Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1985, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1985, Blaðsíða 9
Sóisetur á Ingjaldssandi. Vatnslitamynd eftir Torfa Jónsson, 1984. Mér fannst ég loksins alveg frjáls aði mikið um þetta og hafði samráð við háskólamenn, en án árangurs." „Þetta heitir víst hönnuður núna,“ sagði ég, „málið er leyst.“ „Að vísu, en mér hefur gengið illa að sætta mig við þetta orð. En það finnst víst ekkert betra. Hönnun er margskonar nú á dögum. En mitt hönnunarstarf felst í bókagerð fram- ar öðru: Uppsetningu, leturvali, mynda- og pappírsvali. Sem sagt: Útlit bókarinnar. Ég hef mest fengizt við listaverkabækur, hef séð um útlitið á bókunum um Ragnar í Smára, Eirík Smith, Jóhann Briem, Mugg og Sverri Haraldsson." Allar þessar bækur eru afburða fagmannlegar í útliti. Letur- fræði eða týpógrafíu lærði Torfi i Listaháskólanum í Hamborg á árunum 1956—61. Hann hafði þá lokið verzlunarprófi frá Verzl- unarskólanum, verið í fjögur ár að læra fiðluspil í Tónlistarskólanum og „eins og grár köttur á myndlistarnámskeið- um í Handíðaskólanum", svo sem Torfi segir sjálfur. I Hamborg var Torfi að hluta í auglýsingateiknun, þar á meðal voru Ijósmyndagerð oggrafík. En hvers vegna fór fiðlarinn tilvonandi út á þessa braut? Kannski vissi hann ekki vel, hvað hann vildi, var óráðinn eins og títt er um unga menn. Torfi: „Ég var mjög óráðinn. Faðir minn átti og rak fyrirtæki, sem flutti inn snyrti- vörur frá Þýzkalandi, þar á meðal Nivea- krem. Hann vildi láta mig taka við fyrir- tækinu og mörgum hefði þótt það girnilegt boð. Mér leizt ekki illa á það og fór utan til Þýzkalands að kynna mér rekstur á svona fyrirtæki; lærði eitthvað í þá veru hjá firma, sem heitir Beiersdorf í Hamborg. Mér þótti það spennandi, en jafnframt komst ég á myndlistarnámskeið og stund- um fór ég með teikniblokkina mína niður að höfn, eða í gleðihverfið St. Pauli. Lúðvik hafði hvatt mig til að læra meira í mynd- list. Hann lét mig hafa meðferðis bréf til vinar síns í Hamborg, prófessors Mahlau, sem var áhrifamikill kennari og listamað- ur. Ég heimsótti hann fljótlega og hann tók mér vel. Og um haustið var ég einn þeirra 24 umsækjenda, sem inn komust af 300. Og þá er von að spurt sé: hvað um hina gullnu framtíð í Nivea-kreminu og allt það? Þarna varð gífurleg togstreita Guðrún og Vestfirðirnir. Vatnslitamynd eftir Torfa, 1984. segir Torfi Jónsson myndlistarmaður og skólastjóri um þau tímamót fyrir fáeinum árum, þegar hann hvarf frá öllu hér og hélt út í heim með einn bakpoka meðferðis símaskránni stendur Torfi Jónsson auglýsinga- teiknari. En Torfi er ýmislegt fleira, til dæmis skólastjóri Myndlista- og handíðaskólans. Ekki nóg með það; hann er listmálari með vatnslit sem sérgrein og nú um helgina lýkur sýningu hans á vatnslitamyndum í Norræna hús- inu. Sýninguna heldur Torfi í tilefni fimmtugsafmælis síns og jafnframt var haldinn konsert í Norræna húsinu, þar sem Ingveldur Hjaltested söng við undir- leik Jónínu Gísladóttur, sem er seinni kona Torfa. Torfi er liðtækur áhugamaður í fiðluleik og stundum stilla þau saman strengi heima hjá sér. Af þessu má ljóst vera, að Torfi hefur víðfeðma hæfileika. Sá er þó hæfileikinn ótalinn, sem mörgum þykir vænst um, en það er að vera hvers manns hugljúfi. Torfi hefur samt gengið í gegnum umþrotaskeið og kreppu, sem varð í lífi hans. Hann hefur sagt skilið við landið og dvalið erlendis í þrjú ár — en kom sem betur fer aftur. Á þessum tímamótum er Torfi bjartsýnn og telur að kreppurnar séu að baki, — en mikil átök við myndlistina framundan. Sýning hans í Norræna húsinu hefur kom- ið mörgum á óvart, sem vissu einungis, að Torfi er iistrænn bókahönnuður. En þarna sýnir Torfi vatnslitamyndir frá löngu tímabili, sem hljóta að teljast með því betra, sem sést hefur eftir íslenzka vatns- litamálara. Það kemur einnig í ljós, að þetta er garður, sem Torfi er búinn að rækta lengi; elzta myndin er frá 1961. En hvað er orðið um auglýsingateiknar- ann, sem stendur í símaskránni? Torfi: „Þetta starfsheiti hefur lengi fylgt manni. Én það er hæpið að kalla sig aug- lýsingateiknara. Ég er frekar það sem á ensku heitir designer. Það hefur lengi vantað orð yfir það. Lúðvík Guðmundsson skólastjóri var málræktarmaður og hugs- * LESBÓK.MORGUNBLAÐSINS 27. APRlL 1985 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.