Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.1990, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.1990, Blaðsíða 10
ÞÓRHALLUR GAUTI BÁRÐARSON Flotmagn Með skóflu skynseminnar moka ég freistingum heimsins útum lensport líðandi stundar. En freistingar fljóta því miður og finnast á fjörum. Finna mig í fjöru. Ættsjávar Ijóð Rauðmaginn býr útí reginhafi átta mánuði á ári. Hugsar um grunnsævi og þara og grásleppuna. Og æfir sig að púa. ÖIl hans framtíð er undir því komin að kunna að púa í hrognin sín. IMykur Höfuð í vök á ísilögðum vötnum hjátrúarinnar. Augu sem þyrstir eftir Sól Skugga Blómi skugga af blómi. Veturliði með gráan makka Veturliði með öfuga hófa. Höfundur er siómaður. ÞORVALDUR KRISTJÁNSSON Svanavatnið Hátterni hennar minnti á svanavatnið hvikult og leiftursnöggt augnaráð hennar rannsakaði hvern kima herbergisins. Hvöss augu hennar voru algjörlega andstæð dreymandi og tilgerðarlegu augnaráði Rembrands- myndarinnar. Rólegt fas hennar minnti á grafarþögn safnsins, en brimrót úthafsins ólgaði. Til þín berst ég á árflaumi tilfinninga. Þagnarmerki lagsins blandast saman við klapp hlustenda og endurkastast til mín eins og ugla að næturþeli. Ég gleymi aldrei brosinu um sumarið og augnatillitinu um haustið. Til þín Hægt fljúga orð úr munni, sem er beint til þín. Hægt tifar klukkan. Hægt liðast pípureykur úr pípu, sem beint er til þín. Hægt liðast penni við blað, þegar bréfið er til þín. Um sal flögra tónar úr hörpu er þú spilarþitt síðasta lag um vorið og mig. Höfundurinn er 12 ára Reykjavíkurdrengur og yngstur þeirra er fengið hafa Ijóð birt í Lesbók. RUNAR KRISTJÁNSSON Innlit Dagar. Þið sem eruð löngu liðnir. Undarlegt er vald ykkar. Þið knýið á, og fyrir ykkur opna ég hvenær sem er. Myndir ykkar hanga uppi á vegg í hugskoti mínu, og renna stundum saman í eina, stóra rammalausa víðáttu, sem kallar á mig með hárri rödd, sem enginn skilur nema ég. Höfundur býr á Skagaströnd. HÖRÐUR GUNNARSSON Af ferðum út á sléttunni Skuggi bifreiðarinnar teygði sig langt yfir heiðarnar Það var sem leiðin væri kunnug Fyrir handan og að baki okkar leyndust hættur sem aldrei finnast Allt var baðað í birtu vitund okkar eitthvað óljóst Hilling út á sléttunni undarleg úrkoma á einum stað líkt og þessi staður væri óspilltur Við setjumst regnvot andlit alvarleg Höfundur er ungur Reykvíkingur. Lífsreynslusaga Iútjaðri byggðar í Vestmannaeyjum stóð lítið hrörlegt hús. Þetta var í byrj- un aldarinnar. I húsinu bjuggu fátæk hjón með mörg börn. Fast upp við húsið stóð stór eikartunna. Hlutverk hennar var að safna vatni af þaki hússins þegar rigndi. Þetta var neysluvatn íbúa hússins og ekki um annað vatn að ræða. Skammt frá húsinu var vinsælt leiksvæði barna, gert af náttúrunnar hendi. Þarna lékum við krakkarnir okkur oft lengi dags og að mestu óáreitt. Stundum komu þó stór- ir strákar og gerðu okkur lífið leitt. Dag nokkum þegar við vorum þarna að leik — ég mun þá hafa verið fimm eða sex ára gamall — sáum við tvo stóra stráka koma í áttina til okkar. Þessir strákar áttu það stundum til að skaprauna okkur og hrekkja. Þeir gengu að tunnunni, horfðu ofan í hana og sögðu svo hátt að við hlutum að heyra: Nei, sjáið þið! Þarna flýtur dauður köttur ofan á vatninu! Síðan gengu þeir fram hjá okkur án þess að gera okkur mein. Forvitni okkar krakk- anna var nú vakin. Við gengum að tunnunni en vorum of smá til að geta séð ofan í hana. Ég mældi út hæð hennar með augunum og ég náði síðan með hendinni upp á löggina. Ég hífði mig upp þar til ég sá niður á vatnsflötinn. Þar var enginn köttur, mér til mikilla von- brigða. Strákarnir voru bara að plata. Ég hékk þarna á lögginni þar til kraftar þrutu, rann síðan niður með tunnunni, rak hökuna í löggina, og beit næstum í sundur á mér tunguna. Maður sem átti leið framhjá, sá til okkar, kom hlaupandi að og bar mig í fanginu til iæknis. Læknirinn saumaði sam- an tunguna og síðan var ég borinn heim og settur upp í rúm. Allir vildu vera góðir við mig. Geiri bróð- ir — hann var miklu eldri en ég — var far- inn að vinna í búð úti í bæ. Daginn eftir slysið kom hann heim úr vinnu með stórt tertustykki, sem hann vildi gefa mér af því að ég var lasinn. En þegar á reyndi gat ég ekki borðað tertuna vegna meiðsla í tung- unni. Vonbrigði mín voru mikil. Svona fín terta var ekki á boðstólum á hveijum degi. Ég bað mömmu að geyma tertuna á nátt- borðinu þangað til að ég gæti borðað hana. Mamma sá strax að tertan yrði óæt áður en sár mín gréru og spurði mig, hvort Bogga litla systir mín mætti ekki borða hana. Ég þvertók fyrir það. Daginn eftir tók mamma af skarið og sagði Boggu að borða tertuna. Ég sá góðgætið hverfa ofan í systur mína, kenndi sárt í bijósti um sjálfan mig og fór að hágráta. Ég leiði stundum hugann að þessu atviki og þá er ekki laust við að ég blygðist mín fyrir að hafa séð svona mikið eftir tertubit- anum þeim arna. Gísli Kristjánsson, Þorfinnsgötu 8, 101 Reykjavík. „Sviðinsvík undir Óþveg- insenni“ Eftir EIRÍK JÓNSSON Sjöunda janúar síðastliðinn endur- sýndi sjónvarpið samtalsþátt þeirra dr. Jakobs Benediktssonar og Hall- dórs Laxness um Heimsljós Hall- dórs. Þar kom fram að Halldór Laxness tók mið af Olafsvík þegar hann skóp Sviðinsvík Heimsljóss. I þættinum kom einnig fram að örnefnin Sviðinsvík og Óþveginsenni, sem koma fyrir í Heimsljósi, væru til í Ólafsvík eða nágrenni. Það er missögn. Samkvæmt upplýsingum staðkunnugra manna er þessi ömefni þar ekki að finna. Þessi missögn hefur slæðst í þáttinn þrátt fyrir að fáir menn munu unna meir reglu Ara fróða að skylt sé að „hafa það heldur er sannara reynist" en þeir dr. Jakob Benediktsson og Halldór Laxness. Báðir hafa lagt á hana mikla áherslu, Halldór m.a. með þessum orðum: „Alltaf hafa heldur það, sem sann- ara reynist, er siðferðilegt frumboðorð ís- lendinga, þó ég viti enga þjóð sem á erfið- ara með að fara eftir þessu boðorði“ (Skegg- ræður gegnum tíðina, bls. 65). Vegna þess- arar missagnar er eðlilegt að spurt sé: Hvað- an eru þá þéssi örnefni? Vegna þeirra sem aðhyllast staðreyndir skal gerð grein fýrir því. Árið 1915 kom út smásagnasafnið Tólf sögur eftir Guðmund Friðjónsson skáld á Sandi. Um þá bók sagði dr. Þorkell Jóhann- esson prófessor m.a.: „Þó varð Guðmundur að bíða með næstu bók sína, 12 sögur, fimm ár, frá því þær voru tilbúnar frá hans hendi og þangað til þær komu út 1915“ (Þorkell Jóhannesson: Lýðir og landshagir II, bls. 261). Guðmundur Friðjónsson hefur því lok- ið við þessar sögur 1910 eða fyrr. Ein sag- an í smásagnasafninu heitir Vofan og er sögusviðið af sumum talið Ólafsvík. Þorpið í sögunni nefnir Guðmundur Friðjónsson: Sviðinsvík undir Óþveginsenni (sbr. Ólafsvík undir Ólafsvíkurenni). Sögnin um að Svið- insvík sé nokkurskonar dulnefni á Ólafsvík í sögu Guðmundar kann að hafa orðið til þess að menn, óstaðkunnugir í Ólafsvík, hafi talið Sviðinsvík örnefni þar eða í ná- grenni. Vegna þess sem að framan greinir má telja næsta víst að Guðmundur Friðjóns- son sé höfundur þessara nafna. í sögunni segir frá kennara sem réðst til starfa í sjó- þorpi: „Ég fékk kennarastöðu í sjóþorpi nokkru, þar sem barnaskóli hafði verið hald- inn áður. Þar heitir Sviðinsvik undir Óþveg- insenni. Örnefnin eru kynleg. En ég komst sjálfur að raun um það, að örnefnin svara til staðháttanna og svejtalífsins þarna“ (Guðmundur Friðjónsson: Ritsafn I, bls. 316-317). í þessari tilvitnun má greina þann skilning að í sögu geti heiti sögusviðs bæði svarað til söguefnis og túlkað það. Undir þetta má taka. A.m.k. hefði Halldór Lax- ness varla getað valið sjóþorpinu í Heims- ljósi nafn sem hæfði betur söguefninu en: „Sviðinsvík undir Óþveginsenni". í heimahögum Guðmundar Friðjónssonar í Suður-Þingeyjaysýslu eru, eða voru, ör- nefni kennd við Óþveginn. Nægir að nefna Óþveginstungu (liklega býli sem nú nefnist Laugasel) og nefnt er í Reykdælasögu og Víga-Skútu. Vera má að Guðmundur Frið- jónsson hafi smíðað nafnið Óþveginsenni með fyrrnefnd örnefni og Ólafsvíkurenni í huga. Einnig má vera að nafnið Óþvegins- enni í sögu Guðmundar Friðjónssonar hafi orðið til þess að Halldór Laxness nefnir Úlf óþveginn landnámsmann í Heimsljósi. Raun- ar bar enginn nafngreindur íslenskur land- námsmaður þetta nafn en í Njálssögu er getið um Úlf óþveginn gestahöfðingja sem aldrei kom til Islands svo í sögur hafi verið fært. Má því telja líklegt að nafnið Úlfur óþveginn í Heimsljósi sé sótt í Njálssögu. Höfundur er eftirlaunamaður

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.