Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1990, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1990, Blaðsíða 15
Siglt eftir Rín Ferðatilboð frá Þýskalandi Á meginlandinu er stöðugt verið að hvetja ferðamenn til að ferðast fremur með lestum eða fljótabátum en að fljúga milli áfangastaða. Og ekki að ástæðulausu. Flugvellir eru alltaf að verða ásettari, en lestir taka við farþegum sínum og skila þeim beint inn í miðborgir í stað seinvirks bókunarkerfis á flugvöllum, biðtíma eftir flugtaki og flutninga milli borgar- kjarna og flugvalla. Flugvallahraðlest milli Frankfurt og Stuttgart Ný Lufthansa-hraðlest var tek- in í notkun í vor og gengur beint frá Frankfurt-flugvelii inn á aðal- brautarstöð í Stuttgart. Lestin fer tvisvar á dag og tekur 120 far- þega í sæti. A leiðinni bjóða braut- arþjónar upp á öl og kalda smá- rétti. Miðaverð er hið sama og flugmiðaverð sömu leið. Stuttg- art-hraðlestin stækkar brautarnet Lufthansa, en fjórum sinnum á dag ganga lestir frá Frankfurt- flugvelli til Dusseldorf, Bonn og Kölnar. Eftir Elbu-ánni til Magdeburg Tvö ný Rínarskip í skipafélag- inu Köln-Dusseldorf hefja sigling- ar í apríl ’91, þegar sumarferðir hefjast eftir ánni Elbu. Sjötíu ferð- ir eru áætlaðar fram í október frá Lauenburg til Bad Schandau, Dresden (6 dagar) og til Magde- burg-Bad, Schandau (4 dagar). Verð á 6 daga ferð er um 71.280 kr. og 4 daga ferð um 47.520. kr. Nýju skipin eru með 64 tveggja manna káetur og sérstak- ar vélar fyrir grunnsiglingar. Upplýsingar hjá: Köln-Dusseldorf, Deutsche Rheinschiffarhrt, Fran- kenwerft 15, D-W 5000 Köln 1. sími: 0221/2088235. Hansaborgirnar þrjár Boðið er upp á rútuferð milli Hansaborganna þriggja, Bremen, Hamborgar og Lubeck. Innifalin er gisting í þijár nætur (ein í hverri borg) hálft fæði óg skoðun- arferð um borgirnar. Hótelgisting er í mið-gæðafiokki en öll her- Rómantíska, gamla Hamborg við rætur Michaelis-kirkju geymir nú listasöfn, veitinga- hús og fornverslanir í 17. aldar- húsunum sem byggð voru fyrir fálækar ekkjur. bergi eru með baðherbergi. Verð á mann í tveggja manna her- bergi: 11.736. kr. Upplýsingar hjá: Tourismus-Zentrale, Ham- burg GmbH, Burchardstrasse 14, D-W 2000 Hamburg 1. Sími: 0451/1228190. Hinn hagsýni ferðamaður Ogildir leikhúsmiðar á margföldu verði! Kaupið ekki leikhúsmiða í London af götusölum, nema athuga fyrst verð í miðasölu! Af hverju er manni alls staðar sagt, að vonlaust sé að fá miða á söngleikina Miss Saigon, The Pliantom of the Opera, Les Miséra- bles eða Starlight ExpressZJEr það liður í að upphefja vinsældir þeirra? Undirrituð komst að raun um í sumar, að yfirleitt er hægft að kaupa miða á síðustu stundu á.flesta söngleikina í miða- sölu leikhúsanna eða í miðasölu á brautarstöðvum. Látið ekki götusalana plata ykkur! Þeir notfæra sér orðróminn um að von- laust sé að fá miða nema pantað sé löngu fyrirfram og reyna að þröngva miðum upp á ykkur á inargföldu verði — miðum sem jafnvel eru ógildir! Miss Saigon er nýjasti söngleik- urinn á fjölum Lundúnaleikhús- anna, en hinir eru búnir að ganga um árabil við feikna vinsældir. En það er ekki þar með sagt að útilokað sé að fá miða. Alltaf er eitthvað um að fólk sæki ekki pantaða miða. Um klukkutíma fyrir sýningu er byrjað að selja ósótta miða. Mætið þá eða jafnvel rétt áður en sýning hefst og oftar en ekki er hægt að ná í miða. En gætið ykkar! Framan við leikhúsið er setið fyrir ykkur. unni var mér tjáð, að ýrnsir stund- uðu þá iðju að selja gamla ógilda miða fyrir margfalt verð! Það væri hræðilegt að standa uppi með dýra miða sem veittu svo ekki einu sinni aðgang! Children of Eden er nýr söng- Ieikur sem verður frumsýndur 19 desember í Prince Edward-leik- húsinu. Hann gengur út á sköpun heimsins, flóðið og endar þegar örk Nóa nær að Ararat-fjalli. Bresku jólaleikritin eru ávallt byggð á einhveiju þekktu ævin- Hið upplýsta „Ieiksvið" Lundúna að kvöldlagi. „Allt er uppselt, vonlaust að fá miða,“ segja götusalar sem bjóða miða á margföldu verði. Mér var boðinn miði á 110 pund á Miss Saigon — litlar 11 þúsund krón- ur! Inni í leikhúsinu fékk ég miða (í dýrari sætakantinum) á 25 pund. Líka var hægt að fá ódýr- ari miða í verri sætum. í miðasöl- týri. Sú hefð ríkir að karlmaður er í helsta kvenhlutverki og kven- maður í stærsta karlhlutverki. Alltaf þekktir leikarar. Og þjóðfé- lagsádeilur fléttast inn í ævintýr- ið. Börn og fullorðnir bíða spennt eftir að sjá jólaleikrit ársins. í ár eru Öskubuska og Mjallhvít á jóla- sviðinu í London. O.Sv.B. t Örtröð Alpanna í draumsýn! Þar sem skíða- brekkur eru eins og hraðbrautir og allir bukka sig og beygja í bið- röðum Bandaríkjamenn eru svo hjartanlegir. Lyftuverðir söngla „hæ, hvernig líður þér í dag,“ eða „allt í lagi, elskan — eigðu góðan dag“, um leið og þér er ýtt af stað. Allt svo öðruvísi en í Olpunum, þar sem geðillir, gamlir lyftuverðir sitja í sólinni eða standa og slá snjó- inn undan skónum sínum. Þeir brosa lítt við byrjendum, sem bogra við að koma sér í t-lyftur! 1 Ameríku er enginn troðningur um hver er fyrstur í lyfturnar. Biðraðir í skipulagðri röð. Stakir skíðamenn hrópa yfir hópinn „hver kemur með mér,“ eins og góðir félagar og skiptast á barna- legum spaugsyrðum eins og Bandaríkjamönnum einum er lag- ið. Margar skíðabrautir eru líkar Á skíðasvæðum Alpanna er oft örtröð við lyftur í brekkum, einkum ef snjóalögeru takmörkuð. En í Bandaríkjun- um geta þeir þjálfuðu svifið fagmannlega yfir spegilsléttar “hraðbrautir". fjögurra akreina hraðbrautum — breiðar og spegilsléttar — snjó- plógar búnir að ýta öllum hólum og hæðum burt, en líka svipmóti! Jafnvel nálægir fjallstindar búa ekki yfir töfrum Alpanna. Þessar sviplausu brautir geta verið þreyt- andi, nema fyrir sérþjálfað skíða- fólk sem nýtur þess að bruna yfir þær. Bandaríkjamen hafa getað hrósað sér af meiri snjó sl. þrjú ár en Evrópubúar. Klettafjöllin hafa notið nær stöðugrar snjó- komu. En á móti kemur þessi níst- ingskuldi og mikli hæðarmunur. Skíðaþorpin standa flest töluvert hærra en þau evrópsku. En trjá- línan hér nær líka yfir 3.000 metra hæð og hið mjúka, bylgj- ótta landslag gefur ekki tilfinn- ingu fyrir mikilli hæð. Margir þola illa þessa miklu hæð og þjást af súrefnisskorti. Fæðið getur líka farið í magann á mörgum — ekki þó gæðin sem eru fyrsta flokks, heldur magnið! I skíðabrekkum eru risastórar sjálfsafgreiðslu-matarstaðir (búðu þig undir hamborgara!) — ekkert í líkingu við notalegu fjalla- kofana í Ölpunum! Og þeir líta spyrjandi á þig ef beðið er um vínglas með matnum. Trúlega arfur frá púritönunum! Og kvöldlífið — eftir skíðin — er svipur hjá sjón. Þar vantar róm- antíkina sem glas af „gluhwein“ gefur frá kráareiganda uppi í fjall- akofa við arineld. í staðinn reikar þú um í bandarískri „kringlu" — eða sest inn í bar í anda villta vestursins, sýpur á jarðarberja- vínblöndu á meðan þú hlustar á sveitalög gömlu kúrekanna. Ekki án töfra en vantar þennan ró- mantíska hugblæ! Þýtt og endursagt O.Sv.B. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. NÓVEMBER 1990 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.