar með honum í þeirri ferð. Þá fóru þau ríðandi yfir vötnin, en þess má geta, að ein- mitt um þær mundir var búizt við, að Skeið- ará mundi hlaupa einhveija næstu daga. Þessi ferð hefur áreiðanlega komið upp í huga Helgu Krabbe, þegar hún heyrði um Skeiðar- árhlaupið í nóvember 1996, enda þótt hún nefni það ekki sérstaklega í fréttinni í Morg- unblaðinu, sem vitnað var til hér í upphafi. Helga fluttist af landi brott til Danmerkur árið 1933, en Thorvald faðir hennar lét af störfum samkvæmt eigin ósk vorið 1937, tæplega 61 árs gamall, og fluttist þangað einnig. Hann kvaddi land og þjóð með ávarpi í Ríkisútvarpinu 30. apríl 1937, auðsjáanlega mjög sáttur við dvöl sína og störf á íslandi. Hann kvaðst hafa komið víða á ferðum sínum, „kynnzt mörgum, mér hefir allsstaðar verið tekið svo ótrúlega vel, jafnvel þar sem ég hefi komið í fyrsta skipti hefir mér verið tekið sem vin, mjög víða jafn- framt sem frænda. Þessar heimsóknir og viðkynningar eru einhveijar mínar dýr- mætustu endurminningar frá dvöl minni hér á landi." Á næstu árum setti hann saman stórt, sögulegt rit um verklegar framkvæmdir á íslandi, „Island og dets tekniske Udvikling gennem Tiderne", sem út kom í Danmörku árið 1946. Thorvald Krabbe var búsettur í Kaupmannahöfn til dauðadags, 16. maí 1953, nær 77 ára að aldri, og kona hans lézt sama ár. Kristín Jónsdóttir hefur getað fagnað því, að þessum tveimur sonum hennar, Jóni og Thorvald, skuli hafa runnið blóðið til skyld- unnar. Þeir guldu ættlandi móður sinnar torfalögin, eins og hér hefur verið lýst, svo að þar varð ekki betur gert. Á morgni nýrr- ar aldar lögðu þeir fram, hvor með sínum hætti, stóran skerf til framfarasóknar ís- lenzku þjóðarinnar, sem leiddi til sigurs hennar í þjóðfrelsisbaráttunni. Þeir gengu þar í fótspor afa síns, Jóns Guðmundssonar, ritstjóra, reykvíska „uppreisnarmannsins“, sem tók sér stöðu við hlið félaga síns og vinar, forsetans Jóns Sigurðssonar, í upp- hafí þeirrar baráttu og lengi síðan. Þá er lokið þessum þáttum úr sögu frænd- garðs Helgu Krabbe - konunnar, sem sendi Islendingum væna peningagjöf til að byggja upp veginn eftir náttúruhamfarirnar á Skeið- arársandi - hennar, sem var tilefni þessara skrifa minna. Heimildir: Bréf J6ns Guðmundssonar til Jóns Sigurðssonar í Þjóð- skjalasafni. Gögn úr fórum Thorvalds Krabbe í Þjóðskjalasafni. Björn Bjarnason (frá Viðfirði): „Frú Kristín Krabbe“, Óðinn 12. marz 1911. „Niðjatal Þorvalds Böðvarssonar prests á Holti undir Eyjafjöllum og Björns Jónssonar prests í Bólstaðar- hlíð“. Útg. Th. Krabbe, Rv. 1913. Indriði Einarsson: „Sjeð og lifað“, Rv. 1936. Jón Helgason (prófessor): „Jón Krabbe sjötugur, Frón 1. 1944. Jón Krabbe: „Trúnaðarmaður íslands í nálega 50 ár“. Ræða. Lesbók Morgunblaðsins 21. júlí 1946. Guðrún Borgfjörð: „Minningar“, Rv. 1947. Pétur Benediktsson: „í 55 ára þjónustu ísl. ríkisstjórna vann Jón Krabbe fyrrum sendifltr. margvísleg ómetan- leg störf“, Morgunblaðið 13. ágúst 1953. Jón Krabbe: „Frá Hafnarstjórn til lýðveldis. Minningar frá löngum embættisferli“, í þýðingu Péturs Benedikts- sonar, Rv. 1959. Einar Laxness: „Jón Guðmundsson ritstjóri og alþingis- maður, þættir úr ævisögu“, Rv. 1960. Pétur Benediktsson: „Jón Krabbe níræður“, Morgun- blaðið 5. janúar 1964. Bcnedikt Gröndal: „Dægradvöl“, Rv. 1965. Einar Laxness: „Jón Guðmundsson og Reyly’avík“, Lesbók Morgunblaðsins 29. júní 1975. „Bréf ti! Jóns Sigurðssonar. Úrval. Bréfritarar Jens Sigurðsson, Jón Pétursson, Jón Guðmundsson, 2. bindi“, Rv. 1984. Einar Laxness, Finnbogi Guðmunds- son og Jóhannes Halldórsson önnuðust útgáfuna. [Bréf Jóns Guðmundssonar 1845-1855]. Sigurður Thoroddsen: „Eins og gengur. Endurminn- ingar“, Rv. 1984. Viðtal í Ríkisútvarpinu við Baldur Möller, 1995. Höfundur er sagnfræðingur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. JÚNÍ 1997 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.