Lesbók Morgunblaðsins - 14.12.1996, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 14.12.1996, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Halldór NIKULÁS Sigfússon, Sigrún Nikulásdóttir og S. Anna E. Nikulásdóttir í Gallerí Mýri. FEÐGIN í MÝRI NÝTT gallerí, Gallerí Mýri, hefur tekið til starfa í kjallaranum á Löngu- mýri 15 í Garðabæ. Reksturínn hafa húsráðendur, hjónin Jón Hörður Jóns- son og S. Anna E. Nikulásdóttir, með hönd- um og er sú síðarnefnda jafnframt þátttak- andi í fyrstu listkynningunni sem fram fer í galleríinu ásamt föður sínum, Nikulási Sigfússyni, og systur sinni, Sigrúnu Niku- lásdóttur. Anna lauk námi frá Myndlistar- og hand- íðaskóla íslands vorið 1992 en „fór ekki af stað“ fyrr en síðastliðið vor, svo sem hún kemst að orði. Grafíkin er hennar fag og hefur listakonan verið með vinnustofu í gömlu ísafoldarverksmiðjunni í Reykjavík. „Síðan var mig tilfinnanlega farið að vanta vinnuaðstöðu heima og þar sem ég tek svo mikið pláss með allt mitt hafurtask ákvað ég að innrétta íbúð í kjallaranum sem gall- erí.“ Anna kveðst fyrst og fremst líta á Gall- erí Mýri sem vinnustofu og vettvang fyrir kynningu á list þeirra feðgina, þótt ekki sé útilokað að aðrir listamenn fái þar inni í framtíðinni. Opnunartíminn verði sveigjan- legur, „fólk þarf bara að hringja", og alltaf verði einhver kynning í gangi. „Ætli ég skipti ekki um verk, þegar ég verð orðin leið á þeim sem fyrir eru.“ Nikulás sýnir nýlegar vatnslitamyndir í Gallerí Mýri. Hann er yfirlæknir að atvinnu og sinnir myndlistinni eingöngu í tóm- stundum, þótt hann hafí efnt til nokkurra einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýn- inga. „Eg málaði mína fyrstu mynd níu ára gamall og hef verið að dútla við þetta síðan, einkum síðastliðna tvo áratugi. Ég mála eingöngu vatnslitamyndir enda eru minni líkur á að maður nái árangri ef maður dreifir kröftunum, auk þess sem vatnslitirnir eru svo erfiðir viðureignar að þeir krefjast eiginlega óskiptrar athygli manns." Sigrún á keramikverk á kynningunni. Hún útskrifaðist frá Myndlistar- og hand- íðaskóla íslands á liðnu vori og sýnir verk sín nú í fyrsta sinn á opinberum vettvangi, ef undan er skilin útskriftarsýningin. Sigrún stundar list sína á handverkstæðinu Osku í Reykjavík, ásamt tveimur stöllum sínum, og kveðst hafa valið keramik fyrir þær sækir að handverkið liggi betur fyrir henni en málverkið. Framhald r r> •• a Sogu Islands SIGURÐUR Líndal forseti Hins íslenska bók- menntafélags segir að þegar verði tekið til óspilltra málanna við að búa sjötta og sjöunda bindi Sögu íslands undir útgáfu en, svo sem fram kom í Morgunblaðinu í gær, er á fjárlög- um 1997 gert ráð fyrir að félagið fái sex milljóna króna framlag úr ríkissjóði til að ljúka útgáfu ritraðarinnar. Síðasta bindi af Sögu íslands, hið fímmta í röðinni, kom út árið 1991 en að sögn Sigurð- ar var í upphafi samið um útgáfu fímm binda. Fljótlega hafi hins vegar komið í ljós að verk- ið yrði mun umfangsmeira og þykir honum raunhæfara í dag að bindin verði níu eða tíu talsins þegar upp er staðið. Sigurður segir að búið sé að skrifa drög að tveimur næstu bindum, einungis eigi eftir að „fylla í skörðin, endurskoða, slípa og fága“. Þar af leiðandi verði róið að því öllum árum að þau muni bæði, í það minnsta fyrra bind- ið, koma út á næsta ári. Mun sjötta bindið ná frá Siðaskiptum fram til um 1680 og hið sjöunda frá 1680 til aldamótanna 1800. ---♦ «----- Handrit eftir Wagner á 8 milljónir FYRSTU drög þýska tónskáldsins Richards Wagner að óperunni „Tannhauser" sem komu í leitirnar fyrir skemmstu, voru seld á upp- boði hjá Sotheby’s fyrir um 8,5 milljónir ísl. kr. Handritið, sem er áritað af Wagner, komst í hendur uppboðsfyrirtækisins þegar ónefndur maður frá Austur-Evrópu benti á það. Hand- ritið var nýársgjöf Wagners til svissneska hljómsveitarstjórans Wilhelms Baumgartners árið 1852 en lítið er vitað í hvaða höndum það lenti eftir það. Wagner lauk við óperuna árið 1842 og sam- kvæmt handritinu gerði hann allnokkrar smá- breytingar á henni frá fyrstu drögunum, bæði í texta og tónum. Þá er lokakafli hennar breyttur frá því sem nú er. Það var Þjóðvetji sem hefur sérhæft sig í sölu á handritum og nótum, sem keypti hand- rit Wagners fyrir mun lægra verð en búist hafði verið við að fengist fyrir það. Styttist í Villi- öndina ÆFINGAR eru vel á veg komnar á jólaleikriti Þjóðleikhúsins sem að þessu sinni er Villiöndin eftir Henrik Ibsen. Villiöndin er af mörgum talið eitt allra besta leikrit Ibsens og segir frá ljósmyndaranum Hjálmari Ekdal og fjölskyldu hans. Þrátt fyrir þröngan kost unir fjölskyldan glöð við sitt þar til dag einn er gamall vinur fjölskyldu- föðurins birtist óvænt og ógnar ör- uggri tilverunni. I aðalhlutverkum eru Pálmi Gests- son, Edda Heiðrún Backman, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Sigurður Sig- urjónssson. Aðrir leikendur eru Gunn- ar Eyjólfsson, Anna Kristín Arngríms- dóttir, Róbert Arnfinnsson, Magnús Ragnarsson, Sigurður Skúlason, Bessi Bjarnason, Arni Tryggvason, Flosi Ólafsson og Valur Freyr Einarsson. Lýsingu hannar Björn Bergsteinn Guðmundsson, höfundur leikmyndar er Gretar Reynisson, höfundur bún- inga Elín Edda Árnadóttir, þýðandi Krislján Jóhann Jónsson og leikstjóri er Stefán Baldursson. ÆFINGAR standa nú yfir á jólaleikriti Þjóðleikhússins, Villiöndinni eftir Henrik Ibsen. MENNING/ LISTIR í NÆSTU VIKU MYNDLIST Ásmundarsafn - Sigtúni Mótunarárin í list Ásmundar Sveinsson- ar. Kjarvalsstaðir - Flókagötu Sýn. á aðföngum safnsins sl. 5 ár. Sýn. á verkum Kjarvals til 22. desember. Listasafn Islands Sýn. „Á vængjum vinnunnar" til 19. jan. Gallerí List - Skipholt 50b Guðrún Indriðad. sýnir út mán. Listasafn Kóp. - Hamraborg 4 Afmælissýn. Ljósmyndaraf. Ísl./Guð- björg Pálsd./Alistair Maclntyre/til 15. des. Listhús 39 - Strandgötu 39 Hf. Samsýningin „Dýr-Gripir“ til 24. des. Gallerí Hornið - Hafnarstræti 15 Ella Magg sýnir til 30. des. Ófeigur - Skólavörðustíg 5 Frank Reitenspiess sýnir til 23. des. Mokka - Skólavörðustíg Ari Alexander Ergis sýnir til 6. jan. Undir pari - Smiðjustíg 3 Sólveig Þorbergsd. sýnir til 14. des. Gallerí Smíðar & Skart - Skólavörðu- stíg Englaveisla, samsýning til 20. des. Sólon íslandus - við Bankastræti Cheo Cruz sýnir til 6. jan. Gallerí Fold - Laugavegi 118 Jólasýning fram yfir hátíðimar. Onnur hæð - Laugavegi 37 Lawrence Weiner sýnir til áramóta. Listþjónustan - Hverfisgötu 105 Gunnar Örn sýnir til 23. des. Sjónarhóll - Hverfisgötu Guðrún Kristjánsdóttir sýnir til 15. des. Gerðuberg - Gerðubergi 3-5 Sjónþing Guðrúnar Kristjánsd. til 15. des. Gallerí Listakot - Laugavegi 70 13 listakonur sýna verk sín. Galleríkeðjan - Sýnirými Sýn. í des.: í sýniboxi: Lýður Sigurðsson. í barmi: Vilhjálmur Vilhjálmsson. Berandi: Gera Lyn Stytzel. Hlust: 551 4348: Haraldur Jónsson. Laugardagur 14. desember Jólatónl. Tónlistarsk. Borgfirðinga í Logalandi kl. 14 og Söng deildartónleik- ar í Borgarneskirkju kl. 18. Lúðrasveit- artónleikar í Ráðhúsinu kl. 17. Sunnudagur 15. desember Kór Landakirkju og Diddú í Landa- kirkju kl. 20.30. Drengjakór Laugarnes- kirkju í Langholtskirkju kl. 20. Aðventu- tónl. í Skálholtskirkju kl. 21. Orgeltónl. í Hallgrímskirkju; franski orgelleikarinn Jean Galard kl. 20.30. Aðventuhátíð Tónlistarfélags V-Húnvetninga í Víði- hlíð kl. 21. Jólatónleikar Tónskóla grunnskólanna í Grafarvogi í Grafar- vogskirkju kl. 16. Mánudagur 16. desember Tónleikar Strengjasveitar Tónlistarskól- ans í Reykjavík í Grensáskirkju kl. 20.30. Þriðjudagur 17. desember Jólatónl. Tónlistarsk. Rangæinga í Hellubíói kl. 20.30. Miðvikudagur 18. desember Jólatónl. Tónlistarsk. Rangæinga í Heimalandi kl. 20.30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Villiöndin frums. 26. des. Leitt hún skyldi vera skækja fös. 27. des. í hvítu myrkri sun. 29. des. Borgarleikhúsið Trúðaskólinn sun. 29. des. Svanurinn lau. 28. des. BarPar fös. 27. des. Stone Free fös. 27. des. Loftkastalinn Áfram Latibær lau. 28. des. Á sama tíma að ári sun. 15. des. Sirkus Skara Skrípó lau. 28. des. Leikfélag Akureyrar Dýrin í Hálsaskógi sun. 15. des. Undir berum himni sun. 29. des. Furðuleikhúsið Jólin hennar ömmu lau. 14. des., sun. Gerðuberg 10 fingur sýnir „Jólaleik" kl. 14. á sun. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgun- blaðið, Menning/listir, Kringlunni 1,103 Rvík. Myndsendir: 569 1181. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. DESEMBER 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.