Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1986, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1986, Blaðsíða 12
og heimalningurinn fór að snasa í aðra hönd hans og veifa dindlinum. Góðan daginn, elsku stúfur, sagði Baldi. Heimalningurinn fann þumalfingur drengsins og saug hann, og hann hnykkti á þegar hann fann að fingurinn var þurr. Drengurinn var með stírumar í augunum og hann setti upp totu og sagði: Ég vil fara með mömmu. Elsku hjartans litli vin, sagði Baldi. Ég vii fara með mömmu, endurtók dreng- urinn. Þér verður kalt, stúfur, og þú færð kvef og hósta, og kannski leggstu í rúmið, og það er nú ekki gott, sagði Baldi. Ég má fara með mömmu eins og þú. Elsku vinur, sagði Baldi. Ég er ekki elsku vin, sagði drengurinn og kveinkaði sér undan heimalningnum. Nú, sagði Baldi. Ég er bara ekki elsku vin, sagði drengur- inn, og hann var með grátstafinn í kverkun- um yfir þessu heimsins mesta ranglæti. Hann vatt sér framhjá Balda og út úr dyrun- um, og heimalningurinn elti hann, eftir að hafa hrist sig og þefað af gamalli hnakkpútu við dymar. Er þau fóru af stað uppeftir sat drengur- inn framan í varpanum, og hann hafði ekki fengist til að kveðja mömmu sína. Hann sat með heimalninginn í fanginu, og grúfði sig oní hrokkinn feld hans og grét, en heimaln- ingurinn snasaði eftir fíngri og veifaði dindl- inum. Leiðin öll var upp í mót, og á köflum var hún svo brött, að hestamir urðu að beita tánum og stíga fast í jörð. Öftust var ráðs- konan á Móheiðar-Rauð, og á undan henni fór Stóri-Gráni gyrður reiðingi. Og reiðing- urinn hafði færst aftur á honum í brekk- „Það leið gáð stund, og bæði voru vakandi og sögðu ekki neitt. Baldi heyrði að skjálftinn óx íráðskonunni, og loks stóðst hún ekki mát- ið og sagði: Kannski. Hún vó sig upp úrpokan- um og kom yfir til hans og hann rýmdi til fyrirhenni, og hann fann að henni var óskaplega kalt. “ unni, og aftasta gjörðin var komin í sepann á honum, og honum var bölvanlega við það. Ráðskonan hallaði þrýstnum líkamanum fram á við, til að létta á Rauði í brekkunni. Og hún horfði hugstola framfyrir sig og sá hvemig Stóri-Gráni lyfti taglinu, með þokkafullri yppingu við hvert fótmál, en það orkaði enganveginn á hana. Hún heyrði vindstrokumar í hestunum, og hún sá gráan meiinn og bláan himininn, en samt fann hún ekkert af þessu, né heyrði af þessu né sá. Hún var að hugsa um drenginn, og lágur og þýður tónn seytiaði í gegnurn hana: Litli stúfur, ertu að gráta og spyija eftir mömmu. Langar þig til að fá mömmu. Elsku litli stúfur. Fáðu þér miðdagslúr og vertu góður, hjartakrúttið mitt. Mamma kemur bráðum aftur, ljúfurinn minn. Og þannig hélt tónninn áfram að seytla í gegnum hana og hlýja henni í kringum hjartað. Fyrr en varði lauk brekkunni, og hestinum léttist gangurinn. Af melbrúninni sást yfír Tjamarbotnana sem breiddu úr sér fýrir neðan skarðið. Þeir voru þaktir blástör og inn á milli sá í smátjamir eru voru bláar og tærar og grunnar. Er ráðskonan kom upp á melinn lyfti hún höfðinu og deyfðin hvarf úr augum hennar, og tregaþmnginn fíðlutóninn dó út í miðju stefi. Og hún leit yfir þessa bláu breiðu, hvar störin bylgjaðist fyrir golunni, og inni í höfði hennar fór að óma langdregin kvæða- stemma, glettin og titrandi, eins og andvar- inn í störinni. Svo héldu þau niður af melnum, og hreyf- ingar hestanna urðu lausari í liðunum. í óratíð höfðu smálækir runnið ofanúr Dögunarskarði, velst þar yfír stokka og steina og hjalað og gjálfrað og gutlað daginn langan, og af framburði þeirra hafði störin vaxið. Og með tímanum færðist hún í aukana og nam nýtt land. Störin var blá og safamikil, og hún var hið mesta kjam- fóður. Uppúr nóni höfðu þau lokið við að reisa tjaldið. Þau höfðu sprett af hestunum og þeim hafði verið stungið inn í girðingarhólfíð uppi í mónum, svo þeir hlypu ekki saman við stóðið. Og hestamir slógu töglunum og höfðu úti í hitanum, og þeir litu ekki á jörð, heldur stóðu með hálflukt augu og létu sér vel líka, og vom syfjaðir. Baldi gekk langt út á spilduna og sló breiðan skára, og það vatnaði í spor hans. Er hann hafði slegið dálítinn spotta, gekk hann fyrir múginn og sló í hann í bakaleið- inni. Hann var á skyrtunni og svitinn bogaði af honum í hitanum. Það beit vel á störina, en rakstrarkonan á ljánum þyngdi sláttinn. Hún hélt störinni við ljáinn, og á eftir var skárinn auður og graslaus. Og múgamir hrúguðust upp og vom eins og litskrúðugar fléttur til að sjá. Ráðskonan kom er hann hafði slegið nokkra skára, og hún byrjaði á fjarsta múgnum og fór að draga hann saman í beðjur, og hún var þögul og vann verk sitt af röskleik. Þú geldir mig innan stundar, sagði Baldi og brá grönum. Ráðskonunni brá, og hún roðnaði og ansaði honum engu. Skilurðu það ekki, sagði Baldi. Það er háðungin. Það er hin mesta ósvinna ef kvenmaður rakar í hæla manns. Er það, sagði ráðskonan. Baldi fór sér að engu óðslega. Hann tók upp langt og nýlegt brýni og spýtti á það báðumegin, eins og hann væri að brýna á harðvelli. Og er hann brýndi, glamraði í rakstrarkonunni þegar brýnið slóst í hana. Og dagurinn leið, og sólroðið húm ágústs- kvöldsins seig yfír landið. Og blástörin dökknaði, og tjarnimar urðu eins og myrkar sjónir gamallar seiðkerlingar. Kyrrðin var staðbundin, og það virtist vera hægt að ganga að henni og þreifa á henni, og það virtist vera hægt að rjóðra henni eins og ilmandi kvoðu um öll skilningarvit. Þegar myrkrið var orðið svo mikið, að ekki sást lengur til við raksturinn, sagði Baldi: Jæja góða, mér fínnst við ættum að hætta. Mér finnst við ættum, sagði ráðskonan. Baldi stakk orfínu á endann, niður í gljúp- an jarðveginn, og fjarlæg kvöldsólin sló ijóð- um glampa á fægðan ljáinn, og lárinn líktist litlu blysi í húminu. Er þau komu inn í tjaldið, setti að þeim hroll, og jarðvegurinn undir tjaldinu var rakur og gerði það hálfu verra. Hérerfúlt, sagði Baldi. Þau skriðu niður í pokana og reyndu að láta sér hlýna, og innan stundar vom þau sofnuð. Er leið á nóttina kom hægur andvari ofan úr Dögunarskarði. Neðarlega í skarðinu vom fjórar hryssur með folöldum og tvö trippi, og andvarinn fór framhjá hrossunum og niður móana. Á leið sinni flæddi hann yfír hólfið sem hestarnir vom í. Og hann vakti Stóra-Grána, og Stóri-Gráni fann lyktina af hryssunum. Hann flennti út nas- imar og kumraði og stóð á fætur og hristi sig. Hinir hestamir bærðu ekki á sér, og Stóri-Gráni hljóp að girðingunni og lyfti sér léttilega yfir hana. Hann hneggjaði fjörlega um leið og hann tók rokuna uppeftir. Baldi vaknaði við hneggið, og hann fann að það hafði kólnað, og hann heyrði á andardrætti ráðskonunnar að hún skalf í svefninum. Guðbjörg, sagði Baldi stundarhátt. Það umlaði í ráðskonunni, svo vaknaði hún og sjálftinn óx að miklum mun. Þú skelfur, sagði Baldi. Eins og hrísla, sagði ráðskonan. Djöfuls vandræði, sagði Baldi, ég held helst þú verðir að koma niður í til mín. Aldrei að eilífu, sagði ráðskonan. Ha, sagði Baldi. Aldrei að eilífu. Nú, sagði Baldi. Af því bara, sagði ráðskonan. Þú heldur þó ekki að ég fari að káfa í þér? sagði Baldi. Ráðskonan ansaði honum ekki. Þér hlýnar á augabragði, ef þú kemur, á því er ekki nokkur minnsti vafi, sagði Baldi. Það leið góð stund, og bæði vom vakandi og sögðu ekki neitt. Baldi heyrði að skjálft- inn óx í ráðskonunni, og loks stóðst hún ekki mátið og sagði: Kannski. Hún vó sig upp úr pokanum og kom yfir til hans, og hann rýmdi til fyrir henni, og hann fann að henni var óskaplega kalt. Skjálftinn vildi ekki hætta, svo hann lagði höndina yfír hana, og hún kom uppí fang hans og hjúfraði sig upp við hann. Eftir Ianga stund sagði hann: Þú skelfur enn. Nei. Þú titrar öll. Já. Er þér ennþá kalt? Nei. Enþútitrar. , Já. Þetta var honum hið mesta undur, og hann reyndi að grilla framan í hana í myrkrinu. Og hann reyndi að átta sig á þessu torkennilega óræði og þessum titringi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.