Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1996, Page 15
SPESSI MEÐ SÝNINGU í HAFNARHÚSINU
Morgunblaóið/Kristinn
„ÉG VAR að leita að einhverju sérstöku í venjulegu fólki," segir Spessi
um Ijósmyndasýningu si'na íHafnarhúsinu.
TILRAUN UM PORTRETT
„ÞETTA ER tilraun,“ segir ljósmyndar-
inn Spessi um sýningu sem hann heldur
nú í Hafnarhúsinu, „þetta er tilraun með
portrettið. Ég reyni að láta fólkið á
myndunum koma fram í sinni tærustu
mynd. Hér er enginn leikur með ljós eða
sjónarhorn, myndirnar eru teknar beint
framan á fólkið, bakgrunnurinn er hvít-
ur og myndirnar eru í fullri manns-
stærð. Eg reyni ekki að breyta neinu.
Þetta eru myndir af hinum venjulega
manni eins og hann er úti á götu þar
sem við sjáum hann yfirleitt ekki, þar
sem við veitum honum nánast aldrei
athygli.
Það er vissulega vænlegra að fá ein-
hvern frægan til að silja fyrir og brosa
og þar með gera viðkomandi ódauðleg-
an, lifandi vitnisburð um eigin frægð.
En ég, ég er vinur litla mannsins, af því
að ég er hann. Mér datt í hug að taka
myndir af venjulegu fólki og sjá hvort
það yrðu ekki góðar myndir.
Ég var að leita að einhverju sérstöku
í venjulegu fólki, um leið og ég sá það
bað ég um að fá að mynda það. Ef ég
fengi að skipta um fræga fólkið eins og
við þekkjum það í dag myndi ég selja
þetta fólk í staðinn. Þú veist allt um
frægar manneskjur af því að þú sérð
þær svo oft. En þú sérð svo sjaldan venju-
legar manneskjur þó þú mætir þeim á
hveijum degi. Þekkjum við ekki neinar
venjulegar manneskjur af því að við
sjáum ekki myndir af þeim á hveijum
degi?
Niðurstaða tilraunarinnar er sú að um
leið og maður hefur tekið hinn venjulega
mann út úr mergðinni verður hann sér-
stakur; hann hættir að vera venjulegur
og verður einstakur.“
Sýningin stendur til 26. október.
HOLLENSKUR
FLAUTUKVARTETT í
SIGURJÓNSSAFNI
HOLLENSKI flautukvartettinn Brisk held-
ur tónleika í Sigutjónssafni á sunnudag kl.
20.30. Á verkefnaskrá kvartettsins eru tón-
smíðar frá barokk- og endurreisnartímanum
sem og nútímaverk, sum hver samin sér-
staklega fyrir kvartettinn. Þá hefur kvart-
ettinn einnig lagt áherslu á létta og hraða
tónlist í anda Henry Purcell og Matthew
Locke.
Leikió vióa um Evrópu
„Brisk kvartettinn var stofnaður árið
1985 af þeim Maijan Banis, Alide Verheij,
Jantien Westerveld og Bert Honig en þau
lærðu öll fiðluleik í Sweelinck Conservatory
í Amsterdam. Þau hafa haldið fjölda tón-
leika í Hollandi.
Þá hefur kvartettinn leikið á tónleikum
víða um Evrópu og tekið þátt í mörgum
þekktum tónlistarhátíðum. Einnig hefur
kvartettinn komið oft fram í útvarpi og sjón-
varpi og mun á þessu ári halda hljómleika
bæði í Þýskalandi og í Bandaríkjunum.
Til þess að ná hinum rétta hljómi nota
fjórmenningarnir margar tegundir af flaut-
HOLLENSKI flautukvartettinn Brisk heldur
tónleika í Sigurjónssafni á sunnudag.
um. Þeirra á meðal er blokkflautusafn sem
smíðað er af Englendingnum Adrian
Brown,“ segir í kynningu.
MARGAR
SKOÐUNARVERÐ-
AR SÝNINGAR
r
Ahugamenn um myndlist þurfg ekki aó sitjg auóum
höndum í skammdeginu því aó íslensk listasöfn
bjóða upp ó margar skoðunarverðar sýningar.
ÞRÖSTUR HELGASON leit í sýningarskrór safnanna.
í LISTASAFNI íslands vekja þrjár sýningar
sérstaka athygli. Afmælissýning Asgríms Jóns-
sonar verður opnuð 19. október. Liðin eru 120
ár frá fæðingu Ásgríms og verður í tilefni
þess sýnt úrval verka úr listaverkagjöf hans í
efri sölum listasafnsins. íslensk náttúra var
meginviðfangsefni Ásgríms og eru landslags-
myndir flestar meðal málverka í safni hans
en einnig má nefna þjóðsagnamyndir, manna-
myndir, blómamyndir og mannlífsmyndir. Enn-
fremur verða sýnd ýmis gögn úr fórum lista-
mannsins sem varpa ljósi á líf hans og starf.
Á vængjum vinnunnar nefnist sýning á verk-
um Edvards Munchs sem mun sýna óvænta
og lítt þekkta hiið á þessum mikilhæfa lista-
manni. Hér kemur Munch fram sem sérstakur
áhugamaður um stritvinnu og líf verkafólks.
Nokkrum sinnum á ferli sínum tók Munch sig
tii og málaði myndir af verkafólki, bændum
og sjómönnum við ýmis störf eða leik. Meðal
stærstu verka Munchs er einmitt langmynd
af verkafólki sem hann gerði fyrir Freia-verk-
smiðjuna í Ósló. Á sýningunni, sem verður
opnuð 9. nóvember, verða 66 verk, olíumál-
verk, teikningar og grafísk þrykk.
Einnig vekur sérstaka athygli sýning á
höggmyndum eftir Max Ernst en hann var
einna fjölhæfastur þeirra listamanna sem telj-
ast til súrrealismans. Jafnframt því að fást við
myndlist var Ernst afkastamikill rithöfundur
og fyrirlesari. Hann hafði sérstakan áhuga á
því hvernig list frumstæðra þjóða hefði haft
áhrif á vestræna list. Þessi áhugi birtist meðal
annars í ævilangri gagnrýni hans á svonefnda
siðmenningu. Sýningin, sem hefst 8. febrúar,
gefur yfírlit yfír verk Emsts á ámnum 1930
til 1974. Einnig verða sýndar ljósmyndir af
honum teknar af mörgum þekktustu ljósmynd-
urum aldarinnar, svo sem Man Ray, Bill Brandt
og Henri Cartier-Bresson.
Þijár aðrar sérsýningar verða í Listasafni
ísiands í vetur; sýning á verkum Eiríks Smiths
verður opnuð 6. desember, í mars og maí verða
sýnd verk sem safnið hefur keypt síðustu ár og
í apríl og maí verða sýndar erlendar teikning-
ar en þar sýna sextán listamenn sem eiga það
sameiginlegt að vinna teikningar sem liggja
nær fagurfræði hugsunarinnar en viður-
kenndri fagurfræði forms og línu.
Pósl-húmanismi og
mikió innlent
Fjórar sýningar eru fyrir áramót á Kjarvais-
stöðum, sýningar á verkum Jóhannesar Kjarv-
als, Robertos Matta og Guðrúnar Gunnarsdótt-
ur standa fram í miðjan október en 2. nóvem-
ber verður opnuð sýning á nýjum verkum í
eigu listasafnsins.
Yfirlitssýning á verkum Hrings Jóhannes-
sonar verður opnuð 11. janúar auk sýninga á
verkum eftir Jónínu Guðnadóttur og Kjarval
frá árunum 1930 til 1945. Tvær athyglisverð-
ar sýningar hefjast svo 22. febrúar. Sýning í
vestursal sem nefnist Post-humanisme inni-
heldur verk eftir Peter Angermann, David
Boives, Helga Þorgils Friðjónsson, Jan Knap,
Milan Kunc, Luigi Ontani, Alexis Rockman og
Salvo. í miðsal mun hins vegar Ólafur Elías-
son sýna ný verk, hann hefur starfað erlendis
og er þetta fyrsta einkasýning hans hér á landi.
Yfirlitssýning á glerskúlptúrum Larrys Bells
verður opnuð 5. apríl. Sumarsýning Kjarvals-
staða verður svo á verkum úr eigu listasafnsins.
I Listasafni Kópavogs verður megináhersla
lögð á innlenda listamenn. Nú standa þar yfír
sýningar á málverkum Ragnheiðar Jónsdóttur
og Þorbjargar Höskuldsdóttur og gullsmíða-
munum Sigurðar Þórólfssonar. Hrólfur Sig-
urðsson sýnir málverk, Sigrid Valtingöjergraf-
ík og Gunnar Árnason þrívíð verk á sýningum
sem hefjast 26. október. Ljósmyndarafélag
Islands heldur svo sýningu sem hefst 15. nóv-
ember í tilefni af 70 ára afmæli sínu. Á sama
tíma verða opnaðar sýningar á málverkum
eftir Alistair Macintyre og þrívíðum verkum
eftir Guðbjörgu Pálsdóttur.
í janúar verður afmælissýning á vegum
Blaðamannafélagsins og Félags fréttaljós-
Á VÆNGJUM vinnunnar nefnist sýning é
verkum Edvards Munch í Listasafni ís
lands. Myndin heitir Verkamenn í snjó.
myndara í Listasafni Kópavogs. 8. febrúar
verða opnaðar sýningar á þrívíðum verkum
eftir Helga Gíslason, lágmyndum eftir Ásdísi
Sigurþórsdóttur og málverkum Sólveigar Jón- **
asdóttur. Sveinn Björnsson og Sigurbjöm Jóns-
son sýna málverk í apríl og Gréta Mjöll grafík.
I Hafnarborg stendur nú yfír afmælissýning
Leirlistarfélagsins, en 19. október opna Jón
Garðar Henrysson og Helgi Ármanns mál-
verkasýningar. Jón Óskar sýnir málverk í nóv-
ember og um leið verður opnuð sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Ljósmyndasýningar
Michaels Moore og Hermanns Smára hefjast
10. janúar.
Fimm sýningar eru á dagskrá Listasafninu
á Akureyri fram að áramótum. I september
sýndi Einar Helgason í austursal myndir unnar
með vatnslit og olíukrít, í vestursal sýndi safn-
ið nýleg verk sem það hefur eignast og í
vestursal var leirlistarsýning Eddu Jónsdóttur
og Koggu sem var í Norræna húsinu í haust
með tónlist eftir Guðna Franzson. í október _
sýnir Dröfn Friðfinnsdóttir tréristur og mál-
verk en í nóvember verður Þorvaldur Þorsteins-
son með innsetningar í safninu.
Fjölbreytt i NÝLÓ, sjónþing
og norreenar kerlingar
Fjölbreytt dagskrá verður í Nýlistasafninu
í vetur. Ólöf Nordal og Gunnar Karlsson sýndu
í september. í október, nóvember og desémber
sýna svo Gabriel Orozco, Rirkrit Tiravanija,
Robert Thill, Steingrímur Eyfjörð, Margrét
Sveinsdóttir, Erik Dijkman, Finnur Arnar Arn-
arsson og Ingileif Thorlacius. Fram á vor
munu Svava Björnsdóttir, Guðjón Ketilsson,
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson, Bjarni Þórarinsson,
Níels Hafstein, Sólveig Eggertsdóttir og Guð-
rún Einarsdóttir sýna. í maí verður sett upp
sýning á verkum eftir hollenska listamenn en
sýningarstjóri verður Rúnar Lúðvíksson.
Sjónþingin halda áfram í menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi; fyrir áramót verða Helgi Þorg-
ils Friðjónsson og Guðrún Kristjánsdóttir tekin
fyrir. Einnig verður opnuð sýning á mynd-
skreytingum úr norrænum barnabókum í mið-
stöðinni 23. nóvember.
í Norræna húsinu verður meðal annars sett
upp forvitnileg sýning í febrúar og mars sem
ber heitið Norrænar kerlingar en þetta er sam-
norræn sýning þar sem íslenskir þátttakendur
verða tveir, Guðný Magnúsdóttir og Kogga. í
janúar verða sýnd verk eftir Ludvig Stiefel og
Gerhard R. Zeller. I febrúar sýnir Norðmaður-
inn Morten Krogvold ljósmyndir frá íslandi.
Tryggvi Ólafsson sýnir málverk í mars og
apríl og Antti Linnovaara frá Finnlandi sýnir
málverk í apríl og maí. í maí verður einnig
norræn samsýning á verkum gullsmiða í Nor-
ræna húsinu.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 12. OKTÓBER 1996 1 5