Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1985, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1985, Blaðsíða 12
ins hófust skipulega eftir aprílbyltinguna 1978, þegar kommúnistaflokkur landsins brauzt til valda og Taraki varð forsætis- ráðherra. „Þá komu sovézkir ráðgjafar til landsins til starfa í utanríkisráðuneytinu," segir Mangal, sem þar starfaði, „og fengu sínar eigin skrifstofur með mynd af Lenin í hverju herbergi. Þetta voru ráðgjafar í lögum, stjórnmálum og hagfræði." Taraki var sviptur völdum og tekinn af lífi 1979, en við tók Hafizulla Amin, keppi- nautur hans í flokknum, sem var ekki eins Sovétsinnaður. Sovétmenn gerðu svo inn- rás í landið í lok ársins. Amin var drepinn og Babrak Karmal settur í sæti hans. Brátt voru yfir 100.000 sovézkir hermenn komnir til landsins til að styðja við bakið á stjórn hans. ungir menn sendir TlL ÞJÁLFUNAR í MOSKVU Áhrif hinna sovézku ráðgjafa í utanrík- isþjónustunni jukust nú mjög. Fyrsta verk þeirra var að skipa svo fyrir, að allir þeir starfsmenn ráðuneytisins, sem ekki væru flokksbundnir kommúnistar, skyldu sendir til starfa í Sovétríkjunum eða fylgiríkjum þeirra í Austur-Evrópu. Mangal, sem fjall- að hafði um málefni Sameinuðu þjóðanna í 5 ár í ráðuneytinu og átti að flytjast til starfa í Nýju Delhí, var sendur til Moskvu í staðinn. Þá tóku Sovétmenn einnig að annast þjálfun ungra manna til starfa í utanríkis- Kaldir og rólegir horfast þeir íaugu við dauðann hrern einasta dag: Afganskir þjóðfrelsismenn ganga til vopna sinna í Pansjír-dal, þar sem aiit er nú í rúst Herkostnaður Sovétmanna er mikill. Hér lendir Antonov-22-berfIugvél á Kabukflugrelli með nýja hermenn. Til þessa hafa 10.000 Sovétmenn fallið. þjónustunni, og oft voru þeir úr fjölskyld- um háttsettra manna í flokknum. Bæði voru ungir menn sendir til þjálfunar í Moskvu, og sovézkir kennarar komu til Kabúl. Hvað varðar stefnuna í utanríkismálum Afganistans, þá tóku Rússar hana alger- lega í sínar hendur. Hinn raunverulegi utanríkisráðherra er Vasily Safronchuk, deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu í Sov- étríkjunum. Afganski utanríkisráðherr- ann, Shah M. Dost, fer undantekningar- laust um Moskvu á leið sinni til þings Sameinuðu þjóðanna. „Hver einasta orð- sending og yfirlýsing af háifu utanríkis- ráðuneytis Afganistans er undirbúin og endanlega afgreidd í Moskvu," segir Mang- al. Afskipta Sovétmanna gætir í stóru og smáu í öllu stjórnkerfinu. Þá hafa þeir einnig tekið að sér að semja sögu Afgan- istans til kennslu þar í landi. „Ég vissi um þetta verk, þegar ég var í Moskvu," segir Mangal. „Hópur sovézkra sagnfræðinga vann að því undir stjórn Akramovich, prófessors í Austurlandafræðum við há- skólann í Moskvu." Megináherzlan er Iögð á baráttu Afgana gegn brezkri heims- valdastefnu á 19. öld og á það öryggi sem sjálfstæði landsins nýtur nú í skjóli Sovét- ríkjanna vegna „bróðurlegrar aðstoðar" þeirra. SOVÉTRÍKIN NEFND 200 SlNNUM Á SÓLARHRING Sovétmenn boða þá kenningu, að þeir Afganir einir séu föðurlandsvinir, sem séu vinir Sovétríkjanna. Útvarpið í Kabúl minnist stöðugt á Sovétríkin og nefnir þau a.m.k. 200 sinnum á sólarhring. Banda- rískri heimsveldastefnu er úthúðað a.m.k. jafnoft og aðstoð Sovétríkjanna við Afgan- istan er lofuð. Ekki er hann öfundsrerður: Sovézkur ber- maður, sem Afganir bafa tekið höndum, sýnir skilríki sín. Sé lesin saga Sovétlýðvelda á borð við Uzbekistan og Tadzhikistan, má sjá greinilegar hliðstæður þess, sem er að ger- ast í Afganistan. Lönd persneskumælandi múslima í Mið-Asíu voru hertekin í lok 19. aldar, þegar Rússar leituðust af mikilli þrjózku og þrákelkni við að færa út landa- mæri hins víðlenda ríkis til suðurs og austurs. En keisararnir voru alveg sáttir við það, að íbúarnir lifðu sínu venju- bundna lífi óáreittir eftir sem áður, en eftir valdatöku bolsévika 1917 þurftu þeir óhjákvæmilega að stofna kommúnista- flokka í Mið-Asíu, sem síðan tóku að skipta sér af öllu. íbúarnir snerust gegn hinum nýju kúgurum og grimmilegt stríð hófst. Sovézkur rithöfundur segir ílýsingu sinni á stríðinu í Uzbekistan, að skærulið- arnir hafi verið menn á hestbaki, sem „hurfu í næstu þorpum bókstaflega fyrir framan augun á hermönnum okkar“. Það tók sovézka herinn fimm ár að brjóta á bak aftur mótspyrnuna í Tadzhikistan og önnur fimm ár að kúga bændur til hlýðni við stefnu Stalíns um stofnun samyrkju- búa. Varðandi Afganistan er þó sá munur á, að Moskva heldur því ekki fram, að landið sé hluti Sovétríkjanna, eins og var um Uzbekistan og Tadzhikistan. En ef til vill er mesti munurinn fólginn í því, hversu víðtæk mótspyrnan er í Afganistan og grimmdin mikil, sem Sovétmenn sýna við tilraunir sínar til að bæla hana niður. For- ingjar skæruliða, sem koma stundum í heimsókn til Pakistans og í auknum mæli til Vesturlanda, fullyrða, að í upphafi hafi stríðið við Sovétmenn verið takmarkaðra og hefðbundnara en það er í dag. Það var barizt um yfirráð yfir landsvæðum, og þeir réðust gegn mújahedín-skæruliðunum sjálfum. En þrátt fyrir margítrekaðar stórárásir á þá hefur þeim ekki tekizt að ganga milli bols og höfuðs á þeim, og þar sem þeim hefur ekki einu sinni tekizt að ná öruggum yfirráðum yfir landsvæðunum umhverfis helztu borgirnar í Afganistan, hafa Sovétmenn hert svo mjög á hernaði sínum, að svo virðist sem það sé ásetning- ur þeirra að eyða byggð að miklu leyti úti á landi. NÝJAR AÐFERÐÍR RtfSSA Gegn Skæruliðum Abdul Haq, æðsti andspyrnuforinginn í Kabúlhéraði, segir, að hin breytta stefna Sovétmanna í stríðinu hafi byrjað fyrir ári eða svo. Haq, sem er stór og stæðilegur maður, skeggjaður og skapmikill, var tek- inn tali í Peshawar, þar sem hann kom við á leið sinni frá Áfganistan til Evrópu. Hann og aðrir andspyrnuforingjar töluðu sérstaklega um nýjar aðferðir, sem Sovét- menn beittu nú í hernaði sínum gegn skæruliðum. í fyrsta lagi gerðu þeir ákafar loftárásir á sveitaþorp og landbúnaðarhér- uð með flugvélum og þyrlum. í öðru lagi sendu þeir sveitir til skyndiárása á þorp og landsvæði, þar sem þeir telja, að skærulið- ar hafist við, til að reyna að ráða niðurlög- um þeirra. í þriðja lagi eru svo snöggar og tafarlausar hefndaraðgerðir gegn óbreytt- um borgurum vegna árása skæruliða á sovézka hermenn og herstöðvar. „Mestur vandi okkar er sá, að þeir berj- ast gegn börnum okkar, fólkinu okkar, húsdýrum okkar og búfénaði," sagði Haq. „í Kabúlhéraði hefur um 90 af hundraði þorpanna verið eytt. Á síðustu tveim til þremur mánuðum hafa milli fimm og sex þúsund flóttamenn komið til Pakistans að- eins frá sveitunum umhverfis Kabúl.“ Pakistanskir embættismenn, sem ann- ast málefni flóttamanna, skýrðu frá því, að mikill straumur flóttamanna hefði að undanförnu komið til tiltölulega nýrra búða nálægt Peshawar. Það táknar ekki, að fjöldi flóttamanna í heild hafi aukizt. Starfsmenn flóttamannahjálpar Samein- uðu þjóðanna segja, að mesti fólksfjöldinn hafi flúið frá Afganistan á tveim fyrstu árunum eftir innrás Sovétmanna, þegar ættarhöfðingjar tóku þá ákvörðun, sem var fyrst og fremst pólitísk, að búa ekki við yfirdrottnun Sovétríkjanna. En bæði pakistanskir og vestrænir starfsmenn eru sammála um, að margir hinna nýju flótta- manna, en þeir eru milli þrjú og fimm þúsund á mánuði, sem koma til Pakistan, séu að flýja ógnir stríðsins sjálfs, sérstak- lega loftárásirnar. LÍTIL VON TIL LENGDAR í Baráttunni VlÐ OFUREFLIÐ í sjúkrahúsi Rauða krossins I Peshawar fá árlega um þrjú þúsund fórnarlömb stríðsins læknishjálp. Á síðustu fimm ár- um hafa samtökin farið margsinnis fram á það bæði við stjórn Karmals í Afganistan og Sovétríkin, að þeim yrði leyft að koma upp sjúkrahúsum í Afganistan til að veita særðu fólki læknishjálp, en hingað til hef- ur þeim málaleitunum verið neitað. Það tekur um 7 til 10 daga að flytja særðan mann, yfirleitt á múlasna eða úlfalda eða á bökum ættingja, frá Afganistan til Pakist- ans. Dr. Bjarne Ranheim, norskur læknir, sem er yfirmaður sjúkrahússins, segir, að algengustu sárin séu af völdum loftárása, jarðsprengja og bruna. Flóttamennirnir og andspyrnuforingj- arnir láta í ljós óbilandi trú á því, að þeir muni sigra í stríðinu gegn hinum sovézku innrásarmönnum. Þetta er að sönnu trú, því að þeir eru sannfærðir um, að Guð sé með þeim. Og þeir hafa trú á hinu afg- anska þjóðerni og þrautseigju og harð- fengi þjóðarinnar. Fólk, sem býr við við- stöðulausan áróður og fær engan frið fyrir honum, fyllist oft efasemdum. Stúdentarn- ir, sem eru við nám í Sovétríkjunum, geta snúizt öndverðir gegn hinu sovézka kerfi fremur en að verða sannfærðir og eldheitir marxistar. En fordæmin frá sovézku lýðveldunum í Mið-Asíu benda til þess, að aðferð sé þekkt, sem reynslan sýni að dugi með tím- anum. Á þriðja áratugnum börðust upp- reisnarmenn í Tadzhikistan af hörku og þolgæði — þeir voru kallaðir „bandíttar" (stigamenn, þorparar) í sovézku blöðunum alveg eins og afgönsku skæruliðarnir nú — en smám saman á mörgum árum lýjuðust þeir og biðu lægri hlut gegn ennþá meira úthaldi Sovétmanna, miskunnarleysi þeirra og yfirburðum, hvað vopn snerti. Þó að mótspyrna Afgana sé öflugri, og margt bendir til þess, að máttur hennar sé veru- legur, þá má búast við því, að stríðið í öræfum Afganistans kosti miklar fórnir, og skæruliðunum eru í þeim efnum meiri takmörk sett en óvinum þeirra. Á sama tíma styðjast Sovétmenn við ógnarvald hins þaulskipulagða ríkis, sem vinnur markvisst að því að brjóta niður vilja þjóðarinnar til sjálfstæðis. Sagan sýnir, hvernig lönd hafa orðið fylgiríki. Og það er greinilegt, að hverju Sovétríkin stefna, hvað Afganistan varðar. — Sv.Ásg. — þýtt og stytt úr „The New York Times“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.